(2)
15. apríl 2009 klukkan 22:08
Ég hef oft velt því fyrir mér hvað gerist þegar maður deyr. Ekki á þennan dæmigerða hátt um það hvað verður um hinn látna þegar hann deyr heldur hvað verður um stafrænu leifarnar sem sú manneskja hefur skilið eftir sig í gegnum ævina. Ég er að meina vefsíða, blogg, Facebook, Myspace, Twitter & allt hitt sem maður tekur sér fyrir hendur á internetinu. Hvað mun gerast á Facebookinu mínu þegar ég yfirgef þennan heim? Mun koma notification til allra vina minna um að ég hafi látið lífið? Eða munu eftirlifendur mínir senda starfsmönnum Facebook tölvupóst & biðja þá vinsamlegast um að fjarlægja aðganginn minn - þar sem ég hafi farið yfir móðuna miklu? Kannski er bara best að setja öll lykilorðin mín í erfðaskrána mína.
Þessi pæling tengist því ekkert að ég var að lesa bókina Áður en ég dey í páskafríinu & nei, ég er ekki að deyja - alla vega ekkert hraðar en þið hin.
Ég hef líka oft velt því fyrir mér hvað myndi gerast ef ég myndi hafa orð á öllum svona pælingum. Sumar hugsanirnar í kollinum á mér eru svo undarlegar & ég velti fyrir mér hinum ýmsustu hlutum. Ég ætti kannski að gefa út safn af pælingum & hugsunum - fólk gæti svo dundað sér við það að ákveða hvoru megin línunnar sem skilur að snilli & geðveiki, ég ætti að vera.
Mig langar í bækur. Mig langar til að lesa fullt af bókum! Mig langar til að vinna í bókabúð & lesa bækur & blöð & skoða ritföng. Ég er samt alveg búin að lesa ágætlega mikið af bókum á þessu ári - alla vega miðað við síðustu ár. Ég elska að lesa! ♥

Twilight ; New Moon ; Eclipse ; Breaking Dawn ; The Shack ; The Confident Woman ; Áður en ég dey
Mig langar alveg ótrúlega mikið til að finna mér svona lista yfir "100 books to read before you die" - ég endurtek að ég er ekki að deyja - & lesa bara allar bækurnar sem eru á þeim lista. Eða kannski bara að ákveða fyrir fram að lesa X margar bækur á ári. Ég veit ekki af hverju en svona markmið heilla mig. Það eru allt of margir hlutir sem að heilla mig. Ég er gjörheilluð manneskja. Af hlutum, hugmyndum, hugtökum & manneskjum. Ég elska lífið! ♥♥♥

Hérna til hægri eru bækurnar sem liggja núna á náttborðinu mínu.1. Pocket World Atlas - mjög hentugt ef ég gleymi því hvað höfuðborgin í Malasíu heitir & ligg upp í rúmi.
2. The Happy Prince (Oscar Wilde) - smásögusafn eftir þennan merka höfund. 1/5
3. Journey to the Center of the Earth (Jules Verne) - hin eina & sanna. Snæfellsjökull í allri sinni dýrð
4. The Pursuit of Holiness (Jerry Bridges) - bók sem ég fékk frá RMC, þetta er svona andlega snakkið mitt
5. Word and Spirit together (David Pawson) - er ekki byrjuð að lesa en mun lesa hana á leið til Bangladesh
6. Biblían - Andlega fæðan mín. Lifandi orð Guðs.
7. My Heart's Cry (Anne Graham Lotz) - var bara að opna þessa, held að hún sé mjög góð.
Bangladesh eftir fjóra daga. Lundúnir eftir þrjá.
Minntist ég á það að ég elska lífið?
♥♥♥♥♥♥♥
♥♥♥♥♥♥♥