Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðogFjögur

27. september 2007 klukkan 17:57
All I Want in This Lifetime is You
&
All I Want in the Whole World is You
--||---
Ég var úti að labba rétt áðan og þá uppgötvaði ég eitt lag á iPodnum mínum. Það snerti rosalega mikið við mér og þess vegna langaði mig að deila textanum með ykkur;

Is there anyone that fails
Is there anyone that falls
Am I the only one in church today feelin' so small

Cause when I take a look around
Everybody seems so strong
I know they'll soon discover
That I don't belong

So I tuck it all away
Like everything's okay
If I make them all believe it, maybe I'll believe it too
So with a painted grin, I play the part again
So everyone will see me the way that I see them

Are we happy plastic people
Under shiny plastic steeples
With walls around our weakness
And smiles to hide our pain
But if the invitation's open
To every heart that has been broken
Maybe then we close the curtain
On our stained glass masquerade

Is there anyone who's been there
Are there any hands to raise
Am I the only one who's traded
In the altar for a stage

The performance is convincing
And we know every line by heart
Only when no one is watching
Can we really fall apart

But would it set me free
If I dared to let you see
The truth behind the person
That you imagine me to be

Would your arms be open
Or would you walk away
Would the love of Jesus
Be enough to make you stay

Stained Glass Masquerade - Casting Crowns

//EitthundraðogÞrjú

25. september 2007 klukkan 17:13
a

iPod snúrur hverfa í Völvufelli 11. Það er staðreynd. Ef þú átt slíka snúru og hefur í hyggju að flytja hingað inn einn daginn þá myndi ég hugsa alvarlega um það að hafa hana í bandi. Eða bara í rassvasanum. Ég er búin að týna minni og Lilja týndi sinni um daginn. Sú snúra gæti hins vegar verið komin í leitirnar en mín virðist vera horfin af yfirborði jarðarinnar. Oh jæja, það eiga fleiri iPod á þessu heimili; ég fæ bara lánað þangað til að mín ákveður að snúa aftur til síns heima.

Ég og Kötulíus vorum ofurtöffaðar á laugardagskvöldið og mættum langfyrstar í innflutningspartý til Árna og Tómasar. Samræðurnar voru einstaklega þvingaðar fyrst en eftir þriggja tíma dvöl í agnarsmárri íbúð sem var troðfull af manneskjum fór ég bara heim með Lilju. Á sunnudaginn tókum ég og Lilja síðan nett tjill á daginn. Ég fylgdi henni á einhvern fund og þaðan fórum við síðan í Hagkaup. Skemmtum okkur stórvel þar við að skoða allt og ekkert; keyptum okkur að lokum Domino's pizzu og fórum heim með hana og ís og lágum í leti. Klukkan hálf fimm var síðan samkoma þar sem að ég og Gísli tókum skírn. Fyrst leit allt út fyrir það að skírnin yrði alveg síðast af því að það gleymdist að kveikja á vatninu. En rétt fyrir prédikunina skírði Hjalti mig og Gísla í surprisingly miklu og heitu vatni. Eftir samkomuna fór ég með stórfjölskyldunni [mínus pabbi & Þorfinnur] út að borða á Aski.

Í gær var ég bara heima. Gerði nánast ekki neitt. Og í morgun klukkan ellefu tók ég verklega bílprófið. Og viti menn ég stóðst það. Helga Þórarinsdóttir er að fara að fá bílpróf á laugardaginn; á afmælisdaginn sinn góðir hálsar! Sumir ættu að taka Helgu sér til fyrirmyndar en þar sem afmæli sumra eru löngu liðin og bílprófið kom ekki á þeim degi er það víst of seint. Skutlaðist með passamyndina til Sýslumannsins og reddaði einhverjum pappírum. Afi skutlaði mér síðan niðrí Fíladelfíu þar sem að ég þurfti að skrifa á enn fleiri pappíra. Skrifaði undir eitthvað sem segir að ég sé formlega komin í Hvítasunnukirkjuna á Íslandi. Tók svo minnisversaprófið ógurlega og það gekk nokkuð vel. Var nokkuð sátt í þær tíu sekúndur sem liðu þangað til að ég fékk næsta minnisversablað. Miklu lengri vers og fleiri. Veeei. En ég held að maður læri þetta bara líka eins og hitt. Og í sambandi við það þá ætla ég að fara að líma þessi vers inná innanvert heilahvelið á mér. Eða leggja mig. Bæði kemur sterklega til greina.

//EitthundraðogTvö

21. september 2007 klukkan 17:47
a

Bara af því að ég er búin að vera að lesa öll blogg sem til eru á þessu jarðríki þá ákvað ég að blogga fyrir þá sem að gætu átt það á hættu að ráfa inn á mitt blogg. Ókei smá ýkjur kannski en þetta er ekki fjarri lagi. Það verður allt bara svo dautt hérna þegar við erum fá heima. Erum akkúrat þrjú núna í Völvinu. Ég, Gísli og Óskar. Óskar og Gísli eru báðir að skrifa sína ritgerð, sem að ég er btw búin með, þannig að ég sit hérna og er eiginlega að láta mér leiðast. Leiðist samt ekki þannig séð, heldur hef bara ekkert að gera. Skiljiði? :]

É
g veit að ykkur dauðlangar öll að heyra um mitt yndislega spennandi daglega líf í skólanum þannig að ég kem hérna með aðalatriðin. Í gær var kennsla í ICI [ég á að muna hvað þetta stendur fyrir; International Christian eða eitthvað] bæði fyrir og eftir hádegi. Christian Maturity heitir bókin sem við erum að fara í og er hún voðalega fræðandi og skemmtileg. Við erum með voða kósí kennslustundir, lesum bókina bara saman og þar sem að hún er á ensku fáum við að heyra ýmis afbrigði af hinum og þessum enskum orðum. Framburðurinn verður sérstaklega aðlandi þegar maður er búinn að lesa lengi og kannski mikið í einu og svo koma nokkur orð í einu sem að eru frekar krefjandi. Specific er eitt af þessum orðum sem að vefjast of mikið fyrir manni þegar maður er búinn að lesa lengi. En það er bara heimilslegt þegar að sú manneskja sem að er að lesa ælir orðinu út úr sér.

Sumir eru farnir að kvarta undan of miklum mat. Meirihlutinn af íbúunum, ásamt kennaranum, segjast vera komnir með bumbu. Sagan segir að fólk fitni í skólanum út af miklum og góðum mat. Ég hins vegar er alltaf svöng. Maginn á mér kemur daglega með dágóðan skammt af garnagauli. Sérstaklega í tímanum sem er frá 9 til 12. Ég fæ mig oftast ekki til að borða einhvern risaskammt af morgunmat sem að endar með fyrrgreindum afleiðingum. Ég get samt verið sammála þessu með mikinn og góðan mat. Í gær var kjúklingur í hádegismatinn og í dag var það kjötsúpa. Nokkuð massíft.

Áðan var hópnum skellt í myndatöku. Drösluðumst upp á einhvern hól, sem var víst í einkaeign, og þar tók Beta margar myndir af okkur. Þær voru hver annari kjánalegri og einstaklingsmyndirnar voru tjah, ég verð mjög ánægð þegar að hún verður búin að laga þær til og fótósjoppa þær aðeins til. Annars er ég búin að vera að reyna að taka myndir í gríð og erg. Maður verður að eiga myndir af þessum vetri. Þær koma örugglega fljótlega inná síðuna og svo fleiri í kjölfarið. Þetta er svo fallegt og áhugavert fólk sem ég bý með.

En ég er að pæla í að fara að lesa eitthvað.
Sem að hefur actually blaðsíður.
Ekki bara html.

Ég held að bloggveturinn verði bara fínn. Er þaggi?

//EitthundraðogEitt

19. september 2007 klukkan 21:41
a

Góða kvöldið. Ég sit núna inni í kennslustofunni í Völvufelli 11 með poppskál og kók í dós fyrir framan mig. Augljóslega með tölvuna líka og svo eru fjórar bækur í faðmlögum við hliðina á mér. Biblían, study-biblían, 'Biblían bók bókanna' og Ensk-íslensk íslensk-ensk orðabók. Hvað haldiði að ég hafi verið að gera annað en að læra? Megnið af samnemendum mínum stungu af til að fara á einhvern fund niðrí bæ þannig að ég sökkti mér ofan í lærdóminn. Lilja umsjónaraðili situr stöku sinnum við hliðina á mér með Doritos, ídýfu og kók, eða þegar hún nær að sitja kyrr.

Ég var að byrja á fyrstu minnisversaritgerðinni minni sem ég á að skila á þriðjudaginn. Alltaf gott að byrja snemma og það er miklu betra að vita af því að maður sé þó alla vega byrjaður. Ég er líka búin að læra þrjú minnisvers sem ég á að taka próf í á þriðjudaginn. Man þau nánast orðrétt, gleymast stundum einhverjar samtengingar en ég get lofað ykkur því að ég veð búin að steingleyma þeim á laugardaginn. En jæja maður reynir. Í gær fórum við öll saman í leikræna tjáningu niðrí Fíladelfíu. Það var skrautlegt. Hálfhlæjandi allan tímann og leið frekar kjánalega saman við hláturinn. Ég lifði þó af og síðan tóku við snögg þrif á kirkjunni. Vorum í góðu tjilli í gær frá um 3 þangað til að kvöldmaturinn var klukkan 7. Eftir kvöldmat var kröftug bænastund og smá fundur í sambandi við unglingasamkomur og unglingastarfið. Ég er orðin einhvers konar glæruyfirumsjónarmaður og sé um það að það sé alltaf fólk á glærum. Þannig að ef þú hefur gífurlegan áhuga á að vera á glærum þá skaltu bara tala við mig og ég redda því ;]

Í dag vorum við að læra. Ótrúlega fyndið hvað við tökum langan tíma í að fara yfir einn kafla. Við tölum náttúrulega endalaust og erum með kennara sem að hefur tjáningarþörf á við fimmtán. Mitt í allri kennslunni lýsti Hjalti yfir stríði á móti mér og Eydísi þar sem við sátum í okkar mestu makindum eftir að hafa kastað álpappírskúlu í höfuðið á honum. Óli litil [haha fleiri litlir xD] var eitthvað með honum í liði en ég og Hjalti tókum því langalvarlegast með tilheyrandi koddaköstum eftir tímann. Ég og Eydís roomie fengum svo Óla litla til að skutla okkur niðrí Mjódd. Ég fór í einhvern gullfallegan kassa og tókst að rumpa af einni passamynd, í fjórum eintökum, sem að mun skellast á ökuskírteinið mitt! Fórum í Nettó og keyptum ýmsar nauðsynjar þvottaefni og gos og tókum svo strætó aftur heim í Völvufellið. Klukkan sex var súpan og brauðið niðrí Fíladelfíu og þar fékk Kata mín loksins að hitta mig eftir langa og erfiða bið. Ég og Eydís eyddum svo stundinni með Frumherjunum sem voru að læra um eldvarnir. Merkilegt nokk. Ég fílaði þá nokkuð vel.

Og núna er ég bara heima. Poppið er alveg að verða búið og kókið líka. Ég er að pæla í að skella mér í náttfötin, skrifa kannski nokkrar línur í ritgerðina í viðbót og vona svo ásamt Lilju að sambýlingar okkar skili sér heim fljótlega. Það er alltof hljótt hérna!!

//Eitthundrað

16. september 2007 klukkan 22:26
a

Blogg númer eitthundrað. Það tók mig eitt ár og þrjá mánuði en ég er komin hingað. Og á þessum merku tímamótum þá veit ég ekkert hvað ég á að segja. Ég er búin að vera í þannig félagsskap alla vikuna að tjáningarþörf mín snarminnkaði. Stundum finnst mér bara betra að sitja og hlusta. Sérstaklega þegar ég er með fólki sem að ég er bara að kynnast.

Á sunnudaginn flutti ég að heiman. Núna á ég herbergisfélaga, hún heitir Eydís og við erum orðnar voða góðar vinkonur.Guðrún Marta verður hjá okkur í herbergi í einhverja nokkra mánuði en síðan verðum við tvær í þessu nokkuð stóra herbergi á meðan strákarnir hírast fimm í herberginu við hliðina á. Það eru sem sé sjö nemendur í biblíuskólanum MCI skólaárið 2007 - 2008. Fimm strákar og tvær stelpur. Ég fæ þann heiður að vera litla barnið í skólanum þetta árið. ['85 - '90]. Á mánudaginn fórum við síðan uppí Kot og vorum þar alla vikuna.

Þessi vika var bara í einu orði sagt yndisleg. Guð var að vinna í okkur og ég trúi því að þetta sé bara rétt byrjunin á því sem að hann ætlar að gera í vetur. Ég hlakka rosalega mikið til að sjá hvað hann ætlar að gera í mér og mínu lífi. Ég býst ekkert við einhverjum gjörbreytingum en ég veit samt alveg að ég mun breytast eitthvað. Breytast í þá átt að ég líkist Jesú meira, því að það er það sem við eigum að gera.

Og já, ég veit ekkert hvernig bloggástandi ég verð í þennan veturinn.
Við sjáum bara til ;]

//NíutíuogNíu

10. september 2007 klukkan 13:02
a

[ I can't believe you like money too. We should hang out ]

Skólasetningin er búin. Ég er gígantískt spennt og er núna að fara upp í Kotið.

Kem eftir viku.
Blogg fyrir neðan ^__^

//NíutíuogÁtta

08. september 2007 klukkan 17:11
Grettir

[ Sometimes I wish I did act like a boy ]

Heima er best. Langbest. Mér líður alltaf sjálkrafa alveg ótrúlega vel. Eitthvað öryggi sem felst í því að vera heima hjá sér. Núna er ég að sjá um litlu gríslingana systkinin þar sem að mamma&Hjalti eru í Reykjavík og eru að fara á tónleika í Fíladelfíu í kvöld. Þegar þau koma heim vona ég innilega að mamma hjálpi mér að pakka niður. Ég veit ekkert hvað ég er að fara að gera. Veit svona sirka hvað ég þarf og ætla að taka með mér en ég fæ mig ekki til að fara niður í herbergið mitt og pakka öllu dótinu mínu ofan í tösku. Ætla að njóta þess að vera heima í nokkra klukkutíma í viðbót áður en ég fer að pakka öllu niður.

Á morgun eftir hádegi flyt ég svo að heiman. Það telst bara víst með þó að ég komi aftur. Ég er að fara að flytja í Völvufellið þannig að ef þið eruð að leita að mér í vetur þá vitiði hvar mig er að finna. Skólasetningin er klukkan 10 á mánudaginn og eftir hádegi höldum við af stað uppí Kot. Verðum þar í viku og svo bara veit ég ekki meir. Fyndið að vita nokkurn veginn ekkert hvað maður er að fara að gera næstu níu mánuðina. Ég veit að ég er að fara í Biblíuskóla og that's it.

En núna er ég loksins búin í sumarvinnunni. Einni af þremur. Var ekkert smá glöð þegar ég labbaði út úr sjoppunni um hálf sex leytið í gær, vitandi það að ég þyrfti aldrei aftur að fara aftur þangað. Birna kom og sótti mig og síðan eftir kvöldmatinn rölti ég niður í Veg. Þetta var alveg yndisleg samkoma og ég fékk þessa fullvissu um að það sem ég er að fara að gera er það rétta. Svo var líka annað mál sem að ég held að hafi leysts alla, vega mín megin; ég þarf bara tíma. Eftir samkomuna fórum ég, Dabbi og Aron á Devito's þar sem að ég & Aron vorum svöng. Skutluðum síðan Aroni heim, sorrý ef að þú varst eitthvað fúll, og fórum til Þórs. Byrjuðum að horfa á Simpsons The Movie en svo þurftu allir að fara. Ég og Dabbi skutluðum Helgu heim og síðan hringdi Tanja í okkur og þurfti hjálp við að skipta um dekk. Við náðum að miðla einhverjum upplýsingum til hennar og þetta reddaðist á endanum. Síðan fór ég bara heim að sofa.

Keypti mér geðveika Converse skó áðan uppí Ozone. Keypti líka nýjan síma á miðvikudaginn, bleikan síma. Mamma&Hjalti gáfu mér fyrirfram afmælisgjöf sem að ég notaði til að kaupa símann. En núna er ég hætt að eyða peningi, þarf virkilega á honum að halda í vetur. Gangi mér vel.

//NíutíuogSjö

04. september 2007 klukkan 14:48
a

[ Sorry's not good enough ]

Ég er búin að finna verðandi eiginmann minn. Hann heitir Shia LaBeouf og ég þarf alltaf að athuga hvernig maður stafar eftirnafnið hans áður en ég skrifa það. Fyrir ykkur sem hafið ekki hugmynd um hver það er þá leikur hann aðalhlutverkið í bæði The Transformers og í Disturbia. Ég og Kata horfðum einmitt á Disturbia á laugardaginn && ég verð að játa að ég varð hálfsorgmædd í hvert skipti sem hann hvarf af skjánum. Ást við fyrstu sýn eða eitthvað svoleiðis kjaftæði held ég bara. Núna þarf ég bara að drífa mig til Bandaríkjanna, finna kallinn && tjá honum ást mína. Held reyndar að ég yrði send á geðsjúkrahús.

Helgin hjá mér && Kötu var best. Við tókum strætó upp á Akranes á föstudagskvöldið og vorum bara að taka því rólega þangað til að við fórum að sofa. Byrjuðum laugardaginn á því að horfa á fyrrnefnda fegurð í spennumyndinni Disturbia sem var bara nokkuð góð. Kata þurfti eitthvað að læra og síðan fórum við útí sjoppu að leigja myndir, keyptum líka tonn af nammi í Krónunni. Fórum aftur heim && fórum í myndaflipp [myndirnar koma bráðum inn] og ég get sagt ykkur það að við algjörlega misstum okkur. Fengum læri í kvöldmatinn && fórum síðan að horfa á myndirnar. Horfðum á The Grudge í gegnum hendurnar á okkur; ég hló reyndar í atriðinu sem að Kötu fannst lang ógeðslegast. Eftir Grudge horfðum við á verstu mynd í heimi; Popstar með Aaron Carter í aðalhlutverki. Myndin var hræðileg, geðveikt mikil klysja, báðar aðalpersónurnar fóru óendanlega í taugarnar á mér && ég hristi mig nokkrum sinnum vegna kjánahrolls. Á sunnudeginum fórum við á samkomu && svo keyrði ég okkur í Kringluna. Ég fékk nokkra boli && það var mjög gaman hjá mér, Kötu og Áslaugu inni í Hagkaupum; nánar tiltekið í snyrtivörudeildinni. Síðan skutlaði ég bara Kötu heim. Takk fyrir helgina ;*

Í dag && í gær er ég bara búin að vera að taka til í herberginu hjá mér. Ástæðan fyrir því að þetta tekur svona langan tíma er bæði sú að herbergið var hörmung ekkert skipulag eða neitt og líka vegna þess að maður fer alltaf að gera eitthvað allt annað þegar maður er að taka til. Dettur inn í eitthvað sem maður fann í öllu draslinu. Ég er búin að finna fullt af dóti. Fann til dæmis 11 þúsund krónur inn á bankareikningi í Glitni. Ég var löngu búin að gleyma því að það var stofnaður einhver reikningur fyrir Danmerkurferðina sem varð aldrei. Mér fannst það nokkuð töff. Síðan er ég líka búin að henda endalaust af einhverju drasli sem ég er búin að vera að geyma út af engum ástæðum. Herbergið mitt verður að vera í toppástandi í allan vetur þar sem að ég verð náttúrulega ekkert á staðnum til að sjá um það.

Tvöfaldur ökutími er svo planið í kvöld. Frá níu til ellefu. Veit ekki alveg hvernig það mun ganga að bakka í stæði í myrkri en það verður bara að ganga. Er að fara að keyra glænýjan Bens sem að ökuskólinn er að fara að fá á eftir. Ég tek einmitt prófið á þessum bíl sem að ég hef bara aldrei keyrt. Lærði á einhvern annan eldri sem að mér fannst bara ágætur, en hann var greinilega of gamall. Síðan á ég bara þrjá vinnudaga eftir && svo er helgin && svo byrja ég í skólanum á mánudaginn. Vá, hvað ég hlakka til.

Farin að leita að meiri pening í skúffunum mínum

//NíutíuogSex

01. september 2007 klukkan 16:52
ss

[Lag; Tears In Heaven - Eric Clapton]

Gleðilegan september. Í tilefni þess að ég sit hérna við borðstofuborðið heima hjá mér && er að láta mér leiðast á meðan að Kata og Áslaug eru að klára heimalærdóminn sinn þá ætla ég að blogga. Ótrúlegt en satt þá vildi ég frekar vera að leysa einhver stærðfræðidæmi heldur en að vera alltaf að láta mér leiðast. Tölvan verður býsna þreytandi til lengdar. Hélt ég myndi aldrei segja þetta en ég er eiginlega komin með ógeð af því að vera alltaf í tölvunni. Hangandi á MSN þó að það tali enginn við mann og eina manneskjan sem mig langar virkilega að tala við er einmitt eina manneskjan sem ég ætla ekki að tala við. Súper.

Síminn minn er officially orðinn drasl núna. Í maí datt eitthvað dót af honum og síðan þá hefur hann bara verið á hraðri leið til glötunar. Loftnetið losnaði á Kotmóti en ég náði einhvern veginn að troða því aftur ofan í dæmið sem hélt því uppi. En í gær datt það dæmi af. Frábært, just frábært. Síminn minn er hálfbæklaður núna þar sem að ég hjúkraði honum með límbandi. Ef að síminn minn gengi í símaskóla þá væri hann svo feitt lagður í einelti þar sem að hann lítur út eins && hálfviti. Vill einhver gefa mér nýjan síma? Nýjan síma með engu loftneti, takk. :]

Skólinn hjá mér byrjar eftir níu daga. Hversu gott verður það? Ég er að verða nokkuð þreytt á öllu. Náði samt að minnka vinnuvikuna hjá mér um tæplega helming && fæ frí á mánu- && þriðjudaginn. Fer að vinna seinni partinn á miðvikudaginn && er að vinna til sex á föstudaginn. Og þá er ég bara búin. Gleði gleði gleði. Ég er búin að ákveða það að þegar ég verð búin í skólanum þá verður bara lífið komið í lag. Allt rugl búið && allir voða happí. Ef ekki þá er mér að mæta! Þannig að þið hafið 9 mánuði til að finna hamingjuna ;]

Effemm níufimmsjö er þreyttasta útvarpsstöð í heiminum í augnablikinu. Ég er alla vega orðin mjög þreytt á að hlusta á sama ástarkjaftæðið daginn út && inn. Get over it. Vildi bara koma því á framfæri. Ef að þú ert harður aðdáandi útvarpstöðvarinnar þá bið ég þig innilega afsökunar. Pæling samt hversu harður maður getur verið ef maður hlustar á FM? Hmm. Ég ætla bara að skrifa geisladisk til að vera með í vinnunni þessa þrjá daga sem eru eftir. Minnið mig endilega á það að kaupa disk.

Annars ætlum ég && Kata að fara að labba út í sjoppu að leigja mynd && eitthvað skemmtilegt. Síðan má móðir mín skila myndavélinni minni úr gíslingu && þá verður virkilega gaman. Lífið er alla vega betra heldur en fyrir nokkrum dögum. && mér líður miklu betur þó að ég sé ennþá rugluð í hausnum.

Prófíll