Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//SextíuogEitt

30. mars 2007 klukkan 19:09
Óje!

Páskafrí! Ég vildi bara deila því með umheiminum að ég er komin í páskafrí. Auk þess vildi ég einnig deila því með ykkur að ég hef eiginlega ekki neitt til að blogga um. Dramað er vonandi leyst && ef það er það ekki þá neita ég að taka þátt í því lengur. Ekki það að ég hafi eitthvað mikið verið að 'taka þátt' í því. Ég meira svona lenti í því. En ef að það leysist ekki mjög fljótlega þá er ég bara hætt að pæla í þessu. Fólk má bara eiga sig && sín vandamál án þess að blanda öllum inn í það. Fólki sem kemur málinu nákvæmlega ekki neitt við og er bara dregið á eyrunum inn í miðja hringiðuna. Nope. Done.

Þessa dagana er ég að reyna að fá ógeð af vinum mínum. Ég lofa ykkur að það er rosalega góð & frábær pæling á bak við það allt saman. Málið er nefnilega að ég verð úti á Spáni [aumingja ég] þegar að 17.júní mótið verður og samkvæmt mínum útreikningum get ég ekki hitt vini mína fyrr en um Verslunarmannahelgina. Og það er alltof langt þangað til að fyrsta helgin í ágúst er þannig að ég er að reyna að fá ógeð af vinum mínum til þess að ég muni ekki sakna þeirra alveg fram í ágúst. Ég held reyndar að áætlunin hafi þveröfug áhrif && ég muni fara hálfgrenjandi til Spánar. Mamma á örugglega eftir að þurfa að draga mig inn í flugvélina [not]. Ég hlakka svo til að ég er, eins og þið hafið vonandi tekið eftir, farin að telja dagana. Ég meika það ekki mikið lengur að vera ógeðslega hvít með ljóst hár && það að hverfa um leið og ég fer í hvíta peysu. Hvar er Helga?

Ég vil benda ykkur sem að vitið ekki hvenær ég á afmæli að kynna ykkur það ef að þið viljið ekki vera lamin. Þið hafið um það bil hálft ár til að kynna ykkur það. Því að eftir um hálft ár verð ég farin að keyra um allt! Ó, já! Eins og ég tjáði móður minni í vikunni þá mun ég verða alveg frábær eiginmaður. Ég held reyndar að ég hafi ætlað að segja ökumaður. Því eins og alþjóð veit verð ég langversti eiginmaður í heimi. Stelpur geta ekki verið eiginmenn. [Þið þurfið ekkert að segja mér hvað ég sé gáfuð;; ég veit það alveg sjálf] En það er samt best fyrir ykkur að muna bara hvenær ég á afmæli. Þór getur alveg sagt ykkur það að ég verð ekkert voða glöð þegar fólk hefur ekki hugmynd um hvenær ég á afmæli. :] Ég get samt alveg lofað ykkur því að ég er ekkert að fara að lemja neinn. Ég vissi bara að Þór myndi ekki lemja mig til baka, það gerir það enginn. *Englabros*

Eigum við kannski ekki bara að hittast aftur þegar ég hef frá einhverju fleiru að segja && er í meira stuði? Þetta hlýtur samt að teljast ágætisblogg miðað við það að ég hef frá engu að segja.

Fiskur!
The future will be better tomorrow.

//Sextíu

25. mars 2007 klukkan 18:12
Halló!

Drama. Dé-Err-A-Emm-A. Svoleiðis lagað er búið að einkenna líf mitt síðustu vikuna. Ég hef aldrei lent í neinu svona rugli, alltaf bara frétt af því eftir á && kannski þekkt fólkið eitthvað aðeins sem átti í hlut. En núna var ég dregin á eyrunum beint inn í miðjuna á þessu svakalega rugli og ég veit ekki hvað snýr upp og hvað snýr niður. Á föstudaginn eyddi ég nánast allri inneigninni minni í að hringja í vini mína til að finna út hver sagði hverjum hvað og af hverju. Það útskýrði nákvæmlega ekki neitt nema ég veit að það eru allir að segja öllum allt og fæst af því er satt. Skemmtilegt nokk. Það er eins og á einni viku hafi líf mitt breytt í lélegan O.C þátt. Og það fyndnasta er að ég er upp á Akranesi á meðan dramað á sér stað í höfuðborginni. Svona er maður mikill snillingur.

Annars er allt gott að frétta af mér. Páskafríið alveg að renna í hlað. Ég hef það samt ýkt á tilfinningunni að næsta vika verði eins lengi að líða og síðasta vika var fljóta að líða. Það verður endalaust mikið að læra og ég er að fara í þrjú eða fjögur próf. Vá hvað ég hlakka til að komast í páskafrí! Ég ætla að vera ótrúlega dugleg og reyna að fara á unglingasamkomu næsta föstudag && föstudaginn langa en þá eru víst einhverjir tónleikar. Maður lætur sig nú ekki vantar ef að það er hægt að búa til drama. ;D

Helgin er búin að vera alveg yndisleg fyrir utan þetta drama sem skyggði aðeins á. Á föstudaginn eftir skóla brunaði ég næstum því áfallalaust [keyrði næstum því á í Hvalfjarðargöngunum] í höfuðborgina. Ég dró svo Birnu með mér á unglingasamkomu eins og ég hafði ætlað mér og var þetta ein besta samkoma sem ég hef farið á í bænum. Maður var alveg að upplifa það sem maður upplifir venjulega bara í Kotinu enda er maður einhvern langopnastur þar. En þá er bara málið að fara á allar samkomur með rétt hugarfar og opið hjarta. Í gær vöknuðum ég && Birna ótrúlega ferskar klukkan tvö og skunduðumst beint í Smáralindina þar sem að ég keypti mér myndavél. Svo snæddum við flatböku á Pizza Hut og fórum svo aftur heim. Heima gerðum við mjög lítið. Ég kláraði eina ritgerð && svo að sjálfsögðu horfðum við smá á Veronica Mars.

Í gærkvöldi fór ég svo niður í Fíló um ellefu og hitti Elí, Hafliða & Þór. [Stínaaaaa?] Frá Fíló lá leið okkar niður í 10-11 þar sem við gerðum mjög þreytt innkaup, Elí missti sýrða rjómann þrisvar áður en ég bauðst til að halda á honum && þá missti Hafliði snakkið. Á einhvern furðulegan hátt endaði ég með innkaupapokann í hendinni && varð að gjöra svo vel að bera hann. Haflði henti mér, Þór & Elí út á Hringbrautinni og Elí fannst mjög gaman að afvegaleiða mig & Þór með því að láta okkur elta hann framhjá húsinu sínu nokkrum sinnum. [Húmoooor] Svo tók við mjög skemmtileg bið eftir Hafliða & Hafsteini þar sem við meðal annars horfðum á viðtal við leikstjórann sem leikstýrði arineldinum. Þegar Haf-arnir komu loksins fórum við svo að horfa á Happy Feet. Lilja & Beta fóru reyndar áður en að myndin var búin þannig að ég endaði ein með strákunum. Old times much? Svefngalsinn náði hámarki þegar Hafsteinn & Hafliði steinsofnuðu og Elí fór að syngja ástarljóð til þeirra. Við hlógum mjög mikið að nákvæmlega ekki neinu og svo hlustaði ég líka á Elí & Hafliða tala kínversku. [Fyrir mér var það kínverska] Það lenti síðan á Hafliða að skutla okkur heim enda var hann sá eini á svæðinu með bílpróf. Ég var svo komin aftur heim til Birnu um hálf sex leitið og fór þá bara beint að lúlla.

Áðan skruppum ég && Birna í bíó upp í Smáralind. Við skelltum okkur á Epic Movie sem var snilld. Ég bjóst ekki við að hún yrði eins og fyndin og hún var. Ég hló & hló & hló. Mæli eindregið með þessari mynd ef að þú ert með ,,svona" [hvað meintirðu með því Þór?] húmor. Núna eru foreldrarnir komnir til að sækja mig þannig að ég verð að fara að skella mér upp í sveit, aftur eins og strákarnir sögðu.

Skór!
Skórnir mínir && röndóttir sokkar

Hæ
Ég get verið myndaleg líka!!

The Only Time People Dislike Gossip Is When You Gossip About Them

//FimmtíuogNíu

20. mars 2007 klukkan 22:22
Hæ!

Ég er í svo skrítnu skapi && líður svo heví furðulega í dag að ég get ekki lýst því. Ég var að reyna að útskýra það fyrir Þór áðan && ef hann skildi mig á hann hrós skilið. Því að ég skil mig ekki && hef mjög takmarkaðan skilning á því af hverju fólk gerir svona. Ótrúlegt hvernig ein manneskja getur sagt manni fimm orð, fimm lítil orð, og heimurinn fer algjörlega í klessu hjá manni. Það hringsnýst allt í höfðinu á mér og ég er búin að skipta um skoðun svona þúsund sinnum. Skipta um skoðun á hlut sem að ég var svo löngu hætt að pæla í og löngu búin að ákveða hvernig þetta yrði. En nei, þá er öllu bara kippt undan fótunum á manni && maður þarf að díla við þetta allt aftur. Frábært! Er ekki einum of mikið að hafa verið að díla við þetta on/off síðan í áttunda bekk? Það finnst mér.

Ferðasaga

Jahá ég fór nefnilega í stórskemmtilega ferð um helgina á T3 mót uppi í Kirkjulækjarkoti. Mín ferð byrjaði að sjálfsögðu upp á Skaganum && eftir að ég kom snemma heim úr skólanum [engin íslenska] fékk ég að keyra í blindbyl & snjókomu. Ég fékk reyndar ekki að keyra nema að göngunum vegna þess að mamma fattaði þá að við þyrftum að flýta okkur þannig að ég þurfti að setjast í farþegasætið & svo gátum við brunað í bæinn. Ég var komin niður í Fíló um hálf fimm en rútan átti ekki að leggja af stað fyrr en hálf sex þannig að ég beið & beið & beið eftir að það mætti fleira fólk. Að sönnum Hvítasunnumannastíl lagði rútan ekki af stað fyrr en sex. Ég & Rakel félagi sátum saman í rútunni og skemmtum okkur stórkostlega með aulabröndurum. Við stoppuðum á Selfossi til að fá okkur að borða og svo var haldið áfram alla leið upp í Kot, þar sem snjórinn var svo mikill að rútan komst ekki upp að Skálanum. Þegar allir voru búnir að finna sér herbergi var samkoma niðrí kirkju. Shawn Foster var aðalprédikari mótsins alveg eins og á marsmótinu í fyrra [sem var magnað]. Samkoman var hreinlega mögnuð && stóð alveg til eitt eða eitthvað álíka. Síðan fóru allir bara voða kátir upp í Skálannn & ekki voru allir á því að fara að sofa. Þeirra á meðal var Elsa Marý sem ákvað svo snilldarlega að halda vöku fyrir herbergisfélögum sínum og þar á meðal mér. Takk Elsa.

Eins & það hefði ekki verið nóg að halda fyrir okkur vöku þá ákvað Elsa líka að við ættum að vakna klukkan sjö. Ég var nett pirruð en var samt mjög fegin að hafa vaknað snemma vegna þess að þá var ég mjög vakandi á samkomunni klukkan tíu ólíkt öðrum. Eftir hádegismatinn á laugardeginum fóru einhverjir í snjóstríð en þar sem að mér líkar ekkert alltof mikið við snjó [og var heldur ekki með of mikið af aukafötum] var ég bara inni að spila. Klukkan tvö var svo svona workshop && ákvað ég að vera með Rakel, Nönnu & fleirum hjá Shawn í kennslu. Mjög áhugavert & skemmtilegt. Rosalega kósí að sitja bara og hlusta og spjalla. Kvölsamkoman var svo enn magnaðri en sú á föstudagskvöldinu og var nærvera Guðs svo mikil að maður gat þreifað á henni. Svona eiga samkomur að vera && ég veit að það er eitthvað stórt að fara að gerast á Íslandi. Eftir samkomuna var farið í 'Höh!' og stóð ég mig rosalega vel. Ég var næstum því búin að vinna Jóhannes! Bara næstum því. Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma hinu stórskemmtilega 'Battli' sem að mjög margir tóku þátt í en það tókst engum að sigra Jóhann - Flowhann sem var ókrýndur rappmeistari mótsins. :]

Sunnudagurinn einkenndist af myglu. Ég staulaðist fram úr kojunni um níu og þá var nákvæmlega enginn vaknaður en samt áttu allir að vera vaknaðir. Veðrið var svo vont að við komumst ekki niður í kirkju þannig að morgunsamkonan var haldin í mestu kósíheitum sem hægt er að hugsa sér! Við röðuðum öllum sófunum upp & héldum bara rosalega næs samkomu & vitnisburðastund. Síðan var Skálinn þrifinn, töskunum hent út í rútu & að síðustu skunduðumst við öll út í rútu mismygluð & öll jafnþreytt. Við keyrðum beinustu leið í bæinn [eða eins hratt og veður leyfði] og voru allir voða ánægðir að stíga út úr rútunni við Fíló, veltulaust. Þá tók við mikið hangs. Fyrst fór ég út í Snæland með Kötu, Elí, Hafliða, Hafsteini & Eyþóri & mér leið eins og ég hefði farið í tvö ár aftur í tímavél. [góðir tímar] Svo tók við ennþá meira hangs í þreytu og ég get sagt ykkur að aðrir eins brandarar hafa aldrei flogið á milli mín & Hafliða. Vá hvað við erum fyndin. :]

Þú ert bara svo myndalegur! && Ég nenni heldur ekki heim til þín!

Svo þegar samkoman var búin þurfti ég að sjálfsögðu að skutlast upp á Akranesið aftur. Var reyndar ekki komin heim fyrr en um miðnætti þannig að ég fór bara sæl að sofa eftir frábæra helgi!

Nýja lífið mitt byrjaði svo á mjög dramatískan hátt þegar ég tók upp á því að vakna klukkan hálf sjö [á mánudagsmorgni já!] og fara í sturtu. Þegar klukkan var nokkrar mínútur í átta trúði ég því varla að ég ætti eftir að fara í skólann; ég var svo svakalega hress. Ætlunin er svo að skella sér í Höfuðborgina á föstudaginn. Ég ætla að troða mér upp á hana Birnu frænku mína undir því yfirskini [undir því yfir?] að halda Veronicu Marsaþon. En sannleikurinn er sá að ég ætla að draga hana með mér á unglingasamkomu á föstudaginn, sem verður náttúrulega frábært. Svo ætla ég líka að draga hana með mér í einhverja búð & ætla ég að fjárfesta í einni myndavél. Svo getur vel verið að ég finni mér eitthvað meira skemmtilegt að gera. Svona í tilefni þess að maður er aldrei í bænum. :]


:]
Svona var maður myndalegur í rútunni! ;]
Hárið á mér er fríííkí

Kennsla
Kennslan hjá Shawn Foster :]

Myndalegi
myndalegi Leeeim brandari
&
Rakel && Síminn minn sem hún setti á finnsku!

Augabrún
Ég, Þór && Hafsteinn í gúddí fíling.
Ég á sem sé augabrúnina & hendina ;D

Þessum myndum var "stolið" af blogginu hans Elí.

Life can only be understood backwards; but it must be lived forwards.

//FimmtíuogÁtta

15. mars 2007 klukkan 18:16

Orlando: : Orlando

Ég neita að verða veik aftur. Nei, nei, nei & aftur nei. Ég hef engan tíma í svoleiðis vitleysu. Ég sé samt fram á að vera hóstandi fram að Spánarferðinni með þessu áframhaldi. Ég gæti skrifað bók um hósta. Ég er orðin svo mikill sérfræðingur í hóstafræðum. Í augnablikinu er ég með svona hósta sem maður fær þegar manni er búið að vera kalt. Næstum því eins og maður hafi sofið með gluggann opinn alla nóttina. Æi þú hefur alveg fengið svona hósta!

Aðalástæðan fyrir því að ég neita að verða veik er sú að á morgun eftir skólann þarf ég að bruna til Reykjavíkur og taka rútu austur í Fljótshlíð. Jahá! Það er sko komið að unglingamóti. Ég er búin að vera að bíða eftir unglingamóti síðan ég kom heim frá Noregi. Ég er samt ekki alveg viss um að ég þori í rútuna vegna þess að Elsa Marý tilkynnti mér það hátíðlega að hún ætlaði að nauðga mér um helgina. Sumir eru kannski aðeins of spenntir fyrir því að hitta mann. Ég & Rakel félagi [takk Þorgerður fyrir að líma þetta orð við heilann á mér] ætlum að sitja saman í rútunni & líklega deila herbergi, ásamt öðrum. Ég er handviss um að þetta verður besta mót í alheiminum og ég lofa ykkur því að ég myndi taka heilan haug af myndum ef að myndavélin mín hefði ekki verið í hakkabuff um daginn. Ég hlýt að geta stolið myndum af einhverjum svo að þið getið séð allt fallega fólkið sem ég hitti um helgina.

Hávaxið fólk er love. Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef að það væri ekki til hávaxið fólk. Ég myndi að öllum líkindum deyja í þunna loftslaginu sem er í minni hæð. Það sem ég elska mest við hávaxið fólk er það hversu yndislega þægilegt það er að halda utan um það. Maður þarf ekki að beygja sig niður við sjávarborðið til að knúsa hávaxnar manneskjur & getur lagt sig á öxlinni á þeim. Harpa sagði um daginn að ég væri í fínni hæð. Og þar hafiði það; ég er í fínni hæð. Ástæðan fyrir því var reyndar sú að það var víst svona súperdúper þægilegt að halda utan um mig & ætlar hún að finna sér kærasta í nákvæmlega sömu stærð og ég. Væri það ekki frábært ef að það væri til svona búð? Þá gæti hún bara mætt með mig á staðinn og sagt; 'Ég ætla að fá einn svona. Bara karlkyns.' Vá hvað lífið væri einfalt þá. Ég veit reyndar ekkert hvað fékk mig til að tala um hávaxið fólk. Fannst ég bara þurfa að koma þessu á framfæri.

Ég vil líka benda áhugasömum á það að ég skil Laxdælu. Mér líður alltaf ótrúlega vel þegar ég sest niður og les í Laxdælu. Bara út af því að ég skil hana. Síðast þegar ég las svona Íslendingasögu var það Gíslasaga Súrssonar og þar skildi ég ekki eitt einasta orð. Það eina sem ég veit um þá bók er að hún er um einhvern Gísla Súrsson og ég veit ekkert hver það er. Þið hefðuð átt að sjá fjöldann á Gíslum sem voru í fyrstu þremur köflum bókarinnar. Ég býst við að pakka þessari íslensku saman svipað og ég gerði við pulsurnar í sumar enda er ég með tíu í annareinkunn. Á samt einhver Laxdæluglósur sem hann gæti lánað mér? Ef að einhver myndi lána mér flottar glósur úr Laxdælu þá yrði ég þeirri manneskju ævinlega þakklát og myndi elska hana að eilífu. Auk þess kæmi til greina að tileinka þeirri manneskju blogg. Það yrði frábært!

Enn áhugasamari fólki vil ég einnig benda á það að litla systir mín er byrjuð að tala. Og hvað haldiði að fyrsta orðið sem hún sagði hafi verið? Jújú, mikið rétt. Hún byrjaði á rétta endanum og sagði fyrst;;
HELGA!
Ellið reynist samt svolítið erfitt stundum og þá notar krónprinsinn á heimilinu tækifærið og heldur því statt og stöðugt fram að hún hafi sagt Edgar en ekki Helga. Við vitum auðvitað öll að það er argasta vitleysa enda situr barnið stundum og kallar á systur sína. Án djóks. Erum við að tala um sniðugasta & sætasta barn í heimigeimi?
Sunneva
Já ég held það bara!

Höskuldur!
[Smá einkahúmor]

Helga ber ábyrgðina á Súperman-múnderingunni á systur sinni

//FimmtíuogSjö

11. mars 2007 klukkan 15:24
A : : B

My Name Is Earl hafði rétt fyrir sér. Karma kemur alltaf aftur og bítur mann í rassinn. Og í mínu tilviki beit það mig mjög fast í rassinn. Ef að ég væri með svona lífslista eins og Earl J. Hickey þá stæði núna neðst á honum með stórum stöfum;
  • 1928364; Hló að Hirti þegar hann var veikur

Já flensan [eða var það karma] náði mér á endanum eins og meirihlutanum af Íslendingum. Við Íslendingar erum ótrúlegir með þessa flensu. Ef að maður á Seltjarnarnesi hóstar þá er frændi hans á Fáskrúðsfirði kominn með flensuna. Ég var orðin viss um að flensan hefði tekið U-beygju þegar hún hefði rekist á ótrúlega sterka ónæmiskerfið mitt en því miður varð ég að láta í minni pokann fyrir flensunni og gjöra svo vel að leggjast í rúmið með 39° hita. Flensan sjálf var kannski ekki mesta vandamálið heldur það að ég missti af leikhúsferðinni í bæinn & árshátíðinni. Ég bókstaflega hóstaði þetta allt frá mér. Ég get þó huggað mig við það að núna er ég á hraðri ferð í áttina að því að verða betri manneskja. Karma & allt það.

Ég er hætt við að fara í Gettu Betur. Ekki samt fara að hafa það upp eftir mér að ég hafi einhvern tímann ætlað í Gettu Betur, ég sagði það aldrei. En ég er samt hætt við að fara í Gettu Betur. Sáuð þið það að á föstudaginn? EmmErr voru svo sjúklega góðir að mig svimaði. Þrjátíuogátta stig? Tuttuguogtvö í hraðaspurningum? Ef að ég fer einhvern tímann í gettu betur þá verður það eftir að ég verð háskólamenntuð. Ég veit ekkert svona mikið. Ég á eftir að gera mig að fífli. En það skiptir engu máli þar sem að ég sagði aldrei að ég ætlaði í Gettu Betur. Ókei, kannski þegar ég var sjö ára en þá ætlaði ég líka að verða flugfreyja [eða listmálari eða dýralæknir] og þá var stefnan að vera í sjálfum Gettu-Betur-Skólanum. Það er bara einn skóli í Gettu Betur ef þú skilur mig. En núna nýlega eru það allir aðrir sem eru að segja mér að fara í Gettu Betur og ég er komin í hring inni í mér um hvort ég vilji fara eða ekki. Það kemur bara í ljós.

Æfingaaksturinn gengur framar öllum vonum og ég get hér með vottað það að ég hef ekki lent í neinu slysi. Ennþá. Keyrði næstum því út af á föstudaginn [á möl] vegna þess að athygli mín lenti á rauðum húsum í stað vegarins. Mannleg mistök sem að allir ættu að læra af. Rauð hús eru stórhættuleg. Ég er handviss um að rassabítandi karma býr í stóru rassabítandi rauðu húsi. Mér hefur líka tekist það að vera eina manneskjan á veginum sem notar þessi goðsagnakenndu stefnuljós. Ég ætla bara að leiðrétta allan miskilning sem hefur orðið í samfélaginu hér og nú og segja ykkur að þau eru til í raun og veru. Þetta er ekki svona dæmi eins og jólasveinninn eða Davíð Oddsson. Nei, það liggur enginn vafi um hvort að stefnuljós séu til. Ég býð mig hér fram til að bjóða stefnulausum landanum upp á tveggja vikna stefnuljósa-námskeið sem mun bera heitið;

''Hvert er ég eiginlega að fara & hvernig hjálpa stefnuljósin að komast þangað?''

Ástandið á vegum landsins er hörmulegt. Hringtorg eru þar fremst í flokki hörmunganna. Fólk gefur engin stefnuljós þannig að litlir saklausir ökunemar eins og ég sjálf vita ekkert hvenær öruggt er að leggja í hringavitleysuna. Svo dirfist fólk að leggjast á flautuna þegar maður situr við stýrið og veltir vöngum yfir því hvort að maður eigi að taka af stað og eiga það á hættunni að rispa lakkið eða eitthvað þaðan af verra. Mér var skapi næst að stökkva út úr bílnum, banka á rúðunni hjá kauða og spyrja hann hvort að það væri ekki allt í lagi heima hjá honum og hvaða erfiðleikar það væru sem að fengju hann til að flauta á saklausa ökunema. En virðingarinnar vegna hélt ég skapinu í skefjum. [Þetta gerðist sem sé í gær á Selfossi]

Ég nýtti mér í staðinn eðlisfræðiþekkingu mína og breytti reiðiorkunni í námsorku. [náskylt skrið- og stöðuorku] Í morgun settist ég við tölvuna mína og rumpaði tveimur Laxdæluverkefnum af & skilaði í þar til gerða skilamöppu á veraldarvefnum, nánar tiltekið á Plútó. Síðasti skiladagur er á miðvikudaginn en þar sem ég sé fram á að vera að drukkna í heimalærdómi, sjálboðaliðastarfi, sjónvarpsglápi & emmessenni þá ákvað ég að klára þetta í dag. Samkvæmt Elsu kallast það að vera of gáfaður.

Helga er of gáfuð fyrir stefnulausan landann

//FimmtíuogSex

05. mars 2007 klukkan 13:01
Seth/Ryan : : Summer

Mars? Vá hvað tíminn líður hratt, eftir nákvæmlega hundraðogeinn dag verð ég á leiðinni til Spánar. Mér finnst samt eins og ágúst hafi bara verið í gær, eða í fyrradag. Ég verð komin á elliheimili í næstu viku ef að tíminn heldur áfram að líða svona hratt. Talandi um elliheimil þá varð María ellismellur á fimmtudaginn var [1.mars] og ákvað að fylgja mér & Iðunni inn á sautjánda aldursárið. Jæja, ég naut þess alla vega í fimm mánuði að vera ári eldri en hún. Til hamingju ;*

Helgin var ljómandi góð. Á föstudaginn eftir skóla tók ég strætó í bæinn og svo rútu á Selfoss. Á Selfossi varð ég að gjöra svo vel að arka snjó & slabb alla leið heim til afa & ömmu [sem búa í þarnæstu götu við rútustoppið] Hef ég nokkuð minnst mjög mikið á það hversu illa mér líkar við snjó? Ég held að ég hafi átt að fæðast við Miðjarðarhafið, alla vega í Mið-Evrópu, en í staðinn fæddist ég á ÍSlandi. Sem ég elska mínus snjóinn. En já heima hjá afa & ömmu gerðist ég tölvusnillingur mikill og fann vildarpunktana hans afa. Klappiklapp. Ég fékk líka voða góðan mat, súkkulaði shake & horfði á Gettu Betur. Sem ég elska líka. Ég er greinilega mjög ástrík manneskja. Amma skutlaði mér svo upp í FSU þar sem ég beið eftir rútunni frá Hvolsvelli sem var á leið á Stokkseyri. Ég & Harpa skelltum okkur nefnilega á ball á Stokkseyri.

Ballið var ágætt. Hitti alveg helling af fólki sem ég hef ekki séð síðan égveitekkihvenær og voru þar á meðal Finnur, Jóna, Ási, Smár, Gísli, Pálmi & stórvinur minn hann Óli Odds. Ballið kláraðist um tvö en rútan sem átti að fara á Hvolsvöll lagði ekki af stað fyrr en klukkan þrjú. Ég & Harpa vorum á einum tímapunkti komnar upp í rútuna sem var að fara í Þorlákshöfn en náðum að koma okkur út áður en við enduðum í Vestmannaeyjum. Spes. Rútuferðin á Hvolsvöll var mjög þreytandi og einhvern veginn náðum við að labba úr Hlíðarenda og heim til Hörpu þar sem að við rotuðumst. [Ég í mjúka rúminu hennar Hörpu =D] Á laugardeginum fórum við til Taniu og horfðum á helminginn af The Devil Wears Prada ásamt fyrsta þætti af House [sem ég elska líka]. Restin af laugardeginum fór í að horfa á fleiri myndir og byrjunin á sunnudeginum líka. Við gerðumst líka duglegar og lærðum voða mikið saman.

Í gær klukkan korter yfir fimm tók ég svo enn aðra rútuna þá alla leið í höfuðborgina. Þaðan lá leiðin í síðustu rútu/strætó helgarinnar sem að flutti mig næstum því heim að dyrunum. Ég horfði svo á Dexter vin minn í sjónvarpinu í gærkvöldi sem var yndisleg tilbreyting frá öllum myndunum sem ég horfði á um helgina. Ég var komin með upp í kok af öllum þessum happy endings. Ég pant einn svoleiðis endi. En eins og María orðaði svo viturlega í gær þá er ég bara í miðri mynd, endirinn er ekki kominn. Vææææmið. :]

Mánudagurinn í dag er eini típíski skóladagurinn í þessari viku. Og ég er búin að fara í tvo tíma í dag. Lovely. Mætti í morgun og fór í sögu [þar sem ég lærði að í gamla daga mátti gelda göngumenn] & efnafræði. Dönskukennarinn var svo veikur þannig að ég fór heim og þarf ekki að mæta aftur fyrr en 13:35 af því að það eru heldur engar bóklegar íþróttir. Á morgun byrja svo opnu dagarnir og þá ætla ég að skella mér í Landnámssetrið í Borgarnesi með Maríu rútupartner, á miðvikudaginn fer ég svo á leikritið Pabbann um kvöldið & hef allan daginn til að dunda mér eitthvað. Ætla í klippingu og örugglega eitthvað meira skemmtilegt. Á fimmtudaginn er stefnan svo tekin á Hvalstöðina með Finnboga grínista. Árshátíðin er svo á fimmtudagskvöldið & Paparnir að spila. Hef ekki hugmynd um hvort að ég nenni en það kemur allt í ljós. Föstudagurinn verður svo bara tjill og rólegheit.

María
María Ellismellur

Helga er farin að borða bakarísmat

Prófíll