//EitthundraðogSextán
28. nóvember 2007 klukkan 22:43
Einu sinni var lítil stelpa. Litla stelpan átti fallegan iPod sem að geymdi alla tónlistina sem hún hlustaði á í frítíma sínum. Einn góðan veðurdag var litla stelpan að hlusta á fallega iPodinn sinn í stóra bílnum sem mamma hennar var að keyra. Nokkrum dögum seinna áttaði litla stelpan sig á því að hún hafði ekki séð fallega iPodinn síðan hún hafði hlustað á hann í stóra bíl mömmu sinnar. Litla stelpan varð mjög sorgmædd en hún var svo upptekinn að hún gleymdi að hringja í mömmu sína til að biðja hana um að finna fallega iPodinn sinn. Daginn eftir fann hún lausan tíma og hringdi úr bleika símanum sínum í mömmu sína og spurði hana hvort hún hefði séð fallega iPodinn. Mamman lofaði að leita og fann loksins fallega iPodinn í stóra bílnum. Nokkrum klukkutímum seinna var litla stelpan komin með fallega iPodinn sinn í hendurnar. Og þá fattaði hún að bakið af bleika símanum sínum var týnt.
Anywho!
Sagan hérna fyrir ofan er mjög sönn og var átakanleg reynsla fyrir litlu stelpuna. Litla stelpan hefur nýlega fundið sig mjög djúpt sokkna í verkefni af alls kyns toga. Þá sérstaklega af tölvulegum toga. Fyrir ykkur sem vitið það ekki þá er litla stelpan með þrjú verkefni í fararteskinu & var að ljúka við hið fjórða í dag;
Litla stelpan er einnig mjög einmanna þessa stundina. Þrátt fyrir að það séu trilljónogtuttugu - eða tuttuogníu - online á hinu merka samskiptaapparati MSN þá virðist enginn hafa áhuga á að tala við litlu stelpuna. Og litla stelpan situr ein inni í stofu - of þrjósk til að fara að sofa - bíður og vonar að einhver hefji samræður við sig. Rétt í þessu voru tveir sambýlingar litlu stelpunnar að ganga inn í húsið.
Taka skal sérstaklega fram að litla stelpan er búin að vera í skrítnu skapi síðustu daga og lýsir það sér í undarlegri tjáningarþörf á bloggsíðum landsins. Óttist eigi - þetta líður hjá - eða það vonar ríkisstjórnin.

O__o - Hin ógurlega vikulega ritgerð sem litla stelpan þarf að skila af sér sem Biblíuskólanemi
O__o - Hið merka verkefni að koma Ný Kynslóð Biblíunni yfir á skiljanlegt mál - prófarkarlestur & fleira
O__o - && að lokum þarf litla stelpan að prófarkarlesa yfir mánaðarlegt fréttabréf sem var þýtt úr mjög brenglaðri norsku.
O__o - Hið merka verkefni að koma Ný Kynslóð Biblíunni yfir á skiljanlegt mál - prófarkarlestur & fleira
O__o - && að lokum þarf litla stelpan að prófarkarlesa yfir mánaðarlegt fréttabréf sem var þýtt úr mjög brenglaðri norsku.
Litla stelpan er einnig mjög einmanna þessa stundina. Þrátt fyrir að það séu trilljónogtuttugu - eða tuttuogníu - online á hinu merka samskiptaapparati MSN þá virðist enginn hafa áhuga á að tala við litlu stelpuna. Og litla stelpan situr ein inni í stofu - of þrjósk til að fara að sofa - bíður og vonar að einhver hefji samræður við sig. Rétt í þessu voru tveir sambýlingar litlu stelpunnar að ganga inn í húsið.
Taka skal sérstaklega fram að litla stelpan er búin að vera í skrítnu skapi síðustu daga og lýsir það sér í undarlegri tjáningarþörf á bloggsíðum landsins. Óttist eigi - þetta líður hjá - eða það vonar ríkisstjórnin.
Ef þú hafðir ekki áttað þig á því þá er litla stelpan
ég.
[&& ef þú finnur bleikt bak af Nokia síma máttu
endilega láta
mig vita]

//EitthundraðogFimmtán
26. nóvember 2007 klukkan 15:10

Augnablikspæling sem enginn skal taka of alvarlega;;
eru sjö ár of mikill aldursmunur?
Haha, ég býst fastlega við því að ég fái milljónogtuttugu spurningar um það hver sé sjö árum eldri en ég. En þetta er einungis fræðileg spurning þar sem að ég er ekkert að pæla í neinu svoleiðis. Í rauninni þegar ég skyggnist djúpt inn í heilahvelið á mér þá er ég ekki að pæla í neinu. Ég er bara, er eiginlega ekkert að pæla í framtíðinni. Nema kannski að pæla í því að læra síðasta versið fyrir minnisversaprófið á morgun.
Ég er nefnilega eiginlega alveg hætt að plana lífið mitt sjálf. Það endar hvort sem er oft í klessu þannig að ég hef bara ákveðið að treysta Guði fyrir lífinu mínu og gera bara það sem hann vill.

Því að ég þekki þær fyrirætlanir sem ég hefi í hyggju með yður - segir Drottinn - fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju að veita yður vonarríka framtíð.
[Jeremía 29:11]
Ég held að ég ætti að skrifa eitthvað töff núna. Til dæmis hvað Glætan bókakaffi er notalegur staður eða kannski hvað unglingasamkoman á föstudaginn var mögnuð. Kannski ætti ég að skrifa um það hvernig Guð er að breyta fólki. Eða kannski ekki að skrifa neitt. En í rauninni hef ég ekkert að segja þannig séð. Ekki nema það sem ég er búin að segja nú þegar. Fyndið hvernig sumir hlutir hætta bara að hafa áhrif á mann þó að maður hugsi jafn mikið um þá.

GEIT!
[Ég hvet ykkur öll til að kommenta á þetta blogg;
sem virðist hafa verið skrifað
af
undarlegri manneskju]

//EitthundraðogFjórtán
19. nóvember 2007 klukkan 18:52
Þegar maður sefur til eitt er mjög eðlilegt að dagurinn virðist styttri en vanalega. Þegar maður er búinn að vera á fullu í tvær vikur er mjög eðlilegt að á fyrsta frídegi sofi maður til eitt. Þegar maður er í Biblíuskólanum MCI er mjög eðlilegt að það komi tvær vikur þar sem allt er á fullu. Samkvæmt þessum útreikningum mínum er líf mitt mjög eðlilegt í augnablikinu.
Ég er komin heim frá Svíþjóð með smá stoppi í Kaupmannahöfn. Mér leið eins og algjörum túrista þegar ég gekk yfir Radhuspladsen og yfir að Strikinu. Ég hef nefnilega aldrei komið til Danmerkur áður - ég tel flugvöllinn ekki með í því - og sneri mig þess vegna nánast úr hálsliðnum við að skoða umhverfi mitt. Ég smakkaði brenndar möndlur sem að voru mjög ljúffengar - þar til hálfum poka seinna er ég var komin með ógeð af þeim - && líka franska pylsu. Verandi nýkomin frá Svíþjóð fannst mér ég mjög alþjóðleg þegar ég borðaði franska pylsu á Strikinu í Kaupmannahöfn. Við gistum í Copenhagen International Masters Commission og flugum síðan heim daginn eftir.
Við komum sem sé heim á miðvikudaginn í síðustu viku. Fimmtudagsmorguninn fór í að selja miða á jólatónleikana og síðan seinnipartinn fórum ég & Eydís með Önnu Jónu í Kotið. Þar var alveg yndislegt mót sem að ég held reyndar að hafi ekki síast nógu vel inní okkur Biblíuskólanemana þar sem að við vorum að sjá um eldhúsið á mótinu. Engu að síður yndislegt mót. Við komum heim af því í gær & hér er ég svo núna. Eiginlega alltof þreytt miðað við hvað ég svaf lengi. Í kvöld ætlum við stelpurnar - ég & Eydís & Lilja & Sunna - að hafa stelpukvöld. Dagskráin er ekki alveg komin á hreint en það verður alla vega gaman.
Annars er ég bara nokkuð góð. Fyrir utan eitt atriði sem að ég ætla ekkert að tala um hér. Ekkert alvarlegt þannig séð, eiginlega bara ekki neitt. Bara óþarfa rugl. [=

See the way he holds the stars in his hands
See the way he holds my heart
With just one word of your mouth were the heavens made
With just one breath of your lips the foundations were laid
With just one dream in your thoughts you have wanted me
With just one pulse of your heart you are wooing me
God is a lover looking for a lover
So he fashioned me
God is a lover looking for a lover
So he formed my heart

With just one pulse of your heart
I'm in love

<3
//EitthundraðogÞrettán
11. nóvember 2007 klukkan 13:22
Nu skal vi prodda svenska! Nei, annars ég kann ekkert í sænsku. Ekki nema að syngja eitt alltof glaðlegt lag;
Hallelujah; jeg elskar dig Jesus!
En já ég sit hérna við eldhúsborðið hans Rickard Lundgren og horfi yfir garðinn hans. Ótrúlega flott útsýni; típískt jólapóstkort. Snjór yfir öllu & svona lítil sænsk bryggja út á á sem að rennur hérna fram hjá. Guðrún Marta, Óskar && Hjalti eru að útbúa hádegismatinn handa okkur. Lilja & Gísli eru úti á bryggjunni að fíflast með veiðstöng og myndavél. Voða kósí stemning.
Við erum búin að vera nánast á fullu síðan við komum hingað. Við byrjuðum á því að fljúga til Kaupmannahafnar & tjilluðum aðeins á flugvellinum þar. Ég smakkaði eitthvað Starbucks dæmi; ekki kaffi samt, það er ennþá ógeðslegt. Síðan tókum við lest til Malmö, stukkum þar út && skiptum um lest sem fór til Katrineholm. Alltíallt tók ferðalagið frá Völvufelli 11 til Katrineholm þrettán tíma. Ég & Eydís sofum í kjallaranum hjá Rickard Lundgren og fjölskyldu & það er mjög þægilegt. Á miðvikudaginn fengum við kennslu frá forstöðumanninum í Agabe-center um mismunandi persónuleika. Eftir hádegið fórum við síðan í bæ sem að heitir Eskilstuna. Fórum þar út á göturnar & buðum fólki á samkomu. Í kjölfarið af þeirri samkomu frelsuðust tveir.
Fimmtudagurinn var frekar kósí dagur. Fengum kennslu frá Mr. Andersson [Jonas] && vorum á nettu tjilli allan daginn. Enduðum daginn á að fara í keilu & gekk það misvel. Ég vann samt bæði Hjalta og Gísla í seinni umferðinni! =] Á föstudaginn fengum við síðan kennslu frá Rickard um kirkjuplöntun. Seinnipartinn fórum við síðan í bæ sem heitir Nyköbing og vorum að bjóða fólki í svona kristilega félagsmiðstöð. Það mætti alveg hellingur af ókristnum & ég talaði mjög mikið við tvær ókristnar stelpur sem voru þarna. Það var mjög góð hljómsveit þar að spila & ég fílaði hana í tætlur. Wrestling With Angels heitir hún og þú getur fundið hana á mæspeis ;]
Í gær fengum við síðan að sofa út. Hallelúja! Fórum í kirkjuna og vorum bara eitthvað að dunda okkur við að taka til. Báðum líka með ykkur í andanum þegar bænagangan var á Íslandi! Um kvöldið fórum við svo út að rölta að reyna að veiða fólk. Við stelpurnar [Ég, Eydís, Lilja & gMarta] fórum á McDonalds og veiddum einhverja 8-10 múslimastráka sem að voru svona 14-16 ára. Fórum með þá til baka og vorum eitthvað að spjalla við þá. Gekk bara nokkuð ágætlega held ég. Síðan fór ég með strákunum að rölta um allan bæinn & mér var KALT! Hitti líka tvo fulla stráka & ég get sagt ykkur að þeir eru alveg jafn ruglaðir og fullir Íslendingar.
Áðan vorum við á samkomu í Hvítasunnukirkjunni á staðnum. Ég vitnaði á ensku & það gekk alveg ágætlega. Það gekk alla vega betur en ég hélt. Gísli vitnaði líka && við erum öll búin að vera eitthvað að tjá okkur á ensku. Svo þegar við förum til Afríku þurfum við held ég öll að prédika, á ensku í þokkabót. Ég verð bara einhver allt önnur manneskja þegar þessi vetur klárast!

Ástarkveðjur frá kaldri Svíþjóð ;*
//EitthundraðogTólf
05. nóvember 2007 klukkan 21:56
Ég er að fara til Svíþjóðar í nótt! Fer klukkan hálf fimm héðan & flugið fer klukkan tíu mínútur yfir sjö. Núna er ég í rauninni bara að bíða eftir því að buxurnar mínar tvær þorni sem eru á ofninum btw & peysurnar mínar tvær sem að hanga uppi. Þá get ég hent þeim oní tösku & vonandi lokað.
Mig langar ekki að blogga!
Síja.