//Sex

Illt í bakinu [x]
Illt í öxlunum [x]
Vinnuvikan [Bara 2 dagar eftir]
Helgin [Sveitin]
Reykjavík [9 dagar]
Hjálp! Ég þarfnast lífs og það nauðsynlega. Líf mitt hefur hætt að verða sorglegt og orðið enn sorlegara. Ég geri ekki annað en að vinna & jú svo sest ég fyrir framan þetta tæki sem kallast tölva og geri nákvæmlega ekki neitt. B O R I N G .
Eftir að Harpa fór í útilegu [en ekki heimsreisu] hefur mér leiðst svo óendanlega mikið. Bara sú staðreynd að ég get ekki farið og heimsótt neinn er að drepa mig. Ekki það að ég myndi heimsækja einhvern, en bara það að ég get það ekki er að drepa mig. Ég er svo einmanna.
Ég er líka við það að brjálast. Ég er ekki að fara að meika það að vinna í allt sumar með manneskju sem dissar mig í öðru hverju orði. Hvað gerði ég? Fyrir utan það að vera hávaxin? Í alvöru. Mig langar til að leggjast upp í rúm, knúsa koddann minn og gráta mig í svefn. Ég hef ekki hugmynd um af hverju ég tek þetta svona mikið inn á mig. Ég er vön því að fólk sé eitthvað að dissa mig en í augnablikinu er ég eitthvað ofurviðkvæm og ég get ekki höndlað þetta. Ekki á hverjum degi. H U G ?
Það er gat á skónum mínum. Vinstri skónum mínum. Fallegu köflóttu skónum mínum sem minna mig á skák. Og skák minnir mig á Hjalta sem minnir mig á það hvað mig langar mikið heim. Í alvöru. Ég er hætt við að verða fullorðin. Ég á ekki eftir að meika það. Ég þarf fólk. Mikið af því og á hverjum degi. Skemmtilegt fólk. Ég er ekki neinn loner. Ég þarf fólk. Sandra og Radek búa núna með mér. Þau eru meira að segja heima núna en sofandi. Ég hef ekki hitt þau neitt síðan þau fluttu hingað inn til mín. Þau eru farin að sofa þegar ég kem heim á kvöldin og eru í vinnunni þegar ég er vakandi á daginn. Þannig að ég hef verið algjörlega ein síðan á mánudaginn.
Ég fékk martröð um daginn. Um hvað? Nú pulsur auðvitað! Ég er ekki að grínast þetta var ógeðslega ógnvekjandi draumur og mér leið ógeðslega illa þegar ég vaknaði. Mig dreymdi sem sagt að ég væri í sumarbústað og það væru bara pulsur í matinn. Já, svona verður maður brenglaður á því að vinna í SS. Ég er samt eiginlega að komast yfir það hvað mér finnast pulsur ógeðslegar. Mig langaði meira að segja í pulsu áðan þegar ég var að raða pulsupökkunum ofan í bakka. Þær voru eitthvað svo girnilegar. =/
Ég var samt að pæla í því áðan af hverju Íslendingar borða svona mikið af puslum. Sko 'Íslendingar borða SS pulsur' það er alveg skiljanlegt, en af hverju í veröldinni borða þeir svona mikið af þeim? Þú, sem Íslendingur, viltu gjöra svo vel að segja mér hvað réttlætir þetta pulsuát Íslendinga.
Ég
Á sunnudeginum ætla ég að fá mér far með svona fólki sem ætlar að keyra undir sjóinn [Hvalfjarðargöngin] og upp á Akranes. Það á nefnilega að blessa hana Sunnevu Rut. =) Svo þarf ég reyndar að redda mér á Hvolsvöll en það er seinni tíma vandamál.
Vá. Ég er búin að blogga of mikið. Það gerist ekkert í mínu sorglega lífi en samt þarf ég að tjá mig um það svona svakalega. Ég er s p e s. Þetta átti nú bara að vera eitt lítið þunglynt blogg en þetta er greinilega bara stórt þunglynt blogg.

Mig langar í komment.
//Helga
//Fimm

Þreytt [x]
Ónýtur sími [x]
Helgarfrí [x]
Blönk [x]
Einmanna [Innst inni]
Ánægð [Innst inni]
Nýr Sími [Mánaðarmótin]
Síminn minn er að gefa upp öndina, hann er orðinn stórfurðulegur Líkt og eigandinn. Það koma mjög undarleg hljóð þegar ég er að tala í hann þannig að það hljómar alltaf eins og ég sé úti í roki. Svo er hann nýbyrjaður á því að koma með sms nokkrum tímum eftir að þau eru send. Furðulega tæki. Þannig að ég hef ákveðið að kaupa mér nýjan síma um leið og ég fæ útborgað. Alvöru síma Nokia ekki Sony Ericsson drasl.
Kvöldvaktir eru svakalega þreytandi. Ég er Alltaf þreytt. Ég svaf meira að segja til hálf tvö í á föstudaginn. Fór svo í vinnuna klukkan 3. Mygluð. Veistu, ég er komin með ógeð á kennitölunni minn [Tuttugu og níu Núll Níu Níutíu - Tveir Fjórir Sex Níu] Hey hvernig skrifar maður 90? Nítíu eða níutíu? Ohh bögg, nú verð ég að pæla í þessu að eilífu. Níutíu? Já. Ég þarf nefnilega alltaf að skrá mig inn og svo út. Ég skráði mig óvart inn á föstudaginn þegar ég ætlaði að skrá mig út. Gáfuð. Maður heyrir líka endalaust fyndnar setningar í vinnunni. Kynferðisleg nauðgun. Hún Harpa, sem ég er að vinna með, sagði þetta við mig um daginn. Svo eru margar aðrar setningar sem ég skal reyna að muna að skrifa upp einhvern tíma þegar ég nenni því. Ekki núna.
Hey, ég er froskur. Ég ákvað það í sundi í dag. James bauðst til að mála mig græna en ég afþakkaði það pent. Maður getur alveg verið froskur án þess að vera grænn. Dah. Ég var í tvo tíma í sundi í dag. Rúsína. Ástæðan er einföld. Þegar ég ætlaði upp úr birtust Lýdía og Rakel og þá vildi ég auðvitað ekkert fara. Þær eru nefnilega upp í Koti á Útvarðavikunni og voru nýbúnar að labba þaðan og hingað á Hvolsvöll 11 kílómetra. Það fóru eiginlega allir í sund og ég ætlaði að bíða eftir að Hafliði og Hafsteinn ákveddu að drulla sér ofan í laugina en þeir voru svo lengi að ég fór bara upp úr. Ég var ótrúlega fljót að klæða mig og fór svo aðeins út á bakka til að segja bless við stelpurnar. Þá voru strákarnir bara komnir ofan í pott og höfðu greinilega verið að fara út í þegar við [ég og Harpa] fórum upp úr. Lúðarnir. Þetta var oggu pínu pons vandræðalegt. Samt ekkert mikið. En ég hitti þau öll á morgun þegar ég fer á samkomu upp í Koti þannig að ef þau héldu að þau myndu sleppa við að knúsa mig þá höfðu þau rangt fyrir sér. Múhaha.
Ég og Harpa fórum svo heim til hennar að horfa á The Notebook. Ég er svo yndislega fjölhæf að ég horfði á myndina og var í Snake í símanum hennar Hörpu. Ég hef ekki farið í Snake síðan ég fékk nýja símann minn. Tvö ár. Af hverju er Snake svona ánetjandi? Ég er alveg með fiðring í puttunum mig langar svo í Snake.
Það eru allir að yfirgefa mig. Harpa er að fara í heimreisu á þriðjudaginn Norðurlöndin. og sama dag eru Kristín, Jarek, Jón, Íris og Elísabet að fara til Póllands. Sandra og Radek ætla að flytja inn til mín og 'passa' mig. =) En Iðunn kom heim í gær eða var það í fyrradag? Ég er ömurleg vinkona. Þarf að hringja í hana á morgun eða eitthvað. Og María er að fara að koma. <3 Hún á eftir að hringja í mig strax og fá málæði og segja mér frá Bandaríkjaferðinni sinni á korteri. I [heart] you both very muchly indeed.
Ohh ég komst að því hvað nýja/gamla lagið með Green Day heitir í gær en ég gleymdi því. Ég og Óli vorum að pæla hvað það héti. When I come around? Já ég held það bara.
Slagsmál í vinnunni í gær. =/ Smá uppsöfnuð spenna milli þeirra. Hlaut að koma að því.
Af hverju þarf ég alltaf að tjá mig svona mikið? Ha?
//Helga
//Fjögur
Sjá Sunnevu Rut [x]
Veik [x]
Feeling [Weird]
Helgin [?]
Vá. Ég á mér ekki líf í augnablikinu. Kvöldvaktir eru ekkert líf. Vinna klukkan 3. Koma heim klukkan 11. Tölvan. Sofa. Vakna klukkan 12. Borða. Vinna. Stuð. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það er ekki sniðugt að vera að vinna með tveimur gaurum sem eru alltaf að bögga mann. Nei, ekkert sérstaklega.
Ég fór á Ný Kynslóð mót um helgina. Alla leið upp í koti. Dórothea hringdi og sagði mér það að hún væri að koma að sækja mig þannig að ég dreif mig og pakkaði niður á korteri. Dórothea kom svo með Viktori og bílferðin upp í kot var mjög skrautleg. Segjum það bara. Mótið var svo mjög skemmtilegt og ég komst að því að vinir mínir eru tölvunördar dauðans. Vissi það nú samt áður. Ég fór í sund á Hellu af því að sundlaugin á Hvolsvelli var lokuð Afhverju? og var vakin með vatnsbyssu. Það gerðist auðvitað mikið meira en ég er ekki að nenna að skrifa það allt hér. Sem sé helgin var fín.
Á sunnudaginn fékk ég far með Vidda á Selfoss. Ímyndið ykkur bara að vera í bíl með þremur strákum [Hafliði og Þór] og Eminem í botni. Það er tjah, áhugavert. Fótboltanördinn hún ég sofnaði yfir Brasilía - Ástralía þegar ég var að bíða eftir mömmu og Hjalta. Fékk svo loksins að hitta hana Sunnevu Rut og hélt á henni endalaust enda veit ég ekkert hvenær ég get hitt hana aftur.
Fjölskyldan skutlaði mér svo á Hvolsvöllinn í gær og ég fór að vinna klukkan 3. Erum við að tala um að það hafi verið frekar mikið bögg og diss í gangi? En ég var alla vega ekki heilaþvegin Fm 957 þar sem útvarpið var ekki í gangi. Ég var líka frekar hress þegar vinnan var búin Of hress. En við þurfum ekkert að tala um það.
Og í dag er ég barasta veik. Ekkert meira með það. Maginn bara í einhverri klessu Nokkrar ástæður fyrir því. og ég ákvað því að vera heima. Það er ekkert vit að fara að vinna í SS þegar maður er með flensu í maganum. Segir maður flensu í maganum? Æ, skiptir engu ég er byrjuð að bulla. Núna er ég bara í tölvunni að dunda mér við að blogga og tala við vini mína á msn. Ég er líka að hlusta á Lord Of The Rings, Return Of The King þar sem Jón sem er líka veikur er að horfa á hana.
Ég ætla vera óendanlega löt um helgina og vera á Hvolsvelli. Ég nenni ekki upp á Akranes og ekki heldur til pabba. Ég nenni mest í bæinn en ég nenni því samt alls ekki. Fattaru? Þannig að ég ætla að vera mína fyrstu helgi á Hvolsvelli. Það er örugglega ekkert að gerast hérna en það er allt í lagi, ég fer bara í sund og verð brún. Ætla líka að kíkja upp í Kot á hana Dórotheu mína sem er búin að lofa að knúsa mig.
//Helga
//Þrjú
![]()
Ný vinna [x]
Lítil systir [x]
England - Paragvæ [1-0]
Ný Kynslóð mót [4 dagar]
Pulsur [Aldrei aftur]
Systir mín er komin í heiminn. Hún kom í heiminn í morgun og er ótrúlega falleg. Hún heitir Sunneva Rut [Skaale Hjaltadóttir]. Ég get ekki beðið eftir að hitta hana en vegna vinnunnar minnar kemst ég ekki fyrr en um helgina þarnæstu. Mamma ætlar samt að koma í heimsókn með Sunnevu fljótlega svo ég geti séð hana.
Vinnan. Í dag var fyrsti vinnudagurinn minn. Og ég skal sko segja ykkur það að ég er ekki að fara að borða pulsur aftur fljótlega. Ég var að pakka pulsum í næstum allan dag. Næst þegar þið fáið ykkur SS pulsu hugsið þá til mín. Ég gæti hafa pakkað henni. [Sunneva ég er að vinna með Óla Odds. Svona ef þig langaði að vita það.] Ég er í indælum hvítum gagnsæjum buxum og hvítum sloppi. Svo er ég líka með yndislega fallegt hárnet.
Sund á morgun. Ætla að vera ógeðslega healthy í sumar. En ég er að deyja mig langar svo í Coke. Kókistinn ég.
SS fremstir fyrir bragðið
//Helga
//Tvö
Grunnskóli [x]
Þýskaland - Kosta Ríka [4-2]
England - Paragvæ [?]
Vinna í SS [2 dagar]
Grunnskólagöngu minni er formlega lokið, ég er útskrifuð. Útskriftin var í gær & ég [sviðshrædda manneskjan] fór þrisvar upp á svið. Fyrst fór allur bekkurinn upp á svið og tók við einkunnum. Ég er frekar ringluð núna af því að á miðanum sem við fengum fyrst stóð að ég hefði fengið 9 í stærðfræði en á einkunnblaðinu sem við fengum í gær stóð 9.5. Í annað skiptið var verðlaunaafhending. Ég þurfti að fara ein upp á svið og taka við verðlaunum fyrir hæstu einkunn í íslensku [ljóðabók] og ég stóð ein í smá tíma á sviðinu. En svo kom Hörður Kári og fékk verðlaun fyrir stærðfræði [og samfélagsfræði og náttúrufræði] eftir það byrjaði að fjölga á sviðinu. Harpa fékk verðlaun fyrir vinnusemi og hún var ekki að trúa því. [Krútt] Höddi dúxaði og Raggi var næsthæstur en ég var þriðja með 0.2 lægri meðaleinkunn en Höddi. Í þriðja skiptið fór ég með Leifi upp á svið og afhenti blóm og gjafir.
Á miðvikudaginn var rigning. Mikil rigning. Svo mikil rigning að mamma gaf mér frí frá Akrafjallsferðinni. Svo var hætt við ferðina vegna rigningar en þau fóru í fjöruna í staðinn. Jibbý. Á fimmtudaginn var svo þetta blessaða Húllumhæ en ég fór í bæinn með Leifi að kaupa örbylgjuofn, Playstation 2 og leiki sem að árgangurinn '90 gaf svo skólanum. Við fórum með strætó og það horfðu allir á okkur þegar við gengum fram hjá enda hélt Leifur á örbylgjuofni. Þegar við komum upp í skóla var svo mikið sem átti eftir að gera að ég kom ekki heim fyrr en klukkan 5. Þannig að síðasta daginn í skólanum var ég allan daginn í skólanum.
Ég, Sunneva og Dúa fórum líka að bera út skólablaðið í Jörundarholtinu og Flötunum [300 blöð] og vorum að deyja úr þreytu þegar við komum heim klukkan 12. Ég og Sunneva fengum líka svakalegar harðsperrur sem að ég er ennþá með. ['Mazing]
Ég og Hjörtur horfðum á The Punisher í gær. Hún var ágæt, jafnvel þótt að sumt hefði ekki verið alveg að passa.[Hann hefði verið löngu dauður.] Guðjón ætlar að stinga af í Reykjavíkina þannig að ég og Hjörtur ætlum bara að baka pönnukökur á eftir. Og Guðjón fær ekki neitt.
Á morgun er ég að fara á Hvolsvöll þar sem ég verð í allt sumar og á mánudaginn byrja ég að vinna í SS á kvöldvöktum. [3-11] Ég er ótrúlega spennt en samt líður mér geðveikt furðulega og ég sakna allra ógeðslega mikið. <3
Ég sá lögguna handtaka tvo menn sem voru með fíkniefni í gær. Jájá, hentu efnunum bara út um gluggann þegar löggan kom. En löggan er svo gáfuð að hún fann efnin og leitaði svo á þeim og á endanum henti hún þeim inn í löggubílinn. Ég og Hildur horfðum á þetta eins og þetta væri hin besta bíómynd en pabba fannst þetta ekki nærri því eins skemmtilegt.
//Helga
//Eitt

Ný síða [x]
Samræmduprófseinkunnir [x]
Nýir skór [x]
Grunnskólagöngu lokið [3 dagar]
Ný vinna [6 dagar]
Blog.central.is [/helga9] síðan mín er orðin eitthvað leiðinleg. Ég ákvað því að prufa þetta kerfi. Það er bara vonandi að maður verði fljótur að læra á þetta.
Það merkilegasta sem er að gerast í lífi mínu þessa dagana er það að þessir dagar eru síðustu dagar mínir sem grunnskólapakknemi. Á föstudaginn yfirgef ég grunnskóla fyrir fullt og allt og held á vit ævintýranna. [fer að vinna á Hvolsvelli] Skóladagarnir eftir samræmduprófin hafa ekki verið neitt annað en uppfylling upp í einhvern samning sem í stendur að halda eigi nemendum inn í skólunum fram í júní. Fáránlegt.
Í dag voru einhverjir fáránleikar [skammhlaup] og varð sameinað lið 10.bekkinga í öðru sæti. En það var allt í lagi, okkur langaði hvort sem er ekkert í pizzu.[afneitun] Á morgun verður gengið upp á Akrafjall með einhverjum krökkum í 5.bekk & á fimmtudaginn verður Húllumhæ. [Joy]
Ég hef ákveðið að hitta Hjört [Nálitann] og Guðjón [Örverpið] um helgina. Hjörtur lofaði mér að skila Guðjóni kremjandi faðmlagi frá mér. Þegar ég tilkynnti Guðjóni það sagðist hann elska mig líka. <3
//Helga

