Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//ÞrjátíuogÁtta

30. nóvember 2006 klukkan 02:18
Candycane : : Holidays

Ef að það er eitthvað sem ég er ekki þekkt fyrir þá er það skipulagning. Ef að það er einhver skipulagning í mínu lífi þá er það hin skipulagða Chaos sem ríkir í herberginu mínu. Ástandið verður stundum það slæmt að ég týni öllu um leið og ég reyni að taka til. Hvað þá ef einhver annar tekur til í herberginu mínu, sem gerist reyndar aldrei, þá týni ég öllu og finn það ekki aftur fyrr en hin skipulagða chaos hefur snúið aftur.

Þessa daganna væri þó alveg eins hægt að segja að ég væri byrjuð að skipuleggja mig. Bara í þessari viku er ég búin að taka fimm próf og á eftir að taka tvíþætt dönskupróf á morgun, hlustun plús munnlegt.

  • Náttúrufræði 123 [9.85]
  • Náttúrufræði 103 [?]
  • Stærðfræði [10]
  • Enska [9.8]
  • Enska munnlegt [9]

Það krefst heilmikillar skipulagningar að taka fimm próf á þremur dögum. Eða það finnst mér. Er líka búin að vera á fullu að gera ýmis verkefni og var rétt áðan að ljúka við gullfallega ritgerð um Gróðurhúsaáhrifin sem að ég á að skila á föstudaginn. Ég var svo sniðug að klára hana í dag að á morgun ætla ég með Auði í bíó að sjá Mýrina. Það er kominn tími til að sjá þessa mynd sem að allir eru að tala um. Ég veit reyndar alveg um hvað myndin er þar sem að ég las bókina þrisvar. Á föstudaginn ætla ég svo að taka aftur rútuna með Edgari á Selfoss og svo ætla ég í bíó á sjálfan James Bond með Áslaugu, vinkonum hennar & svo ætlar Dagný álfur víst að koma með líka til að halda mér félagsskap. Nokkrar af vinkonum Áslaugar héldu því reyndar fram að þeim myndi leiðast voðalega mikið ef að ég kæmi með þannig að mér hefur verið skipað að sitja í sætaröðinni fyrir neðan þær.

Prófavikan sjálf byrjar svo á mánudaginn en fyrsta prófið mitt, enskuprófið, er ekki fyrr en á miðvikudaginn. Síðasta prófið, dönskuprófið, er svo fimmtudaginn 14. desember og þann sama dag er ég að fara til Reykjavíkur að vinna í Kringlunni. Verð að vinna þar eitthvað fram að jólum og svo kannski eitthvað á milli jóla & nýárs. Það verður ágætt að fá smá pening inn á bankareikninginn. Ætla svo að sækja um í einhverjum af þessum nýju búðum sem eru að koma.

Helga Skipulagða

//ÞrjátíuogSjö

25. nóvember 2006 klukkan 22:47
Logan : : Logan

Enn einn laugardagurinn sem fer ekki í neitt annað en lærdóm. Í þetta skiptið er það efnafræðin sem krefst þess að vera lesin; Hlutapróf númer tvö á mánudaginn. Fyrir það próf þarf ég að vera búin að lesa fjórða, fimmta, sjötta og sjöunda kafla. Efnafræði er reyndar ekkert erfið en vandamálið er að ég næ varla að halda augunum opnum til að lesa og þegar ég næ að halda þeim opnum þá hverfur einbeitingin. Ekki nógu gott þarf sem að ég þyrfti eiginlega að ná að klára að lesa þetta einu sinni til tvisvar sinnum yfir og fara svo kannski að byrja á ritgerðinni sem ég á að skila á föstudaginn. Svo á ég eftir að fara í líffræðipróf á miðvikudaginn & skila erfðafræðiverkefni. Og þetta sem ég er búin að telja upp er bara í tveimur áföngum af þeim átta sem ég er í.

Í gær tókum ég & Edgar rútuna úr bænum og á Selfoss. Edgar pælir í ótrúlegustu hlutum miðað við að hann er sex ára; Hann var í gær að skoða stjörnurnar út um rútugluggann og spurði mig svo af hverju Plútó væri ekki lengur reikistjarna og væri bara stjarna núna. Ég sagði að einhverjir vísindamenn hefðu ákveðið þetta og þá spurði hann með sinni skæru rödd: "En er það ekki Guð sem ræður því?"' Eftir það svaraði ég öllum spurningum með Ég veit það ekki.

Afi Glúmur sótti Edgar á Selfoss en Birgir ætlaði að sækja mig. Hann, þessi yndislegi frændi minn, hringdi í mig þegar ég var í rútunni og sagði mér að hann nennti ekki á Selfoss og að ég fengi far hjá Símoni, síðan fékk ég númerið hjá Símoni og átti bara að hringja í hann. Hann var reyndar bara í næsta bíl við bílinn hjá afa þegar ég hringdi í hann og ég fékk rosalega fallegt comment frá honum
Já ég sé þig, þú stendur fallega.
Brunuðum svo upp á Laugarvatn á tíma sem hlýtur að teljast met, alla vega fyrir mig. Þegar komið var upp á Laugarvatn henti ég dótinu mínu inn í skáp hjá Hirti og fór svo að leita að honum sjálfum. Það var erfiðara en að finna skittles í skál af M&M-i. Hitti mikið af skrautlegu fólki á leiðinni sem kannaðist alltaf jafn mikið við mig en ég hafði aldrei séð það áður á ævinni. Fólk verður alveg rosalega vinalegt þegar það er í glasi. Fann hann að lokum og þá varð ég auðvitað að horfa á bæði atriðin hans í Blítt & Létt. "Helga sjáðu þarna er ég."

Ef þú hefur aldrei farið á ML ball þá ertu að missa af miklu og ég ætla svo þokkalega að fara aftur, jafnvel þótt að ég drekki ekki. ;] Það var geðveikt stuð á vistinni fyrir ballið og partýið byrjaði alveg þónokkrum klukkutímum fyrir ballið. Kynntist alveg helling af fólki sem ég efast um að muni eftir mér næst þegar ég hitti það. Hitti líka fólk sem ég þekkti fyrir og komst til dæmis að því að ég á einn enn frænda í ML. Jahá, ég og James erum sem sé skyld, eða allavega samkvæmt honum.

Ballið sjálft var líka geðveikt skemmtilegt og ég verð að segja að ég skemmti mér betur á þessu balli en á böllunum í FVA. Miklu meiri stemning í ML ;] Dansaði eins og brjálæðingur við Agnesi og fleiri. Hitti líka Svavar Geir elskulegan frænda minn sem ég hef ekki hitt síðan ég veit ekki hvenær! Hann er alltaf jafn hress og skemmtilegur. Fékk að vita það frá Ómari að ég hefði misst af frábærum atriðum [þ.e. hans atriðum] á Blítt & Létt þar sem hann meðal annars reif af sér bolinn og fleira skemmtilegt. Sá reyndar atriðið þeirra Ómars, James, Stjána og hinna strákanna í 4.bekk þar sem að þeir tóku Sexy Back með tilheyrandi dönsum og læti. Einstaklega kynþokkafullt atriði þar sem að skorturinn á klæðnaði á efri hluta líkamans var sérstaklega kynþokkafullur ;]
Hann faðir minn kom svo og sótti mig upp á Laugarvatn rúmlega tvö. Ballið var reyndar til þrjú en þar sem að ákveðin manneskja Hjörtur Freyr sagði mér að ballið væri bara til tvö þá fór ég snemma. Fúlt en hann Birgir tjáði mér það að hann ætlaði sko að tala við móður mína til þess að ég fengi að gista næst þegar ég kæmi. Ég á frábæran frænda! <3

Í morgun vaknaði ég svo yndislega þreytt.Var hálfvakandi í alla nótt og vaknaði allt of snemma að mínu mati. Ellefu er allt of snemmt á laugardagi, hvað þá eftir ball. Var líka að deyja úr hungri en mér hefur ekki tekist að borða neitt án þess að verða óglatt síðan í hádeginu í gær. =/ Fór í sturtu og er svo bara búin að vera að reyna að lesa í þessari yndislegu fræði sem er kennd við efni. Lotukerfið og fleira skemmtilegt.

Er að pæla í að fara að hætta þessu þar sem að þetta er orðið feiknarlega langt blogg; það lengsta sem ég hef gert í langan tíma ef ekki það lengsta síðan alltaf.

Helga ML fan

//ÞrjátíuogSex

21. nóvember 2006 klukkan 03:55
Kósí : : Ducky

Snjóhóhór! Hver gaf leyfi fyrir öllum þessum snjó? Það var alla vega ekki ég, svo mikið get ég sagt þér. Ég vaknaði nú bara í gærmorgun og þá var bara allt í kafi á snjó. Á Akranesi meira að segja. Það hefur aldrei komið snjór hérna síðan ég flutti hingað og þegar hann kemur þá kemur bara heill hellingur af honum. En snjór getur svo sem verið ágætur, sérstaklega þegar það er brekka og snjóþota/sleði inni í dæminu.

Skólinn hjá mér jaðrar við geðveiki þessa dagana. Ég er varla komin inn í skólann þegar þessi geðveiki byrjar. Fyrirlestur á morgun. Einn frá Stígamótum. Annar frá mér. Og svona okkar á milli þá er ég að deyja úr stressi, það er svona kvíðahnútur inni í maganum á mér sem er búinn að binda allir garnir í kross og vefja miltað utan um. Svo eru jólaprófin líka að koma! Aðeins ein vika og fjórir dagar eftir og þá er ekkert eftir af þessari fyrstu önn minni í Fjölbrautaskóla Vesturlands nema auðvitað blessuð prófin. Mér finnst að það ætti að breyta laginu úr Bráðum koma blessuð jólin yfir í Bráðum koma blessuð prófin. Því að auðvitað er stórt samansemmerki þar á mlili. Jól eru ekki jól án þess að maður hafi gengið í gegnum hálfan tug prófa fyrst. Og helst nokkur erfið í röð en þannig er það einmitt hjá mér. Stærðfræðiprófið og bæði náttúrufræðiprófin koma þarna einhvern tímann öll í halarófu tilbúin að pynta mig með allskonar efnaformúlum og jöfnu beinnar línu.

Annars tókst mér nú að eyða fullt af peningi um helgina. Keypti þær jólagjafir sem ég þurfti að kaupa [sem sé handa Maríu & Iðunni] og dekraði líka við sjálfa mig með hvítri Sparkz peysu og einum bol. Maður verður nú að vera soldið góður við sjálfan sig er það ekki ? Hitti bæði Gaua & Gvend, sem fyrir þá sem eru ekki kunnugir um þá félaga eru Guðjón & Guðmundur H, og var einstaklega gaman hjá okkur fimm í Kringlunni. María & Iðunn voru nefnilega líka með mér og voru þær að sjálfsögðu settar í pössun hjá GG á meðan jólagjafainnkaup fóru fram.

En núna er So You Think You Can Dance byrjaður, eða löööööngu byrjaður eins og elskulegir foreldrar mínir bentu mér á, og þess vegna ætla ég að skundast upp á efri hæð þessa fallega húss sem ég kalla heimili mitt. Sjónvarpið hefur nefnilega sínar vistarverur á efri hæðinni og þar með foreldrarnir. =]

Helga Forníslenska já takk!

//ÞrjátíuogFimm

17. nóvember 2006 klukkan 00:53

Mikki : : Artífartí

Þá er þetta bloggkerfi loksins komið í gang aftur. Ég var orðin nett pirruð á því að geta ekki bloggað og hvað þá farið inn á síðuna mína. En núna er þetta allt komið í lag aftur og vonandi helst það í lagi

Helgin fór eins og ég ætlaði mér, ég gerði ekki neitt. Alla vega ekki neitt merkilegt, kannski fyrir utan það að ég lagði mig fram við að gera erfðafræðiverkefni fyrir Nát 103. Það indæla verkefni ákvað svo að hverfa úr tölvunni minni þannig að ég eyddi mánudagseyðunni minni í að gera verkefnið allt upp á nýtt; ekki gaman. Þessi vika er búin að vera ágæt horfðum á einhverja sjúka mynd í dönsku um Grænu Slátrarana. Þessir slátrara voru að byrja með kjötbúð en rafvirkinn lokaðist óvart inni í stóra kælinum þannig að þeir ákváðu að hakka hann niður og selja hann fyrst að enginn vissi að hann var hjá þeim. Þeir voru búnir að hakka töluvert af manneskjum í lok myndarinnar en þá föttuðu þeir að það var ekki kjötið sem var svona gott [það vildu allir kaupa hjá þeim] heldur maríneruðu þeir kjötið með svo góðri sósu. Og þá hættu þeir auðvitað að slátra fólki og allt endaði vel. Svo var auðvitað heiladauði, dýraunnandi tvíburabróðirinn sem var í dái í heil sjö ár en vaknaði þegar það átti að slökkva á öndunarvélinni og byrjaði að ganga um allt með gíraffann sinn. Jahá, ef það var einhver boðskapur í þessari mynd sem að ég á eftir að fatta þá skal ég svo sannarlega láta þig vita þegar ég fatta hann.

Gerðum líka ýkt töff í Náttúrufræði; vorum að skoða erfðir og svona og gá hvort að við værum með nokkra eiginleika sem fara eftir erfðum:

  • Ég get myndað svona u með tungunni
  • Ég er ekki litblind
  • Ég get beygt þumalfingur aftur um 45 ° [eða svona næstum því]
  • Ég er með lausa eyrnasnepla
  • Ég er með kollvik
  • Ég er með hökuskarð
  • Ég er með löng augnhár & liðað hár
  • Og ég er í blóðflokknum B+

Svo fór ég í göngugreiningu á þriðjudaginn og ég er að fara að fá ný innlegg. Ég er nefnilega með svo sniðuga fætur. Hælbeinin eru skökk og svo er ég innskeif bæði á ökklum og hnjám. Vissi það reyndar allt en fékk líka að vita það nýjasta við þá; vinstri fóturinn er fjórum millimetrum styttri en sá hægri. En þetta er allt saman innan skekkjumarka þannig að það þarf ekki að gera neitt.
Hey, ég fór líka í klippingu á föstudaginn. Er orðin ljóshærðari en ég var =]

Á morgun er ég svo vonandi að fara að prófa að vinna í Bísón. Ætla svo að gista hjá Iðunni yfir á laugardag og skella mér svo í aðra hvora verslunarmiðstöðina og kaupa jólagjafir. Og auðvitað hitta Guðjón ;] Hann er búinn að vera að heimta að ég kíki til hans í bæinn síðan í september eða eitthvað og núna er tími til kominn að fara að hitta hann.


Helga The Lean Mean Eating Machine

//ÞrjátíuogFjögur

10. nóvember 2006 klukkan 00:41
Snowy Snowy Snowy

Það er að koma vetur. Ég vil ekki vetur. Ég vil bara sumar og mikið af því. Mér líkar illa við snjó, mjög illa við snjó. Einu skiptin sem að mér finnst gaman í snjó er þegar ég er hjá pabba & get farið út að renna mér. Þá verður líka að vera almennilegur snjór ekki einhver slyddudrulla. Veit samt ekki alveg hvað ég er að kvarta undan snjó þar sem að það er nákvæmlega enginn snjór hérna. Bara allsvakaleg rigning. Og það frekar blaut rigning skal ég sko segja þér. Blautari en venjulega ég get svo svarið það. Þegar ég fer að hugsa út í það þá held ég að ég hafi aldrei séð snjó á Akranesi, alla vega ekki svona almennilegan snjó. Bara svona slyddudrullusnjó sem rennur eftir götunum og gefur mér ekkert nema blauta fætur. Enga gleði, enga snjókalla, enga sleðaferð, bara blauta fætur.

Ég byrjaði vikuna með stæl og var veik. Uppskar skammir fyrir vikið þar sem ég var víst með A L L T sem hópurinn minn þurfti í lífsleikni. Vorum að gera mjög skemmtileg verkefni. Áttum að sjá um rekstur fjölskyldu í sex mánuði og gera ráð fyrir öllu. Bjuggum til þessa gullfallegu fimm manna fjölskyldu sem bjó á Akranesi, kallinn var lögfræðingur og það lá við að maður arkaði bara beint upp í lögfræðideild Háskóla Íslands og hæfi nám þar á stundinni; gaurinn var með 620.000 krónur í mánaðarlaun. Konan var svo hjúkrunarfræðingur og bara með einhvern fjögurhundruðþúsund kall í laun. En já hópurinn minn er langbestur í að reka fjölskyldu af því að við komum út í mestum hagnaði af öllum hópunum =] Ein komma þrjár milljónir. Reyndu svo að segja mér að ég kunni ekkert með peninga að fara.

Það er búið að vera nóg að gera í skólanum. Skákin hélt mér í skólanum til tæplega fimm fyrstu þrjá tvo daga vikunnar og get ég tilkynnt það með stolti að ég vann nákvæmlega enga skák þessa vikuna. Er samt löngu búin að sætta mig við það; ef að Guð hefði ætlað mér að verða einhver skákmeistari þá hefði hann látið mig vita aðeins fyrr. Fékk loksins að vita það sem ég er búin að vera að deyja úr stressi útaf: Það er ekki hægt að falla í skák nema á mætingu og þar sem ég hef verið að mæta í þessa yfirnáttúrulega skemmtilegu tíma eins og mér sé borgað fyrir það þá er engin hætta á að ég falli. Þrjár einingar beint í vasann án nokkurrar fyrirhafnar. =] Bjó líka til eitt stykki próf í dönsku, reyndar með Hugrúnu, Steinunni og Leifi, flutti eina kynningu um The Mobile Phone áðan í ensku og svo var auðvitað þetta yndislega lífsleikniverkefni.

Íþrótt vikunnar var handbolti. Eins og alþjóð öll veit líklega þá er elska ég að horfa á handbolta [og fótbolta og frjálsar og hafnabolta] og venjulega þegar það eru landsleikir í handbolta þá sit ég á sófabrúninni og öskra á Óla Stef, Sigfús og fleiri að standa sig. Öskra líka nett mikið á Eið, Hermann og félaga en ég hef sleppt því að öskra á Rooney, Nistelrooy og þá félaga hjá Manchester. Finn ekki fyrir eins miklum þjóðaranda þegar ég horfi á þá spila; skiljanlega.
Ég þóttist að sjálfsögðu vita sitthvað um þessa ágætu íþrótt en annað kom svo sannarlega í ljós þegar við byrjuðum að spila. Ég hafði ekki græna glóru um hvað ég var að gera og var orðin frekar þreytt á að hlaupa alltaf fram og til baka án þess að skora eitt einasta mark. Hef núna tekið þá ákvörðun að sumar íþróttir á bara að horfa á og láta sérfræðingana sjá um. Ein af þessum íþróttum er handbolti.
Mér tókst líka að stórslasa mig í upphituninni og vil auðvitað kenna meiðslunum um það hversu illa mér gekk en ég get því miður ekki logið að sjálfri mér. Staðreyndin er sú að ég er grútléleg í handbolta. Punktur & pasta.
Í sambandi við þetta stórslys þá verð ég eiginlega að skrifa hvað gerðist svo að þið hin getið setið við tölvurnar ykkar og hlegið af óförum mínum. Málið var að ég & Sara vorum að gera massa upphitunaræfingu þegar ég allt í einu steig á fótinn á mér og flaug á hausinn eða réttara sagt mjöðmina plús hnéð. Sara hló eins og ég hefði sagt henni brandara ársins eða eitthvað álíka fyndið. Ég sá alveg það fyndna við það að ég datt en hefði samt verið til í að fá hjálparhönd í stað hláturkasts.

Heyrðu, veistu bara hvað? Ég er að fara í klippingu á morgun, nánar tiltekið klukkan þrjú. Ég hlakka svo til að ég gæti hoppað hæð mína upp í loft en ég geri það samt ekki vegna þess að ég efast stórlega um að ég geti hoppað rúmlega þrjá og hálfan metra upp í loft. Annars veit ég ekkert hvað ég ætla að gera í þessu helgarfríi sem er að skella á. Var að pæla í að fara í bæinn á laugardaginn og hitta Guðjón en ég veit ekki. Ætli ég verði ekki bara heima hjá mér og geri ekki neitt merkilegt, það hljómar rosalega mikið eins og ég. =]

Helga Simskall

//ÞrjátíuogÞrjú

06. nóvember 2006 klukkan 05:07

[FeelingThis;; Þreeeytt]
[EchoingInMyHead;; Glad - Tyler Hilton]

Einmitt, ég er ekki búin að vera dugleg við það að blogga undanfarið. Reyndi það þrisvar eða fjórum sinnum í síðustu viku en síðan var eitthvað á móti mér og vildi ekkert samþykkja þau blogg þannig að ég reyni bara aftur. =]

Síðustu helgi var vetrarfrí og ég gerði lítið annað en að sofa. Var vakin á misskemmtilegan hátt af systkinum mínum meðal annars með blokkflautu og var ekkert alltof hress með það. Held að ég hafi meira að segja urrað bæði á Edgar & Áslaugu.
Var bara fjóra daga í skólanum í síðustu viku út af vetrafríinu en var samt að drepast úr þreytu á föstudaginn eins og ég hefði verið í átján daga í skólanum en ekki bara fjóra.

Ég skellti mér svo í sveitina á föstudaginn. Tók rútuna og svo sótti amma mig á Selfoss. Ætlaði að vera geðveikt sniðug og taka tölvuna með mér til að geta lært en þar sem að ég er ég þá gleymdi ég auðvitað straumbreytinum heima. Gleymdi líka hleðslutækinu fyrir símann minn og þurfti að hafa slökkt á honum næstum alla helgina til að geta hringt í dag og beðið Hjalta um að sækja mig. En þar sem að enginn hringir í mig lengur og ég fæ nákvæmlega engin sms þá breytti það engu. Og svo til að kóróna þetta allt var tölvan hans pabba í viðgerð og hann var að parketleggja þannig að stóra sjónvarpið var ekki tengt. En ég reddaði þessu og var bara að lita í litabók og horfa á King Arthur í litla sjónvarpinu. =]
Í gær fékk ég þá snilldarhugmynd að fara í sund, í grenjandi rigningu. Hef ekki farið í sund síðan ég var á Hvolsvelli. Eftir sundið fór ég í heimsókn til Guðjóns og hitti hann, Ólöfu, Hjört og Gumma. Það var ýkt gaman, enda var ég að rústa þeim í Monopoly. Ólöf & Hjörtur komust að þeirri niðurstöðu að ég þyrfti að fara á Blítt & Létt og hvöttu mig eindregið til að skrópa í skólanum. Þau sættu sig samt við það að ég kæmi bara á náttfataballið. Harpa var svo að bjóða mér á FSU ball á föstudaginn. Skil ekki alveg hvað er svona spennandi við að fá mig á böll en ég þarf ekkert að skilja allt.

Svaf eiginlega ekkert í nótt. Aðallega út af Áslaugu sem sparkaði mjög mikið í mig og mest í andlitið á mér. En samt líka út af veðrinu og út af því að ég náði ekki að hætta að hugsa. Veit einhver hvar off takkinn er á hausnum á mér? Er að pæla í að fara að sofa núna áður en það líður yfir mig af þreytu og ég æli út af afbrýðisseminni í mér.
Helga þreytta

//ÞrjátíuogTvö&hálft

02. nóvember 2006 klukkan 04:53
Núna er ég orðin mjög fúl.
Þetta blogg eyddist líka.

Er þetta ekki komið gott ?
Reyni aftur á morgun
Ókei?
Helga Gæti lamið bloggsíðuna sína

Prófíll