Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðFjörtíuogFjögur

29. maí 2008 klukkan 19:21
a


"Er þetta strákur eða stelpa?"

Þessi spurning hljómaði á vinnustað mínum í dag. Fyrirbærið sem spurt var um var einmitt ég. Ég leit upp & fullvissaði manninn um að ég væri stelpa, hann sagðist sjá það núna þar sem ég liti upp. Það er ágætt. Það er alveg nóg að einhver haldi að maður sé strákur þegar maður horfir niður, ég ætla rétt að vona að ég líti út eins og stelpan sem ég er þegar ég lít upp. Ég ætla að kenna öllum síðhærðu strákunum um. Ef að það væri ekki orðið svona algengt að strákar væru með sítt hár þá hefði maðurinn pottþétt ekki haldið að ég væri strákur.

Annars er vinnan voða ljúf. Vinnufélagarnir eru skemmtilegir & vinnan sjálf mjög góð. Ég er bara á því að þetta verði fínt sumar, vinnulega séð.  Svo er víst planið að vera voða dugleg í öllu öðru. Ég ætla að reyna að fara í ræktina með mömmu & svo ætla ég bara að njóta lífsins. Tvö brúðkaup eru á planinu, annað í júní & hitt í ágúst. Pabbi minn er að fara til Noregs á morgun með allt sitt hafurtask og þar sem að ég fer ekki með þá ákvað ég bara að hirða bílinn. Verð sem sé með eitt stykki bíl í tíu daga. Vííí.

Jarðskjálftar eru að sjálfsögðu mikið umræðuefni núna. Ég var nú bara að rölta inn á baðherbergi í vinnunni minni, í gegnum lagnadeildina, þegar allt byrjaði að hristast. Fyrsta sem mér datt í hug var eiginlega bara að það væri stór trukkur að keyra fram hjá Húsasmiðjunni. En svo sagði einhver að þetta væri jarðskjálfti & um leið og seinni skjálftinn kom kallaði einhver að við ættum öll að fara út þannig að við hlupum út. Það er rosalegt að skjálfti frá Selfossi hafi fundist hér svona sterkur & alla leið til Ísafjarðar, heyrði ég.
Jarðskjálftar virðast vera í tísku þessa dagana, hvert eru þessir flekar eiginlega að fara ?

//EitthundraðFjörtíuogÞrjú

26. maí 2008 klukkan 19:47
a

Ég var að taka til í herberginu mínu & rakst á verkefnamöppuna mína síðan úr Íslensku 103. Gaman að fletta í gegnum öll þessi ritunarverkefni, kannski sérstaklega þar sem að ég fékk 10 fyrir hvert eitt & einasta þeirra. Kennarinn hafði fyrir því að setja gula post-it miða við þau verkefni sem henni fannst sérstaklega góð & vildi fá á einhverja sýningu. Meðal þeirra voru þetta frumsamda ljóð;;

Ég ætlaði að segja þér að þú stæðir á tánum á mér
en svo fattaði ég það
það hversu nálægt mér þú varst

og ég hætti að hugsa

Helga Þórarinsdóttir
6.febrúar 2007

//EitthundraðFjörtíuogTvö

26. maí 2008 klukkan 01:49
a
Vá!

Ég var búin að blogga heillangt blogg hérna & svo ýtti ég óvart á MySpace eða eitthvað & þá ákvað síðan að opnast í báðum gluggunum. Ég gæti ákveðið að taka þetta sem merki um það að ég ætti að fara að sofa eða bara að tilkynna ykkur það stuttlega að ég sé útskrifuð en nei. Ég hef ákveðið að synda móti straumnum & gefast ekki upp þótt að á móti blási & halda áfram að rugla. Eða réttara sagt byrja aftur að rugla.

En jú ég þarf víst að tilkynna ykkur það að núna er fyrsta ári mínu í MCI er lokið & næst þegar ég verð í skóla verð ég annars árs nemandi í Masters Commission, beat that. Þangað til þá ætla ég að njóta þess að vera heima hjá mér á Akranesi. Það var frekar súrrealískt [woohoo, skrítið orð] að pakka niður ÖLLU dótinu mínu í Völvufelli & koma með það ALLT aftur heim. Sérstaklega þar sem að ég er að fara að flytja þangað aftur í september. Kaldur raunveruleikinn sló mig nú samt utan undir þegar þetta var allt komið út úr bílnum & inn í húsið mitt. Að sjálfsögðu þarf ég á ÖLLU þessu að halda í sumar & jafnvel þótt ég muni ekki nota helminginn af fötunum þá er ákveðin huggun í því að vita að nánast allar mínar eigur eru samansafnaðar undir einu póstnúmeri. Þrjúhundruð, 300, Akranes. Það á eftir að taka smá tíma að venjast því að vera aftur heima en ég skal láta ykkur vita þegar ég verð farin að venjast fiskifýlunni aftur.

Mér var samt ekki sleppt úr skólanum án þess að ég yrði útskrifuð. Og ég skal sko segja ykkur að það tók heila helgi eða alla vega fór það fram á öllum þeim dögum sem vanalega teljast til helgarinnar. Á föstudaginn, nánar tiltekið á unglingasamkomu, gáfum við öll vitnisburð um hvernig skólaárið hefði verið & hvað Guð er búinn að vera að gera. Á laugardagskvöldið [klukkan er eiginlega orðið of mikið til að geta sagt í gærkvöldi] var einhvers konar útskriftarpartý sem snerist samt meira um Eurovision en samt eiginlega bara um að borða saman. Skiljiði? Í dag var svo formlega útskriftin okkar. Við vorum dregin upp á svið í okkar fínasta pússi & fengum afhent blóm, einkunnir & forláta myndaramma með nokkurs konar bekkjar/skólamynd. Þessi myndarammi var í molum ekki tveimur tímum seinna, eða alla vega glerið. Mér tókst á undraverðan hátt að brjóta glerið í myndarammanum. Afi sagði mér bara að fara til hans Gunna frænda sem á einhverja innrömunarstofu, ég held ég geri það bara. Maður verður að nýta sér klíkuskapinn.

Gunni frændi... Vá, það minnir mig á eitt vandræðalegasta augnablik ævi minnar. Þannig er nú mál með vexti að áður en hann Gunni frændi [sem er samt ekkert skyldur mér en anywhos] eignaðist þessa innrömuanrstofu var hann með framköllunarstofu niðrí bæ. Einu sinni atvikaðist það þannig að ég & mamma vorum að keyra niðrí bæ, við keyrum fram hjá téðri framköllunarstofu og mömmu fær þá hugmynd að heimsækja hann Gunna frænda í vinnunna. En þar sem að bílastæði voru af skornum skammti, þá eins og nú, var ég send inn til að athuga hvort hann væri ekki alveg örugglega að vinna. Og þar sem að ég var hlýðin ung stúlka þá hleyp ég inn & að afgreiðsluborðinu og ber upp þessa einlægu spurningu.
,,Er Gunni frændi að vinna?"
Þar sem að ég hafði bara ekki hugmynd um hvað hann hét annað en Gunni frændi [Gunnar, sure sure]. Eins & það hafi ekki verið nógu pínlegt að fara inn og spyrja um Gunna frænda þá getiði ímyndað ykkur skömmina þegar ég komst að því að ég var að tala við hinn eina & sama Gunna frænda. Ég held ég hafi skammast mín of mikið á þessu augnabliki til að nokkurn tímann geta munað hverju hann svaraði mér. Ekki eins létt á fæti fór ég út & tilkynnti mömmu að Gunni frændi væri að vinna. Þið getið ímyndað ykkur hvað var mikið hlegið af mér í þessari heimsókn okkar á framköllunarstofuna.

Ég hef verið ca sex eða sjö ára.

ÞETTA VAR HRÆÐILEGT!

//EitthundraðFjörtíuogEitt

22. maí 2008 klukkan 14:52
a

Takkfyrirtakk.
Tvöfaldir meistarar.


Annars er það bara að frétta að ég er búin að setja allt dótið mitt ofan í töskur & er að fara að flytja aftur heim á Akranes á sunnudaginn.

Kannski maður bloggi meira þá?

Kaká

//EitthundraðogFjörtíu

19. maí 2008 klukkan 22:34
Óskar, Erin & Ég

Hefurðu einhvern tímann skrifað einhverja dagsetningu svo oft niður að þér finnst eins og hún skipti mjög miklu máli fyrir þig persónulega?

Svona eins og þú hafir átt tannlæknatíma eða að einhver sem þú þekkir eigi afmæli?

Mér líður alla vega þannig eftir vinnuna í kvöld.

19/5 2008

Prófíll