Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//ÁttatíuogEitt

07. júlí 2007 klukkan 14:04
a


Mig langar til að blogga. Langar til að koma með eitthvað ofur blogg sem að gæti jafnvel leyst allan alheimsvanda. Kata er farin að bíða && sextán komment á eitt blogg segja mér að fólk kíkir alla vega á síðuna mína. Ég nenni ekki að koma með blogg um hvað ég er búin að vera að gera síðustu daga. Finnst það einhvern veginn svo óáhugavert að ég legg það ekki á aðra að lesa um það.

Í mjög grófum dráttum er ég samt bara búin að vera að vinna. Vinna allan daginn && gera eitthvað á kvöldin sem að veldur því að ég er algjörlega búin á því þegar ég fer að sofa. Veit ekki alveg hvað ég meika það mikið lengur að vera alltaf að gera eitthvað á kvöldin. Væri miklu frekar til í það að fara bara að tjilla með einhverjum eftir vinnu, þá hefði ég alla vega einhverja orku.

En í gær fór ég með Kötu í Fíló. Og eins og það er oft með samkomurnar þá var ég akkúrat á réttum stað á réttum tíma. Prédikunin talaði alveg rosalega mikið til mín. Ég er svo mikið búin að vera að velta hlutum fyrir mér && pæla í því hvort að eitthvað af því sem ég er búin að vera að gera skipti einhverju máli. Ég er reyndar alveg jafn ringluð eftir þessa samkomu þar sem að það voru engin svör, en ég veit alla vega núna að þetta er heilbrigt. Ég er ekki bara einhver rugludallur sem að veit ekki neitt. :]

Jaaaaá, ég byrjaði á þessu bloggi í gær [07.07.07] en svo fór ég í klukkutíma matarpásu && hitti Dabba&Andra&Hannes. Þannig að ég er bara að klára það núna. Húbbrí er reyndar í einhverju rugli þannig að ég er búin að henda öllu út sem ég þarf ekki. En hún neitar ennþá að opna iTunes-ið þannig að ég held að ég verði að uninstalla því && installa því svo aftur. Er það ekki bara málið?

Farin að reyna að laga tölvuna!

//Áttatíu

04. júlí 2007 klukkan 19:24
Vííí

Ókei, vá. Ég er mesti klaufi veraldar! Á einum sólarhring er mér búið að takast að klaufast meira en ég hef annars gert í öllum síðasta mánuði. Núna var Þór einmitt að minna mig á eitt slíkt atvik sem gerðist í bíóinu á laugardaginn. Ég held að mitt hlutverk í vinahópnum sé búið að breytast í að vera þessi frábæra í að vera skemmtikrafturinn && klaufinn. Alla vega sagði Þór að þetta gæti verið fyndið && sniðugt, alla vega stundum. =]

En já á laugardaginn var ég bara í vinnunni && svo komu Kata&Andri að heimsækja mig og Kata ákvað bara að vera með mér þangað til að ég væri búin. Hún var voða dugleg að hjálpa mér að brjóta saman && passa búðina meðan ég þurfti að hlaupa inn á lager [ég var ein að vinna]. Dabbi&&Andri komu svo og sóttu okkur. Eftir að hafa borðað á Stjörnutorginu fórum við heim til Dabba að gera ekki neitt. Í þessu 'ekki neinu' gerðist ég voða sniðug && lagðist ofan á Kötu&&Andra og reyndi að koma mér voða vel fyrir, þeim til ama. Það tókst ekki þannig að ég varð að láta mér nægja að sitja við hliðina á þeim. Við ákváðum að fara í bíó á 28 weeks later og skutluðumst þess vegna útí Garðabæ að ná í Þór. Síðan fórum við að kaupa miðana í Regnboganum. Einum & hálfum tíma áður en að myndin átti að byrja! Borðuðum ís && störðum á vegg á meðan við biðum. Rétt áður en að myndin byrjaði var ég að passa Burnið hans Þórs && eins mikill klaufi og ég er þá missti ég það. Tvisvar. Myndin sjálf var nokkuð góð && ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei ævinni verið jafn hrædd og spennt í bíói. Var komin öll upp í sætið, með hettuna nánast fyrir andlitinu og muldrandi 'ég er hræddur'. Brá samt mest þegar að Dabbi gaf mér olnbogaskot; hann var að bjóða mér popp. ;]

Á sunnudaginn fór ég bara í vinnuna && svo bara heim til Kötu að láta okkur leiðast. Síðan fór ég heim á Akranes að sofa. Gerði nánast ekki neitt á mánudaginn en það var samt ógeðslega gott að vera bara heima í fríi. Í gær fór ég á afmæli til Ástu vinkonu mömmu á Kjalarnesi, pikkaði síðan Kötu upp í Mosfellsbænum, henti dótinu inn til Birnu í Kópavoginum && fór í Kringluna með Kötu. Eftir að hafa verið í einhvern tíma í Kringlunni && eftir að Kata var búin að kaupa sér hellingsdót þá ákváðum við að taka strætó heim til Andra. Hann var ekkert alltof glaður þegar við tjáðum honum það að við værum í strætó á leiðinni en hann komst yfir það. Dabbi kom && sótti okkur þrjú og við fórum í Garðabæinn að sækja Þór. Við fórum svo í Keilu með Elsu, Þórunni, Dagbjörtu ljóshærðu && Heiðrúnu vinkonu hennar. Ég hef komist að þeirri vísindalegu niðurstöðu að ég er ekki góð í keilu. Fékk reyndar eina fellu þegar ég, Kata&&Dabbi köstuðum öll kúlum í einu ;] Og af því að ég er yndislegur klaufi þá tókst mér að missa keilukúlu... á tána á Dabba! Snillingur.

Ohh, núna á ég eftir að setja inn fullt af myndum síðan á Spáni plús allar myndirnar sem voru teknar í gærkvöldi! Jæja ég hef þá alla vega eitthvað að gera á meðan ég er ekki í vinnunni eða að klaufast.

ykkur

//SjötíuogNíu

30. júní 2007 klukkan 12:52
:)


Ég er komin heim! Kom heim á fimmtudaginn í góða veðrið á Íslandi. Ég held barasta að móður minni hafi tekist að taka sólina með sér frá Spáni. Þið hefðuð átt að sjá hana þar sem hún stóð á bílastæðinu við flugvöllinn í Alicante með veskið opið og pakkaði sól í það fyrir allar vinkonur sínar.

Spánarferðin var æði. Ég ætla ekki að blogga eitthvað svaka langt ferðasögublogg en ætla bara að segja frá því merkilegasta sem ég gerði [sem var nánast allt; ég var alltaf að gera eitthvað] Ég borðaði rosalega mikið af góðum mat && smakkaði meðal annars Sushi, sem var furðulega ekkivont. Ég eyddi sautjánda júní í miðbæ Torrevieja && í tívolíinu sem var þarna á hafnarbakkanum. Ég fór í dýragarð [&& hitti lamadýr], fór í Sirkus && í Terra Mitica, þar sem að skræfan hún ég fór í stærsta rússíbana í Evrópu sem fer á hvolf! Síðan fór ég auðvitað aðeins á ströndina && að versla. ;] Ég tók alveg helling af myndum sem eru væntanlegar á síðuna þegar ég er búin að upphlaða þeim öllum. Ohh, íslenska er yndisleg.

Í gær skutumst við fjölskyldan austur á Hvolsvöll að ná í allt dótið mitt. Ég fór líka && sagði upp pulsupökkunarstarfinu þar sem að lamadýrin hvísluðu því að mér að ég ætti bara að vera í bænum og eiga mér smá líf fyrir utan vinnu. Vinnu sem ég er akkúrat í núna; en það er ekki neitt að gera þannig að mín er ekki þörf neins staðar annars staðar en á bloggsíðunni minni í augnablikinu.

Ég ætlaði svo að láta foreldrana skutla mér til Kötu minnar í Mosfellsbæinn en þar sem að þau voru á leiðinni í Hafnarfjörðinn þá varð ég að láta mér nægja að fara fyrst til Dabba [þar sem að hann var meira í leiðinni]. Ég && Dabbi náðum síðan í Andra && svo fórum við í Mosó þar sem ég hitti loksins hana Kötu mína. Ég && Kata vorum frekar svangar þannig að við skutumst á Stjörnutorgið í Kringlunni rétt fyrir lokun. Á meðan ég && Kata borðuðum pizzuna okkar kom einhver voðalega skrautlegur gaur og fékk að hringja hjá Andra þar sem að;; 'Vinur minn var að kaupa eitthvað minniskort && svo voru þeir eikka að setja það vitlaust í maður && ég eitthvað 'hey ég kann þetta alveg ég tengi stúdíó skilurðu' skilurðu'. Jahá, gaman að vita.

Eftir matinn fórum við á samkomu í Fíló. Þetta var mest heimilislegasta samkoma sem ég hef farið á. Vá! Þetta var alveg yndisleg samkoma. Ég, Kata, Dabbi & Andri fórum síðan aftur í Mosó og fórum heim til Kötu að horfa á einhverja mynd sem ég var ekki alveg að ná. :] En það voru alla vega Zombie-ar í henni. Strákarnir fóru um miðnætti en ég & Kata kláruðum myndina og fórum svo upp í rúm að lúlla ;]

Í morgun kom svo Andri að sækja mig && skutlaði mér í vinnuna þar sem ég er enn. Þau ætla víst að kíkja eitthvað á mig í vinnuna á eftir && svo var pælingin að gera eitthvað í kvöld. Já, veistu ég er að pæla í að fara að vinna.

//SjötíuogÁtta

13. júní 2007 klukkan 17:11
Sumar

Ég er farin til Spánar!
Eða flugið er klukkan hálf sjö í fyrramálið.

Á eftir að sakna ykkar allra.
Vildi helst að ég gæti bara tekið ykkur öll með.

Blogg fyrir neðan ^__^

Sumar


Mér þykir alveg óendanlega vænt um ykkur öll.
Og þig líka þó að ég skilji þig ekki baun.

//SjötíuogSjö

12. júní 2007 klukkan 00:46
kg

Loksins loksins gerist eitthvað í mínu lífi sem er bloggvert. Eða svona þannig séð. Það alla vega gerðist eitthvað annað en pulsur && skinka eða eitthvað álíka kjöt. Annars er ég að melta það svona inní mér hvað ég ætli að gera þegar ég kem frá Spáni, hvort að ég haldi áfram í pulsunum eða snúi mér að djobbi þar sem ég get átt mér smá líf. Ég velti þessu bara fyrir mér útá Spáni. Spyr kannski lamadýrin. Það verða að vera lamadýr í þessum dýragarði sem ég fer í.

En já, á laugardaginn fór ég með Kristínu && krökkunum uppá Akranes í afmæli til hennar Sunnevu Rutar [sem er einmitt eins árs í dag ;*]. Þar var fullt af fólki en mér fannst samt best að komast heim til mín vitandi það að ég gæti verið þar í tvo daga, ekki bara tvo tíma eins og síðast. Ég eyddi síðan laugardagskvöldinu í sjónvarpsgláp með fjölskyldunni && naut mín bara mjög vel með poppskálina á bumbunni. Horfðum á The Wedding Planner && ég vil bara taka það fram að hann Matthew McConaughey er miklu fallegri í henni heldur en í Sahara. [Mjög mikilvægar upplýsingar]

Á sunnudaginn vaknaði ég í MÍNU rúmi, mínu frábæra mjúka rúmi && skellti mér á samkomu. Rosalega fín samkoma && það mættu alveg óvenjumargir [sem að er mjög gott ;)]. Eftir samkomuna fór ég bara heim og var eiginlega bara að láta mér leiðast á MSN. Ákvað svo bara eftir að hafa talað við Dabba&Kötu&Andra á MSN að skella mér bara með strætó í bæinn && hitta þau. Þannig að klukkan 15:41 borgaði ég hundraðkall til að fara í Mosfellsbæ. Ég hitti Berglindi í strætó && var bara að spjalla við hana á leiðinni. Andri keyrði næstum yfir mig af gleði þegar hann sá mig en tók síðan eitthvað svaka gelgjukast && var endalaust mikið að pirrast útí mig og Kötu. Hann var alveg á því að skilja okkur eftir heima hjá Kötu && stinga svo bara af með Dabba eitthvað en okkur leist ekkert alltof vel á það. Á endanum fékkst hann til að skulta okkur heim til sín && þaðan löbbuðum ég, Kata && Dabbi heim til Dabba. Fórum reyndar bara beint í bílinn hans && skutluðumst í Garðabæinn að sækja Þór.

Eftir að Þór var búinn að joina 'partý-ið' fórum við aftur heim til Dabba && beint inn í herbergið hans að horfa á 28 Days Later. Ótrúlega gaman að horfa á mynd && tala bara endalaust, engin manneskja sem að sussar endalaust á mann af því að hún er ekki að ná myndinni. Húmorinn í okkur mér var orðinn frekar súr á tímabili && pældi Þór mjög mikið í því;; 'Af hverju hann færi nú ekki bara líka úr buxunum?' Sem sé aðalkallinn í myndinni sem var Cillian Murphy [en það breytir voða litlu]. Það voru líka miklar vangaveltur að hálfu Dabba um hesta- og kindazombies . ;] Þegar myndin var búin vorum við orðin frekar svöng && fórum þess vegna að ná í Andra og borðuðum hann && fórum síðan öll saman á Hamborgarabúllu Tómasar. Þaðan lá svo leiðin uppí Veg þar sem ætlunin var að ná í fólk til að fara í fótbolta. Okkur tókst síðan að draga Röggu&Benna með okkur upp í Garðabæ þar sem að við ætluðum sko að fara í fótbolta. Eeeen svo var svo mikið af fólki að allir hættu við nema Dabbi & Þór. Ragga&Benni skutluðu síðan mér & Kötu uppí Mosó && líklega Andra heim til sín eftir það. Alla vega tók ég bara strætó heim til mín og fór bara beint upp í rúm að sofa.

Í dag ætluðu síðan mamma&Hjalti að skutla mér alla leið á Hvolsvöll í vinnuna en síðan bilaði bíllinn á miðri leið þannig að ég varð að gjöra svo vel að húkka mér far frá Skeiðavegamótunum. Það var smá ævintýri. Síðan fór ég bara í vinnuna && hafði á tímabilinu svo lítið að gera að skórnir mínir eru allir útkrotaðir. Næst þegar mér leiðist í vinnunni ætla ég að fjarlæga alla penna fyrst svo að skórnir mínir endi ekki á einhverju listasafni sem listaverk.

Besta gullkorn EVER;

Kata; 'Helga, ekki borða símann þinn!'
---
Helga; 'En þetta er samlokusími'

Farin í sturtu && svo að sofa
Elskjú all
[&& Dabba meira en Andra xD]

//SjötíuogSex

08. júní 2007 klukkan 23:38
Draco

Ójá þá er þessi vinnuvika búin. Núna þarf ég bara að vinna í tvo daga í viðbót && svo er ég farin til Spánar! Eftir Spán þarf ég bara að vinna helling && fara í bæinn um helgar að hitta fólk && fara á Kotmót && hitta meira fólk. Og svo get ég einhvern tímann eftir það farið heim til mín og þá verð ég bara eina strætóferð í burtu frá öllu þessu fólki sem að er svo gaman að hitta ;] Ég && Kata föttuðum það um daginn [vissum það samt alveg] að strætó fer frá Akranesi & í Mosfellsbæinn. Og hver býr í Mosfellsbænum? KATRÍN! Oh vá, ég held að vinnum Nóbelsverðlaunin fyrir þessa svakalega uppgötvun. Það verða búin til ný verðlaun fyrir okkur;;

"" Mesta uppgötvun í ljóskuflokki! ""

Eh já. Ég veit eiginlega ekkert hvað ég get bloggað um. Það hefur eitthvað mjög takmarkað verið í gangi í mínu lífi síðustu daga. Er aðallega bara búin að vera í vinnunni að hugsa um hvað það verður gaman út á Spáni eða út í það hvað ég sakna allra vina minna. Já, meira að segja þín líka. Frekar ömurlegt að vera alltaf í vinnunni þegar allir eru í fríi && svo eru flestir farnir að sofa [eða alla vega komnir í náttfötin & hálfa leið uppí rúm] þegar ég kem heim úr vinnunni. Ég efast stórlega um að ég fari þriðja sumarið í röð að vinna í SS, reyni frekar að finna mér einhverja kósí vinnu á Akranesi eða hreinlega í bænum. Alla vega einhverja vinnu sem að býður upp á þann möguleika að eiga einhvern smá vott af lífi.

Hmm. Eigum við ekki bara að kalla þetta blogg && Katrín Ósk Óskardóttir? [ég líka vera stalker já] verður voða ánægð og elskar mig að eilífu? Ég held það bara :]

//SjötíuogFimm

06. júní 2007 klukkan 20:05
I Don't Get It

Til hamingju ég. Í dag eru akkúrat ár síðan að ég byrjaði að blogga á Frílsa mínum && ákvað líkaminn minn að fagna því með því að verða bara veikur. Já ég vaknaði með mesta magaverk sem að sögur fara af. Hringdi í SS & tilkynnti mig veika og er svo bara búin að vera að horfa á Friends && slaka á. Jú & tölvast eitthvað smá, það er víst. Ég er nokkuð þreytt þar sem að ég er búin að vera að vinna heila tuttugu tíma á þessum tveimur dögum. Átta tímar á mánudaginn og tólf í gær. Þetta skilar sér vonandi allt í peningi um mánaðamótin.

Ég held samt að ég verði að spara einhverja peninga svo að ég eigi fyrir blessaða bílprófinu. Ohh ég hlakka ekkert smá til að geta farið að keyra sjálf && þurfa ekki að hafa þetta græna skilti alltaf aftan á. Vandamálið er samt að ég á engan bíl && er ekki að fara að kaupa mér einn í bráð þannig að ég mun ennþá þurfa að fá far. Vitiði hvað væri ótrúlega frábært? Ef að ákveðnar manneskjur *hóst*Aron&Þór*hóst* myndu bara vera komnir með bílpróf þegar að ég kæmi aftur frá Spáni. Þá væri ekki alltaf bara einn Dabbi driver sem að ræður því algjörlega hvenær allir fara heim. Dabbi gerirðu þér grein fyrir því hvað þú hefur mikið vald yfir okkur litlu börnunum? Ef að þú ert þreyttur þá verða bara allir að gjöra svo vel að fara heim. Vá, fáið ykkur bílpróf áður en að Dabbi fer að misnota þetta vald!

Fyrst á dagskrá hjá mér er samt að fara til Spánar, hætta að hugsa && kaupa mér helling af fötum. Svo eftir það er það bara hellingur af hittinum && bara skemmtilegheit. Það er alveg hægt að gera þetta sumar að besta sumri veraldar þrátt fyrir þetta. Það verður þá bara gaman hjá okkur vinunum er það ekki? Vinir eru frábærir! Ég elska alla vini mína til Plútó && aftur til baka [svona sirka sjö sinnum].

Finnst ég eiginlega þurfa að minnast á hana Kötu mína þar sem að hún er búin að semja ótrúlega flott lag sem að ég var að heyra áðan. Ég kom meira að segja með textann sem hún notaði í viðlaginu. Það var ofur. Síðan ætluðum við að semja stalker-lag yfir msn en það fór eitthvað út um þúfur þegar strákarnir fóru að segja að ég væri þunglynd. Þetta kallast fjörugt ímyndunarafl þakka ykkur fyrir!

//SjötíuogFjögur

03. júní 2007 klukkan 15:51
Life

Ég meika þetta ekki.

Ég vil fara heim && sofa í rúminu mínu && vera þar að eilífu.

Skilekki, vilekki, getekki hætt að hugsa um þetta.

Láttu mig vera en samt ekki.

Ég veit ekkert í minn litla haus núna.

Ái.

//SjötíuogÞrjú

01. júní 2007 klukkan 00:22
MILO


Ég er súpermann. Ókei kannski ekki alveg súpermann en ég er nokkuð nálægt því að teljast í hóp ofurmenna með yfirnáttúrulega hæfileika. Af hverju? Tjah, hversu marga þekkirðu sem að hafa verið að vinna tvö störf á tveimur stöðum í einu? Eða hversu marga þekkirðu sem að geta pakkað einu stóru bretti af pulsupökkum með fimmtán pulsum í með einungis einni annari manneskju? Já ég veit ég er ofur. Það ætti að nefna eitthvað eftir mér eða búa til styttu af mér eða gefa mér fullt af dóti. Eitthvað svoleiðis já takk.

Þessi vika er alveg að verða búin en ég veit ekki alveg hvernig ég ætla að meika næstu viku líka. Það eru alveg heilir fimm dagar. Ég veit heldur ekki alveg hvernig ég ætla að fara að því að vinna í allt sumar. Allir vinnudagarnir mínir hingað til hafa byrjað á orðunum;
'Ég nennekkí vinnuna.'
En ég er hvort sem er alveg að fara til Spánar. Tvær vikur mínus einn dagur. Svo þegar ég kem heim þarf ég bara að vinna í júlí [inní milli verða örugglega einhverjir hittingar] && svo er Kotmót. Ég & Kata ætlum að lúlla saman og það verður ótrúlega gaman. Ég er búin að ákveða það að þetta sumar verði það besta í heimi. Bannað að eyðileggja það fyrir mér ókei?

Í gær horfði ég á Shrek: The Third með Hörpu & Taniu. Hún var alltílagi. Mér fannst samt eitt & tvö miklu betri. Tröllabörnin hans Shrek voru samt endalaust krúttleg! Á morgun er svo planið að vakna [ólíkt því sem ég gerði í morgun; svaf tveimur tímum lengur en ég ætlaði] , fara í sund && mæta svo klukkan tólf í vinnuna. Maður heldur bara áfram að ofurmennast í þessari pulsupökkun ;]

Þ
ið ykkar sem eruð ekki farin að sofa á slaginu klukkan 11 megið endilega hringja í mig eða senda mér sms eða tala við mig á msn eða bara eitthvað. Ég ætla ekki að einangrast útí horn með öllum pulsunum mínum. Þá gæti ég þess vegna pantað rúm inn á Kleppi núna strax. Nokkur rúm. Fyrir mig && pulsurnar mínar.

Call me ;]

//SjötíuogTvö

29. maí 2007 klukkan 12:13
=/

Mánudagur, mánudagur, mánudagur. Mánudagar eru verstu dagar vikunnar. Þá á maður eftir að gera svo mikið && föstudagur er alltof langt í burtu. Scratch that. Ég var að fatta að það er þriðjudagur í dag. Þessi vika batnaði um helming á þessum tveimur sekúndum. Núna er ekki eins langt í föstudaginn & það var þegar það var mánudagur. Síðasta vika var mjög einsleit. Vakna, horfa á Friends, vinna, hitta Hörpu, sofa && svona gekk það nánast alla vikuna. Flestar vikur eru það reyndar en þessi var það sérstaklega mikið.

Á laugardaginn vaknaði ég klukkan korter yfir sex. Sandra & Radek komu klukkan hálf átta að sækja mig og ég fékk far með þeim í Reykjavíkina. Ég vakti Aron um níu með símtali && nokkrum mínútum síðar var ég komin til hans að kúra. Seinna um daginn gerðum við ýmislegt skemmtilegt eins & að hoppa á trampólíninu && svo lögðum við okkur. Hann hraut á mig eftir að hafa tilkynnt það hátíðlega að hann hryti ekki, en reddaði því svo með því að segja að hann hryti bara þegar honum liði vel.

Hittingurinn var planaður heima hjá Þór en svo kom í ljós að það var ekki hægt. Þá var ákveðið að hittast heima hjá Aroni. Fyrst fórum við á Devitos að borða && ég móðgaðist pínupons þegar Aron kallaði mig Kötu. Svo fórum við bara heim til Arons && horfðum á Children Of Men. Sumir misstu sig alveg í ljóskukommentunum && föttuðu það þegar myndin var meira en hálfnuð að konan væri ólétt. [En myndin fjallaði eiginlega um það] Eftir það var farið út á trampólínið && svo þegar við ætluðum aftur inn stoppaði ferðin í stigaganginum. Við sátum heillengi niður á gangi að gera ekki neitt en á endanum fórum ég, Aron & Dabbi upp && skildum alla eftir. Þau fóru víst eitthvað á rúntinn & rugl en við vorum bara að horfa á The Ladies Man. Síðan komu Andri, Þór & Kata aftur og þegar Andri var farinn þá fórum við hin að spila Veiðimann & tuttuguogeinn && svo kenndu þau mér póker. Um eittleytið þurftum ég & Kata að fara heim til hennar að sofa.

Ég vaknaði snemma á sunnudeginum líka til að fara á Akranes. Ég var heima hjá mér í nokkra klukkutíma & síðan fór ég með fjölskyldunni í sumarbústaðinn þar sem amma Conný varð 60 ára í gær. Þar var ég bara að tjilla && afi gerði endalaust grín að mér af því að ég sagðist vera að verða sautján. Í gær fór ég með afa & ömmu á Selfoss && Harpa yndi náði að redda mér fari með foreldrum sínum á Hvolsvöll. Þannig að engin rúta. Jibbý.

Ókei núna er ég alveg til í að Harpa birtist á tröppunum svo að ég geti hætt að horfa á tíundu seríu af Friends, farið með Hörpu út í apótek && gert síðan eitthvað skemmtilegt áður en ég mæti í vinnuna klukkan þrjú. Harpa komdu núna!

Prófíll