//NíutíuogFimm

Fór reyndar heim til mömmu gömlu á mánudaginn. Afi sótti mig í vinnuna && bauðst bara til að fara með mér uppá Akranes && gista til þess að ég gæti fengið meiri tíma með fjölskyldunni minni. Grét nánast af gleði yfir því hvað ég á góðan afa. Ótrúlega gott að geta verið smá með mömmu&Hjalta þó að ég sakni þeirra meira en allt akkúrat núna. Hvað á ég að gera án þeirra í vetur? Hlakka samt órtúlega til að komast í skólann. Fá einhverja reglu á lífið mitt && fá eitthvað að gera svo að ég deyi ekki við það að velta mér upp úr því hvað allt er ömurlegt.
Af hverju er samt svona erfitt að sætta sig við suma hluti? Af hverju get ég ekki bara sætt mig við það að sumir hlutir breytast ekki? Er þrisvar sinnum ekki nógu oft til þess að þetta síist inn í litla heilann á mér? Hvað er að mér? Af hverju fara þessar tilfinningar bara ekki? Ég hefði haldið að það yrði auðveldara að komast yfir þetta eftir því sem þetta gerðist oftar en það er það ekki. Fyrsta skiptið var erfitt. Annað ekki eins && ég var komin svo feitt yfir þetta þegar það gerðist í þriðja skiptið. Er ég svona ótrúlega vitlaus eða hvað? Og það er ekkert að hjálpa þegar allir segja mér að ég eigi miklu betra skilið && að hann sé bara fífl. Breytir voða litlu hvað mig varðar; ég ætti að vera búin að fatta það by now.
[Vá biturt blogg]
//NíutíuogFjögur

[Lag; Take it all - Hillsong]
Ég er eiginlega bara búin að vera að vinna. Er búin að vera að vinna í þrjár vikur nánast án þess að stoppa. Er núna búin að fá tvo frídaga þessar þrjár vikur sem eru liðnar frá Kotmóti. Núna eru bara tvær vikur í að Biblíuskólinn byrji && ég get sagt ykkur það að ég verð yndislega fegin að geta hætt að vinna. Ég er algjörlega andlega búin á því eftir þetta sumar. Hlakka til að fara í Biblíuskólann && læra meira um Guð && draga mig nær honum. Því að það er það sem ég þarf; vera í fanginu á Guði && hvílast. Veit samt ekki hversu mikil hvíld þetta verður en mér er sama. Svo lengi sem ég þarf ekki að steikja hamborgara && afgreiða sígarettur&vindla daginn út && inn þá verð ég hamingjusöm. =]
Á föstudaginn var ég á kvöldvakt. Var að vinna frá klukkan 3 til 9. Komst þar af leiðandi ekki á samkomuna í Logos II, en ég fór samt niður á höfn && ætlaði að hitta fólk. Þegar ég kom þangað var grenjandi rigning && ég beið með Hafliða fyrir utan skipið í 10 mínútur eða eitthvað þangað til að Dabbi&&Aron birtust loksins. Dabbi lagði bílnum sínum í næstu sýslu [eða svona næstum því] þannig að við urðum að gjöra svo vel að labba í rigningunni. Hljóðið í skónum mínum fór eitthvað í taugarnar á Aroni þannig að hann tók upp á því snjallræði að halda á mér. Elsa && Salóme fengu far með okkur í Mjóddina && síðan fórum við á læknavaktina í Smáranum út af tánni á Dabba. Ég && Aron biðum frammi á meðan táin var tekin af Dabba. Eða bara nöglin reyndar. Síðan fórum við á Subway þar sem að Aron var svangur eins && alltaf && þaðan fórum við heim til Dabba að horfa á Black Sheep. Það er mynd um mannætukindur. Myndin var nokkuð steikt && eiginlega ekkert skerí. Það var mest skerí þegar Aron tók sig til && beit í eyrað á mér eins && hann væri mannætukind. Ekki gaman.
Ég skellti mér síðan til pabba á laugardaginn eftir vinnu. Tók rútuna klukkan fimm && þurfti að brjótast inn til ömmu && afa [með lykli]. Skellti mér á hestbak hjá pabba && fleira skemmtilegt. En núna er afi minn kominn að sækja mig;; ég ætla eitthvað að hanga með honum þangað til að ég fer í vinnuna. Svo ætla ég heim í kvöld && koma aftur á morgun til að vinna. Ég verð bara að komast heim til mín; er með alltof mikla heimþrá.
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Dirty or Clean:
7. Tattoo eða göt:
8. Þekkjumst við persónulega?:
9. Hver er tilgangurinn með lífinu?:
10. Myndirðu þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?:
11. Besta minningin þín um okkur?:
12. Myndir þú gefa mér nýra?:
13. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
14. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?:
15. Getum við hist og bakað köku?:
16. Hefurðu heyrt kjaftasögu um mig nýlega?:
17. Finnst þér ég góð manneskja?:
18. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?:
19. Finnst þér ég aðlaðandi?:
20. Hverju myndirðu vilja breyta í mínu fari?:
21. Í hverju sefurðu?:
22. Kæmirðu í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?:
23. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?:
24. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?:
//NíutíuogÞrjú

[Lag; Hey There Delilah - Plain White T's]
En já ég tók bóklega bílprófið í nefið á þriðjudaginn. Átti eitt stykki frídag && vaknaði ofursnemma til að mæta í prófið klukkan níu. Ég var óendanlega stressuð en síðan var þetta í rauninni ekkert mál. Ég kom fyrst, var eina stelpan && kláraði prófið á tuttugu mínútum. Lét kallinn hafa prófið, hann fór yfir það && kallaði síðan á mig og þá fékk ég að vita að ég fékk einungis eina villu. Eina villu í B-hluta. Ég gleymdi því að þegar maður fær bílpróf þá má maður líka keyra vélsleða. Jæja, þá vitum við alla vega hver er ekki að fara að keyra vélsleða! En svo naut ég þess bara að vera í fríi, fyrsti frídagurinn minn síðan um Verslunarmannahelgina [eða Verslunarhelgina eins && hún Kata orðaði svo frábærlega í gær]. Ég vann sem sé fjórtán daga í röð && fékk einn dag frí síðan. Work-aholic much?
Kata er komin heim frá Danmörk! Vá, ég var ekkert smá glöð þegar ég sá hana labba í gegnum hurðina á Leifsstöð. Ég fékk nefnilega að fara með mömmu hennar Kötu að sækja hana && gisti síðan hjá henni. Ég var ótrúlega dugleg && tók ekki nema minn part af rúminu hennar, ólíkt síðasta skipti þegar ég tók það bara allt. Ég && Kata erum samt algjörir snillingar þegar við vöknum. Við vöknum alltaf á nákvæmlega sama tíma, eða svona nokkurn veginn. Svo lítum við á hvor aðra && segjum báðar í einu;; 'Vá, hvað mig dreymdi skrítinn draum í nótt!'. Við höfum greinilega bara svona skrítin áhrif á hvor aðra. En svo kom Andri && sótti okkur && við fórum upp í FB. Ætluðum að hitta fólk en rákumst bara á Aron, Steffý && Röggu. Kata && Ég löbbuðum síðan um allan skólann í leit að Andra og vorum handvissar um að við myndum enda á Akureyri. Við vorum alla vega nálægt því að villast. Andri var reyndar bara útí bíl þannig að við drógum Röggu [sem var í gati] með okkur niðrí skeifuna && á Subway. Þaðan labbaði ég með Kötu útí MS þar sem að hún var að fara á nýnemakynningu og svo rölti ég í vinnuna.
Ótrúlegt fólk sem kemur inn í þessa sjoppu. Í gær kom til dæmis frekar skuggalegur gaur sem að byrjaði bara eitthvað að spjalla við mig eftir að ég var búin að afgreiða hann. Hann fór eitthvað að spyrja mig hvort að ég væri ekki í skóla og ég sagði honum eins og er að ég væri að fara í Biblíuskóla. Haldiði ekki að maðurinn hafi bara byrjað að þylja upp einhverja spámenn && rugl sem að ég skildi varla þar sem að hann muldraði svo. Ég varð mjög glöð þegar hann tók maltið sitt && yfirgaf sjoppuna. Síðan í dag kom einhver 10/11 ára strákur inn í búðina && ætlaði að kaupa lítra af mjólk. Hann varð ekkert smá reiður þegar ég sagði honum hvað hún kostaði && ætlaði að taka undanrennu, sem kostar nákvæmlega það sama. Þegar ég sagði honum það þá kastaði hann undanrennunni inn í kælinn && strunsaði út. Tíu mínútum seinna kom hann aftur && greip lítrann af mjólkinni. Ég sagði honum verðið && þá grýtti hann peningunum niður í borðið. Síðan byrjaði hann bara að blóta && lamdi ítrekað í búðarborðið && þrætti við mig um að mjólkin kostaði ekki svona mikið. Hann kom reyndar tvisvar í viðbót && keypti sér nammi. Ég verð að viðurkenna það að þessi litli strákur hræddi mig mun meira en skuggalegi gaurinn. Krakkar hræða mig.
//NíutíuogTvö

[Lag; Over You - Daughtry]
Ég byrjaði daginn á því að mæta í vinnuna. Nánar tiltekið í Kringluna þar sem að ég vann frá tíu til þrjú. Fékk reyndar að fara aðeins fyrr til að geta náð strætó í hina vinnuna. Hitti Hafstein á leiðinni út úr Kringlunni þar sem að hann stóð && tilkynnti öllum sem vildu heyra það að það væru fríar pylsur && frítt kók úti. Ég var mætt í Grillkofann rúmlega þrjú && var þar að dunda mér við nákvæmlega ekki neitt til klukkan níu. Það var einstaklega lítið að gera fyrir utan allan þennan aragrúa af fólki sem kom && keypti lottó. Einn maðurinn keypti lottó fyrir 25.000 krónur. Góðan daginn! Eftir að hafa beðið endalaust lengi eftir strætó && eftir að strætóbílstjórinn keyrði næstum því framhjá mér eftir þessa óralöngu bið var ég loksins á leiðinni niðrá Hlemm.
María && Birna tóku við mér niðrá Hlemmi && við röltum eitthvað um. Ég veifaði einhverjum strákum sem að ég þekkti ekki neitt en þeir tóku því ekkert alltof vel þegar ég var ekki Dagný. Alltaf gaman að því að láta eins og fífl. Við rákumst á Andra, Elsu && Dagbjörtu niðrí bæ [eða ég hringdi í þau] && við röltum saman niður að bryggju þar sem að flugeldasýningin var. Ég hitti líka Hjört && Guðjón && Ólöfu && var með þeim á meðan flugeldasýningin stóð yfir. En eins og ég var búin að minnast á þá á Birna afmæli í dag þannig að á miðnætti í gær/dag fórum við og náðum í bráðabirgðaskírteinið hennar. Borðuðum síðan köku heima hjá Birnu && skelltum okkur svo á þriggja tíma rúnt með meiru. Ég kannaðist við endalaust af fólki þegar við fórum niður Laugaveginn. Ég heilsaði reyndar bara Höddunum.
Í morgun fór ég í vinnuna klukkan ellefu && vann til fimm. Ég get ekki sagt með hreina samvisku að ég hafi verið hressasti starfsmaður aldarinnar þar sem að ég svaf í ca fimm klukkutíma. En sem betur fer var ekkert að gera. Um fimmleytið komu María && Birna að sækja mig && við fórum heim til mín && borðuðum Subway. Birna varð náttúrulega að keyra sem mest fyrst að hún er komin með bílpróf á annað borð. Þær fóru síðan um hálf átta && síðan þá er ég bara búin að vera ein í makindum mínum heima hjá mér á msn að tala við Kötu! Oh, hún er svo alveg að fara að koma heim að ég get ekki beðið!!
Annars er lífið bara búið að vera fínt. Skellti mér ásamt Þór, Hafsteini, Tönju Rós && Sahara Rós niðrá höfn að skoða í skipinu Logos. [sem var btw ekki hjá Bústaðakirkju]. Enduðum síðan heima hjá Hafsteini að horfa á steikta mynd í tilefni afmælisins. Á föstudaginn hélt ég áfram að vera dugleg && labbaði úr Kringlunni && niður í Fíladelfíu. Fínasta samkoma þar sem að ég var voða dugleg && talaði í míkrafón í annað skiptið á ævinni. Eftir samkomuna var opið hús hjá Hafsteini í tilefni afmælisins hans. Fórum þar í frisbee/fótbolta en ég fór frekar snemma á minn mælikvarða.
Núna var fjölskyldan að koma heim í allri sinni dýrð. Hún virðist vera hálf svefndrukkin && ég er að pæla í að sameinast henni í værum svefni. Ég er nefnilega að fara að taka strætó í vinnuna á morgun. Gleði.
//NíutíuogEitt

[Lag; First Time - Lifehouse]
Það er svo ekkert að gerast hjá mér þessa dagana. Er búin að vera að vinna í Grillkofanum síðustu fjóra daga && ótrúlegt en satt þá er ég farin að verða nokkuð góð í öllu þessu grillveseni. Ég! Manneskjan sem að liggur við að þurfi leiðibeiningar til að rista eitt stykki brauðsneið. Það gæti reyndar líka verið að ég sé ömurleg en það þori enginn að kvarta. Vinnan er mjög þægileg upp á það að stundum er bara nákvæmlega ekki neitt að gera en svo er kannski bara ágætlega mikið að gera í soldinn tíma && svo aftur ekki neitt. Í hádeginu er reyndar alltaf ágætt að gera en við erum alltaf tvö þá. Ég er sem sé að vinna með/á móti nítján ára strák && það er frekar fyndið þegar við erum bæði && það er ekkert að gera. Þá stöndum við hvor í sínum enda sjoppunnar && þegjum. Haha, veeeei.

Mér leiðist í vinnunni
En já Kata kemur heim á þriðjudaginn! Hlakka alveg óendanlega mikið til að fá hana heim. Hún byrjar samt örugglega bara strax að busast í Menntaskólanum sínum. Vá, það eru allir að fara í byrja í skólanum í næstu viku; nema ég. Ótrúlega gaman hjá mér að lónerast í sjoppunni á meðan allir eru í skólanum. Meh. Kata vildi reyndar fá blogg um sig en ég held að ég sleppi því bara && geri svona iTunes leikdæmi til að stytta ykkur [sem sé Kötu] stundir. Hef ekkert meira að segja í augnablikinu. Nema kannski það að ég labbaði heim úr vinnunni í dag. Alla leið frá Langholtsveginum && upp í Engihjalla. Duglega ég!
iTunes leikur
9. Twenty-Four oceans. Twenty-Four skies. Twenty-Four failures. And Twenty-four tries --- Oh, oh. I am the second man
10. A thousand times I've failed. Still your mercy remains --- My heart and my soul. I give you control.
Þið eigið sem sé að giska hvaða lög þetta eru && fyrir ykkur sem skiljið ekki þá er þetta;; Byrjun á lagi --- Byrjun á viðlagi. Sumt af þessu er ógeðslega auðvelt *hóst*átta*hóst* en annað er aðeins erfiðara ;] Skemmtið ykkur.
//Níutíu
[Lag; Take It All - Hillsong]
Stundum vildi ég samt að ég byggi í bænum. Bara einhvers staðar á höfuðborgarsvæðinu væri fínt. Hef einhvern veginn ímyndað mér að lífið væri mun einfaldara ef að ég byggi nær öllum vinum mínum. Hlutirnir myndu einhvern veginn ganga betur upp. Ég er reyndar að fara að búa í bænum í allan vetur en það verður samt einhvern veginn svo spes. Æi, ég veit ekkert hvað ég vil && ætla bara að láta það sem gerist gerast. Alltaf best þannig.
En ég er komin með vinnu sem að mun stytta mér stundir þangað til að ég fer í MCI. Ég verð að vinna í Grillkofanum á Langholtsvegi && örugglega eitthvað upp í Norðlingaholti líka. Byrjaði í dag && þurfti að taka strætó klukkan 07:41 til þess að mæta í vinnuna klukkan 9. Byrjaði daginn á því að búa til heilan helling af langlokum && samlokum ég veit ekki hvernig lokum. Gerði svo endalaust af pylsum fyrir pylsuglaða Íslendinga. Það er líka svona grill þarna þar sem við búum til hamborgara && samlokur && franskar && fleira skemmtilegt. Ég þurfti að gjöra svo vel að læra á það þar sem að ég varð einnig að gjöra svo vel að vera ein í sjoppunni í ca tvo tíma vegna miskilnings. Á mínum fyrsta degi. Jahá, skúbbaði frá mér einu samlokutilboði, einum stökum hamborgara && einu beikonborgaratilboði. Og þetta var allt vel ætt. Eða það kvartaði alla vega enginn.
Er síðan að fara að vinna aftur á morgun klukkan níu. Herra strætó verður vinur minn í nokkra daga en síðan held ég að ég fari bara heim til Birnu && lúlli þar. Svona til að undirstrika það hvað ég er illilega flutt að heiman. Veriði svo voða dugleg að tala við mig þar sem að mig langar í vini! Ah, Katrín ég sakna þín sjúklega. =[ Hey! Kotmótsmyndirnar eru komnar á síðuna && myndirnar síðan á laugardaginn fara að detta inn.
//ÁttatíuogNíu
Í þessari viku er ég búin að gera heilan helling. Finnst mér alla vega. Á miðvikudaginn horfði ég á Die Hard 4 með Dabba, Andra & Þór. Ég held ég hafi sjaldan séð eins ýkta mynd en það var allt afsakað af því að þetta var nú einu sinni Bruce Willis í Die Hard. Á fimmtudaginn þurfti ég að hætta fyrr í vinnunni til að geta farið í skóla. Ökuskólann í Mjóddinni til að vera nákvæmari. Sat þar í tvo tíma && fór svo í Forvarnarhús Sjóvá þar sem ég lærði allt sem mig gæti langað að vita
Eftir tryggingafræðsluna kíkti ég niður í Veg && náði rétt restinni af samkomunni þar. Það var mjög fínt en hefði náttúrulega verið betra ef ég hefði verið alla samkomuna en þetta blessaða bílpróf tekur á. Í gær þurfti ég líka að fara fyrr úr vinnunni til að halda náminu áfram. Heilir fjórir tímar þar sem að konan babblaði um eitthvað sem ég á að kunna. En svo kom í ljós að ég kann það greinilega ekki eins vel og ég vil halda. Ég féll á æfingarbílprófinu með þrjár&þrjár villur. Blame it on the hringtorg! Þetta var bara víst biðskyldumerki
Hey já. Ætlaði bara að koma því á framfæri hér að ég er búin að skrá mig í Biblíuskólann MCI [Masters Commission Iceland] && byrja í honum 10.september. Er ekkert smá spennt en líka geðveikt stressuð. Er nokkuð viss um að þetta var það sem að Guð var að vinna í mér um helgina && svo fær hann núna heilt ár til að grúska í mér && laga mig til. Þið megið endilega muna eftir mér í bænunum ykkar því ég þarf virkilega á öllum stuðningi að halda sem ég get fengið. =]
Og það eru víst einhverjar nokkrar myndir síðan á Kotmóti inn á myndavélinni minni. Skelli þeim inn á annað kvöld eða eitthvað, þegar ég er komin heim til mín && svona. Af skiljanlegum ástæðum voru ekkert teknar svaka margar myndir um helgina en ég ætla núna að vera ýkt dugleg að taka myndir af öllum&engu. Svona mánaðamótaheit eða whatever. Ég veit líka hvað ég fæ í jólagjöf frá afa mínum af því að ég valdi það sjálf. Málið að gleyma því einhvern tímann á þessum fjórum mánuðum svo ég geti alla vega þóst vera hissa?

Ég&Elísa á Nordic '04 xD
//ÁttatíuogÁtta&hálft
Það er of einfalt að gleðja mig. Ég var að afgreiða einhverja konu í vinnunni && þegar hún lét mig hafa miðann til baka sem hún skrifaði á þá skemmti ég mér of vel. Hvað haldiði að hafi ekki bara staðið á miðanum;
Það er ég! Haha, ókei. Lesið bloggið fyrir neðan.
//ÁttatíuogÁtta

[Lag; Mighty To Save - Hillsong]
Ég held ég verði samt að viðurkenna að fyrri parturinn af Kotmóti var fínn; svo breyttist þetta bara í eina tilfinningaflækju sem að endaði illa. Þið tókuð örugglega eftir því ef þið voruð þarna. Ég held samt að þetta sé nokkurn veginn leyst þó að sumir hefðu alveg getað einfaldað þetta helling með því að sleppa sumu && ef ekki að nota munninn sem Guð gaf þeim & talað. En við erum góð er það ekki? Verðum það alla vega. [Btw, lestu bloggið mitt?]
Á fimmtudaginn var ég í vinnunni til fjögur. Eyddi mest öllum tímanum í að kaupa afmælisgjöf handa mömmu && svo að stússast eitthvað fyrir hana&Áslaugu. Dabbi kom svo && sótti mig og þegar við vorum búin að troða okkar drasli í bílinn fórum við að ná í Aron. Hann var reyndar ekki alveg kominn heim þannig að ég massaðist með gaskútinn fram && til baka tilogfrá bensínstöðinni, sem er reyndar hinum megin við götuna eeeen. Aron datt af hjólinu þegar hann var að tala við Dabba í símann && fékk risastórt sár sem að ég átti ekki að fá að vita af en ég heyrði í honum þegar Dabbi var að tala við hannn.
Held ég vilji ekki tala um restina af Kotmóti. Ekki nema það að Aron var heftaður saman eftir að einhver gaur skallaði hann. Ég held ég hafi aldrei orðið jafn hrædd && aumingja Kata mín fékk nett taugaáfall. Ég, Kata, Aron, Dabbi && Þór sváfum öll saman í tjaldi && það var nokkuð mikið drasl hjá okkur. Síðan voru að sjálfsögðu samkomur þar sem að ég fékk að upplifa heilagan anda svo sterkt. Ég veit að hann var/er að vinna í mér en ég veit ekki hvað hann er að gera. Ekki ennþá alla vega.
Í morgun var ég vakin klukkan sjö af henni Birnu elsku frænku minni. Mér var falið það hlutverk að blása upp einhverjar hjartablöðrur í tilefni þess að Stína&Jens áttu 25 ára brúðkaupsafmæli. Eftir blásturinn fór ég aftur að sofa en var vakin aftur af því að það vantaði egg í fullkomna morgunverðinn. Ég staulaðist á fætur, fór í peysu, jakka, sokka && skó && labbaði nokkuð mygluð út í 10-11. Keypti einn eggjabakka && fór svo aftur að sofa.
//ÁttatíuogSjö

[Lag; Allt Fyrir Ástina - Páll Óskar ]
Þetta lag syngur í hausnum á mér. Ég hef það reyndar sterklega á tilfinningunni að það sé verið að spila það í Focus, skóbúðinni á móti. Eníveis, þá er þetta bara svona lítið blogg til að tilkynna ykkur að mamma mín á afmæli í dag!
Hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli hún mamma mín.
Hún á afmæli í dag!
Hún er þrjátíuogfimm ára í dag,
Hún erþrjátíuogfimm ára hún mamma mín.
Hún er þrjátíuogfimm ára í dag!
Svo er ég líka að fara á Kotmót á eftir með Dabba&Aroni. Vei gaman gaman.
Elska þig mamma!

