//SjötíuogTvö
29. maí 2007 klukkan 12:13

Mánudagur, mánudagur, mánudagur. Mánudagar eru verstu dagar vikunnar. Þá á maður eftir að gera svo mikið && föstudagur er alltof langt í burtu. Scratch that. Ég var að fatta að það er þriðjudagur í dag. Þessi vika batnaði um helming á þessum tveimur sekúndum. Núna er ekki eins langt í föstudaginn & það var þegar það var mánudagur. Síðasta vika var mjög einsleit. Vakna, horfa á Friends, vinna, hitta Hörpu, sofa && svona gekk það nánast alla vikuna. Flestar vikur eru það reyndar en þessi var það sérstaklega mikið.
Á laugardaginn vaknaði ég klukkan korter yfir sex. Sandra & Radek komu klukkan hálf átta að sækja mig og ég fékk far með þeim í Reykjavíkina. Ég vakti Aron um níu með símtali && nokkrum mínútum síðar var ég komin til hans að kúra. Seinna um daginn gerðum við ýmislegt skemmtilegt eins & að hoppa á trampólíninu && svo lögðum við okkur. Hann hraut á mig eftir að hafa tilkynnt það hátíðlega að hann hryti ekki, en reddaði því svo með því að segja að hann hryti bara þegar honum liði vel.
Hittingurinn var planaður heima hjá Þór en svo kom í ljós að það var ekki hægt. Þá var ákveðið að hittast heima hjá Aroni. Fyrst fórum við á Devitos að borða && ég móðgaðist pínupons þegar Aron kallaði mig Kötu. Svo fórum við bara heim til Arons && horfðum á Children Of Men. Sumir misstu sig alveg í ljóskukommentunum && föttuðu það þegar myndin var meira en hálfnuð að konan væri ólétt. [En myndin fjallaði eiginlega um það] Eftir það var farið út á trampólínið && svo þegar við ætluðum aftur inn stoppaði ferðin í stigaganginum. Við sátum heillengi niður á gangi að gera ekki neitt en á endanum fórum ég, Aron & Dabbi upp && skildum alla eftir. Þau fóru víst eitthvað á rúntinn & rugl en við vorum bara að horfa á The Ladies Man. Síðan komu Andri, Þór & Kata aftur og þegar Andri var farinn þá fórum við hin að spila Veiðimann & tuttuguogeinn && svo kenndu þau mér póker. Um eittleytið þurftum ég & Kata að fara heim til hennar að sofa.
Ég vaknaði snemma á sunnudeginum líka til að fara á Akranes. Ég var heima hjá mér í nokkra klukkutíma & síðan fór ég með fjölskyldunni í sumarbústaðinn þar sem amma Conný varð 60 ára í gær. Þar var ég bara að tjilla && afi gerði endalaust grín að mér af því að ég sagðist vera að verða sautján. Í gær fór ég með afa & ömmu á Selfoss && Harpa yndi náði að redda mér fari með foreldrum sínum á Hvolsvöll. Þannig að engin rúta. Jibbý.
Ókei núna er ég alveg til í að Harpa birtist á tröppunum svo að ég geti hætt að horfa á tíundu seríu af Friends, farið með Hörpu út í apótek && gert síðan eitthvað skemmtilegt áður en ég mæti í vinnuna klukkan þrjú. Harpa komdu núna!

//SjötíuogEitt
24. maí 2007 klukkan 23:26

Ái. Ái ái ái ái. Ég er svo skelfilega rétthent að ég finn til. Ég er búin að vera að vinna síðan á mánudaginn && ég er komin með harðsperrur í upphandlegginn plús vöðvabólgu í axlirnar, bæði hægra megin. Allt út af því að ég þarf að gera allt með hægri hendinni. Af hverju get ég ekki verið jafnhent? Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég er í skóla & í bóklegu námi; ég myndi aldrei nenna að vera að vinna einhverja erfiðisvinnu allt árið um kring. Ég læt aðra um það && pulsast bara á sumrin. En þetta er alltílagi þar sem ég er búin að panta nudd hjá Aroni mínum þegar ég kem í bæinn á laugardaginn. ;*
Það er búið að vera nóg að gera í vinnunni en samt ekki of mikið. Búin að vera að vinna frá tólf til átta þessa vikuna && byrja svo á alvöru massakvöldvöktum á þriðjudaginn. Ég á örugglega eftir að draga Hörpu með mér í sund eitthvað í næstu viku. Þá verð ég orðin eitthvað brún áður en ég skelli mér til Spánar í sólina. Tania sagðist svo ætla að draga mig með sér í ræktina. Það verður skemmtileg sjón. Ég, Helga Þórarinsdóttir, í líkamsrækt? Hah!
Einhvern tímann er ég svo að fara að horfa á Star Wars með Aroni. Allar sex. Honum fannst víst eitthvað kjánalegt að ég hefði aldrei horft á þær. Svo þarf ég að horfa á Superman myndirnar með mömmu && það voru víst einhverjar fleiri myndir sem að ég á að horfa á með hinu & þessu fólki. Svo verður líklega einhverskonar hittingur á laugardaginn en það er ekki alveg búið að klára planleggeríið.

//Sjötíu
21. maí 2007 klukkan 00:17

Jæja, núna er ég bara búin með eitt heilt ár í fjölbraut && er komin í sumarfrí. Ég er samt nokkuð viss um að þetta geti ekki talist sem mikið sumarfrí þar sem að strax á morgun er ég að fara að vinna eins && brjálæðingur. Þetta getur ekki talist eðlilegt && hvað þá heilbrigt! Maður er í skóla níu mánuði á ári og svo loksins þegar maður losnar undan allri stærðfræðinni & öllu ruglinu sem maður þarf að rembast við að skilja þá fær maður sér vinnu og vinnur eins og maður sé nýsloppinn út af einhverri stofnun. Og til hvers? Nú, til þess að geta átt fyrir öllum skólabókunum & skólafötunum & allskonar afþreyingu sem að kemur í veg fyrir að maður missi vitið yfir veturinn. En það eru bara 24 dagar í það að ég stingi af til Spánar && það verður sko alvöru sumarfrí.
En já, á einhvern undraverðan hátt þá náði ég að nota hausinn á mér rétt && ná öllum sjö prófunum sem ég tók. Ég stóð mig nú bara nokkuð vel í þeim og fékk tvær áttur & fimm níur. Íþróttirnar eiga samt allt mitt stolt þar sem að mér tókst að ná mér í níu í íþróttum 202 takkfyrirtakk! Og eins og þið vitið kannski þá er ég alls enginn íþróttaálfur. Það er bæting síðan í 102 en þá fékk ég átta. Og ég kann ekki einu sinni að sippa. [bannað að stríða mér já] Málið er bara að þegar stelpurnar voru úti að sippa & í snúsnú þá var ég úti í fótbolta & að prakkarast með öllum hinum strákunum.
Um helgina fór ég í bæinn, öllum til mikillar undrunar [not]. Á fimmtudaginn keyrði ég alla leið frá Akranesi og útí Hafnarfjörð í afmæli. Síðan skutlaði mamma mér til Birnu && við gerðum ýmislegt skemmtilegt á fimmtudagskvöldið && föstudagsmorgun. Fór svo til Arons þegar hann var búinn að hringja nokkrum sinnum í mig hálfvælandi: 'Hvar ertu?' og var þar þangað til að við fórum á samkomu í Veginum. Eftir samkomuna fórum við svo eitthvað að rúnta & ég er eiginlega ekki viss um hvað við vorum að gera. Dabbi var í einhverju voða stuði && var allur í því að skilja fólk eftir. Hann skildi Aron eftir hjá Holtagörðum eftir að Aron stökk út úr bílnum á rauðu ljósi [Benni & Ragga pikkuðu hann svo upp] og svo seinna um kvöldið/nóttina skildi hann Köru & Þór aðeins eftir uppí Heiðmörk á meðan við tókum smárúnt með Aron hálfsofandi í aftursætinu. Við fórum svo voða 'snemma' heim á okkar mælikvarða eða um þrjú.
Í gær eða á laugardaginn fór ég svo til Arons && við gerðum nákvæmlega ekki neitt allan daginn! Það var voða kósí && það er algjörlega nauðsynlegt að taka sér einn heilan dag í að gera ekki neitt með manneskju sem er gott að halda utan um. :]
En ég var víst búin að ákveða að snúa sólarhringnum ekki algjörlega við í sumar. Kannski óþarfi að láta þetta enda eins og síðasta sumar endaði. Að fara að sofa klukkan fjögur um nótt, vakna klukkan tvö & fara í vinnu klukkan þrjú er ekki alveg að fara að ganga. Ætla núna að setja nokkrar myndir inná þessa síðu && tala svo aðeins meira við Maríu í símann && fara svo að sofa. Ég kem með eitthvað skemmtilegt blogg einn daginn ;]

♥ Mánuður
//SextíuogNíu
15. maí 2007 klukkan 15:48

Sæll veri alheimurinn eða alla vega sá hluti af honum sem að staulast einstöku sinnum inná þessa síðu & les kannski nokkur orð. Ég ætti eiginlega að vera að læra fyrir íslenskuprófið sem ég fer í klukkan níu í fyrramálið en þar sem að þessi bloggfærsla er skrifuð á okkar ástkæra móðurmáli þá gæti þetta vel flokkast sem undirbúningsæfing fyrir væntanlegar ritgerðarspurningar í prófinu á morgun. Loksins, loksins tek ég síðasta prófið mitt! Ég er búin að vera að taka sex próf á síðustu tveimur vikum. Get ekki beðið eftir því að vera búin með fyrsta árið mitt && þurfa ekki að hugsa um lógaritma, kúgildi & hver drap hvern í Laxdælu. Planið er að gera þetta að besta sumri veraldar. Verð að öllum líkindum flakkandi á milli höfuðborgarsvæðisins & Hvolsvallar í allt sumar. :]
Ég var einmitt á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Keyrði sjálfa mig til tannlæknis á föstudaginn og var búin um hádegið. Rölti aðeins niður laugarveginn með Hjalta & litlu systkinum mínum tveimur þar sem að einhver blindfullur kall [klukkan tólf á hádegi takkfyrirjá] byrjaði að tala við Edgar. Ég reyndi náttúrulega eins og ég gat að forða litla bróður mínum frá kallinum en í sannleika sagt þá var ég hræddust við hann af okkur. Síðan var mér skutlað í Grafarvoginn til Arons. Var þar þangað til að Aron fór á æfingu uppí Vegi en þá fór ég til hennar Birnu frænku minnar. Við skelltum okkur svo á samkomu í Fíladelfíu en ég hafði nefnilega ekki farið í nokkrar vikur þangað. Eftir samkomuna var nákvæmlega ekki neitt að gerast þannig að Þór hringdi í Andra & hann kom ásamt Hannesi að sækja okkur. Keyrðum heim til Andra & löbbuðum síðan til Dabba en þar var verið að halda uppá afmælið þeirra Röggu & Andra & Hannesar [alla vega smá]. Um leið og ég kom inn var mér bent inní herbergi með þeim orðum: 'Aron er þarna.' & af því að ég er svo hlýðin ung stúlka þá fór ég bara til Arons ;]
Í afmælinu var mikið stuð & voru þar tveir hnakkz sem að settu mestan svip á afmælið, blindfull. Eftir að hafa verið lengi inni að gera eiginlega ekki neitt þá var öllum hent út í göngutúr. Löggan kom víst & tók hnakkana en einhvern veginn missti ég algjörlega af því. Ætlunin var að labba útí FB en þar sem að helmingurinn af fólkinu sá löggubíl á hverju horni snérum við bara við. En á leiðinni aftur heim til Dabba sáu þau einn löggubíl í viðbót og urðu þess vegna að taka korterskrók fram hjá honum. Við hin sem vorum hvorki of ung til að vera úti eftir miðnætti né búin að vera að drekka eitthvað annað en gos héldum bara áfram & skemmtum okkur mjög mikið þegar við sáum að 'löggubíllinn' var bara sendibíll. Stuttu eftir að allir voru komnir aftur heim til Dabba yfirgáfu næstum því allir afmælið en þá byrjaði alvöru partýið sko. Málið var að Andri var búinn að drekka soldið mikið & Hannes það mikið að hann lá inná klósetti. Ég, Aron, Dabbi & Þór vorum öll edrú && strákarnir skemmtu sér stórkostlega við að misnota Andra greyið aðeins. Þetta var samt allt löglegt & innan siðferðismarka. Ég var reyndar mjög þakklát Aroni þegar hann greip fyrir augun á mér af því að annars hefði ég séð ýmislegt sem að enginn vill sjá takkfyrirnei. Dabbi lenti svo í því að skutla öllum heim og hann átti það hlutverk um helgina.
Á laugardaginn vaknaði ég klukkan eitt & var komin til Arons um þrjú. Þá fór strax í gang risaplanleggerí á MSN sem að Aron vildi ekki taka þátt í. Þannig að á meðan Aron lá uppí rúmi planaði ég svaka hitting heima hjá Kötu [eða planaði hann með Kötu & strákunum]. Dabbi, Andri & Þór komu svo og sóttu mig & Aron um sjö leitið og við fórum í Mosfellsbæinn til Kötu. Eftir endalaust skutl til & frá KFC/Subway fóru allir voða saddir & sælir að horfa á 'Let's Go To Prison' sem var snilldarmynd. Eftir myndina fórum við aðeins á trampólín, svo aftur inn & á endanum rak Kata okkur út á róló. Ekkert mikið hægt að segja um það en myndirnar eru alla vega komnar inná www.cluelezz.central.is. Við fórum svo aftur inn þegar að Aron tók fótboltann sem við vorum með & sparkaði honum burt en það þýddi sem sé að hann vildi fara inn. Þroskinn alveg að fara með mann ha? [Æi þú ert yndislegur ;*] Síðan fórum við inn í Buzz en ekki spurningaleikinn. Nei þetta var einhver apaíþróttaskemmtileikur eða eitthvað álíka. Ég & Aron vorum saman í liði og komumst fljótlega að þeirri niðurstöðu að karlmaðurinn á bara að vera með fjarstýringuna. Ég klúðraði öllu =] Svo varð Dabbi sybbinn og þá þurftu allir að fara. En þetta var besti hittingur ever!
Ég vaknaði líka klukkan eitt á sunnudaginn & fór með Stínu, Jens & Birnu í afmæli til hans Birgis Snæs frænda míns sem er tveggja ára brjálæðingur. Eftir afmælið röltum við aðeins niður Laugarveginn && fórum svo bara heim að borða. Klukkan átta fór ég svo með strákunum [Aroni, Dabba & Andra] í bíó á myndina The Condemned. Það var alveg ágætismynd && það dóu allir nema tveir. Mikill boðskapur í þessari mynd og ég man það næst þegar ég bý til sjúkan sjónvarpsþátt til að sýna á netinu að hafa fangana á næstu eyju við hliðina á. ;] Eftir myndina var brunað upp í Mosó á tuttugu mínútum svo að ég næði nú strætónum upp í sveit.
Vá, þegar maður á líf þá verður maður eiginlega að blogga aftur. Ég ætlaði alls ekki að drepa ykkur með lengsta bloggi í heimigeimi. Það voru líka ótrúlega mörg nöfn eitthvað þarna. Eða kannski bara þau sömu alltaf aftur og aftur. Það er alltaf gaman að eignast nýja vini, ótrúlegt samt hvað ég kynnist bara strákum.

Takk fyrir helgina fólk!
![=]](http://i9.tinypic.com/4ouxklv.jpg)

//SextíuogÁtta
08. maí 2007 klukkan 17:35
Próf?
Jújú það passar. Er í rauninni bara að taka mér stutta pásu frá öllum þessum lestri. Tvö próf á morgun; Danska & Saga. Þarf að lesa sirka 150 bls plús allt það sem ég er búin að glósa í áfanganum && heyrðu svo eru líka komnar einhverjar glósur inná Plútó. Danskan verður eiginlega bara að redda sér sjálf. Ég er búin að taka þrjú próf af þeim sjö sem ég á að taka. Eðlisfræði, ensku og stærðfræðiprófin eru búin & mér gekk bara ágætlega :] Efnafræði á þriðjudaginn eftir viku & íslenskan svo á miðvikudaginn. Þá er ég loksins búin.
Ég hef samt alveg nóg að gera fyrir utan prófin. Á föstudaginn tók ég strætó í Reykjavíkina & vann í Bísón. Fór svo á samkomu í veginum sem var mjög stutt en eftir hana horfðum við á Thr3e sem er spennumynd sem er byggð á kristilegri bók. [Right?] Frekar skerí mynd && voru sumir *hóst*SaharaRós*hóst* ekki alveg að höndla hana & öskruðu í gríð & erg. Aron var reyndar ekkert að hjálpa til þar sem að hann hafði mjög gaman af því að bregða henni. Ég skemmti mér samt mest við það að rífa límbandið framan úr Aroni :]
Ég fór svo bara heim til Iðunnar að lúlla && hitti hana eiginlega ekki neitt þar sem að hún fór að vinna klukkan 11 á laugardaginn en ég fór í vinnuna klukkan eitt. Tók svo bara strætó upp á Skaga aftur um kvöldið. Jeij. Gleði gleði.

Þessi vika verður einhvern veginn svona;;

- Miðvikudagur;; Dönsku og Sögupróf
- Fimmtudagur;; Ökutími í Reykjavík og Eurovision! [Óje]
- Föstudagur;; Tannlæknir, Aron og Fíló ;]
- Laugardagur;; Aron && Eurovision
Gott plan? Það finnst mér líka
//SextíuogSjö
02. maí 2007 klukkan 10:10
Síðasti skóladagurinn er í dag. Ég á eftir að fara í tvo tíma plús eina stutta umsjón og þá er ég tæknilega séð búin með heilt ár í fjölbraut. Á bara eftir að taka sjö próf og þá er þetta komið. Ég er ekki að ná því að það sé ár síðan ég tók samræmdu prófin. Mér finnst eins og sumarið hafi verið í fyrradag. Ég fæ hausverk á því að hugsa um það hvað tíminn líður hratt. Veit einhver um stopptakkann?
Ég er búin að vera alveg einstaklega upptekin síðustu daga. Lífið alveg að fara með mann hérna. Endalaust mikið að gera í skólanum & endalaust mikið að gera ekkiískólanum líka. Kennararnir fengu náttúrulega kast tveimur vikum fyrir próf og skelltu endalausum verkefnum & hlutaprófum á mig. Það er eins og allir kennararnir fatti alltíeinu að þeir eigi eftir að kenna helminginn af námsefninu og reyna að troða því uppá okkur á tveimur síðustu vikunum. Svo þarf maður að sjálfsögðu að sinnagæludýrinu kærastanum eitthvað smá.
Frábærlegheitin í mér náðu hámarki á föstudaginn þegar ég sleppti dimmisjóninu til að taka strætó til Arons. Ég & afi villtumst samt aðeins á leiðinni úr Ártúninu heim til Arons þar sem að hann á heima á fáránlega einföldum stað. Þetta var of einfalt fyrir mig. Ég var hjá honum til sjö en þá þurfti hann að fara að æfa sig á gítarinn uppí Vegi. Hildur sótti mig & við fórum á KFC & keyptum liggur við allan kjúklinginn á staðnum. Við vorum svo komin heim í sveitina um miðnætti. Laugardagurinn fór í trampólínhopp. Pabbi og Hildur ákváðu að bjóða mér & Áslaugu út að borða og í bíó um kvöldið þannig að við fórum á Selfoss. Borðuðum pizzu & fórum svo á Mr. Bean. Það voru nákvæmlega sex manneskjur í bíó. Skemmtilegt nokk. Sunnudagurinn fór í aðeins meira trampólínhopp auk þess sem að Hjörtur Freyr frændaskinn kom í heimsókn. Ég fékk að sýna honum meistarlega hæfileika mína sem bílstjóri && ég get fullvissað ykkur öll um að hann hlaut engan varanlegan skaða af því.
Í gær gerðist ég svo frábær kærasta aftur & var komin til Arons klukkan hálf tíu. [Mamma var að fara á Jesúkonufund] Var svo bara með Aroni aaaaaallan daginn að gera eiginlega ekki neitt. Bara gaman saman & svona. Fórum svo ein í bíó þar sem að allt fólkið var að fara að hittast eitthvað [Cluelezz/Monalith-dæmi]. Fórum á Blades of Glory sem er bara snilldarmynd. Napoleon Dynamite <3 Fengum okkur svo pizzu & tókum strætó aftur heim til Arons. Horfðum á nokkra Friendsþætti && svo kom mamma klukkan ellefu og sótti mig. Aron átti mjög erfitt með að skila mér og á tímabili hélt ég að ég þyrfti að skera hann af mér.
Ég er náttúrulega snillingur og tókst að gleyma gleraugun mínum heima hjá Aroni. Fæ þau samt vonandi aftur áður en ég fer í eðlisfræðiprófið í fyrramálið. Algjör óþarfi að vera hálfblindur í svona prófi. Svo er enskupróf á föstudaginn && eftir það tek ég strætó í bæinn til að fara að vinna í Bísón. Ég er líka að fara að vinna á laugardaginn og svo fer ég heim að læra undir stærðfræðiprófið sem er á mánudaginn. Allt að ske sko. :]
Ég er búin að vera alveg einstaklega upptekin síðustu daga. Lífið alveg að fara með mann hérna. Endalaust mikið að gera í skólanum & endalaust mikið að gera ekkiískólanum líka. Kennararnir fengu náttúrulega kast tveimur vikum fyrir próf og skelltu endalausum verkefnum & hlutaprófum á mig. Það er eins og allir kennararnir fatti alltíeinu að þeir eigi eftir að kenna helminginn af námsefninu og reyna að troða því uppá okkur á tveimur síðustu vikunum. Svo þarf maður að sjálfsögðu að sinna
Frábærlegheitin í mér náðu hámarki á föstudaginn þegar ég sleppti dimmisjóninu til að taka strætó til Arons. Ég & afi villtumst samt aðeins á leiðinni úr Ártúninu heim til Arons þar sem að hann á heima á fáránlega einföldum stað. Þetta var of einfalt fyrir mig. Ég var hjá honum til sjö en þá þurfti hann að fara að æfa sig á gítarinn uppí Vegi. Hildur sótti mig & við fórum á KFC & keyptum liggur við allan kjúklinginn á staðnum. Við vorum svo komin heim í sveitina um miðnætti. Laugardagurinn fór í trampólínhopp. Pabbi og Hildur ákváðu að bjóða mér & Áslaugu út að borða og í bíó um kvöldið þannig að við fórum á Selfoss. Borðuðum pizzu & fórum svo á Mr. Bean. Það voru nákvæmlega sex manneskjur í bíó. Skemmtilegt nokk. Sunnudagurinn fór í aðeins meira trampólínhopp auk þess sem að Hjörtur Freyr frændaskinn kom í heimsókn. Ég fékk að sýna honum meistarlega hæfileika mína sem bílstjóri && ég get fullvissað ykkur öll um að hann hlaut engan varanlegan skaða af því.
Í gær gerðist ég svo frábær kærasta aftur & var komin til Arons klukkan hálf tíu. [Mamma var að fara á Jesúkonufund] Var svo bara með Aroni aaaaaallan daginn að gera eiginlega ekki neitt. Bara gaman saman & svona. Fórum svo ein í bíó þar sem að allt fólkið var að fara að hittast eitthvað [Cluelezz/Monalith-dæmi]. Fórum á Blades of Glory sem er bara snilldarmynd. Napoleon Dynamite <3 Fengum okkur svo pizzu & tókum strætó aftur heim til Arons. Horfðum á nokkra Friendsþætti && svo kom mamma klukkan ellefu og sótti mig. Aron átti mjög erfitt með að skila mér og á tímabili hélt ég að ég þyrfti að skera hann af mér.
Ég er náttúrulega snillingur og tókst að gleyma gleraugun mínum heima hjá Aroni. Fæ þau samt vonandi aftur áður en ég fer í eðlisfræðiprófið í fyrramálið. Algjör óþarfi að vera hálfblindur í svona prófi. Svo er enskupróf á föstudaginn && eftir það tek ég strætó í bæinn til að fara að vinna í Bísón. Ég er líka að fara að vinna á laugardaginn og svo fer ég heim að læra undir stærðfræðiprófið sem er á mánudaginn. Allt að ske sko. :]
Ji! Hvað er ég búin að skrifa Aron oft?
Ég er að verða verri en hann sjálfur.
Ég er að verða verri en hann sjálfur.