Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðÞrjátíuogNíu

25. apríl 2008 klukkan 14:40
a

Gleðilegt sumar!

Vá, hvað ég hef eitthvað takmarkað að segja þessa dagana. Ætla bara að láta ykkur vita að ég er ennþá á lífi. Og jú bara að segja örlítið frá því sem ég er búin að vera að gera. Örlítið.

  • Það var sem sé hópur frá Masters Commission í Dallas í heimsókn hjá okkur og þau voru að hjálpa okkur með ráðstefnuna.
  • Við héldum ráðstefnu fyrir Masters Commission í Evrópu [MCE] dagana 9. - 11. apríl & það var alveg heilmikil vinna. Kynntist samt fullt af frábæru fólki & það var yndislegt að vita af því að það er fólk út um alla Evrópu að gera svipaða hluti og við erum að gera hér í skólanum.
  • Þegar ráðstefnan var búin og hópurinn frá Dallas farinn kom norski MC hópurinn og var með okkur í nokkra daga áður en við fórum saman í trúboðsferð til Akureyrar
  • Íslenski og norski Biblíuskólinn fóru sem sé saman í trúboðsferð. Fórum á miðvikudaginn og stoppuðum á Skagaströnd á leiðinni. Á Akureyri gerðum við síðan heilmikið.
  • Við fórum til dæmis í sund tvisvar og urðum brún. Fórum líka í algjöra túristaferð með norska hópinn til Mývatns og skelltum okkur í einhver jarðböð þar.
  • Annars vorum við með Biblíulestur, opið hús í kirkjunni, tvenna tónleika [aðra niðrí miðbæ] & svo tókum við þátt í sunnudagssamkomunni, auk þess að fara í skóla til að bjóða fólki á opna húsið.
Og núna er smá rólegur tími. Skelltum okkur í bænagöngu í tilefni sumardagsins fyrsta í gær og fórum svo í risagrill heima hjá Óla Z.

Mánuður í útskrift.
Séykkur

//EitthundraðÞrjátíuogÁtta

14. apríl 2008 klukkan 12:20
Æj, ég er aðeins of upptekin þessa dagana.
Við það að eiga yndislegt líf.
Yndislegt líf með Guði.

Úff, ég er svo spennt yfir öllu því STÓRA  sem Guð hefur fyrir mig.
Ég get ekki beðið eftir framtíðinni.
&

Ég get það!

a
McDallas!
Love

//EitthundraðÞrjátíuogSjö

04. apríl 2008 klukkan 12:36
sleikjó

Hæhó

Þið ykkar sem gangið með gleraugu kannist eflaust við það vandamál þegar þau verða skítug. Eins eiga þau til að skekkjast og bogna. Einu sinni fyrir langalöngu í janúar lagðist ungur drengur ofan á mig og gleraugun mín fóru algjörlega í rugl. Eftir það voru blessuð Diesel gleraugun mín alltaf að renna af nefinu mínu með þeim afleiðingum að ég þurfti sífellt að vera að ýta þeim upp aftur. [og minnti óheyrilega mikið á Hiro nokkurn Nakamura, fyrir utan það að ég er ekki JapaniEn í gær breyttist þetta allt. Ég & Gísli vorum í vinnunni okkar góðu og ákváðum að rölta í gleraugnabúð í Smáralindinni. Þar létum við rétta og strekkja gleraugun okkar og einnig voru þau þrifin. Allt ókeypis. Ókeypis dekur fyrir gleraugun mín. Og viti menn! Ég sé aftur! Það er ekki lengur klessa á öllu því sem ég sé, ég var farin að halda að heimurinn væri bara svona klesstur. Þetta var í gær en núna eru þau á góðri leið með að verða skítug aftur. Þetta var mjög skammvinn gleði.

Annars erum við bara núna að klára kennslu hjá David Pawson, hann er að klára að kenna okkur um Opinberunarbókina. Mjög áhugavert & fær mann virkilega til að hugsa um það hvað maður sé að gera. Og ekki bara það heldur hvernig ég er að gera það sem ég er að gera. Af því að ég er kristin þá skiptir það alveg jafn miklu máli hvernig ég geri vinnuna mína & hvernig ég geri það sem ég er að gera í kirkjuna. Guð kallar ekkert alla til að gera einhver 'sérstök kristileg störf' heldur vill hann að maður sé 'Kristilegur' í því sem maður gerir.

Áðan kom tíu manna hópur frá Dallas, Texas til okkar. Þau munu gista hjá okkur um helgina, fimm stelpur í viðbót inn í herbergið til mín & Eydísar. Úffpúff. Ég held reyndar að þetta verði bara gaman. Þau verða með okkur á ráðstefnunni sem er í næstu viku. Næstu vikur verða frekar busy & skemmtilegar & eiga örugglega eftir að fljúga hjá. Og svo alltíeinu verður kominn 25.maí & það kemur sumarfrí!
Vííí

//EitthundraðÞrjátíuogSex

01. apríl 2008 klukkan 18:09
a

Allt í plati!

Í tilefni þess í dag er fyrsti apríl ætla ég að segja ykkur eina svona gabbsögu. Það er algjörlega undir ykkur sjálfum komið hvort þið viljið hlaupa fyrsta apríl eður ei. En það væri nokkuð töff ef að þið mynduð öll vilja gabbast, mér þætti ósköp vænt um það alla vega.

En já einu sinni voru tvær stelpur. Þær hétu Felga & Fata. Ókei, ég veit að þetta eru skrítin nöfn en eins og ég sagði þá er þetta bara platsaga. En já, Felga & Fata voru bestu vinkonur og einu sinni voru þær rosalega emo. Fata var emo af því það vildu allir tala við hana um ekki neitt & Felga var emo af því að það vildi enginn tala við hana. Og þegar hún sagði ,,enginn" þá meinti hún ákveðnar manneskjur.

Felga & Fata voru að tala saman && Felga ákvað að segja fullt af skemmtilegum staðreyndum við Fötu, sem var að tala við Jarðgrjót. En Jarðgrjót var að tala við bróður sinn Jarðmann. Og Fata sagði Jarðgrjóti allt það sem Felga hafði sagt henni. Og Jarðgrjót sagði Jarðmanni það. Og alltíeinu vissu bara allir hvað Felga hafði verið að segja. Og Felga var ekki einu sinni að tala við Jarðgrjót & Jarðmann.

Ef þið föttuðuð það ekki þá er þessi saga sönn
Með örlitlum nafnabreytingum

Annars er David nokkur Pawson að kenna í skólanum þessa vikuna. Hann er að fræða okkur um Opinberunarbókina. Mjög áhugavert; í morgun var hann með kynningu á bókinni & ég glósaði fimm blaðsíður í A4 stílabók. Í endanum var ég komin með ágætis krampa í hægri hendina, eins gott að ég er búin að fara í stífkrampasprautu. [Hehehe] Ég & Eydís settumst svo niður áðan og lásum slatta í Opinberunarbókinni upphátt og pældum & pældum.

En núna erum ég, Eydís & Óskar búin að ræða mikið saman á Msn [í sitt hvorum enda hússins nota bene] og við höfum ákveðið að fá okkur að borða. Óskar er veikur þannig að ég fæ að keyra fína Bensinn hans ! Varúð varúð, ég er að fara út á göturnar eftir örfáar mínútur.

Babúbabú!

Prófíll