Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðFjörtíuogNíu

30. júní 2008 klukkan 18:15
a

Ég er frábær bloggari.

//EitthundraðFjörtíuogÁtta

21. júní 2008 klukkan 17:55
a

Fyrsta vísbending um að veskið þitt sé of stórt::
Þú týnir kókdós ofan í því.

Þar sem að líf mitt samanstendur þessa dagana af Húsasmiðjunni, EM í fótbolta & því að þýða eitt stykki Alfa námskeið hef ég ekki neitt mikið að segja ykkur. Ekki nema það að ég týndi kókdós ofan í veskinu mínu í dag; þú varst samt örugglega búin að átta þig á því. Rétt að taka það fram að þetta var stór kókdós. Ég var reyndar búin að fatta að veskið mitt væri stórt aðallega út af því magni af hálsbrjóstsykrum sem veltast um það.

Heyrðu já, svo flassaði ég líka Bónusbílastæði á miðvikudaginn. Mamma var reyndar sú eina sem sá það en hún fékk áfall fyrir allt norðurhvel jarðar. Ég var reyndar ekki að perrast eitthvað heldur var ég einfaldlega að fara úr Húsasmiðjupeysunni. Svo illa vildi til að ég hafði gleymt því að hlírabolurinn sem ég var í innan undir var ekki alla leið upp á axlir heldur hvíldi fyrir neðan brjóstin til þess að hann væri nógu síður.

Annars var ég eitthvað aðeins að pæla í því áðan hvað það er fáránlegt að biðja um jafnrétti fyrir konur. Það meikar aðeins meira sense að biðja um jafnrétti fyrir alla. Því í rauninni er jafnrétti fyrir konur til staðar... Þær eru allar með jafn lág laun eða hvað sem það er sem verið er að væla yfir núna. Ég held að það verði seint hægt að kalla mig feminista.

Ég myndi frekar búast við styttri en lengri bloggum á næstunni.

//EitthundraðFjörtíuogSjö

14. júní 2008 klukkan 17:18
a

"Ertu að vinna hérna?"

Heyrðu nei, ég hangi bara hérna á laugardögum í Húsasmiðjupeysu af því að líf mitt er svakalega óspennandi. O__o

Æ, mér fannst þetta bara fyndið þegar einhver kona spurði mig að þessu áðan.

//EitthundraðFjörtíuogSex

12. júní 2008 klukkan 22:02
a

Ég myndi blogga núna en mér líður svona fjórum sinnum of kjánalega til að gera það. Var að skoða athugasemdir sem ég hef gert á www.hugi.is. Þær elstu gerði ég þegar ég var að verða 12 ára. Átsj.

Sex árum seinna er þetta svo langt í frá að vera kúl & eiginlega bara óþægilega kjánalegt. Mér líður eins og næst þegar ég fari í Kringluna muni fólk benda á mig, hlæja og segja: "Þetta er hún Helgacool af  Huga, hún skildi ekki einhvern asnalegan brandara þegar hún var að verða 12 ára & svo sendi hún inn brandara en endaði greinina á einhvers konar auglýsingu sem hefði betur átt heima á einkamálpunkturis." Btw, ég breytti nafninu mínu sem betur fer í kemisk, sem er aðeins skárra þótt það sé nördalegt.

HelgaCOOL biður að heilsa
Með brotna sjálfsmynd á tólf ára sjálfinu sínu

//EitthundraðFjörtíuogFimm

05. júní 2008 klukkan 18:37
a

10

Nei
11
Ástæður fyrir því að ég elska vinnuna mína.

1. Ég fæ að sjá skítuga iðnaðarmenn daglega.
2. Ég fæ meira að segja að sjá suma þeirra oft á dag
3. Ég er kölluð "stelpan" af föstustu viðskiptavinunum og þeir verða ánægðir þegar þeir "lenda á stelpunni" a.ka. þegar ég afgreiði þá
4. Ég fæ að segja "Húsasmiðajan, góðan dag" þegar ég svara í símann
5. Ég fæ líka að stama "Öhh... Ég veit ekki; bíddu aðeins" og rétta einhverjum öðrum símann.
6. Lyktin inn í lagnadeild sem ég veit ekki hvort fær mig til að langa að æla eða til að tjalda þar.
7. Málningardeildin ; Nuff said
8. Rauði bolurinn með Húsasmiðjumerkinu sem ég fæ að vera í alla daga.
9. Tíu stunda vinnudagurinn minn.
10. Það er svo brjálað að gera að ég næ varla að hugsa, hvað þá að skrifa lista um ágæti vinnunnar minnar
11. Tíminn flýgur....

Prófíll