Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//FjörtíuogÞrjú

31. desember 2006 klukkan 22:38
A : : B



Ég trúi því varla að árið 2007 sé að fara að koma. Árið sem að ég fæ bílpróf, árið sem ég er búin að vera bíða eftir og árið sem að ég hélt að myndi aldrei koma er að koma í kvöld. Ég var að hugsa áðan um allt sem ég er að búin að gera í ár og þá mundi ég ekki eftir neinu sem gerðist fyrir maí. Það var eins og einhver hefði þurrkað fyrstu fjóra mánuðina út úr hausnum á mér. Enn svo þegar ég fór að hugsa aðeins betur þá mundi ég eftir alveg fullt af hlutum sem að gerðust, eða þú veist ekki alveg fullt bara smá fullt.

Árið 2006;;
-----^^^^-----

  • Fór ég til Vestmannaeyja í fyrsta skiptið
  • Fór ég á þrjú unglingamót. Í janúar, mars & júní
  • Eyddi ég öllu páskafríinu í að læra fyrir samrænda náttúrufræðiprófið
  • Tók ég öll samræmdu prófin
  • Fór ég í River Rafting
  • Útskrifaðist ég úr grunnskóla með 8.7 í meðaleinkunn
  • Dúxaði ég í íslensku
  • Eignaðist ég litla systur hana Sunnevu Rut
  • Flutti ég að heiman yfir sumarið
  • Flutti ég á Hvolsvöll til að vinna í SS
  • Vann ég eins og hestur í SS í tvo mánuði
  • Átti ég besta sumar í heimigeimi!
  • Keypti ég mér nýjan síma.
  • Borðaði ég fimm sinnum á Subway. Fyrstu fimm skiptin
  • Kynntist ég fullt af frábæru fólki.
  • Varð ég bloggóð.
  • Urðu Ítalir heimsmeistarar í fótbolta!
  • Fór ég á Kotmót.
  • =]
  • Byrjaði ég í Fjölbraut.
  • Byrjaði ég á náttúrufræðibraut í FVA
  • Planaði ég það að taka stúdentinn á þremur árum
  • Fór ég til Noregs á Ný Kynslóð mót
  • Kláraði ég fyrstu önnina mína í fjölbraut með 9 í meðaleinkunn
  • Fékk ég 25 einingar fyrir fyrstu önnina mína
  • Fórég í þrjá ökutíma og ekki hærra en annan gír
  • Vann ég í Bison í Kringlunni í jólafríinu.
Árið 2007;;
-----^^^^-----
  • Ætla ég að klára tvær annir í viðbót
  • Ætla ég að fá mér vinnu með skóla
  • Fer ég til Spánar í tvær vikur
  • Ætla ég að eiga langbesta sumarið í heimgeimi
  • Ætla ég að taka bílprófið
  • Og ná því
  • Verð ég sautján ára
  • Ætla ég að hætta að vera svona mikill asni =]
  • Ætla ég að vera duglegari að læra heima.
  • Sérstaklega í stærðfræði
  • Ætla ég að njóta lífsins

Jahá, það er nú bara svoleiðis. Það er rosalega fyndið að á gamlársdag þá fer maður alltaf að hugsa um allt sem maður gerði á árinu og hvað maður hefði ekki átt að gera eða gera og hverju maður myndi vilja breyta. Svo ákveður maður að verða mikli betri manneskja á næsta ári en svo strax í febrúar er maður hættur að pæla í því. Svo fer þetta í hringi =] Ég hef samt aldrei verið fyrir það að strengja áramótaheit. Ég set mér frekar bara markmið, ekkert tengt áramótunum neitt.
En áramótin eru alltaf frekar skemmtilegur tími. Ég elska að horfa á annálana og lesa árslista yfir hinu ýmsu hluti. Eins og núna er ég að hlusta á árslista FM957. Ætla bara svona til gamans að nefna þrjú uppáhaldslögin mín árið 2006. Ekkert betra en annað; öll jafngóð.

Topp þrjú 2006
Chasing Cars - Snow Patrol
Move Along - The All American Rejects
Sexyback - Justin Timberlake

Helga kemur með blogg á næsta ári
Ef þú vilt vita hvað annað gerðist á þessu ári
Hey já!
Gleðilegt nýtt ár!

//FjörtíuogTvö

24. desember 2006 klukkan 18:12
Pakki : : Kúlur
Aðfangadagur í dag.
Jól eftir sex tíma

Til hamingju með jólin!

Helga alveg að komast í jólaskap

//FjörtíuogEitt

18. desember 2006 klukkan 04:06

Snowy : : Reindeer

Ókei. Er ekki kominn tími á smá blogg frá mér? Þó að ég sé orðin vinnandi manneskja á ný þá þýðir ekkert að vanrækja þessa síðu. Ég hefði frekar haldið að ég yrði bloggóð núna þegar ég er byrjuð að vinna aftur. Ég var það alla vega í sumar þegar ég var vinna eins og hross. En aðalástæðan fyrir því að ég er ekkert búin að blogga er sú að síðastliðnu vikuna er ég búin að vera upptekin eins og dós af grænum baunum sem lenti illa í dósaupptakaranum! Síðan á sunnudaginn er ég búin að taka fjögur erfið próf, fara í fyrstu þrjá ökutímana mína & vinna heila tuttuguogfimm klukkutíma í Bísón, Kringlunni.

Vinnan sjálf er ágæt, ekkert verri en einhverjar aðrar vinnur. En hún er bara svo hrikalega þreytandi. Ég er þreytt á að segja Góðan daginn eða get ég aðstoðað. Ég gæti ælt þegar fólk biður um svona peysu á miðaldra konu og horfir svo á mig eins og ég viti allt um það. Halló engin miðaldra kona hér á ferð. Bara hún sextán ára gamla ég. Í gær þurfti ég svo að módelast eitthvað fyrir einn viðskiptavininn; ég var eitthvað að reyna að selja honum kápu á konuna hans og honum fannst hæð mín eitthvað svo tilvalin [1.80 my ass, 1.78 thank you very nice] þannig að ég skutlaðist í kápuna. Frábær sölukona eða hvað? Lagerinn fyrir aftan búðina er líka með eindæmum lítill og ég á örugglega eftir að stórslasa mig við að teygja mig í einhverja af þessum peysum sem að eru geymdar einhversstaðar lengst upp á hillu. En ég er samt ekkert að kvarta. Eins & ég sagði þá er þetta ágæt vinna =]

Já, eins og ég skrifaði þá er ég búin að fara í þrjá ökutíma. Búin að keyra um allt Akranes á dökkbláum Mercedes Bens. Klassi! ;] Ég ætla ekkert að fara að tjá mig hér um það hvernig þessir tímar eru búnir að ganga en segjum bara að ég sé ekki búin að keyra útaf, ennþá. Er að fara í fjórða ökutímann á þriðjudagin og þá er stefnan tekin á þjóðveginn. Og kannski þriðja gírinn líka? Ég er nefnilega bara búin að vera í öðrum gír. Ég og annar gír erum like this. Æfingaleyfið verður komið í hús um mánaðamótin janúar/febrúar ef þetta heldur svona áfram. =]

Prófin kláruðust á fimmtudaginn. Náttúrufræði 103, Náttúrufræði 123, Stærðfræði 103 & Danska 103 komu þarna öll í röð tilbúin að pína mig. Ég var svo stressuð fyrir náttúrufræðinni hundraðogþrjú að ég gat varla andað. Ég las og las og las og las þangað til að heilasellurnar láku út um eyrun á mér. Ég ætla bara að segja að það hafi borgað sig þar sem að ég er búin að sjá allar lokaeinkunnirnar mínar viva la Internet.

  • Danska; 9
  • Enska; 9
  • Náttúrfræði 123; 9
  • Náttúrufræði 103; 10
  • Stærðfræði; 9

Formlega einkunnaafhendingin er svo á þriðjudaginn og prófasýning eftir það. Eftir ökutímann er svo planið að flýja til höfuðborgarinnar. Ég verð að vinna frá 10 á miðvikudagsmorgni til 11 á Þorláksmessukvöldi. Elskulegur faðir minn mun svo sækja mig annað hvort á Þorláksmessukvöld eða á Aðfangadagsmorgun enda verða jólin þetta árið haldin í sveitasælunni. Ég verð sem sé jafn upptekin í næstu viku eins og ég hef verið í þessari þannig að það eru ekki miklar líkur á bloggi.
Helga Bíddu eru jólin að koma?

//Fjörtíu

07. desember 2006 klukkan 02:16
Kökur á diski! : : Hangandi kaka

Helga er í prófum.
Enska búin.
Náttúrufræði
Náttúrufræði
Stærðfræði &
Danska eftir
Hún nennir ekki að blogga.

-----^^^^-----

Þú og ég hljómar það ekki vel?

Ekki særa mig ég veit ég vil þig
Land & Synir - Ástarfár



Helga
læring her ass off

//ÞrjátíuogNíu

04. desember 2006 klukkan 04:52
Llama : : Llama

Manneskjan sem sagði að systkini væru besta getnaðarvörnin hitti svo sannarlega naglann á höfuðið. Ég get alla vega ekki hugsað mér að fara að eignast börn núna eftir að hafa borið ábyrgðina á litla bróður mínum í næstum eina og hálfa viku. Hann er búinn að vera yndislega þrjóskur, frekur, neikvæður & einfaldlega leiðinlegur við mig síðan að mamma og Hjalti skelltu sér til Svíþjóðar og tóku hana Sunnevu með. Hann sagði mér til dæmis áðan þegar við fórum í rútuna á Selfossi að hann væri búinn að borða þannig að ég var ekkert að spyrja hann hvort hann væri svangur þegar við komum í bæinn, en nei þá var hann víst svona voðalega svangur að hann gat varla labbað. Ég er náttúrulega frábær systir og lét afa stoppa á Burger King til að barnið & ég gætum fengið okkur að borða. Ég hélt að ég myndi verða gráhærð þarna inni; þetta yndislega barn lék sér að því að labba á fólk, stíga á tærnar á mér og hvað sem ég sagði þá hlýddi hann mér alls ekki. Mér var farið að líða frekar asnalega þar sem að fólk var farið að horfa á mig og hélt örugglega að ég ætti þetta brjálaða barn. Ég er ekkert smá fegin og glöð að mamma er að koma heim á morgun!

Annars er mjög lítið búið að gerast hjá mér. Ég fór hvorki á Mýrina né á James Bond en það skiptir svo sem litlu máli. Horfði á Home Alone 1, Nanny McPhee, Princess Diaries 2, Stick It & Break Up um helgina ;] Ég get svo bara nauðgað kvikmyndahúsum höfuðborgarsvæðisins þegar ég fer að vinna í Kringlunni. Bæði Ólöf & Þór eru búin að segja að þau ætli að koma að kíkja á mig, eru það kannski einhverjir fleiri sem ég gæti átt von á? Það er alltaf gaman að hitta fólk. Það væri líka frábært ef að einhver myndi nenna að gera eitthvað með mér, ekki bara kíkja á mig í vinnuna, til dæmis að fara í bíó með mér. =] Pretty please?

Mig langar í bílpróf. Núna og helst í gær. Ég er komin með svo mikið ógeð á rútum & strætóum og því að fá far hjá afa mínum. Mig langar bara að geta gert þetta sjálf! En kannski þyrfti ég þá að fara að hringja í ökukennarann og það tekur því eiginlega ekki núna af því að ég er að fara að byrja í prófum. Fimm próf & þá er þetta búið. Þessi fyrsta önn mín af sex. Verð vonandi komin með 24 einingar í kringum 19.desember. Verð bara að ná þessu líffræðidæmi sem að ég skil ekki neitt í og þá er ég í góðum málum. Hin fögin eru ekki það erfið, nema kannski stærðfræðin. Hún er alltaf frekar böggandi.

Heyrðu svo er ég að fara að yfirgefa þetta skítapleis þann fjórtánda júní næstkomandi. Ég er að fara til Spánar og verð þar í tvær vikur! Ég ætla mér svo feitt að verða brún. Kolbrún & glansandi ljóshærð.

Helga Farin til Spánar í huganum.

Prófíll