//Nítján
23. ágúst 2006 klukkan 19:57

[EchoingInMyHead;; Superstar - Land & Synir]
Góðan daginn. Helga framhaldsskólanemi heilsar ykkur. Það er rétt ég er orðin framhaldsskólanemi. Ég er að hefja nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Náttúrufræðibraut. Skólasetningin var í morgun klukkan tíu. Stundartaflan mín er spes. Fín en spes. Ég sef út á miðvikudögum, fæ lengra hádegishlé á mánudögum og er ekkert í íslensku á þessari önn. Ég hló þegar ég fattaði það. Hló eins og geðsjúklingur. =]
Ég þarf reyndar að fara á morgun og panta tíma hjá námsráðgjafa. Ætla nefnilega að taka stúdentinn á þremur árum. Íslenskunni verður líklega troðið einhversstaðar inn. Það er ágætt. Annars gæti ég tekið upp á því að blogga á ensku eða jafnvel á dönsku.
Ég er komin með allt of mikið af notendanöfnum og aðgangsorðum. Það fylgdu þrjú mismunandi með skólanum. Er með í bankanum líka. EmmEssEnn-ið. Þetta blogg. Allt of mikið. Of mikið fyrir minn litla heila til að muna. Og núna bætist skólinn við. Heilinn á mér á eftir að fara yfirum.
Ég komst ekki á Menningarnótt um helgina. Menningin verður bara að bíða þangað til á næsta ári. Ég fór bara beint heim í fiskifýluna. Ég var búin að gleyma hversu vond fýlan á Akranesi er. Svo þegar vindurinn er af sjónum þá dreifist þessi yndislegi ilmur út um allan bæ. Smekklegt.
Ég er búin að sækja um vinnu, redda peningamálunum mínum, sækja um nýtt debetkort og fara í klippingu á þessum tveimur virku dögum sem ég hef verið heima. Er svo að fara í myndatöku á eftir fyrir debetkortið mitt og að kaupa skólabækur á eftir. Ég er ofurdugleg.

Þetta blogg er fínt. Bara svona smá til að láta ykkur vita að ég er ekki dauð. Blogglega séð.

Sunneva afmælisbarn.
Þetta blogg er fínt. Bara svona smá til að láta ykkur vita að ég er ekki dauð. Blogglega séð.
Framhaldsskólaneminn kveður
//Helga
//Helga
//Átján og þrír fjórðu
22. ágúst 2006 klukkan 21:38
Mig langar að blogga.
En ég get það ekki.
Ég finn ekki orðin.
Ég er búin að reyna.
Fjórum sinnum.
En ég stroka allt út aftur.
Ég finn ekki orðin.
Ég er búin að reyna.
Fjórum sinnum.
En ég stroka allt út aftur.
Gleymdust blogghæfileikar mínir
[ef þeir voru einhverjir]
á Hvolsvelli?
[ef þeir voru einhverjir]
á Hvolsvelli?
Ég reyni aftur á morgun.
Þá verð ég líka ekki eins stressuð.
Stressuð fyrir Fjölbraut.
Fyrir framtíðinni.
Þá verð ég líka ekki eins stressuð.
Stressuð fyrir Fjölbraut.
Fyrir framtíðinni.
//Helga
Is it too soon to miss you?
//Átján
19. ágúst 2006 klukkan 05:04

[EchoingInMyHead;; Creep - Magni/Lukas]
Það eru greinilega þrjár manneskjur sem lesa bloggið mitt. Klöppum fyrir þeim. *Klappiklappiklapp* Það er einum meira en tveir og já ég hef alltaf verið svona góð að telja. Haha! Ég var að uppgötva að ég benti bæði Hirti & Maríu á það að ég væri búin að blogga. Núna segi ég engum að ég hafi bloggað.
Í sumar er ég búin að;
Vá hvað það er skrítið að sumarið sé búið. Mér finnst eins og það hafi bara verið í gær sem að ég sat á pallinum heima hjá mér og hafði áhyggjur af samræmda stærðfræðiðprófinu. Núna er ég með áhyggjur af allt öðrum hlutum. Hlutum sem ég nenni ekkert að pæla í. Þannig að ég ætla bara að sleppa því, held ég.
Ég vann í tíu heilar vikur í EssEss. Er það mikið? Ég er ekki viss um neitt lengur. Mér finnst heilabúið vera að leka út um vinstra eyrað á mér. Fyrir nokkrum dögum lá ég í rúminu mínu og reyndi að muna hvað orðflokkurinn sem stýrir föllum heitir. [Forsetningar munu það vera. Mundi það þegar ég var alveg að sofna] Ég er líka farin að enda of margar setningar á 'held ég'. Ég hlakka til að byrja í skólanum og fara að hugsa aftur. Svona almennilega.
Í dag var síðasti dagurinn minn og samkvæmt hefðinni var ég smúluð. Að vera smúlaður þýðir einfaldlega að vinnufélagar þínir taka smúl og sprauta vatni á þig þangað til að þú skelfur af kulda og það sést í gegnum fallegu hvítu fötin sem þú vinnur í. Þannig var það alla vega í mínu tilfelli. Jón og Þobbi drógu mig inn í bakkaþvott, tóku tvo smúla og sprautuðu á mig. Tek það fram að önnur vatnsbunan var heit á meðan hin var köld. Ekki þægilegt. Þurfti svo að þurrka mér með tveimur handklæðum sem voru á stærð við þvottapoka. Öll stóru handklæðin voru óhrein. Just. My. Luck.
Ég er að fara heim. Ég trúi því ekki. Heim. Það fyrsta sem ég ætla að gera er að leggjast í rúmið mitt og öskra af gleði. Svo ætla ég í heita pottinn. Það er skrítið hvernig maður getur saknað þess að vera með heitan pott þegar maður fer nákvæmlega aldrei í hann. En það er ég. Skrítin á ég við.
Ég fer samt ekki heim fyrr en á sunnudaginn. Ætla að koma við í Reykjavíkinni/Hafnarfirðinum og hitta hana Maríu mína. Ég ætla að gista í fallega herberginu hennar sem er svo fallegt í laginu. Ég er alveg heilluð af lögun herbergisins hennar. Ég gæti staðið í marga daga í herberginu hennar og dáðst að einstakri lögun þess. Við ætlum líka aðeins niður í miðbæ Reykjavíkur. Menningarnótt verður víst í gangi. Við ætlum að horfa á alla fallegu flugeldana. Nennum ekkert að skoða menninguna. Menningin í Reykjavík er víst bara fyllerí ef marka má ástandið á fólki á þessari Menningarnótt.
Í sumar er ég búin að;
- Eignast litla systur
- Týna Puma hettupeysunni minni
- Borða á Subway. Tvisvar.
- Smakka Nítjánhundruðfjörtíuogfjögur mat
- Vinna
- Verða brún
- Sofa þrjár nætur í mínu eigin rúmi.
- Vaka heila nótt

Fimmutdagskvöldið var næs. Takk fyrir það þú.
Hjörtur Freyr yndislegi frændi minn og verðandi EmmEll-a? Hafðu engar áhyggjur af busuninni þinni ég er búin að redda henni. Þú verður busaður. Bad. Þú þekkir of marga í þessum skóla. Og ég líka. Ég hlakka til að heyra um þjáningar þínar. Þú munt segja mér frá þjáningum þínum. Ég mun pína þær upp úr þær. Fallega. =]
Lítið um liti
//Helga
//Helga
♥
//Sautján
16. ágúst 2006 klukkan 03:07

[FeelingThis;; Tíhíhí]
[EchoingInMyHead;; Hate Me - Blue October]

Þrír dagar eftir. Þrisvar sinnum átta tímar. Heill sólarhringur af vinnu eftir og svo er ég búin. Búin að vinna. Alveg þangað til að ég byrja að vinna í Nettó, því að það er víst frekar líklegt að ég fái vinnu þar. Ég þarf bara að kíkja upp í Nettó á mánudaginn og tala við verslunarstjórann. Ekki mikið mál. Held ég. =/ Ég er að verða einhver vinnualki. Oh jæja, ég fæ alla vega pening. [Pening!!!!] Ég þarf að kaupa svo mikið. Mikið mikið mikið!!! Múhahahaha. 
Vá, ég hélt að ég myndi aldrei nota þessa broskalla sem eru í þessu kerfi. Ég er nefnilega á móti svona brosköllum. Nema þeim sem eru á Joe Boxer boxernum sem ég sef í. Ég hef ekkert á móti þeim. Þeir eru svona hvítir og svartir.

Á föstudaginn þá fór ég ekkert í náttbuxurnar mínar. =[ Ég svaf nefnilega ekkert. Ég var nefnilega heima hjá Hörpu að tjilla. Alla nóttina. Ég, hún & Ómar horfðum á tvær myndir. Við horfðum á Eurotrip [Scotty Doesn't Know!!!] og ég ætla að tilkynna þér það hér með að það er uppáhaldsmyndin mín. Love it! Hún er svo yndislega fyndin. <3 Við horfðum líka á Meet the Fockers en ég var eiginlega með lokuð augun allan tímann [Ekki sofandi] þannig að ég var ekkert að pæla í henni. En já, Ómar fór svo klukkan hálf níu á laugardagsmorgninum og ég og Harpa fórum með Huldu og Siggu í bæinn um tíu. Við fórum í Kringluna og á einu korteri hljóp ég um Kringluna með Hörpu á eftir mér og keypti fallega beltið sem ég ætla að giftast, nýja Peperoni skó [Brúna og svarta] og geisladisk handa Iðunni. Svo skelltu stelpurnar sér á Gay Pride en af því að ég er svo svakalega Straight Pride þá fór ég til Iðunnar og var eitthvað að þvælast fyrir henni á meðan hún var að undirbúa afmælið sitt. =D Stelpurnar sóttu mig svo um sex og við fórum heim. Komum reyndar við á Selfossi og ég var úber töff með sólgleraugu inn í Nóatúni. Það var sko rigning. ;]
Iðunn átti afmæli á sunnudaginn [13. ágúst] og er því orðin sextán ára. Hún má núna læra að keyra ættu allir að halda sig innandyra þegar hún fer í æfingarakstur. Það ætla ég alla vega að gera. Maður vill ekki stórslasast.

Iðunn!

Þetta blogg er orðið fínt. Fólk er hvort sem er hætt að lesa bloggin mín. Eða það held ég. Gáum bara. Réttu upp hönd ef þú lest bloggin mín. [*Réttir upp hönd*] Helga ekki þú, þú lest auðvitað bloggin þín. Dah kjána-ég =)
Hætt að tala við sjálfa mig
//Helga
//Helga
//Sextán
11. ágúst 2006 klukkan 07:04

[FeelingThis;; Á ég að tala við hann á morgun?]
[EchoingInMyHead;; Don't Stop Me Now - McFly]
Þetta er opinberlega lengsti tími sem hefur liðið milli blogga á þessari síðu. Ég hef ekki bloggað í átta heila daga. Eða tæknilega níu, það er víst kominn föstudagur. Þessi stutta vinnuvika er að verða búin. Ég er að fara í helgarfrí. Síðasta helgarfríið mitt því að ég er að fara að yfirgefa þessa vinnu og þennan draugabæ [Hvolsvöll]. Hefur þú einhvern tímann gert þér grein fyrir því hvað Akranes er miklu nær Reykjavík heldur en Hvolsvöllur? Ég er farin að finna fyrir því. Ég sakna vina minna. Sárt. Og ég ætla rétt að vona að þeir sakni mín svona smá. Ég hlakka svo til að komast heim til mín. Í fallega rauða herbergið mitt. Þar sem fallega mjúka rúmið mitt stendur og bíður eftir mér. Ég er seriously farin að sjá rúmið mitt í hillingum!
Ég fór upp í Kot á Kotmót um helgina. [Obvious much?] Ég þurfti að mæta í vinnuna klukkan tíu á föstudaginn og var frekar þreytt. Það sást á vinstri hendinni minni. Mér var nefnilega færður hnífur klukkan hálf ellefu á föstudagsmorgni og átti að taka utan af pepperoni.

Ég + hnífur + þreyta = Sár á vinstri hendi
Fyrst rústaði ég þumalputtanum og þurfti að fá mér svona bláan vatnsheldan plástur en svo rústaði ég gjörsamlega löngutöng og skar mig það djúpt að það blæddi ennþá á sunnudaginn. Sniðuga ég. Fékk mér annan svona fallega bláan vatnsheldan plástur. En þegar ég losnaði úr vinnunni klukkan fimm þá voru þessir puttar alveg þess virði.
Helgin var skemmtileg. Það skemmtileg að ég get eiginlega ekki líst því. Því að þér finnst örugglega ekkert skemmtilegt að sitja hálfsofandi í bíósal með enga bíómynd í gangi og segja aulabrandara. Þannig að helgin var bara skemmtileg. Punktur og pasta. Þurfum ekkert að ræða það frekar. Og já, ef þú hefur ekki tekið eftir því þá breytist fólk. Mikið og hratt og frekar asnalega. Bara svo þú vitir það. =/

Vá. Hvernig getur ein manneskja verið svona falleg/fyndin/skemmtileg/hress/hávaxin/dökkhærð/blágráeygð? Ég bara skil þetta ekki. Ég fékk næstum því störu á þriðjudaginn. Talandi um að vera obvious. Nýrun á mér þurfa á áfallahjálp að halda eftir þetta sumar. Þetta sumar sem er að verða búið. Kom sumarið eitthvað? Það lét mig enginn vita. Eða var ég bara föst inn í Sláturfélagi Suðurlands með pulsum [sem er skrifað með y] og steiktu beikoni þegar sumarið kom? Hringdu í mig ef þú veist hvert sumarið fór. Takk.
Farin að sofa
//Helga
//Helga
[Breytingar voru gerðar vegna nýfengra upplýsinga. Hann er ekkert brúneygður.]
//Fimmtán
02. ágúst 2006 klukkan 19:10

[EchoingInMyHead;; Can't Catch Tomorrow (Good Shoes Won't Save You This Time) - Lostprophets]
Ég er rík. Ég fékk útborgað í gær og það leið næstum yfir mig þegar móðir mín sagði mér töluna. Hundrað fimmtíu og níu þúsund krónur. [og 126 krónum meira] Og það útborgað. Launin mín voru alls hundrað sjötíu og þrjú þúsund krónur. Ég er sáttari en sátt. Fæ örugglega svipað mikið útborgað í september. Mér líkar vel við vinnuna mína. =]
Ég elska lög sem eru með furðulega fyndin nöfn. Eins og flest lögin með Fall Out Boy. Og líka nokkur með Lostprophets. Eins og lagið sem ég er með á heilanum. Það er svo flott! Ég setti allan diskinn inn á Mp3 spilarann og er búin að vera að hlusta endalaust mikið á þessa hljómsveit. Hún er like best. Þeir eru líka frá Wales. Hreimurinn þeirra er yndi. =]
Hey veistu hvað? Mamma mín á afmæli í dag. Til hamingju. Hún á afmæli í dag og allt það. Hún er þrjátíu og fjögurra ára gömul. Mamma mín er yngri en mamma þín. *Ull* En á næsta ári eru bara fimm ár þangað til að hún verðurfjörtíu ára gömul. GÖMUL. Þá verð ég tuttugu og tveggja ára. =|
Ég elska lög sem eru með furðulega fyndin nöfn. Eins og flest lögin með Fall Out Boy. Og líka nokkur með Lostprophets. Eins og lagið sem ég er með á heilanum. Það er svo flott! Ég setti allan diskinn inn á Mp3 spilarann og er búin að vera að hlusta endalaust mikið á þessa hljómsveit. Hún er like best. Þeir eru líka frá Wales. Hreimurinn þeirra er yndi. =]
Hey veistu hvað? Mamma mín á afmæli í dag. Til hamingju. Hún á afmæli í dag og allt það. Hún er þrjátíu og fjögurra ára gömul. Mamma mín er yngri en mamma þín. *Ull* En á næsta ári eru bara fimm ár þangað til að hún verður
Elska þig mamma! <3
Kotmót. Kotmót byrjar á morgun. Ég? Ég er að vinna á morgun. Og á föstudaginn.Kotmót hjá mér byrjar eftir klukkan ellefu á föstudaginn. Hrmpf. Þetta Kotmót verður að vera best. Annars fer ég í fýlu. Elísa & Ásthildur verða. =D Nordic '04 fílingur? Og svo verða náttúrulega allir hinir en ég hlakka mest til að hitta þær [og hina líka]
Ég tók til í herberginu mínu áðan. Stolt. Ég á slatta af fötum. Slatta mikið af fötum. En samt langar mig alltaf í meira. =/ Hvort er það partur af því að vera unglingur, stelpa eða Íslendingur? Örugglega partur af öllu þar sem ég er unglingur, stelpa og Íslendingur. Samkvæmt því sem mér hefur verið sagt. En kannski er ég bara ellilífeyrisþegi sem kemur frá Þýskalandi og er í þokkabót karlkyns. =| Ég er að pæla í að fara að grúskast í fæðingarvottorðinu mínu til að vera viss um að ég sé fædd fyrir tæplega sextán árum, ekki sextíu.

Sakn'ykkar
//Helga
//Helga