//EitthundraðTuttugu&Tvö
31. desember 2007 klukkan 12:17

Gleðilegt nýtt ár!
&&
Takk fyrir það gamla
Nenni ekki að gera einhverja ítarlega umfjöllun um árið.
//EitthundraðTuttuguogEitt
24. desember 2007 klukkan 15:09
Eitt örlítið blogg áður en jólin koma ókei? Ég hef samt örugglega ekkert skemmtilegt að segja þar sem að ég er eiginlega bara búin að vera að vinna. Á föstudaginn horfði ég samt á Transformers [LOKSINS] með Dodda og var það mjög skemmtilegt og spes. Minniháttar rifrildi um sæng & eitthvað fleira skemmtilegt. Eftir að hafa næstum því sofnað þá skelltum við okkur í afmæli til Guðnýjar Erlu. Og í þetta skiptið fórum við heim á Kristilegum tíma. =)
Síðasta laugardagskvöld voru einhvers konar litlu jól heima hjá Dabba. Það byrjaði voðalega sakleysislega með því að þau skiptust á gjöfum, svo varð það aðeins ógeðslegara þegar þau ákváðu að drekka kók & bryðja freyðivítamíntöflur. Það freyddi frekar mikið út úr þeim & Hannes, sem drekkur ekki gos og var með mjólk, ældi. Flott flott.
Myndband ----> [http://youtube.com/watch?v=2ZBuljVUb6s]
Við urðum síðan að fara út þar sem að hinir á heimilinu voru farnir að sofa & við vorum með soldið mikil læti. Enduðum í Ártúninu á N1 eins og oft áður & Þór var svo sniðugur að gleyma bíllyklunum sínum á afgreiðsluborðinu. Konan kom og rétti mér lyklana þannig að ég ákvað bara að keyra! Yesyes, var mjög dugleg að keyra sjálfskiptan bíl í fyrsta skiptið. Mér fannst ég samt eiginlega vera að svindla; eins & ég þyrfti að gera miklu meira en ég var að gera. Svo var reyndar keyrt á mig, en ég var kyrrstæð. Þannig að það var ekki mér að kenna! En það var samt hálf kjánalegt.
Núna er ég bara heima hjá mér alveg að fara að fara í jólafötin.
Til hamingju með jólin!
Núna er ég bara heima hjá mér alveg að fara að fara í jólafötin.
Til hamingju með jólin!
//EitthundraðogTuttugu
19. desember 2007 klukkan 13:06
Í morgun fékk ég mjög óvænt símtal. Símtal frá manneskju sem að ætti að vera mun virkari í mínu lífi en hún er nú þegar. Manneskja sem ætti í rauninni að hringja í mig bara til að heyra í mér. Og í morgun gerðist það. Í heilar sex mínútur og þrjátíuogfimm sekúndur talaði ég við þessa manneskju. Ég var svo hissa að ég meikaði örugglega ekkert sense, en þetta made my day.
Í Völvufellinu er ekki búið að vera net síðan á laugardaginn.Við Ég er búin að tuða mjög mikið & tel að við séum að snúa aftur til Steinaldar, nema í þetta skiptið er það mun verra, af því að ég veit hverju ég er að missa af. Ég efast um að þeir á Steinöldinni hafi verið jafn háðir Internetinu og ég er.
Á laugardaginn var ég að passa systkini mín & skásystkini mín [Erdnu & Óla börn]. Gamla fólkið skellti sér á jólahlaðborð út í Viðey & ég sá um krakkaskarann. Eftir að börnin voru mjög pössuð plataði ég Dodda með mér í afmælið til Helene Ingu. Þar var alveg heill hellingur af fólki & ótrúlega gaman. Skynsemin tók öll völd þegar ég fór að sofa klukkan fimm, vaknaði klukkan tíu til að fara á brauðsbrotningu klukkan ellefu & fór svoí vinnuna frá eitt til tíu.
Mánudagskvöldið var vídeókvöld í Völvufellinu. Sunna & Óskar fóru útum allan bæ að leita að Napoleon Dynamite og fundu hana loksins í Árbæ, ásamt tveimur öðrum myndum. Við horfðum á Napoleon Dynamite & Evan Almighty langt fram á nótt og þegar ég vaknaði í gær horfði ég á Kung Fu Hustle með Óskari & Hjalta. Ég hef bara eitt orð yfir þá mynd; STEIK
Í Völvufellinu er ekki búið að vera net síðan á laugardaginn.

En ég er að pæla í að fara að selja fólki sem ég þekki ekki föt.
Ókei töff.
Ókei töff.
//EitthundraðogNítján
13. desember 2007 klukkan 16:51

Ég hef komist að þeirri einföldu niðurstöðu að ég ætti að njóta þess að vera þar sem ég er í augnablikinu. Ástæðan fyrir því er sú að eftir áramót verð ég útumallt! Biblíuskólinn MCI verður nefnilega að vera viðstaddur allt sem gerist á þessu litla jarðarhveli. Eða svona næstum því;
Í janúar verður Ný Kynslóð mót í Vestmannaeyjum
& það ætla allir að mæta!
Þar á meðal þú (=
Í febrúar verður unglingamót á Akureyri
& ég veit ekert hvort þú mátt koma með
En það væri ofur töff
Í mars ætlum við að fara til Burkina Faso!
& það er sko í Afríku
Stoppum væntanlega í París
Í apríl verður Masters Commission Europe ráðstefna
& hún verður haldin hér á Íslandi
Það verður fjör
Í maí verður trúboð á Stykkishólmi og Ísafirði
Vika á hvorum stað
Og það var einhver að tala um Höfn í Hornafirði líka
Og svo frelsast bara þetta land, ókei? En já svo að ég missi mig nú ekki alveg í þessu glæsilega framtíðarplani þá er ég að fara í jólaboð í kvöld. Elskulegu skáforeldrar/skólastjórar mínir Erdna & Óli eru að bjóða okkur Biblíuskólanemunum heim til sín í jólamat & fínerí. Á morgun er svo væntanlega síðasti skóladagurinn fyrir jólafrí. Þetta verður reyndar ekkert mikið jólafrí fyrir mig þar sem að ég þarf að vinna. Það eru allir velkomnir að koma & heimsækja mig í vinnuna!

Takk fyrir bæ.
//EitthundraðogÁtján
09. desember 2007 klukkan 00:22
Stundum held ég að ég sé rugluð. Stundum veit ég það. Til dæmis eins og í dag þá vaknaði ég klukkan 11 [eftir 8 tíma svefn;
Þessir jólatónleikar sem ég fór á voru númer átta í röðinni hjá mér, síðan á mánudaginn. Ég fór á alla jólatónleika Fíladelfíu plús generalprufuna þannig að ég ætti að geta raulað með á aðfangadagskvöld. Við í Biblíuskólanum kláruðum líka að gera upp íbúð sem að kirkjan á í vikunni. Við rifum teppið af, sköfuðum undan því [sem að leiddi til þess að ég fékk megablöðru á þumalputtann að nafni Guðmundur], máluðum íbúðina & bónuðum gólfið. Mega duglegt lið hér á ferð. Öhm öhm öhm, á morgun þarf ég að vakna ofursnemma og sækja mömmu & Hjalta út á flugvöll. Á mánudaginn fer ég í litun & lita hárið á mér ljóst, finally! Og svo er bara næsta vika eftir & svo vinna vinna vinna.
Spennandi líf. Ég hef svo gjörsamlega ekkert til að blogga um þó að ég hafi sjaldan verið jafn upptekin. Fönní stöff, & já ég er farin að tala heví furðulega. Og skrifa líka. Jess jess. Ókei bæ.
//EitthundraðogSautján
04. desember 2007 klukkan 15:06
Ókei hér koma tveir punktar um það sem ég er að gera þessa vikuna
Jólatónleikar
&&
Jólatónleikar
&&
Jólatónleikar
Jessörí. Eigum við ekki bara að segja það gott?
Kommentið kommentið wherever you are
Þar að segja ef þið eruð á lífi
[Þetta er wannabe blogg dagsins]
Kommentið kommentið wherever you are
Þar að segja ef þið eruð á lífi
[Þetta er wannabe blogg dagsins]