Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

//ŢrjátíuogTvö

31. október 2006 klukkan 23:07
Ég bloggaði í gær.
Fannst bloggið eithvað svo asnalegt og eyddi því.
Ég bloggaði áðan.
Var voðalega ánægð með það blogg...

Það eyddist

Þannig að þú verður bara að ímynda þér að þetta sé rosalega flott blogg.
Rosalega flotta bloggið kemur á morgun.

Helga skákuð & mátuð af bloggar.is

//ŢrjátíuogEitt

25. október 2006 klukkan 23:27
Sunny Sunny Sunny
[FeelingThis;; Hress]
[EchoingInMyHead;; You Could Be Happy - Snow Patrol]

Í dag er alþjóðlegi klaufadagurinn minn. Og því til sönnunar ætla ég að birta brot úr bloggi af gömlu síðunni minni;

"Á þriðjudaginn féll niður danska og Dúa ætlaði að koma með mér heim. Við ætluðum svo að vera geggt "mean" og hlupum á undan Sunnevu og Hörpu en æðislegu lappirnar á mér vildu ekki stoppa þannig ég rann og flaug beint á hausinn.0 Og svo heppilega vildi til að það voru að koma frímínútur þannig að það var fullt af fólki fyrir neðan stigann sem ég datt í...Dúa, þessi yndislega manneskja, gat bara ekki hætt að hlæja. Svo fórum við heim og horfðum á einn þátt af O.C. Sunneva kom svo og ég ætlaði að sýna þeim hvað stiginn niður í kjallara hjá mér væri algjörlega hættulaus, en það mistókst herfilega því að skórinn datt af mér og ég rann næstum því."

Ég man svo feitast eftir því. Flaug beint á hausinn í stiganum, allir að horfa og svo kom einhver strákur í þriðja bekk og spurði mig hvort að það væri ekki allt í lagi. Þessi litli strákur var almennilegri en vinkonur mínar sem hlógu eins og vitleysingar.
Í dag gerðist reyndar ekki neitt fyrir mig en dagurinn er ekki búinn. Sex klukkutímar eftir fyrir mig til að stórslasast. Ég hefði átt að mæta með hjálm í morgun bara til öryggis. Geturðu ekki ímyndað þér það? Ég að labba um ganga skólans með fjólubláan hjálm. Ég veit um alla vega þrjár manneskjur sem myndu neita að þekkja mig ef ég gerði það. =] Þannig að ef ég vil fækka í vinahópnum mínum þá er fjólublár hjálmur málið!

Það er að koma vetrarfrí! Vetrar F R Í! Það verður næs, nema hvað að ég hef sterklega á tilfinningunni að ég verði veik alla helgina. Það er eitthvað svo típískt ég. Alltaf veik í fríum. Fór reyndar veik heim eftir dönsku í gær s.s. klukkan fjögur. Lagðist upp í rúm þegar ég kom heim og svaf til hálf sjö. Ég get aldrei sofnað á daginn þannig að þetta var persónulegt afrek. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð.

Fótbolti í íþróttum á morgun! Veistu hvað það er gífurlega langt síðan að ég hef farið í fótbolta? Gærdagurinn telst ekki með þar sem að það var líka fótbolti í íþróttum þá. Mig langar að fara í fótbolta. Mig kitlar í iljarnar; mig langar svo í fótbolta! Eða bara að sparka í eitthvað. Samt helst fótbolta, ég er ekki viss um hversu vel foreldrar mínir tækju því ef að ég myndi taka upp á því að sparka í allt sem á vegi mínum yrði. Þar á meðal systkini, gæludýr og jafnvel fjarskylda ættingja.

Er að pæla í að gera breytingu á svefnvenjum mínum og byrja á því í nótt að sofa. Hef sofið einstaklega illa síðustu þrjár nætur. Ég ætla að kenna páfagaukunum um enda eru þeir staðsettir beint fyrir utan herbergið mitt. Þeir hafa reyndar haldið goggi um nætur en ég er viss um að nærvera þeirra truflar mig. Já, ég er örugglega með einhverja fóbíu fyrir því að sofa innan fimm metra radíus frá páfagaukum.

Helga Parrotophobic.

//Ţrjátíu

23. október 2006 klukkan 00:50
LoVe LoVe
[FeelingThis;; Þreeeeytt]
[EchoingInMyHead;; Transylvania - McFly]

Vá þrjátíu blogg. Þrjátíuogtvö reyndar en opinberlega eru þau þrjátíu. Ég er samt búin að vera endalaust löt við það að blogga síðan ég byrjaði í skólanum. Ég vil kenna staðsetningu minni um og segja að það hafi verið Hvolsvöllur sem hafi haft svona svakalega bloggörvandi áhrif á mig en veit samt að þetta er sambland af leti og því að ég er að drukkna í skólanum. Að taka stúdentinn á þremur árum er ekkert smá erfitt. Ég er með 23 einingar núna plús forvarnarhópurinn sem er ein eining og svo fæ ég vonandi eina einingu fyrir mætingu þar sem að ég er búin að mæta eins og mér sé borgað fyrir það. Þá eru bara 115 einingar eftir. ;] Var að velja fyrir vorönnina um daginn og þetta verður alveg jafn mikið brjálæði í vor;


  • ÍSL 103
  • STÆ 203
  • ENS 203
  • DAN 203 [& stúdent í þessu hrognamáli í vor]
  • NÁT 113
  • EFN 103
  • EÐL 103
  • ÍÞR 202

Jahá þetta verður gaman. Svo er ég að leita mér að vinnu líka! Er ég brjáluð?

Skammhlaupið ógurlega var á föstudaginn. Ég var í glæsilegu liði
BLÁRRA og stóðum við okkur með prýði. Vorum reyndar næstum því allan tímann í neðsta sæti en enduðum í því þriðja. Enda unnum við skrúðgönguna, hvernig sem maður vinnur skrúðgöngu en okkar var greinilega best, og vorum í öðru sæti í plankalabbinu. Gulir unnu, en það skiptir engu máli.

Var hjá pabba um helgina; sleppti ballinu. Eyddi föstudagskvöldinu í það að passa tvo litla brjálæðinga þekkta sem Þórhildi & Þorfinn. Það var fínt =] Ætlaði svo að horfa á Calcium Kid, Orlando Bloom daaah, en fór að sofa eftir tíu mínútur af myndinni. Áslaug sofnaði yfir myndinni og svaf alla nóttina í fötunum.
Í gær notaði ég fyrripartinn af deginum til að læra eins og brjálæðingur og skellti mér svo á tónleika hjá Kammerkórnum sem átti tíu ára afmæli. Æðislegt að hitta fólk sem maður hefur ekki hitt í 3-4 ár ;] Allir voða hressir og svona. Um kvöldið var kennara-innflutningspartý hjá Aðalheiði & Skúla og þar sem að Hildur telst víst til kennarastéttarinnar núna, eða svona næstum því, þá var henni auðvitað boðið og ég fór með til að heilsa upp á Hjört Frey. Eftir að Hjörtur var búinn að 'svæfa' Gústa með fallegu gítarspili tók gítardjamm við. Tveir kassagítarar = gaman. Héldum því bara áfram þangað til að ég fór. Dó úr þreytu þegar ég kom heim sem að sást vel þegar ég vaknaði í morgun. Vaknaði klukkan hálf eitt, frekar mygluð og fékk pítu í morgndegismat. Eftir matinn tók yndislegi faðir minn sig til og skutlaði mér alla leið heim. =D
Harpa B hringdi í mig og spjallaði við mig í 13 plús 14 mínútur eins og hún orðaði það sjálf. Hún var víst 'ekki þunn' eftir gærkvöldið. Hún er ágæt greyið. =P
Svo er núna að fara að taka við 4 daga skólavika og svo langþráð vetrarfrí á föstudaginn.

Ég ætla að halda mótmælagöngu bráðlega. Ekki gegn hvalveiðum; mér gæti ekki verið meira sama um þessa hvali. Ég ætla að halda mótmælagöngu gegn hárinu á mér. Í augnablikinu lítur það út fyrir að hafa verið flutt af höfði karlkyns poppstjörnu á áttunda áratuginum og yfir á mitt. Ég þyrfti líka alvarlega að komast í strípur. Hárið á mér er orðið skollitað og það stefnir allt í músabrúna litinn =| Ég vil halda mínum ljósa lit. Ef að hann fer þá hef ég ekki lengur afsökun fyrir öllu því heimskulega sem ég segi og þá gæti ég þurft að fara að hugsa áður en ég tala.


Helga þreytta

//TuttuguogNíu

17. október 2006 klukkan 02:39
Nerd Superhero
[FeelingThis;; Ég er góð sko ;D]
[EchoingInMyHead;; Is It Any Wonder? - Keane]

Í augnablikinu eru nokkrir hlutir sem fara einstaklega í taugarnar á mér og eru það eftirfarandi hlutir::

  • Stafsetningarvillur; þær eru út um allt & eru svo asnalegar!
  • Bleika tyggjóið á skrifborðinu mínu; það er viðbjóðslega gott en allt of ánetjandi
  • Fílakarmellurnar á skrifborðinu mínu; sama og með tyggjóið + þær eru að verða búnar
  • Vandamálin mín; þau eru svo stór en virka svo lítil þegar ég tala um þau
  • Semíkommur; ég elska þær en ég veit ekkert hvenær á að nota þær

Semíkommurnar eru orðnar svipað vandamál og hornklofarnir voru i den. Ég er farin að nota þessar kommur í tíma og ótíma. Ég er handviss um að þegar ekki ef heldur þegar ævisaga mín kemur út verður haustinu 2006 lýst sem Semíkommutímabilinu í mínu lífi. En ég hef bara ekki hugmynd um hvenær á að nota þessar blessuðu kommur. Svipaða sögu var að segja um hornklofana og ég notaði þá bara í staðinn fyrir sviga; pæling hvort að maður fari ekki að nota semíkommur í staðinn fyrir tvípunkta.

Fílakarmellurnar og tyggjóið eru allt hluti af því að koma frá útlöndum. Maður verður fjórum sinnum of háður þessu; sérstaklega tyggjóið. Maður er kominn með þrælsterka kjálka af öllu þessu tyggjói. Fílakarmellurnar eru líka of góðar. Vá, ég elska fílakarmellur. Ég fíla fílakarmellur =] Og þá er það komið á hreint.

Stafsetningarvillur! Ég er að verða svo pirruð á öllum þessu stafsetningarvillum allstaðar. Þær eru svo furðulegar & ótrúlega einfaldar eitthvað. Ypsilon ég hef ekki minnstu hugmynd hvernig þessi indæli bókstafur er skrifaður en mér lýst best á þennan rithátt er farið að birtast á furðulegustu stöðum og í orðum sem að ég hélt að allir kynnu að skrifa. Ég pæli eiginlega of mikið í stafsetningu miðað við það að ég er ekki í íslensku á þessari önn. Enda er ég frekar spes manneskja =]

Síðasta skólavika var frekar strembin jafnvel þótt að hún hafi bara verið fjórir dagar. Dagskráin hjá mér var eitthvað svo stíf; mikið að gera alla dagana og ég var orðin frekar þreytt á föstudaginn. Helgin var velþegin og velnýtt. Svaf eins og mér einni er lagið og horfði óendanlega mikið á My Name Is Earl. Enda lítið annað að gera ;] En það er svo sem ágætt að taka eina helgi í það að sofa og horfa á sjónvarpið. Veit ekkert hvað ég ætla að gera um næstu helgi fer samt örugglega til pabba og tek aðra tjill helgi þó að ég voni að það verði eitthvað aðeins meira að gera.

Nenni ekki að tala um vandamálin mín þar sem að eins og ég skrifaði fyrir ofan i gullfallega listann minn þau virðast alltaf miklu minni þegar ég reyni að útskýra þau. ;D

Helga Speees

//TuttuguogÁtta

11. október 2006 klukkan 01:34
Pete & Pat Pete & Pat
[FeelingThis;; Þreytt & óendanlega ánægð með ferðina]
[EchoingInMyHead;; Jesus Du Er Verdens Lys - ?]

Ég er komin heim til fallega litla Íslands. Ótrúlegt hvað maður getur saknað þessa yndislega lands þegar maður er í útlöndum. Noregur er samt alveg ágætur. Fyrir utan þetta brauð sem þeir borða í hvert mál, það er ekki ágætt. Nenni ekki að koma með einhverja svaka ferðasögu; segi frekar bara frá því sem ég man og fannst merkilegt.

Við lögðum af stað frá Íslandi, nánar tiltekið Keflavíkurflugvelli, um sex leytið á miðvikudaginn. Flugum til Osló & svo til Stavanger, vorum komin þangað um miðnætti [að norskum tíma]. Matthew ekkert alltof ljótur Frakki sótti okkur á flugvöllinn og skutlaði okkur í kirkju sem var þarna nálægt og gistum við þar fyrstu nóttina. Á fimmtudeginum var nett tjill til hádegis en þá var tekinn strætó inn í Stavanger og tók það einhvern hálftíma. Vorum líka komin liggur við upp í sveit á tímabili. Vorum niðri í bæ eiginlega allan fimmtudaginn að versla og svona. Borðuðum líka á McDonalds enda var það algjört must. Á fimmtudagskvöldið byrjaði líka mótið & var það bara geðveikt. Alltaf rosalega erfitt að reyna að lýsa svona mótum þannig að ég tala kannski minnst um það jafnvel þótt að það hafi verið aðalmálið. =] En já, við gistum í einhverju íþróttahúsi sem KFUM & KFUK eiga; mjög gaman að þurfa að taka allt dótið til á morgnana og troða því inn í eitthvað lítið herbergi út af því að íþróttahúsið var notað um daginn. Líka á laugardeginum. En það var bara mjög fínt að gista þarna og rosalega kósý að sofa með Elísu á vindsæng, kúra já já. Það rigndi frekar mikið á okkur þessa sex daga sem við vorum þarna og ég held að starfsfólkið á Esso kannist frekar mikið við okkur þar sem að við vorum þar á hverjum degi.
Á sunnudeginum, mótið kláraðist á laugardegi, fórum við niður í bæ. Við vorum þar í smátíma en það var samt ekki hægt að gera neitt vegna þess að það er A L L T lokað í Noregi á sunnudögum. Ákváðum þess vegna að taka lest til Sandnes & strætó þaðan í einhvern svona 'lítinn' sveitabæ sem að Villi á heima í. Lestarferðin gekk mjög vel og það fóru allir út á réttum stað en við biðum í heila tvo klukkutíma á strætóstöðinni eftir strætó. Í byrjun var það frekar pirrandi og maður var eiginlega ekki að nenna því en eftir smá tíma voru allir sestir niður á gangstéttina/götuna og voru að spjalla & skemmta sér. Eftir þessa tvo tíma kom strætó loksins og vorum við örugglega í tuttugu mínútur í honum; enda vorum við á leiðinni upp í sveit. Uppi í sveit var margt brallað eða eiginlega ekki samt. Strákarnir ætluðu að hoppa niður einhverja tíu metra og ofan í á en nei, áin var ótrúlega straumhörð og eyjan sem átti að vera í miðri ánni var í kafi. En Íslendingarnir létu þetta ekki á sig fá og fundu eitt stykki stöðuvatn og hoppuðu barasta ofan í það. Svo var gist í kirkjunni hans Villa & mikið spjallað & mikið gaman.
Gærdagurinn var svo bara eitt stórt ferðalag. Tókum strætó úr sveitabænum og í Sandnes [með allar töskurnar okkar sem voru svo mikið sem þrjátíu talsins] og þaðan strætó á flugvölllinn. Sá strætó var mjög vondur strætó og var mörgum, þar á meðal mér, orðið frekar óglatt þegar við loksins komum á flugvöllinn. Flugvél frá Osló til Stavanger, tveggja tíma stopp á flugstöðinni þar & svo flug frá Osló til Keflavíkur. Fríhöfnin tók slatta af tíma og svolítið af pening en loksins komumst við út úr flugstöðinni og voila. Hér er ég; heima hjá mér að deyja úr þreytu eftir langan skóladag. =D Lífið gerist ekki betra en þetta. ;]

Er farin að læra fyrir líffræðipróf.

//Helga
[Set inn þessar fáu myndir sem ég tók á mótinu seinna]

//TuttuguogSjö

03. október 2006 klukkan 23:09
Haircut Babies!
[FeelingThis;; Að deyja úr spenningi]
[EchoingInMyHead;; Botten Anna - Basshunter]

Það er sólarhringur þangað til að ég fer til Noregs. Tuttugu og fjórir klukkutímar og ferðataskan mín liggur tóm á gólfinu fyrir aftan mig. Ég fæ mig ekki til að setja neitt ofan í hana. Hef ekki hugmynd um af hverju, en ég bara kem mér ekki í það að standa upp og fara að finna til föt og meira sniðugt til að hafa með mér til Noregs. Á líka eftir að finna utanumið fyrir svefnpokann og fá tvöföldu vindsængina sem ég & Elísa ætlum að lúlla á. Við ætlum nefnilega að vera samvaxnar á mjöðminni, líka á nóttunni.

Vá, þú trúir því ekki hvað ég hlakka til. Ég & Elísa í Noregi = Stuð. Höfum reyndar aldrei verið saman í Noregi en af því að við gátum skemmt okkur í Svíþjóð þá getum við skemmt okkur í Noregi. Pæling hvort að McDonalds muni verða lifibrauð okkar eins og það var úti í Svíþjóð. Það var allt morandi í McDonalds stöðum úti í Gautaborg. Meira að segja tveir inni í einni verslunarmiðstöð. Ég & Elísa vorum að fíla það.

Var að læra einhverja stórfurðulega stærðfræði í morgun. Hélt fyrst að þetta væri eitthvað djók af því að kaflinn er um rúmfræði & svo kom einhver stórfurðuleg stærðfræði. Eitthvað 'ef a þá b' og við gerðum heilt blað af stærðfræðidæmum sem voru undarleg eitt var til dæmis; 'Ef að það verður sól þá förum við í sund'. Og ég er ekki að grínast í þér ég kann að reikna svona stórfurðuleg dæmi. Rosalega hentugt að geta leyst skrítin stærðfræðidæmi.

Mig langar að horfa á King Arthur. Mig langar líka að horfa á Lord Of The Rings. Ég hlakka til þegar það kemur miðannarfrí; þá ætla ég að fara upp í sveit til hans pabba míns & horfa á fyrrnefndar myndir. Og ég ætla að sofa! Tuttugastiogsjöundi október má koma fljótlega takk =]

Helga Noregsfari

//TuttuguogSex

01. október 2006 klukkan 02:52
Kökur Kaka
[FeelingThis;; Einu ári eldri]
[EchoingInMyHead;; Fix You - Coldplay]

Mér tókst það! Ég er orðin sextán ára. Ég var farin að halda að ég yrði fimmtán að eilífu. Ég vona svo innilega að þetta ár verði ekki eins flókið eins og síðasta. Síðasta ár var sko bara flóknasta ár í lífi mínu! En ég er viss um að þetta verður ekkert minna flókið, bara meira flókið ef eitthvað er. Stórt knús handa öllum þeim fáu sem mundu eftir afmælinu mínu; þið eruð Y N D I.

Ég & Iðunn héldum skemmtilegasta tveggja manna partý sem haldið hefur verið um síðustu helgi. Við gerðum nefnilega nákvæmlega ekki neitt. Það markverðasta sem við gerðum var að labba í Smáralindina & fjárfesta í geisladiskum. Ég í Snow Patrol, báðum diskunum og hún í AFI. Svo sátum við hlið við hlið í fartölvunum okkar með heyrnatól í eyrunum og hlustuðum á nýju diskana okkar.

Á fimmtudaginn mætti ég tíu mínútum fyrr í skólann en venjulega. Ég mætti klukkan tuttugu mínútur yfir átta af því að ég var að fara í lífsleikniferð. Byrjuðum á því að keyra á Hvolsvöll og það var ýkt furðulegt að vera þar! Ellefuellefu heitir Kjarval núna & það er mánuður síðan að ég fór þaðan. Mig langar alveg svakalega mikið í þetta sumar aftur, bara að fá að upplifa það aftur. Þetta var svo gaman og þroskandi. ;D Við fórum þaðan alla leið til Víkur í Mýrdal [Mýkur í Vírdal] og meira að segja lengra upp að Kötlu & inn í eitthvað Þakgil. Borðuðum þar og fórum svo inn í eitthvað annað gil sem ég ætla ekki einu sinni að reyna að muna hvað heitir, löbbuðum upp að einhverjum fossi og fórum svo á Vík. Gistum á Heimalandi og keyrðum svo alla leið á Stokkseyri. Þar var farið í draugasetrið og ég var að drepast úr hræðslu og dró Þorgerði með mér í gegnum þetta. Ég þorði nennti ekki að taka geislaspilara þannig að ég & Þorgerður löbbuðum bara nokkuð hratt í gegnum þetta draugahús, heilsuðum 'draugunum' þegar þeir reyndu að bregða okkur. Við erum svo hardcore.

Hjörtur Freyr frændi minn kom svo í heimsókn til mín í gær. Við fórum á ball með DJ Páli Óskari & ég var að missa mig; það var svo gaman. Hirti fannst nú ekkert voðalega gaman og leið eins og fávita af því að hann þekkti ekki neinn. Ég sagði honum voðalega fallega að þannig yrði það líka þegar ég færi með honum á EmmEll ball, nema hvað að þar væru allir fullir líka. =] Hlakka ekkert smá mikið til ;]

Veistu hvað? Ég get nákvæmlega ekki neitt í
B U B B L E S. Ég er búin að vera í honum í allan dag! Hjörtur prófaði hann einu sinni og hann flipping vann hann eins og það væri ekkert mál! Þessi leikur er hræðilega ánetjandi og ég fæ alltaf geðveika störu á skjáinn. Ég er búin að setja mér markmið; ég ÆTLA að vinna Bubbles. Einhvern tímann! Alla vega áður en ég verð sautján, ókei?

Og og og og. Hvað er ég eiginlega búin að skrifa og oft í þessari færslu? Alla vega of oft. Svona verða bloggin þegar maður á sér einhvern smá vott af lífi, maður þarf að segja frá því hvað maður var að gera. Það fer mér líka betur að blogga oft, ef að ég þarf að segja frá mörgu þá verða bloggin eitthvað svo skrítin

Helga Aulanörd.

Prófíll