//EitthundraðÞrjátíuogTvö
28. febrúar 2008 klukkan 21:09
París & Afríka
Jójó, í tilefni þess að ég legg land undir fót á morgun & fer til Afríku [með tveggja daga stoppi í París] þá ætla ég að skilja eftir svona spurningalista sem þið getið dundað ykkur við að fylla út. Svo þegar ég kem aftur heim þann 12.mars þá get ég skemmt mér yfir svörum ykkar.
1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Dirty or Clean:
7. Tattoo eða göt:
8. Þekkjumst við persónulega?:
9. Hver er tilgangurinn með lífinu?:
10. Myndirðu þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?:
11. Besta minningin þín um okkur?:
12. Myndir þú gefa mér nýra?:
13. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
14. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?:
15. Getum við hist og bakað köku?:
16. Hefurðu heyrt kjaftasögu um mig nýlega?:
17. Finnst þér ég góð manneskja?:
18. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?:
19. Finnst þér ég aðlaðandi?:
20. Hverju myndirðu vilja breyta í mínu fari?:
21. Í hverju sefurðu?:
22. Kæmirðu í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?:
23. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?:
24. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Saknið mín.
Love
[Blogg fyrir neðan]
Love
[Blogg fyrir neðan]
//EitthundraðÞrjátíuogEitt
25. febrúar 2008 klukkan 14:22

Home Sweet Home
Þegar maður er farinn að fara inn á sína eigin bloggsíðu og hneykslast yfir bloggleysi þá held ég að það kalli mjög hátt á blogg. Í augnablikinu sit ég við eldhúsborðið heima hjá mér og er að horfa á móður mína mata dagmömmustrákana sína tvo. Mér finnst mjög sérstakt að vakna heima hjá mér núna [eða þessa fáu daga sem ég hef vaknað hér síðan í haust]. Sunneva litla systir mín vekur mig oftast með því að kalla á mig og þegar ég opna augun þá eru fullt af einhverjum börnum að horfa á mig sem ég hef aldrei séð áður. Svona er það að eiga dagmömmu sem mömmu.
En ég ætti kannski að segja ykkur eitthvað hvað ég er búin að vera að gera í bloggleysinu? Fyrir tveimur vikum hittumst við næstum öll heima hjá Lilju og gerðum okkur glatt kvöld, borðuðum saman og spiluðum Fimbulfamb auk þess að fíflast mikið. Ég prédikaði líka einn sunnudaginn upp á Akranesi. Fyrir viku voru dásamlegir styrktartónleikar og gengu þeir mjög vel, miklu betur en við þorðum nokkurn tímann að vona. Svo erum við bara búin að vera að læra & vera töff eins og venjulega í Biblíuskólanum.
Núna um helgina fórum við til Akureyrar með unglingastarfinu. Áætlaður aksturstími var tæplega sex tímar en ég held að ferðin hafi tekið um 7 tíma. Endalaus stopp hér og þar. Þegar við komum á staðinn var haldin mögnuð miðnætursamkoma og svo var farið að sofa klukkan tvö. Eða þannig ; ég var ekki sofnuð fyrr en um 3 & ég er víst orðin ein af þeim eldri sem að fer fyrr að sofa. Laugardagurinn byrjaði á lofgjörðar- og bænastund og eftir kvöldmat var haldið í sund. Sumir fóru reyndar fyrst í klifur en ég fór bara í sund og svo rölti ég með Lilju, Eydísi og Gísla niðrí bæ. Ég & Lilja duttum niður á dúndurútsölu á skóm & keyptum okkur hvor sitt parið af Converse skóm (= Eftir risa pizzuveisla var samkoma. Það sem að ég heyrði af henni hljómaði eins og þetta væri æðisleg samkoma en ég lá bara uppi í svefnpokanum mínum með hausverk og eitthvað rugl.
Í gær var bara byrjað á því að taka til & svo vorum við með söfnuðinum á Akureyri á þeirra samkomu. Rútuferðin heim gekk svo mjög hratt miðað fyrri ferðina. Þangað til að við komum í Borgarnes. Þannig var mál með vexti að rútan varð eldsneytislaus, en bílstjórinn rétt náði að beygja inn á Atlantsolíuplanið rétt fyrir utan Borgarnes. Og þar stoppaði rútan, fimm metrum frá dælunni. Og þá fóru bara allir út að ýta! Ýttum rútunni að dælunni en viti menn; á dælunni stóðu vingjarnleg skilaboð ,,Dæla óvirk" Þannig að við fórum aftur út & ýttum henni að næstu dælu. Þegar olían var loksins komin á rútuna þá fór hún ekki í gang. En á endanum fór hún í gang og við komumst heil á húfi heim. Eða alla vega ég, mér var hent út við göngin þar sem að Hjalti kom og náði í mig.
Og núna er ég bara heima hjá mér. Ég fór í dag og sótti um vinnu í Húsasmiðjunni og fékk vinnuna á staðnum. Þannig að í sumar verð ég í rauðri skyrtu og afgreiði skrúfur. Já takk fyrir takk. Ykkur er öllum boðið í heimsókn til mín í sumar & í heita pottinn.
En núna eru einungis fjórir dagar þangað til að ég fer til Parísar.

Skórnir mínir! <3

Au Revoir
[eða eitthvað svoleiðis
]
[eða eitthvað svoleiðis
//EitthundraðogÞrjátíu
14. febrúar 2008 klukkan 22:54

Gleðilegan Valentínusardag!
Í tilefni þess að ég elska ykkur öll ótrúlega mikið þá ætla ég að skella inn einu ástríku bloggi. Hvert einasta orð er slegið inn með sérstaklega miklum kærleika á mína dásamlegu fartölvu. Og ef að þið finnið ekki ástina drjúpa af hverju einasta atkvæði þá mæli ég bara með því að þið gefið ykkur sjálfum rækilegt knús frá mér. Því að eins og ég er búin að tönnslast á þá er þetta sérstaklega kærleiksmikið blogg.
Ég er búin að þjást af miklu bloggleysi undanfarna daga. Eða meira af orðaleysi. Ég er örugglega búin að byrja þetta blogg svona sjötíu sinnum. En þar sem að ég hef voðalega takmarkað að segja nema það að ég sé voða þreytt & væri mjög mikið til í að leggjast upp í rúmið mitt og kúra með koddanum mínum;; þá ætla ég bara að láta ykkur vita að;;
Laugardaginn 16.febrúar verða stórglæsilegir tónleikar í Fíladelfíu, Hátúni 2, til styrktar Afríkuferð okkar í Biblíuskólanum. Fram kemur fjöldi af mögnuðum tónlistarmönnum og verður mikil stemning.

Frjáls framlög!
Takkfyritakk.
Takkfyritakk.
//EitthundraðTuttuguogNíu
06. febrúar 2008 klukkan 17:22
Hæ!
Fyrir ykkur sem að höfðuð áhyggjur þá er tölvan mín ekki í hakki.eða alla vega ekki eins miklu hakki & ég hélt hún væri komin í Nei, þannig er það að straumbreytirinn er í hakki. Það gleður mig mjög mikið því að straumbreytir er eilítið ódýrari heldur en ný tölva. Og þar til að ég kem því í verk að kaupa nýjan straumbreyti þá get ég bara notað straumbreytinn hans Óskars! Þökkum Guði fyrir bróður minn í tölvutegund.
Núna eru bara tuttuguogþrír dagar þangað til að við förum út til Frakklands & þaðan til Burkina Faso. Þar af leiðandi erum við komin á fullt í fjáröflun. Einn sunnudaginn héldum við RISA kökubasar & ætlum að halda annan þann 17.febrúar. Strákarnir eru á fullu að skipuleggja styrktartónleika sem verða haldnir laugardaginn 16.febrúar. Við erum síðan öll í því að reyna að fá fyrirtæki til að auglýsa í stórum kynningarbæklingi fyrir kirkjuna sem gefinn verður út á næstunni.
Í þessari viku erum við búin að vera með tvo gestakennara [Teddi í gær & Krisín Jóna í dag] & á morgun kemur sá þriðji, Þórhallur Heimisson, & ætlar að kenna okkur trúarbragðafræði. Það er alveg ótrúlega gaman að fá svona mikið af kennurum með frábærar kennslur. Ég held að í næstu viku verði líka einhverjir gestakennarar.
Ég er búin að vera rosalega dugleg í nýju vinnunni minni. Mömmu finnst það algjör brandari að ég sé að vinna við úthringingar þar sem að ég er með hræðilega símafóbíu, en svona er Guð stundum; húmoristi út í gegn.
Vá, hvað það er miklu skemmtilegra að skrifa ruglblogg. Þið megið búast við einhveri steypu frá mér fljótlega. Ég vona það alla vega. Plís Helga kveiktu aftur á ofvirka ímyndunaraflinu þínu & skrifaðu einhverja undraverða steypu á síðuna þína. Ókei? Það væri flott.
&& ég er ekki að fara að gifta mig
hvað sem Eydís kann að segja.
Fyrir ykkur sem að höfðuð áhyggjur þá er tölvan mín ekki í hakki.

//EitthundraðTuttuguogÁtta
02. febrúar 2008 klukkan 17:48

Ég nenni ekki að blogga.
Tölvan mín er í hakki.
Sjáumst.