//FjörtíuogNíu
: : 
Ég er búin að upplifa veröldina á nýjan hátt síðan á föstudaginn. Ég er farin að sjá hlutina sem eru langt í burtu og í morgun tókst mér loksins að fatta hvað sögukennarinn var að gera með þessar glósur upp á töflu. Þetta voru í alvörunni orð en ekki bara klessa í móðu. Hvað haldiði að hafi gerst? Jú, ég er komin með gleraugu. Eftir sextán ár af því að vera ekki með gleraugu, teina, rauðhærð og örvhent. [En það voru einmitt verri kostir lífsins þegar ég var átta ára] Núna verð ég víst að hætta að kalla fólk gleraugnagláma og byrja að kalla sjálfa mig gleraugnaglám. Ég meika það samt ekki að þið kallið mig gleraugnaglám þannig að ekki.
Á föstudaginn keyrði Dagný [æfingarakstur gott fólk] mig og foreldra hennar austur í sveitina. Þau voru nefnilega að fara á þorrablótið í sveitinni og ég og Dagný pössuðum gríslingina á meðan. Börnin sofnuðu eftir að við höfðum raðað pizzu, snakki & búðing [bú-þing eins & Þorfinnur orðaði það] ofan í þau. Ég & Dagný horfðum svo á A Walk To Remember og gerðum þá samning um að fara í roadtrip til Bandaríkjanna. Við ætlum nefnilega að finna hann Shane West & hann Chad Michael Murray =]
Daginn eftir fórum við í bæinn af því að gamla fólkið var að fara í matarboð í Grindavík. Ég, Dagný, Þórhildur & Þorfinnur gistum heima hjá Fríðu og Gústa og borðuðum örugglega ólöglega mikið magn af nammi. Ég fékk loksins að sjá She's The Man og gat ekki hætt að segja Dagnýju hversu krúttlegur Channing Tatum væri.
Í íþróttum áðan gerðist ég mjög íþrótta

//FjörtíuogÁtta
: : 
Þessi vika er ekki búin að vera eins brjáluð og ég hélt að hún myndi verða en það orsakast aðallega af því hversu margir kennarar eru veikir. Til að mynda þá var þetta alveg íþróttalaus vika hjá mér vegna þess að hún Anna, íþróttakennarinn, er veik. Tvöföld gleði! Reyndar sagði læknirinn sem ég fór að heimsækja í gær að ég mætti alls ekki stunda íþróttir þessa vikuna og að ég ætti að hvíla vinstri hendina. Af hverju? Jú, ég nefnilega vaknaði með eitthvað svaka kýli á föstudaginn sem hefur ekki gert annað en að stækka og í gær var ég alveg að drepast í því þannig að móðir mín ákvað að fara með mig til læknis í gær eftir skóla. Læknirirnn skoðaði þetta eitthvað og potaði í mig og svo sagði hann mér að leggjast niður og ákvað að kreista þetta svolítið. Náði svo í einhvern hníf og kroppaði í þetta og þá var þetta bara fullt af greftri. Ullabjakk! Hann pakkaði þessu inn í sáraumbúðir og skipaði mér að taka pensillín. Og ég á að hvíla vinstri hendina. Málið er að ég kann það bara ekki baun í bala. Ég nota hægri hendina mest þar sem að ég er rétthent. En ég hlýt að átta mig á þessu.
Á eftir er ég svo að fara til augnlæknis og svo í ökutíma. Einhvers staðar þarna á milli ætla ég líka að horfa á Íslendinga rústa Túnismönnum/búum. Hvað heitir fólk frá Túnis? Túnisar? Túnfiskar? Æi það skiptir engu máli. En nú ætla ég að fara að horfa á Veronica Mars. Fyrstu seríu. Ég fann hana nefnilega á internetinu. =]
//FjörtíuogSjö
: : 
Sigurinn á Áströlum var líka bara djók og ég tel það ekki einu sinni með. Að sigra Ástrala í handbolta er mjög svipað og að að vinna okkur Íslendinga í fótbolta. Ég horfði reyndar ekki á leikinn en náði samt fyrstu 10 mínútum í útvarpinu þegar ég var að keyra undir Akrafjallinu. Ég var nefnilega í ökutíma og keyrði næstum því útaf =] Ótrúlega dugleg! Svo drap ég líka einu sinni á bílkvikindinu en ég vil samt eiginlega ekki tala um það.
Þegar að ökutímanum lauk skutlaði ég sjálfri mér á strætó, nei ég klessti ekki á strætó, og tók strætó með henni Biddu í Reykjavík. Afi kom og sótti okkur og skutlaði Biddu í Völvufellið en mér til Ásthildar. Ég, Ásthildur & Natalía gerðum okkur svo tilbúnar fyrir árshátíðina. Við fórum með Jóhannesi niður í Fíló og þar hittum við fullt af fólki. Ég & Ásthildur sátum svo á borðinu með besta fólkinu og að sjálfsögðu gullfiskinum honum Nemó, sem að ég nefndi svona frumlega. Á árshátíðinni borðuðum við ótrúlega góðan mat, horfðum á frábær skemmtiatriði og dönsuðum eins og okkur væri borgað fyrir það. Ég komst líka að því að það er ekkert rosalega þægilegt að vera að dansa við einhvern og reka hnéð á manni í hnéð á manneskjunni sem maður er að dansa við. Það er eiginlega bara frekar mjög óþægilegt. En já það var alveg óendanlega gaman að hitta allt þetta fólk sem að ég hef eki hitt síðan égveitekkihvenær! Ég, Ásthildur & Natalía fengum svo far heim með honum Hafliða sem var að fara að vinna. Jahá um nótt, ekki furða að manneskjan sofni allstaðar =P En já ég og Ásthildur reyndum svo að horfa á Master of Disguise en vorum orðnar svo þreyttar að við fórum bara að sofa. Og svo vaknaði ég með blóðnasir í morgun. Yummy yummy!
En í síðustu viku fóru ég og Sunneva í Ö-1 og stóðum okkur með glæsibrag. Við lærðum allt um umferðarmerkin og nú get ég bent á hvaða umferðarmerki sem er og sagt þér hvað það þýðir, eða svona næstum því. Ég og Sunneva tókum eitt svona bóklegt æfingarbílpróf saman og það munaði bara einni villu að við hefðum náð! En það falla hvort sem er allir á þessu æfingarprófi þannig að við vorum alveg þokkalega stoltar. Ég fattaði það í ökuskólanum að ég er að verða blind! Ég sá nákvæmlega ekki neitt á glærurnar og er að fara til augnlæknis á miðvikudaginn til að athuga hvort að ég þurfi gleraugu. =/
Þessi vika sem er að byrja eða er byrjuð, ég veit ekkert hvar ykkar vika byrjar, verður geðveiki hjá mér. Á morgun þurfum ég og Sara að stinga af úr stærðfræði til að fara upp í Rauða Kross og sjálfboðaliðast eitthvað og eftir það þarf ég að komast í íþróttir og spila handbolta. Gleði! Á miðvikudaginn er ég að fara til augnlæknis og á fimmtudaginn hef ég 12 mínútur til að koma mér úr síðasta tímanum og upp í strætisvagn á leið til Reykjavíkur. Já, ég er að fara að vinna til níu á fimmtudaginn. Svo er náttúrulega líka þetta típíska [þoli þetta orð ekki; kann ekki að skrifa það], skóli og heimalærdómur. Ég hafði hugsað mér að fara á ball á ML ball um helgina en með þessu áframhaldi sé ég fram á það að sofna í einhverju mjúku rúmi áður en að ballið byrjar. Eitthvert rúm laust? Pwettyplease.
En núna ætla ég að fara að læra í eðlisfræði svo að ég drukkni ekki í heimalærdómi í vikunni. Og Þór? Ég vil bara biðjast afsökunar ef að það virkaði eins og ég væri að hunsa þig í gær. Það var alls ekki ætlunin : [
//FjörtíuogSex
: : 
Húbbrí er að fara að koma heim! Og fyrir ykkur sem að vitið það ekki þá er Húbbrí tölvan mín. Hún er búin að vera í viðgerð vegna þess að diskadrifið krassaði og í dag hringdu gaurarnir sem voru að laga tölvuna í okkur og viti menn! Diskadrifið er bara ónýtt, en í ábyrgð. Það tekur viku að fá nýtt diskadrif og þeir ákváðu að skila mér tölvunni á meðan. Vúhú! Ég er alveg komin með fráhvarfseinkenni frá henni, er búin að nota foreldratölvuna á meðan og hún er eins og maur við hliðina á Húbbrí. Skjárinn er svo lítill að það fer bara allt í rugl og myndirnar koma út um allt. En gott að hafa einhverja tölvu á meðan. Ég er ekki neitt vanþakklát eða eitthvað svoleiðis =]
En ég var að vinna alla helgina og hitti gífurlega mikið af fólki. Á laugardeginum komu fyrst Hjörtur & Guðjón, svo Agnes og að lokum Jóna að hitta mig, bara mig. Og á sunnudeginum hitti ég Guðjón, Samma, Gumma Á, Gumma H & sá rétt glitta í Hjört. Mér leið bara eins og ég væri komin í sjötta bekk aftur; ég og strákarnir. Ég veit reyndar ekki hvort að ég er búin að fyrirgefa Guðjóni fyrir að láta mig hafa penna sem gaf mér straum, en það hlýtur að koma á næstu dögum Svo er maður bara búinn að vera í skólanum og læra á fullu.
Ég var ógeðslega dugleg á mánudaginn og eftir að hafa verið í skólanum frá hálf níu til fimm fór ég út að hlaupa. Jahá! Ég að hlaupa. Ótrúlegt en satt. Ég kalla það dugnað þar sem að ég var í íþróttum í síðasta tímanum. Þar var körfubolti og ég stórslasaðist á olnboganum þegar að einhver gaur reyndi að hlaupa í gegnum mig. En ég lifi þetta af. Í gær skellti ég mér í ökutíma. Var að leggja í víðasta stæði í heimigeimi og lagði skakkt! Já, ég er stórkostlegur bílstjóri. Svo fékk ég líka loksins að keyra utanbæjar og fór alla leið upp í fjórða gír! Það er ótrúleg breyting frá því að hafa verið að lúsablesast í öðrum gír á hringtorgunum á Akranesi. Í dag klukkan sex er ég svo að fara í Ö-1 eða þú veist þarna bóklega dæmið. Og skólinn er búinn klukkan fimm! Hjálp, það er alltof mikið að gera hjá mér. En vonandi verður æfingaleyfið komið í hús fljótlega því að þá get ég farið að keyrakeyrakeyra! Vá það er gaman að keyra =]
En hey ég ætla að fara að gera eitthvað menningarlegt áður en ég fer í skólann. Sem að er í rauninni bara veik eftirlíking af skólanum í fullkomna fyrirmyndaheiminum. Eða það sagði Platón alla vega og hann var læri
//FjörtíuogFimm
: : 
Ég ætla að reyna að halda augunum á mér opnum nógu lengi til að geta skrifað eitt stykki blogg. Eftir að hafa verið í skólanum í tvo og hálfan dag er ég alveg að farast úr þreytu og bakverkjum. Að burðast með skólatöskuna mína um skólagangana er sko ekkert grín. Ég fékk stundaskrána mína á mánudagsmorgninum og hún var ekki full af árekstrum eins og ég hélt að hún yrði. Nei, hún var barasta tóm. Ég var með fimm eyður og bara sautján einingar en ég þarf að lágmarki að taka tuttuguogfjórar einingar á þessari önn til að ná þessu á þremur árum. Ég skaust þess vegna til aðstoðarskólastjórans um eitt á mánudaginn og reddaði stundaskránni, reyndar eftir að hafa beðið í röð í næstum klukkutíma. Ég og aðstoðarskólastjórinn náðum í sameiningu að troða okkar ylhýra tungumáli og sögu inn í stundaskrána. Náði mér í tvo árekstra í staðinn sem að verða vonandi afgreiddir fljótt.
Það er alveg ótrúlega gott að vera komin í skólann aftur en samt get ég ekki beðið eftir næsta fríi. Ég held að ég muni aldrei vita hvað ég vil. Þegar ég er í fríi þá verð ég fljótt þreytt á því og þegar ég er komin í skólann þá langar mig strax í frí. Ég held reyndar að svefnleysið hafi eitthvað með þetta að gera. Ég þarf örugglega ekkert á fríi að halda bara svefni. Sem að kemur örugglega um þarnæstu helgi þar sem að ég verð að vinna um helgina. Svo þarf ég líka að hringja í ökukennarann á morgun og fara að reyna að koma mér á götur bæjarins. Æfingaleyfið kemur aðeins seinna en ég var búin að ákveða. En hverjum er ekki sama? Mér er alla vega nokk sama. =]
Ég vil mótmæla efnafræðibókinni minni. Hún er sko þykkari en þykk og án djóks þá er hægt að drepa manneskju með henni, alla vega páfagauk! Og til að toppa þetta allt saman þá er hún á ensku. Chemistry here I come. Kemur sér vel að ég kann ensku. Ég þori reyndar ekki að opna skaðræðisbókina og ætla mér ekki að gera það fyrr en að ég þarf það. Sögubókin er líka frekar þykk en hún hefur það sér til málsbóta að hún er skrifuð á ástkæra móðurmálinu. Og bara til að koma öllum á óvart þá finnst mér saga alveg ágætlega skemmtileg, alla vega forngrikkirnir. Ég veit ekki hvernig mér líst á að lesa um moldarkofana sem voru hérna um 1700 og súrkál. Ef að ég hefði verið uppi þá þá hefði ég verið athyglissjúkasta manneskjan í moldarkofanum, ekkert blogg eða neitt til að leyfa mér að tjá mig. Ég er reyndar frekar athyglissjúk núna en ég held þeirri athyglissýki bara innan veggja heimilisins.
Íslenska, íslenska, íslenska. Ókei ég get alveg sagt það að ég er íslenskunörd, mikið íslenskunörd. En vá ég er ekki að nenna að vera í henni, ég er svo ryðguð eitthvað. Áðan áttum við að skrifa ritun um einhverjar myndir af fólki og hausinn á mér var bara stopp. Ég fékk engar hugmyndir. Ég vona svo innilega að íslenskunördið í mér lifni við af því að ég meika ekki að vera eftir á í einhverri grein, sérstaklega ekki í íslensku.
Kössótt er orð!
Helga vill heimsfrið og þynnri efnafræðibók
FjörtíuogFjögur
: : 
Já halló. Fyrsta blogg ársins tvöþúsundogsjö. Árið hófst með tilheyrandi ljósum og látum en ég lét mér nægja eitt handblys. Það var alveg nógu hræðilegt fyrir mig ásamt glóðinni sem ringdi yfir mig úr köku nágrannans. Óþægilegasta glóð sem ég hef fengið yfir mig. Í fyrra hló ég eins og vitleysingur að skaupinu og var sú eina á heimilinu sem sá húmorinn við Ólívur Ragnar Grímsson. Hló samt örugglega meira að Kaupþings auglýsingunni með John Cleese og Þorsteini Guðmundssyni. Ég hef reyndar hlegið af örugglega öllum KB banka auglýsingunum sem hann hefur leikið í, þ.e. Þorsteinn.
Á þriðjudaginn fór ég í bæinn til að vinna en þar sem að nánast allar búðirnar í Kringlunni voru lokaðar þá lokuðum við Bryndís búðinni og ég fór bara heim til Dagnýjar. Dagný var reyndar í vinnunni en ég tók bara sjónvarpið traustataki og horfði bæði á Alfie og Kill Bill vol 1. Jude Law var fallegur eins og ávallt og Kill Bill var ein sú gervilegasta mynd sem ég hef á ævi minni séð. Blóðið bara spýttist út um allt eins og því væri sprautað úr tómatssósuflösku. Miðvikudagurinn fór í það að undirbúa útsöluna sem byrjaði á fimmtudaginn. Klukkan fimm var útsalan undirbúin þannig að ég skellti mér í bíó með Dagnýju & Áslaugu á Happy Feet. Ótrúlega fyndin og skemmtileg mynd. Sérstaklega miðað við að hún er um mörgæsir. Á fimmtudaginn byrjaði svo útsalan og ég skal sko segja þér að hún var Geðveiki með stóru og feitu G-i. Ég var aðallega á kassanum að skanna inn og stimpla afsláttinn inn og ég er handviss um að ef ég heyri eitt 'Bíp' í viðbót þá stekk ég út um gluggann í herberginu mínu! Á fimmtudaginn var ég líka búin um fimm í vinnunni og nýtti mér það í botn að Kringlan er opin til níu á fimmtudögum. Keypti mér glæsileg leðurstígvél, bol & Billabong tösku; Ætla svo að fara í Smáralindina og gá hvort að ég geti ekki eytt meira af öllum þessum peningi sem ég á. En ef þig langaði að vita það þá er ég rík. =]
Og að verða veik. Ég er líka að verða veik. Var ýkt slöpp í gær þegar ég fór að sofa. Ég kenni reykingastybbunni hjá Fríðu & Gústa um enda þurfti ég að anda í gegnum peysuna mína til að geta horft á House. Vaknaði svo í morgun að deyja í öllu andlitinu. Bruddi íbúfen og drakk kakó í allan dag en samt er ég ekkert skárri. Ég vona bara innilega að ég nái að sofa þetta úr mér af því að ég er að fara í brúðkaup á morgun. Svo er vinnan á sunnudaginn og skólinn á mánudaginn. Jebb, það er alltaf nóg að gera hjá mér.
Ég nenni svo ótrúlega ekki að sjá hvernig stundaskráin mín er þar sem að ég er viss um að það verða sko fleiri árekstar í henni heldur en í klessubílunum í tívolíinu!

