//EitthundraðFimmtíuogSex
27. ágúst 2008 klukkan 22:32

Ég verð að viðurkenna það að ég er mjög stolt af því að vera Íslendingur þessa dagana, þá sérstaklega í dag. Ef að þú hefur ekki hugmynd um af hverju þá gæti hugsast að þú hafir búið í kassa undir Kringlunni síðustu daga. En samt ekki, því að þú hefðir eflaust frétt af glæstu afreki strákanna "okkar" [kjánalegt að eigna sér þá þegar maður þekkir þá ekki baun]. Íslenska handboltalandsliðið var að koma "heim" búa þeir ekki flestir erlendis? & þeim var fagnað ákaft. Ég fylgdist nú bara með í sjónvarpinu og fannst þetta allt vera svo yndislegt.
Mér fannst yndislegt þegar þeir hittu fjölskyldur sínar & mér fannst yndislegt þegar þeir voru niðri á Arnarhóli. Svo toppaði það yndislegheitin þegar þeir voru sæmdir fálkaorðunni. Þeir áttu það fyllilega skilið. :]
Fyrst að ég er komin í viðurkenningargírinn þá verð ég líka að viðurkenna fyrir ykkur að ég er smá skotin í einum handboltakappa. Held að mamma mín hafi áttað sig á því áðan þegar ég brosti út af eyrum; það var nefnilega verið að taka viðtal við hann. Haha! Últramegakjánalegt en satt. Það mætti halda að ég væri fjórtán ára skólastelpa með smá crush á einhvern frægan erlendan leikara. En nei, þetta er bara ég. Næstum því átján ára stelpa sem að hefur heillast örlítið af persónutöfrum Loga Geirssonar. Jájá, kemur á óvart eða ekki. [:

♥♥♥

En ég er farin að borða kanilsnúða
& hnerra.
♥♥♥
& hnerra.
♥♥♥
//EitthundraðFimmtíuogFimm
25. ágúst 2008 klukkan 21:24

Eftir mjög óformlega könnun þá hef ég komist að því að einhverjir lesa þetta blogg & á meðan ég hef ennþá mikla tjáningarþörf og fólk hefur áhuga á að lesa það sem ég tjái mig um þá býst ég við að ég kallist bloggari. Eða eitthvað svoleiðis.
Anywho, þá fór ég á The Dark Knight með Hugrúnu um daginn, loksins loksins loksins. Og ég get fullvissað ykkur um það að ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Stórgóð mynd enda frábærir leikarar og leikstjóri. Ef ég væri þú þá myndi ég tjékka á mynd sem heitir The Prestige & einnig á Batman Begins ef þú hefur ekki þegar séð þær. Ég fylgi að sjálfsögðu fjöldanum & fílaði jókerinn í tætlur. Mér fannst hann líka endalaust fyndinn; hló á M J Ö G óviðeigandi stöðum & svo á fleiri viðeigandi stöðum. Ég fór líka í afmæli til Hafsteins & Hafliða um daginn. Alltaf gaman að hitta fullt fullt af fólki. Sautjánda ágúst fór ég í eitt stykki brúðkaup. Það voru Sunna&Hjalti sem að ákváðu að verða hjón. Mjög falleg hjón. Það falleg hjón að ég fékk tár í augun í brúðkaupinu. [=
Nýliðin helgi var mjög fín. Byrjaði á því að fara í átján ára afmæli til Birnu frænku á föstudagskvöldinu. Helíum & fleira skemmtilegt! Á laugardaginn fór svo austur til pabba & skundaðist með hele familien á eitt stykki landbúnaðarsýningu. Já þú last rétt. Landbúnaðarsýningu. Pabbi minn er svo mikill bóndi sjáðu til. Við vorum þar alveg til sex, fórum svo heim að borða & komum svo aftur á kvöldvökuna. Kvöldvakan var mikið stuð eða alla vega voru Veðurguðirnir það. Rosalega gaman að syngja & dansa. Ég komst líka að því að tveir úr hljómsveitinni voru með mér í grunnskóla! Ég hafði ekki grænan Guðmund um það. Kvöldið endaði svo á niðudrepandi Árna Johnsen & frábærri flugeldasýningu! Menningarnótt hvað?
Sunnudagurinn var svo tekinn Ólympíulega snemma. Horfði á einhverja mynd & borðaði pönnukökur hjá ömmu. Yndisleg helgi. (=
Þessa dagana er ég bara mjög spennt yfir næsta vetri. Ég fór á fund á fimmtudaginn varðandi unglingastarfið & það er margt spennandi að fara að gerast. Alla vega hjá mér. Og svo veit ég að Guð ætlar að gera stórkostlega hluti. Skólinn byrjar á föstudaginn í næstu viku 5.september og ég hætti að vinna á þriðjudaginn. Ég ætla að vera eins lengi og ég get heima þannig að Eydís! Þú verður að passa rúmið mitt vandlega!

Hey! Ég gleymdi næstum því að minnast á hvað handbolti er últramegakúl þessa dagana. Silfur fosho. [=

Til ykkar

Til ykkar
♥♥♥♥♥♥♥♥♥
//EitthundraðFimmtíuogFjögur
19. ágúst 2008 klukkan 20:37
Les einhver þetta?
Now the rain is just washing you out of my hair
and out of my mind.
and out of my mind.
//EitthundraðFimmtíuogÞrjú
11. ágúst 2008 klukkan 21:59

Það er alltaf jafn skemmtilegt að lesa gömul blogg. Það er líka mjög hvetjandi að lesa gömul blogg því að nú langar mig til að blogga meira svo að ég geti líka lesið þetta blogg eftir tvö ár & skemmt mér konunglega yfir því hvað ég var [eða er] mikill kjáni. Fyrst af öllu vil ég tilkynna ykkur öllum að hlusta á hljómsveit sem heitir Leeland. www.myspace.com/leelandmusic Það besta við Mæspeis er að maður getur fundið endalaust af hljómsveitum þar & best er þegar maður dettur inn á hljómsveit sem að maður fílar í botn. Toppurinn á Leeland-tilverunni minni var þegar ég rakst á disk með þeim á Kotmóti; ég keypti hann að sjálfsögðu og hef nú lifað hamingjusamlega í viku með Leeland í eyrunum.
Kotmót, Kotmót, Kotmót. Ég veit ekki alveg hvað er hægt að segja um Kotmót. Það var allt svo friðsælt einhvern veginn. Engar dramatískar sveiflur, hvorki upp né niður, heldur bara róleg vellíðan alltígegnum mótið. & miðað við síðasta Kotmót þá er það bara mjög gott. Ég get vitnað um það hér & nú að síðustu nokkrar vikur í lífi mínu hafa verið mjög friðsælar. Þessi yndislegi himneski friður sem bara Jesús getur gefið manni. Mér finnst mjög mikilvægt að fá að upplifa þennan frið af því að fyrir ári þá var allt í ruglinu hjá mér. Fullt af breytingum sem að gerðu það að verkum að ég var mjög óróleg og stressuð. En núna nýt ég þess bara að vita ekki alveg hvað er að fara að gerast því að ég veit að líf mitt er í bestu höndunum, höndum Guðs.
Ég var voða dugleg um daginn & var heillengi [alltoflengi] ein heima með afa á meðan fjölskyldan skrapp í frí. Átti reyndar í smá erfiðleikum með að vakna á réttum tíma en eftir að hafa sofið yfir mig einn laugardaginn [þegar ég mæti 10 en ekki 8] þá ákvað ég að vera smá skynsöm & fara almennt séð fyrr að sofa. Til að vera algjörlega örugg um að vakna læt ég bæði símann minn & vekjaraklukku hringja á morgnana & ég skal sko segja þér að ég vakna!
Elskan mín hún Hugrún bauð mér í mat um daginn & það var yndislegt kvöld. Við höfðum ekki hist í meira en ár en það var bara eins og við hefðum hist daginn áður. Dásamlegt! Við töluðum svo rosalega mikið saman að við höfðum varla tíma til að borða dýrindis steikina hennar Hugrúnar sem hún brenndi bara smá! Við ætlum að endurtaka þessa frábæru samverustund á fimmtudaginn & skella okkur á The Dark Knight í kvikmyndahús. Já ég veit, ég er leim - ekki búin að sjá Heath Ledger í sínu besta hlutverki.

Flott flott, farin að horfa á The Evidence
& vera leim með foreldrum mínum.
& vera leim með foreldrum mínum.