Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//Fjórtán

31. júlí 2006 klukkan 00:57
Tyson Tyson
[FeelingThis;; Pirruð út í KBbanka & þreytt]
[EchoingInMyHead;; Move Along - The All-American Rejects]

Ég er komin heim. Heima er best. Þarf að yfirgefa 'heima' í fyrramálið og halda aftur á Hvolsvöll til að fara að vinna í Sláturfélagi Suðurlands. Í gær vaknaði ég klukkan sjö [að morgni til já] og tók rútuna klukkan korter í níu í höfuðborgina. Ég svaf í ca þrjá tíma þá nótt. Gaman. Ég var mætt í Kringluna klukkan hálf ellefu. Kringlan var næstum því tóm. Mamma & systur mínar komu ekki fyrr en eftir hálftíma og mér leið frekar asnalega þar sem ég var með stóra tösku.
Mig langar í svo marga geisladiska. Fór inn í Skífuna og varð að draga mig út aftur. Mig langar í Lostprophets, Dashboard Confessional, We Are Scientists og Angels & Airwaves. Dekraði aðeins við sjálfa mig og keypti Lostprophets diskinn. =] Keypti mér líka hvítar boxer í Joe Boxer. Ég ætla mér að sofa í þeim um ókomna tíð. Þær eru viðbjóðslega fallegar og þægilegar.

Móðir mín er þekkt fyrir að vera æðisleg móðir og keypti helling af fötum handa mér. Hellingurinn samanstóð af einum gallabuxum [Lee] og fjórum bolum. Næst þegar ég fer í bæinn ætla ég svo að kaupa mér beltið sem ég sá í Mótor & nýja skó. Götóttir skór eru ekki eins töff og ég vil að þeir séu. Það er núna gat á báðum skónum mínum! Ég hefði kannski átt að fá mér aðeins stærri skó.

Vá. Hefurðu séð hárið á söngvaranum í Lostprophets? Það er sko getnaðarlegt fallegt. Hann er reyndar líka frekar fallegur en það er allt annar handleggur. Tyson Ritter [söngvarinn & bassaleikarinn í AAR] er 'the fallegastur'.Myndirnar efst eru af honum =]

Ég á að fara að taka af borðinu. Borðið lítur út eins og það hafi orðið fyrir kjarnorkusprengju [smá ýkjur] Við vorum að borða hvalkjöt. Hrefnukjöt til að vera aðeins nákvæmnari. Það var spes.


Ian Watkins.
Söngvarinn í Lostprophets.
Með fallegt hár.
Fallegur.
M I N N

Takk fyrir takk
//Helga

//Þrettán

26. júlí 2006 klukkan 19:35
Geeks Pete

[FeelingThis;; 'Nennekkívinnu'' Tilfinningin]
[EchoingInMyHead;; It Ends Tonight - The All-American Rejects]

Ég er snillingur. Það mikill snillingur að ég þarf að borga fyrir það með því að vera ómáluð þangað til á laugardaginn og kannski lengur. Ég fór nefnilega til föður míns um helgina og svo þegar ég fór til baka þá gleymdi ég barasta öllu málningardótinu mínu plús hleðslutækinu fyrir símann minn. En sem betur fer eru Nokia meiri snillingar en ég þar sem það fylgdi millistykki í venjulegt Nokia hleðslutæki með símanum mínum [mitt hleðslutæki er miklu mjórra] þannig að ég gat hlaðið símann minn. En málningardótið vantar mig.

Ég sef mikið. Allt of mikið. Í gær vaknaði ég klukkan hálf þrjú og þurfti að stökkva á fætur og klæða mig og hlaupa í vinnuna. Ég var frekar þreytt í vinnunni en tók samt yfirvinnu og vann til eitt líka á mánudaginn. Ég ætla að vera rík þegar ég byrja í Eff Vaff A. Vá, ég er alveg að fara að byrja í Fjölbraut. Vill einhver slá mig utan undir? Þetta er allt svo óraunverulegt.

Föstudagurinn? Vá, nei. Hann var rugl. Vil ekkert ræða um hann. Sumir ættu bara að halda sig frá áfengi. Og aðrir líka. Já og eiginlega bara allir. Ég er orðin þreytt á að lenda einhversstaðar í miðju fylleríi og vera eina manneskjan sem er ekki að drekka. Ég er hætt að fara út. Sérstaklega um helgar. Ég og imbakassinn getum bara haft það notalegt saman. =]

Argh! Ég þarf að vakna viðbjóðslega snemma á laugardaginn. Ég er að fara að taka rútu í Reykjavík klukkan korter í níu. Um morguninn! Það hlýtur að vera ólöglegt í einhverju fylki Bandaríkjanna. Bara hlýtur að vera. En já, ég er að fara að hitta hana móður mína og við ætlum á útsölur. Svo ætlum við upp á Skaga og ég þarf víst að redda mér einhvern veginn aftur á Hvolsvöll. =/ Ég var ekkert að pæla í því. Skutla mér?

Ég fór í sund í morgun. Alein. Var alveg ein í allri sundlauginni. Ég ownaði sundlaugina á Hvolsvelli í tuttugu mínútur. Synti alveg heilar fimm ferðir. [Stolt]

Dettu Út Strákur! [FOB] James var að segja mér að Fall Out Boy þýddi sko Geislavirkur Strákur af því að þegar þú skýtur kjarnorkusprengju [sem kemur mjög oft fyrir þig] þá er svæðið í kringum hana kallað 'Fall Out' Svona lærir maður mikið á því að vinna með Breta í SS. Hann var líka hissa þegar ég vissi hvað 'Chav' væri. =D

Vinnan kallar
//Helga

//Tólf

25. júlí 2006 klukkan 08:30

Hvað er eiginlega að mér?

Ég get ekki einu sinni sagt hæ.
Á emm ess enn.

Vill einhver gjöra svo vel og sjúkdómsgreina mig.
Svo ég geti kennt sjúkdómnum um þetta allt.
Hvernig mér líður.
Hvað ég geri.
Hvað ég geri ekki.

Er þetta unglingaveikin?


Confuzzled
//Helga
<3

//Ellefu

21. júlí 2006 klukkan 07:19
Mikki Mús Look At Me

[FeelingThis;; Þreytt & illt í öxlunum]

[EchoingInMyHead;; Is it Love? - Dr Mister & Mr Handsome]

Eftir tíu blogg er ég orðin þreytt á þessum lista sem ég setti alltaf eftst í bloggið. Það er allt of erfit að reyna að finna eitthvað til að setja í þennan lista. Þannig að núna er komið nýtt.

Mig langar í bíó! Núna og helst í gær. Allt í lagi, ég fór í bíó á laugardaginn en það eru alveg þrjár aðrar myndir sem mig langar svo að sjá.
Just My Luck; Danny, Tom, Dougie & Harry í bíómynd? Já þakka þér fyrir.

Pirates Of The Caribbean: Dead Man's Chest; Orlando & Johnny.
The Benchwarmers; Tvö orð. Napoelon Dynamite

Vá er fólk ekki farið að fá leið á körfubolta? Ég er búin að fara endalaust oft í körfubolta og slasa mig alltaf jafn mikið. Væruð þið til í að hætta að ráðast á mig? Takk. Í gær til dæmis var ég að reyna að ná boltanum af Emil og fékk bara hendina á honum beint í nefið á mér og fékk þessar svakalegu blóðnasir. Perraskapurinn í sumum er líka aðeins of mikill í körfubolta en það er allt annar handleggur.

Viltu hætta að vera svona fallegur? Þú ert svo fallegur að mig verkjar í nýrun.

Ég er með súran húmor. Of súran húmor. Í gær var ég í yfirvinnu í Pökkun B og ég var að þrífa einhverja vél með Þobba og þessi súri húmor gaus alveg upp eins og ég veit ekki hvað.
Ég: 'Hverju pakkið þið í svona gult plast?'
Þobbi: 'Bara ýmislegu. Til dæmis partýrifum, grillkjöti og lifandi apa.'
Ég: 'Lifandi arfa?'
Þetta var OF fyndið. En já talandi [eða eiginlega skrifandi] um yfirvinnu þá er ég búin að vinna tvo tíma í yfirvinnu síðustu þrjá daga. Sex you very very like tímar af yfirvinnu. Vá er ég dugleg eða hvað?

Hmm. Á maður að skrifa eitthvað skemmtilegt hérna? Hvernig í veröldinni er hægt að ætlast til að ég fari að skrifa skemtilegt blogg þegar það er ekkert skemmtilegt að gerast? Ég hef ekki einu sinni hugmynd um hvað ég er að blogga hérna. Ég er alltaf búin að finna eitthvað voðalega sniðugt til að blogga um þegar ég er í vinnunni en þegar ég kem heim og sest fyrir framan tölvuna þá bara kemur ekkert skemmtilegt út. Rugl. Ég er farin í fýlu út í bloggsjálfið mitt.



Í fýlu út í bloggsjálfið sitt
//Helga

//Tíu

15. júlí 2006 klukkan 18:44

Vinnuvika [x]
Rigning [x]
Kristín & Jarek komin heim [x]
Körfuboltasnillingur [x]
Click [
Klukkan hálf sex í Smárabíói]

Magni komst áfram. Þjóðarstoltið heldur áfram að skína sínu skærasta. =] Ég sá reyndar ekki þann þátt þar sem ég var úti í körfubolta með vinnufélögunum. Og á ég að segja þér leyndarmál? Ég er góð í körfubolta; og ekki bara góð, heldur mjög góð. Þó ég segi nú sjálf frá. Planið hjá mínu liði var það að ná boltanum og síðan að gefa á mig. Ég var nefnilega svo dugleg að hitta ofan í körfuna. Þetta plan gekk mjög vel upp og ég þurfti eiginlega ekki neitt að hreyfa mig. En hann Emil var ekki alveg að fíla það svo að hann gerðist svo sniðugur að labba að mér, grípa mig, henda mér yfir öxlina á sér og labba með mig yfir að hinni körfunni. Ég veit ekki alveg hvað hinum fannst um það en mér brá alla vega. Mikið. Jón var að reyna að ná boltanum af mér réðst á mig með þeim afleiðingum að ég datt [Jafnvægisskynið að klikka?] og var að drepast í hægra lærinu. Takk Jón. Við fórum reyndar líka í fótbolta en það var ekki nærri því eins skemmtilegt. Herpes? Nei þakka þér fyrir.

Það er gaman í vinnunni. Svona oftast. Í gær var ekkert að gera í vinnunni þannig að við vorum bara að gera eitthvað rugl. Sumir þurfa að tjá sig aðeins meira en aðrir í vinnunni og um nákvæmlega ekki neitt. En jæja, mér leiðist alla vega ekki á meðan.
Í pásunni klukkan tíu var Emil svo eitthvað að stríða mér þannig að ég stóð upp og ætlaði sko að flýja frá honum. En nei, nei. Hann náði mér, greip mig, henti mér yfir öxlina á sér =| og labbaði með mig niður hálfan stigann. Ég öskraði allan tímann 'nei' og 'láttu mig niður' en hann er pólskur og þóttist ekki skilja neitt. Já og hann er líka stórhættulegur með vatnsslöngu.
Eftir vinnu í gær fórum ég, Emil, James, Óli & einhver vinur hans [sem samkvæmt Jóni heitir Einar] í körfubolta. Harpa og frænka hennar horfðu á. Það rigndi samt eins og það væri hellt úr fötu þannig að við fórum fljótlega heim.

Lost? Halló, horfði einhver á þennan þátt? Hann var svo ógeðslega hemskur, fávtialegur, vitskerrtur asnalegur. Nú þarf ég að sjá þriðju seríu og helst í gær og það sem meira er! Ég þarf að bíða eftir henni!


Núna sit ég heima hjá henni Dagnýju og er að bíða eftir að klukkan verði fimm. Þá kemur hún heim úr vinnunni og klukkan hálf sex ætlum við í bíó á Click. =] Ég vaknaði klukkan níu í morgun bara til að ég gæti heimsótt hana Dagnýju. Kristín, Jón & Jósúa eru nefnilega í bænum núna í svona skemmtiferð af því að Jón á afmæli á morgu [13] Ég er að spá í að fara niður og horfa á einhverja af nýju myndunum hennar Dagnýjar. Walk The Line? Já, held það bara.

Lúlli! Viltu taka rófuna af lyklaborðinu? Takk.

Things To Do
;
; Taka til í herbergi á morgun.
;;Fá Hörpu til að hætta að vera hyper í vinnunni.
;;Nammi!
;;Sofa


Mér líst ágætlega á þennan lista.
Ég ætla að hætta að blogga núna þar sem að þetta blogg er orðið nógu langt, hef ekkert meira að segja og það er ógeðslega erfitt að vera alltaf að færa textann til hliðar og í miðjuna.
=/


Giftast mér?
//Helga

//Níu

12. júlí 2006 klukkan 05:45
Þriðjudagur [x]
Nýr sími [x]
Akranes [x]
Þreytt [x]
Ítalir Heimsmeistarar í fótbolta [x]
Rockstar: Supernova [Klukkan 01:00]

Helgin var eiginlega hálf misheppnuð. Sem sé; fyrri helmingurinn af henni var misheppnaður. Það var samt eiginlega mér að kenna. Ég treysti rangri manneskju. En, what's done is done. Ég tók rútu í höfuðborgina frá Hvolsvellinum og var heila tvo tíma á leiðinni. Gaman, gaman. Stökk svo inn í Kringluna og inn í verslun OgVodafone[s], þar sagði ég afgreiðslukonunni að ég ætlaði að kaupa síma og viti menn! Nokkrum mínútum seinna labbaði ég út úr versluninni sem stoltur eigandi Nokia 6101. =] María & Iðunn komu að hitta mig og ég og María keyptum þrjár [hún tvær og ég eina] hárspangir í Mótor. Foreldrar Maríu voru svo góðir að skutla mér upp í Mosfellsbæ þar sem ég tók strætó [frítt, út af Írskum dögum] upp á Akranesið. Upp á Akranesi hitti ég mína yndislegu fjölskyldu og lá bara upp í sófa með tærnar upp í loft á laugardagskvöldinu.

Sunnudagurinn var yndislegur. Eftir að hafa vaknað í besta rúmi veraldar fór ég fram í eldhús þar sem að fallegi síminn minn var fullhlaðinn. Um tvö skelltum við okkur svo út í kirkju á samkomu þar sem Sunneva Rut var blessuð. Svo var veisla heima hjá okkur og ég hitti einn uppáhaldsfrænda minn, hann Birgi. Alltaf jafn gaman að hitta hann. =D Hann sagði mér sögur úr ML og núna langar mig smá [bara smá] í ML.
Fallega manneskjan er líka í ML.
Ég, Áslaug og Ester Sara fengum svo far með ömmu Conny á Selfoss. Ferðin tók svolítið langan tíma þar sem að við lentum í þessari blessuðu umferðarteppu á Vesturlandsveginum og vorum í einn og hálfan tíma í Mosfellsbæinn frá Kjalarnesi. Við stoppuðum í Esso á Ártúnshöfða og ég fékk mér eitt stykki pulsu =| og það beikonvafða! Ég sá líka Zidane skalla Ítalann í bringuna og hló ekkert smá. =D Var svo ýkt glöð þegar Ítalía vann. Núna vildi ég að ég kynni eitthvað í ítölsku, það væri við hæfi að setja smá ítölsku hérna.

Hey, ég hitti líka Sunnevu um helgina! Þessi setning var í bleiku, sérstaklega fyrir hana Sunnevu.

Amma og afi skutluðu mér svo á Hvolsvöll í gær og eiginlega beint í vinnuna. Ég held að ég sé komin með mesta gullfiskaminni ever því að ég man ekkert hvað gerðist í vinnuni í gær [ekki það að það hafi verið eitthvað merkilegt.] Í dag var ég svo að pakka beikoni. Í allan dag! Beikon, beikon, beikon og aftur beikon. Ætla svo að horfa á Rockstar Supernova á eftir. Magni er svo magnaður. ;)


Þetta var svona einfalt blogg um það sem ég hef verið að gera síðustu daga.
Hef ekkert meira að segja í augnablikinu.


Gamli og nýi sími =D

Áfram Magni!
//Helga

//Átta

07. júlí 2006 klukkan 19:05
Tuttugasti og þriðji þáttur af Lost [x]
Flókið helgarplan [x]
Brún [x]
Reykjavík [Eftir vinnu]
Nýr sími [Morgun?]
Akranes [Morgun]
Ítalía - Frakkland [?]

Ekki spyrja mig af hverju ég er að blogga. Því að satt að segja veit ég það ekki. Mig langaði allt í einu að tjá mig eitthvað á þessari bloggsíðu minni.

Það er gjörsamlega ekkert búið að gerast í þessari viku. Ég hef verið að reyna að snúa sólarhringum aðeins við og sleppa því að fara að sofa klukkan fjögur og vakna klukkan tvö. Fór meira að segja að sofa klukkan þrjú í nótt og vaknaði klukkan ellefu og skellti mér í sund með Hörpu. =) Ég held ég hafi aldrei áður verið svona svakalega mygluð í sundi.
Vinnan hefur verið ágæt. Ég pakkaði pulsum í allan gærdag og borðaði líklega of mikið af þeim líka. [Maður verður svangur í þessari vinnu] Svo voru líka nokkur snilldar móment sem ég ætla ekkert að minnast á hér. Já, ég hef líka komist að þeirri niðurstöðu að ég og Jón erum skemmtilegri í persónu heldur en á msn. Staðreynd.

Helgin hjá mér verður furðuleg. Sko, í kvöld eftir vinnu kemur Viddi og sækir mig. Hann skutlar mér til Dórotheu og ég ætla að gista hjá henni í nótt. Planið var að hanga svo bara eitthvað með Dórotheu á morgun en nei, kellingin þarf að vinna frá þrjú til 12 á morgun. =( Þannig að planið breyttist. Ég ætla að tjilla með Dórotheu til þrjú og eftir það ætla ég að reyna að hitta Maríu & Iðunni í Kringlunni eða Smáralindinni. Ég ætla að kaupa mér nýjan síma. Ég er að vona að ég nái að hitta Hafliða, Hafstein & Þór eitthvað smá en ef ekki þá er það alltaf Kotmót. Vá! Langar mig á Kotmót eða já? [Þú þarft ekki að svara þessu] En já, svo ætla ég að taka strætisvagninn upp á Akranes og vera aðeins með fjölskyldunni minni og vinkonum mínum á Skaganum =D Á sunnudaginn er svo blessunin hennar Sunnevu Rutar og líka úrslitaleikur HM. Ég ætla að horfa á Ítali vinna Frakka ;) Þarf reyndar að redda mér aftur á Hvolsvöll en ég næ líklega að plata ömmu og afa á Selfossi til að skutla mér.


Sætust.

Tilgangslausi bloggarinn kveður
//Helga

//Sjö

04. júlí 2006 klukkan 06:09
Mánudagur [x]
Júní [x]
Útborgað [x]
Útilega/Skálaferð [x]
Reykjavík [5 dagar]
Nýr sími [Næstu helgi]

Þá er fyrsti vinnudagurinn í þessari vinnuviku búinn. Ég var svo ekki að nenna í vinnuna í morgun þegar ég vaknaði. Ég svaf meira að segja til eitt, ég var svo þreytt. [Hey þetta rímaði] Ég fór samt á fætur og í vinnuna. Reyndar eftir að ég hafði hellt hálfum diski af Cheeriosi yfir mig =) Klaufinn hún ég. Hey, hefurðu einhvern tímann fengið þér undanrennu? Hún er ýkt furðuleg á litinn. Svona eins og það sé vatn blandað saman við mjólkina. Áhugavert.
Það gerðist nákvæmlega ekkert óvenjulegt eða spennandi í vinnunni í dag. Eða jú. Sigga [verkstjórinn] gleymdi lyklunum að mötuneytinu þannig að í pásunni klukkan 10 skreið Óli inn um rifuna sem er þarna og opnaði fyrir okkur svo að við gætum fengið okkur nammi. =] Það var frekar fyndið. Ég vann til tuttugu mínútur yfir ellefu af því að við [Ég, Jón & Lauren] vorum að klippa eina grind af vínarpylsum og byrjuðum á því klukkan fimm mínútur í ellefu. Jón var ekkert smá móðgaður og röflaði eitthvað um vinnusvik eins og alltaf af því að Sigga spurði hann ekki hvort hann vildi vinna lengur. Lúði?

Helgin var fín. Garðar frændi sótti mig á Hvolsvöll og bauð mér upp á pizzu á Hellu áður en hann skutlaði mér á Spóastaði. Ég, Hildur, Dagný, Áslaug, Þórhildur og Þorfinnur fórum svo upp á fjöll á laugardaginn.Við fórum upp í Gíslaskála sem er rétt hjá Kerlingarfjöllum. Ég, Dagný, Hjörtur og Binni vorum svo að missa okkur í Party & co um kvöldið/nóttina. Ég er með eindæmum lélegur leikari og teiknari og vil auglýsa það hér með að ef þú vilt vinna í Pictionary/Actionary, ekki vera með mér í liði =] En já, ég náði nú samt að leika prentara og teikna eitt stykki flugvél sem Dagný hélt fyrst að væri hundur. Við fórum svo að sofa klukkan hálf fjögur og ég vaknaði klukkan hálf 12, síðust af öllum [Allir = Ég, Dagný, Hjörtur & Binni] Við drifum okkur svo niður af þessum fjöllum með smá viðkomu í Kerlingarfjöllum og ég fékk far með Garðari á Hvolsvöllinn í gærkvöldi.

Hey ég talaði við Vidda í gær og hann ætlar að sækja mig á laugardagsmorguninn þannig að ég komist í bæinn =D Ég er glöð. Svo glöð að ég gæti sprungið. En það ætla ég ekki að gera, því að þá kæmist ég ekki í bæinn á laugardaginn. Dah. Ég þarf bara að borga honum fimmtán hundruð kall. <3 Ég ætla að kaupa mér nýjan síma í bænum. Ég var að skoða síma á netinu í gær og ég sá bara tvo sem mér fannst flottir. =/ Ég vona að það séu fleiri flottir símar í búðinni.

Ohh, ég þarf að fara í apótekið á morgun og kaupa mér verkjalyf. Mér er svo illt! Viltu vita hvar? Jæja, í hausnum, hálsinum, öxlunum, bakinu, maganum og augunum. Er ég að verða gömul? Er gömlu fólki ekki alltaf illt allstaðar? Æ, hvað veit ég um það? Ég er ekkert gamalt fólk. =/

Er hætt að röfla.
//Helga

Prófíll