//SextíuogSex
24. apríl 2007 klukkan 20:09

Það eru bara fimm skóladagar eftir. Fimm litlir skitnir skóladagar && svo sjö lokapróf. Sextánda maí verð ég komin í sumarfrí. Fjórtánda júní fer ég svo til Spánar og verð í tvær vikur. Ah, ég hlakka svo til. Ég er að verða eins og snjór á litinn hérna á litla Íslandi. Kotmót byrjar annan ágúst && má mín vegna vera í svona tvær vikur. Ég held að ég sé reyndar að hugsa of langt fram í tímann. Kotmót í apríl? Neeei. Mig langar samt líka á sautjándajúní-mótið en nei, ég þarf auðvitað að vera úti á Spáni þá. Ég get lofað ykkur því að ég verð sönglandi þjóðsönginn í bikiníi með sólgleraugu á Þjóðhátíðardaginn!
Ég er búin að vera að gera of mikið síðan á miðvikudaginn. En samt eiginlega ekki neitt, þannig séð. Á sumardaginn fyrsta fórum ég & Sara í Reykjavíkina í bíó. Okkur tókst að missa af strætó, bæði á leiðinni þangað & heim, en þetta reddaðist svo sem allt. Við fórum á þarna Robinsons eitthvað & vorum ofur töffaðar með svona þrívíddargleraugu. Löbbuðum úr Kringlunni og uppí Perluna, gerðum nákvæmlega ekki neitt þar og svo skutlaði afi okkur upp í Mosfellsbæ. Á föstudaginn var ég í fríi & að sjálfsögðu verður maður að nýta öll frí til hins ítrasta svo að ég skellti mér í bæinn til tannlæknis. Þarf að fara aftur ellefta maí og láta bora á milli einhverja tveggja tanna. =/
Á föstudagskvöldið fórum ég && Iðunn svo á samkomu í Veginum. Hitti fullt af fólki [ókei kannski ekkert fullt af því] en svo stungu bara allir af. Nema Aron, þannig að við vorum bara að tjilla þarna þangað til að Iðunni fór að leiðast. Þá fórum við bara heim til hennar að sofa. Laugardagurinn var frábær. Við fórum niður í Mjódd, hittum Aron && tókum svo strætó í Kringluna. Ótrúlega gaman að draga Aron um Kringluna þegar hann var ekki að nenna að vera þar. Hann þykist líka geta lagað það hvað ég er innskeif. Haha, láttu þig dreyma :] Svo fórum við bara heim til Iðunnar & horfðum á eina mynd. Aron þurfti svo að fara að vinna klukkan sex þannig að hann fór heim um fimm og þá misstum ég & Iðunn okkar í þarna apablöðruleiknum. Ég fór svo bara heim með fjölskyldunni á laugardagskvöldið.
Sunnudagurinn fór í stærðfræði. Stærðfræði eftir stærðfræði. Var allan daginn að reikna fjögur dæmi [sem voru sex liðir hvert] en það má líka rekja til þess að ég var með kveikt á tölvunni og emmessenn getur verið mjög truflandi. Þessa tvo daga sem ég er búin að vera í skólanum er ég bara búin að vera að nördast eins og venjulega. Fór í Coopertestið í gær. Lítið um það að segja nema hvað að ég var þreytt eftir það. Fór svo í þrjú próf í dag. Sögupróf í öðrum tíma, dönskupróf í þriðja tíma && sipppróf í síðasta tíma. Ég ætla bara að tilkynna ykkur það hér og nú að það er mér líkamlega ómögulegt að sippa. Verð mjög sátt með 4.5 && býst alls ekki við hærri einkunn.

FB-ingar!! Haha.
<3
//SextíuogFimm
18. apríl 2007 klukkan 11:42
Ég held að málið sé að fara að skrifa eitthvað á þessa blessuðu síðu. Maður er nú kominn aftur heim frá Akureyri og gæti alveg troðið einu litlu bloggi inná þessa síðu svo að hún deyi ekki. Síðustu daga er bara búið að vera brjálað gera í skólanum & brjálað að gera ekkiískólanum. En sem betur fer er að fara að koma löng helgi. Ég er ennþá að reyna að átta mig á því hvernig ég ætla að meika næstu viku þar sem að þá eru hvorki meira né minna en fimm heilir skóladagar, mínus dimmisjón á föstudaginn. Ég man ekkert hvernig það er gert, síðustu tvær vikur hafa bara verið þrír dagar. Þetta fer að verða búið && þá er ég búin með 1/3 af stúdentinum mínum. Jibbý kóla!
Samkvæmt móður minni er ég samviskusöm. Ef að samviskusemi lýsir sér í því að geyma öll verkefni fram á daginn fyrir síðasta skiladag & fá svo hveí mikið samviskubit [og tilheyrandi samviskukast] þá er ég svo sannarlega samviskusamasta manneskjan í heiminum. Ég held samt að ég hafi smá ástæðu fyrir að geyma þessi verkefni. Ég þarf nefnilega oftast að skila einhverju á hverjum degi & þá meikar nátturulega mest sense að gera fyrst þau verkefni sem þarf að skila fyrst. Það er samt óþarfi að eyða alltofmörgum klukkutímum í eitt dönskuverkefni sem ég hefði getað klárað á einum eða tveimur tímum. Það er ef að ég hefði bara sest niður með það verkefni & dönskubókina. Heh, þetta reddast bara er það ekki?
Smá ferðasaga

Á laugardaginn skellti ég mér til Akureyrar með L.A.N.D.S.B.A.N.K.A.rútunni ógurlegu. Stoppuðum svo í Borgarnesi og pikkuðum upp nokkra Borgnesinga. Áætlunin var að keyra til Akureyrar með sem fæstum stoppum en þar sem aftari helmingur rútunnar var blindfullur var stoppað hvar sem hægt var að finna klósett.
'Pissaðu bara í þig maaaður.'
Þetta var eitt gott ráð sem Róbert fékk. Fyrir utan fyllibytturnar var stemningin bara ágæt í rútunni. Við horfðum á Dalalíf & það var að sjálfsögðu bóndadóttirin í mér sem fannst það fyndið. [þegiðu] Síðan var Friends sett í tækið && ég ætla ekki einu sinni að byrja að lýsa ást minni á Chandler! Það er bara ekki hægt að lýsa þeirri ást, hann er bara ást.
Við stoppuðum svo við VMA [Verkmenntaskólann á Akureyri] og þaðan röltum ég & Sara niður að MA [Menntaskólinn...] þar sem að vistirnar eru þar. Ég fór til Lýdíu en Sara fór til Fjólu frænku sinnar sem var hinum megin í byggingunni. Herbergið hennar Lýdíu var stærsta tveggjamanna vistarherbergi sem ég hef á ævinni séð. Fljótlega fórum við svo bara allar fjórar niður í bæ að rölta. Komum við á einhverju kaffihúsi þar sem að ég hitti Hjört & Ómar og síðan fórum við bara á Greifann þar sem við áttum pantað borð. Ég fékk mér bestu pizzu í heimigeimi og við Sara fengum áfall. Hanntalaðiviðokkurlækjá. Keppnin um kvöldið var svo hreint út sagt æðisleg && það skiptir engu máli að við unnum ekki. Ég öskraði frá mér allt vit og skemmti mér konunglega.
Ballið átti að byrja ca klukkutíma eftir keppnina en við nenntum ekki að fara fyrr en um tvöleytið. Skipulagið við hurðina var ekkert alltof gott og var hleypt um fimm manns í einu inn & restin hélt áfram að troðast fyrir utan. Við komumst reyndar fljótlega inn þar sem að ég jarðýtaðist í gegnum þvöguna. Þegar við komum inná ballið kom fullt af skrautlegu fólki að heilsa manni. Ómar birtist upp úr þurru eins og uppvakningur, tók utan um mig og lyfti mér og hvarf svo án þess að segja orð. Hann man btw ekkert eftir þessu. Svo var það næsti geðsjúklingur, Hugrún, sem kom vaggandi til mín og var voða hress. Hún var alla vega voða náin eitthvað, alveg ofan í manni. Fann Hjört Frey svo á endanum en vildi eiginlega ekkert tala við hann. Ballið var samt frekar skemmtilegt && ég dansaði alveg helling áður en ég fór aftur upp á vist til Lýdíu um þrjú. Við sofnuðum svo um fimm og vöknuðum klukkan tíu. Klukkan hálf eitt fórum ég, Sara með Lýdíu uppí VMA þar sem að rútan beið eftir okkur. Þá tók við þreyttasta og þunnasta rútuferð í sögu rútuferða. En það reddaðist allt með Friends í tækinu :]

Landsbankanammi! [og síminn minn]

Elín, Hugrún & Sara hressar á keppninni ;D

Sara & Ég [flottar peysur]

Þau unnu einhverja söngkeppni þarna.
[Lýdía ;D]

: ]

Þettavarekkirosalangbloggnei!
//SextíuogFjögur
13. apríl 2007 klukkan 19:01
Halló halló halló! Erum við að tala um frábæra þriggja daga skólaviku. Svona ætti skólavikan bara að vera alltaf. Þá væri maður ekki alltaf svona óendanlega þreyttur. Ég held reyndar að ég eigi eftir að læra eitthvað pínupons til að geta verið í góðum gír alla helgina. Ég er nefnilega að fara til Akureyrar á morgun. Klukkan ellefu að staðartíma. Ég && Sara ætlum að vera rútufélagar. Ég elska rútufélaga. Rútuferðir eru hundleiðinlegar þegar maður hefur engan til að tala við. Treystið mér, ég veit það.
En já við erum sem sé að fara til Akureyrar til að rústa Söngkeppni framhaldsskólanna. Alla vega þeirri hlið sem snýr að stuðningsliðinu. Ef að við verðum ekki með besta stuðningsliðið í sögu kepninnar þá veit ég bara ekki hvað. Keppnin byrjar klukkan átta annaðkvöld og er til eitthvað um ellefu. Klukkutíma síðar er svo risastórt ball þar sem að Páll Óskar && hljómsvetin Buff munu spila. Ég ætla svo að fá að kúra hjá Lýdíu minni á vistinni alveg þangað til að ég þarf að snúa aftur til heimalandsins en rútan mun fara klukkan hálf eitt að Akureyrskum tíma. Verið viðbúin að stilla úrin ykkar því að ég hef heyrt að tímamismunurinn sé yfirþyrmandi. Nei, annars verður bara gaman að fara til Akureyrar & hitta fullt af fólki. Eru ekki allir að fara annars? Ég sé ykkur bara þar, ókei?
Maður er búinn að vera ýkt duglegur alla þessa viku að hlaða að sér stórkostlegum einkunnum. Níu í söguprófi, 9 & 7 í Laxþvæludæluprófunum [flettigluggaprófið vafðist aðeins fyrir mér] og 9 & 9.2 í tveimur hrikagantagríðaryndislega erfiðum dönskuprófum. Ég reyni eins og ég get að vera frábær. :]
Næsta vika er líka bara svona þriggja daga yndisskólavika. Sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn & elskulega skólastjórnin [eða hver sem það nú var] ákvað að við skyldum bara vera í fríi á föstudaginn líka. Ég ætla að nýta næstu helgi algjörlega í tætlur & læra. Kíki kannski eitthvað í bæinn ef ég má vera að því. Maður er víst alveg hrikalega upptekin þessa dagana þegar að prófin eru bara eftir nokkrar vikur. Það eru nákvæmlega tíu skóladagar eftir þangað til að ég fer í próf. Og svo þegar prófin eru búin þá er bara beint á Hvolsvöll að vinna. Já, það eru pulsurnar aftur. Maður fær bara ekki nóg af því að pakka milljón pulsum inn á einu sumri.
Núna ætla ég að fara að róa mig niður, ég er víst alveg brjálæðislega æst, og lesa einn kafla í stærðfræði. Þegar því er lokið ætla ég að lesa tvo kafla í sögu. Þar á eftir ætla ég að borða sveittan Skútuborgara & pakka niður fyrir ferðina á morgun.
En já við erum sem sé að fara til Akureyrar til að rústa Söngkeppni framhaldsskólanna. Alla vega þeirri hlið sem snýr að stuðningsliðinu. Ef að við verðum ekki með besta stuðningsliðið í sögu kepninnar þá veit ég bara ekki hvað. Keppnin byrjar klukkan átta annaðkvöld og er til eitthvað um ellefu. Klukkutíma síðar er svo risastórt ball þar sem að Páll Óskar && hljómsvetin Buff munu spila. Ég ætla svo að fá að kúra hjá Lýdíu minni á vistinni alveg þangað til að ég þarf að snúa aftur til heimalandsins en rútan mun fara klukkan hálf eitt að Akureyrskum tíma. Verið viðbúin að stilla úrin ykkar því að ég hef heyrt að tímamismunurinn sé yfirþyrmandi. Nei, annars verður bara gaman að fara til Akureyrar & hitta fullt af fólki. Eru ekki allir að fara annars? Ég sé ykkur bara þar, ókei?
Maður er búinn að vera ýkt duglegur alla þessa viku að hlaða að sér stórkostlegum einkunnum. Níu í söguprófi, 9 & 7 í Lax
Næsta vika er líka bara svona þriggja daga yndisskólavika. Sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn & elskulega skólastjórnin [eða hver sem það nú var] ákvað að við skyldum bara vera í fríi á föstudaginn líka. Ég ætla að nýta næstu helgi algjörlega í tætlur & læra. Kíki kannski eitthvað í bæinn ef ég má vera að því. Maður er víst alveg hrikalega upptekin þessa dagana þegar að prófin eru bara eftir nokkrar vikur. Það eru nákvæmlega tíu skóladagar eftir þangað til að ég fer í próf. Og svo þegar prófin eru búin þá er bara beint á Hvolsvöll að vinna. Já, það eru pulsurnar aftur. Maður fær bara ekki nóg af því að pakka milljón pulsum inn á einu sumri.
Núna ætla ég að fara að róa mig niður, ég er víst alveg brjálæðislega æst, og lesa einn kafla í stærðfræði. Þegar því er lokið ætla ég að lesa tvo kafla í sögu. Þar á eftir ætla ég að borða sveittan Skútuborgara & pakka niður fyrir ferðina á morgun.
End þenn itt iss Akureyri, þeinkjúverínæs.

Ég er svo harðkjarna
Ég er svo harðkjarna
//SextíuogÞrjú
10. apríl 2007 klukkan 21:47
Já, góðan daginn. Ég hef ekki hugmyndarflugið í að koma alltaf upp með ný og skemmtileg orð til að skrifa efst í bloggið þannig að mynd it is. Ég nenni ekki í skólann á morgun. Ég nenni heldur ekki að vera lengur í páskafríi. Ég nenni eiginlega ekki neinu. Ég er til í að fara að sofa og sofa þangað til einhverntímann. En lífið virkar því miður ekki þannig og ég verð að gjöra svo vel að vakna rúmlega sjö og drattast í þetta hús sem að ég er í alla daga. Æi þarna skólann þarna, Fjölbrautaskóla Vesturlands eitthvað. Maður verður víst að læra eitthvað í þrjár vikur og svo koma prófin. Eitt, tvö, þrjú, fjögur, fimm, sex og sjö. Ég er að fara að taka sjö lokapróf og bara til að fullkomna það þá röðuðust þau á fyrstu þrjá dagana, tvö á einn dag í miðjunni og svo tvo síðustu dagana. Þannig að ég verð í prófum 3 - 16 maí. Sé ykkur bara eftir það. ;]
Skipulagningin þessa dagana er alveg að fara með mig. Ég þurfti að gera eitt verkefni í öllu páskafríinu. Eitt lítið dönskuverkefni upp úr leiðinlegri og ótrúlega perralegri danskri bók. Þessi bók er horbjóður. Ég vil ekki einu sinni hugsa um hana, ég er meira að segja komin með danskt orð á heilann sem mig langar ekkert að vera með á heilanum. Oj bara. En já ég þurfti að gera þetta verkefni og í gær þá loksins tók ég það upp úr töskunni, horfði lengi á það áður en ég svaraði þremur spurningum og setti það aftur ofan í tösku. Í dag varð ég svo að berjast við letina í mér og náði að klára þessar spurningar, á nokkrum klukkutímum með nokkrum hléum. Á fimmtudaginn er ég svo að fara í Laxþvæludælupróf. Gleði!
Í bloggi númer fjörtíuogþrjú eða áramótablogginu mínu stendur skáletrað að árið 2007 ætli ég að hætta að vera svona mikill asni. Ég ætla bara að segja ykkur það að ég er á góðri leið með að sigrast á símafóbíunni minni. Eða kannski frekar fóbíunni við að tala í síma. Mér hefur nefnilega tekist að verða ótrúlega feimin og þá helst í gegnum síma. Ég get ekki hringt eitt né neitt og til dæmis get ég ekki talað við suma vini mína í símann; mér finnst það bara ýkt óþægilegt og kjánalegt. Ég held reyndar að ég sé bara kjáninn/asninn. Í dag er ég búin að vera voða dugleg að hringja út og suður í SS til að reyna að ná í starfsmannastjórann. Náði sambandi við skiptiborðið og kom þá ekki þetta dýrindis lag sem að spilaðist á meðan ég beið eftir að ná sambandi við stjórann. Neinei, þá var hann bara ekkert við og ég var vinsamlegast beðin um að hringja aftur á morgun. Ég þoli ekki símtöl!
Skipulagningin þessa dagana er alveg að fara með mig. Ég þurfti að gera eitt verkefni í öllu páskafríinu. Eitt lítið dönskuverkefni upp úr leiðinlegri og ótrúlega perralegri danskri bók. Þessi bók er horbjóður. Ég vil ekki einu sinni hugsa um hana, ég er meira að segja komin með danskt orð á heilann sem mig langar ekkert að vera með á heilanum. Oj bara. En já ég þurfti að gera þetta verkefni og í gær þá loksins tók ég það upp úr töskunni, horfði lengi á það áður en ég svaraði þremur spurningum og setti það aftur ofan í tösku. Í dag varð ég svo að berjast við letina í mér og náði að klára þessar spurningar, á nokkrum klukkutímum með nokkrum hléum. Á fimmtudaginn er ég svo að fara í Lax
Í bloggi númer fjörtíuogþrjú eða áramótablogginu mínu stendur skáletrað að árið 2007 ætli ég að hætta að vera svona mikill asni. Ég ætla bara að segja ykkur það að ég er á góðri leið með að sigrast á símafóbíunni minni. Eða kannski frekar fóbíunni við að tala í síma. Mér hefur nefnilega tekist að verða ótrúlega feimin og þá helst í gegnum síma. Ég get ekki hringt eitt né neitt og til dæmis get ég ekki talað við suma vini mína í símann; mér finnst það bara ýkt óþægilegt og kjánalegt. Ég held reyndar að ég sé bara kjáninn/asninn. Í dag er ég búin að vera voða dugleg að hringja út og suður í SS til að reyna að ná í starfsmannastjórann. Náði sambandi við skiptiborðið og kom þá ekki þetta dýrindis lag sem að spilaðist á meðan ég beið eftir að ná sambandi við stjórann. Neinei, þá var hann bara ekkert við og ég var vinsamlegast beðin um að hringja aftur á morgun. Ég þoli ekki símtöl!
Annar asnaskapur minn tekur lengri tíma. Svona eins og almenna feimnin og það að ég get ekki talað skýrt fyrir framan fullt af fólki. Svo er það hvernig maður hagar sér stundum, en þetta kemur allt með tímanum. Vonandi. Það bara verður að gera það. En ég held að ég sé annars bara ágæt er það ekki? :]

Sjáiði tunguna á barninu?!
Sjáiði tunguna á barninu?!
A signature always reveals a man's character - and sometimes even his name.
Evan Esar
Evan Esar
//SextíuogTvö
08. apríl 2007 klukkan 20:02
Páskar!
Ég ætla að vera ógeðslega bjartsýn og vona að það fari ekki allt í klessu. Ókei?
Páskafríið er núna búið að vera í viku og mér er búið að takast að gera nákvæmlega ekki neitt. Eða svona þannig séð. Síðustu helgi fór ég í bæinn á samkomu á föstudeginum og gisti svo hjá Dagnýju. Á laugardeginum var hún að vinna frá tíu til tíu þannig að ég þurfti að redda mér einhverju að gera. Ég var ekki lengi að því og plataði Ásthildi með mér í Smáralindina þar sem að við hittum Iðunni & Maríu. Þar voru gerð ýmis mjög nauðsynleg kaup en ég var aðallega að reyna að redda kvöldinu. Ég og Þór vorum í stöðugu símasambandi en svo gerðist hann þrjóskur og ég á skilið stórt klapp fyrir að hafa hringt í allt þetta fólk. Ásthildur fór í afmæli eftir Smáralindina þannig að ég skakklappaðist á eftir Iðunni heim til hennar þar sem að við horfðum á stóran skammt af House. Síminn minn ákvað svo að deyja sem olli því að Ásthildur hringdi út og suður til að ná í mig. Þór kom svo með mömmu sinni og hún var sérlegur bílstjóri okkar á leiðinni í afmælið til Betu. [Náðum í Ásthildi heim til hennar & svona] Í afmælinu hitti ég Alexöndru eyjameyju og var það mjög gaman. :] Það var barnaþema í afmælinu og af því tilefni fórum við í pakkaleik og í annan leik sem hét 'Áttu Vatnsglas?'. Sá leikur var mjög flókinn en samt ótrúlega skemmtilegur; Tania tábrotnaði reyndar en það mátti alveg búast við einhverju slysi miðað við æsinginn sem var á fólki.
Á sunnudaginn fórum ég og Dagný ásamt helling af ættingjum austur í sveitina. Ég og Dagný urðum svo eftir í sveitasælunni og ég verð að viðurkenna að ég gerði nákvæmlega ekki neitt! Jú ég keyrði eitthvað smá og svo var ég svolítið á fjórhjólinu. Jú heyrðu, ég hjálpaði afa að týna einhverjar spýtur upp á vagn. Duglega ég. Á þriðjudaginn fórum ég, Áslaug, Sigrún, Dagný & Hildur í bæinn og gerðum margt skemmtilegt. Þar á meðal fórum við með bílinn í skoðun og ég held að það hafi ekki verið mikill vafi á því að ég og Dagný erum á bílprófsaldrinum [hún nýkomin með bílpróf] af því að við stóðum og horfðum á bílinn í skoðun. Bremsuprófun og eitthvað fleira skemmtilegt. Ég og Áslaug tókum svo strætisvagninn mikla upp á Akranes og fórum heim. Hafiði séð tólf ára barn með GSM síma nýlega? Það er svo yndislega furðuleg sjón. Ég var komin með svaka minnimáttarkennd yfir því að það var alltaf verið að hringja í systur mína en ekki mig.
Fimmtudagurinn fór í afmælið hennar Áslaugar. Svaka stuð og svaka gaman. Skírdagskvöldið endaði svo með hláturskasti þar sem að Ómar ákvað að tjá sig á geimversku í gegnum MSN. Ég hef ekki hlegið svona mikið síðan ég veit ekki hvenær. Á föstudaginn langa skruppum við mæðgurnar [ég, Áslaug & Mamma] í bæjarferð. Við byrjuðum á Stælnum þar sem að við borðuðum sveitta hamborgara, það var í alvörunni svitalykt af mínum. Síðan hentum ég & mamma Áslaugu út hjá Esteri Söru og fórum niður í Laugardalshöll á afmælisfund AA-samtakanna. Það var ágætt og ég sá alveg tvær frægar manneskjur.[OMGZZZZ&$] Eftir fundinn fórum ég og mamma á rúntinn og við skemmtum okkur alveg konunglega. Mamma fylltist einhverri svakalegri löngun í nammi og ég, góða dóttirin sem ég er, fylgdi henni inn í ellefuellefu og hlóð nammi á afgreiðsluborðið. Þá heyrðist í þeirri gömlu; 'Svona lítið?' Fullorðið fólk er undarlegt.
Eftir stuttan og sykurmikinn rúnt fórum við niður í Fíladelfíu á styrktartónleika MCI-biblíuskólans en þau eru að fara til Pakistans í lok mánaðarins. Þetta voru nokkuð flottir tónleikar og ég skemmti mér mjög vel. Það má reyndar rekja til þess að ég hitti fullt af skemmtilegu fólki ;]
Núna sit ég bara í sófanum í Þórsmörkinni á Selfossi hjá ömmu og afa. Fólkið er að borða ís en ég er búin að borða heilt páskaegg í dag þannig að ég legg ekki í meiri mat, ekki strax. Ég ætla nefnilega að verða feit. Sjáiði það ekki ýkt mikið fyrir ykkur? Ég ætla að borða á mig gat! Ég á bara eitt páskaegg eftir af þessum tveimur sem ég fékk. Áslaug hafði mjög mikið fyrir því að vekja mig klukkan sjö í morgun og ég drattaðist á fætur og fann páskaeggið mitt. Svo settist ég bara upp í rúm með Húbbrí og fór að dunda mér í Sims. Haha, ég fer svo yndislega innímig þegar ég er í honum að það líða tveir tímar án þess að ég taki eftir því. Ég var ótrúlega dugleg og keyrði alla leið frá Akranesi og til Selfoss og á þeirri leið eru hvorki meira né minna en þrettán hringtorg. Þakkaþérfyrir.

Faith is taking the first step, even when you don’t see the whole staircase.
Martin Luther
Martin Luther