Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//Eitthundrað

16. september 2007 klukkan 22:26
a

Blogg númer eitthundrað. Það tók mig eitt ár og þrjá mánuði en ég er komin hingað. Og á þessum merku tímamótum þá veit ég ekkert hvað ég á að segja. Ég er búin að vera í þannig félagsskap alla vikuna að tjáningarþörf mín snarminnkaði. Stundum finnst mér bara betra að sitja og hlusta. Sérstaklega þegar ég er með fólki sem að ég er bara að kynnast.

Á sunnudaginn flutti ég að heiman. Núna á ég herbergisfélaga, hún heitir Eydís og við erum orðnar voða góðar vinkonur.Guðrún Marta verður hjá okkur í herbergi í einhverja nokkra mánuði en síðan verðum við tvær í þessu nokkuð stóra herbergi á meðan strákarnir hírast fimm í herberginu við hliðina á. Það eru sem sé sjö nemendur í biblíuskólanum MCI skólaárið 2007 - 2008. Fimm strákar og tvær stelpur. Ég fæ þann heiður að vera litla barnið í skólanum þetta árið. ['85 - '90]. Á mánudaginn fórum við síðan uppí Kot og vorum þar alla vikuna.

Þessi vika var bara í einu orði sagt yndisleg. Guð var að vinna í okkur og ég trúi því að þetta sé bara rétt byrjunin á því sem að hann ætlar að gera í vetur. Ég hlakka rosalega mikið til að sjá hvað hann ætlar að gera í mér og mínu lífi. Ég býst ekkert við einhverjum gjörbreytingum en ég veit samt alveg að ég mun breytast eitthvað. Breytast í þá átt að ég líkist Jesú meira, því að það er það sem við eigum að gera.

Og já, ég veit ekkert hvernig bloggástandi ég verð í þennan veturinn.
Við sjáum bara til ;]

//NíutíuogNíu

10. september 2007 klukkan 13:02
a

[ I can't believe you like money too. We should hang out ]

Skólasetningin er búin. Ég er gígantískt spennt og er núna að fara upp í Kotið.

Kem eftir viku.
Blogg fyrir neðan ^__^

//NíutíuogÁtta

08. september 2007 klukkan 17:11
Grettir

[ Sometimes I wish I did act like a boy ]

Heima er best. Langbest. Mér líður alltaf sjálkrafa alveg ótrúlega vel. Eitthvað öryggi sem felst í því að vera heima hjá sér. Núna er ég að sjá um litlu gríslingana systkinin þar sem að mamma&Hjalti eru í Reykjavík og eru að fara á tónleika í Fíladelfíu í kvöld. Þegar þau koma heim vona ég innilega að mamma hjálpi mér að pakka niður. Ég veit ekkert hvað ég er að fara að gera. Veit svona sirka hvað ég þarf og ætla að taka með mér en ég fæ mig ekki til að fara niður í herbergið mitt og pakka öllu dótinu mínu ofan í tösku. Ætla að njóta þess að vera heima í nokkra klukkutíma í viðbót áður en ég fer að pakka öllu niður.

Á morgun eftir hádegi flyt ég svo að heiman. Það telst bara víst með þó að ég komi aftur. Ég er að fara að flytja í Völvufellið þannig að ef þið eruð að leita að mér í vetur þá vitiði hvar mig er að finna. Skólasetningin er klukkan 10 á mánudaginn og eftir hádegi höldum við af stað uppí Kot. Verðum þar í viku og svo bara veit ég ekki meir. Fyndið að vita nokkurn veginn ekkert hvað maður er að fara að gera næstu níu mánuðina. Ég veit að ég er að fara í Biblíuskóla og that's it.

En núna er ég loksins búin í sumarvinnunni. Einni af þremur. Var ekkert smá glöð þegar ég labbaði út úr sjoppunni um hálf sex leytið í gær, vitandi það að ég þyrfti aldrei aftur að fara aftur þangað. Birna kom og sótti mig og síðan eftir kvöldmatinn rölti ég niður í Veg. Þetta var alveg yndisleg samkoma og ég fékk þessa fullvissu um að það sem ég er að fara að gera er það rétta. Svo var líka annað mál sem að ég held að hafi leysts alla, vega mín megin; ég þarf bara tíma. Eftir samkomuna fórum ég, Dabbi og Aron á Devito's þar sem að ég & Aron vorum svöng. Skutluðum síðan Aroni heim, sorrý ef að þú varst eitthvað fúll, og fórum til Þórs. Byrjuðum að horfa á Simpsons The Movie en svo þurftu allir að fara. Ég og Dabbi skutluðum Helgu heim og síðan hringdi Tanja í okkur og þurfti hjálp við að skipta um dekk. Við náðum að miðla einhverjum upplýsingum til hennar og þetta reddaðist á endanum. Síðan fór ég bara heim að sofa.

Keypti mér geðveika Converse skó áðan uppí Ozone. Keypti líka nýjan síma á miðvikudaginn, bleikan síma. Mamma&Hjalti gáfu mér fyrirfram afmælisgjöf sem að ég notaði til að kaupa símann. En núna er ég hætt að eyða peningi, þarf virkilega á honum að halda í vetur. Gangi mér vel.

//NíutíuogSjö

04. september 2007 klukkan 14:48
a

[ Sorry's not good enough ]

Ég er búin að finna verðandi eiginmann minn. Hann heitir Shia LaBeouf og ég þarf alltaf að athuga hvernig maður stafar eftirnafnið hans áður en ég skrifa það. Fyrir ykkur sem hafið ekki hugmynd um hver það er þá leikur hann aðalhlutverkið í bæði The Transformers og í Disturbia. Ég og Kata horfðum einmitt á Disturbia á laugardaginn && ég verð að játa að ég varð hálfsorgmædd í hvert skipti sem hann hvarf af skjánum. Ást við fyrstu sýn eða eitthvað svoleiðis kjaftæði held ég bara. Núna þarf ég bara að drífa mig til Bandaríkjanna, finna kallinn && tjá honum ást mína. Held reyndar að ég yrði send á geðsjúkrahús.

Helgin hjá mér && Kötu var best. Við tókum strætó upp á Akranes á föstudagskvöldið og vorum bara að taka því rólega þangað til að við fórum að sofa. Byrjuðum laugardaginn á því að horfa á fyrrnefnda fegurð í spennumyndinni Disturbia sem var bara nokkuð góð. Kata þurfti eitthvað að læra og síðan fórum við útí sjoppu að leigja myndir, keyptum líka tonn af nammi í Krónunni. Fórum aftur heim && fórum í myndaflipp [myndirnar koma bráðum inn] og ég get sagt ykkur það að við algjörlega misstum okkur. Fengum læri í kvöldmatinn && fórum síðan að horfa á myndirnar. Horfðum á The Grudge í gegnum hendurnar á okkur; ég hló reyndar í atriðinu sem að Kötu fannst lang ógeðslegast. Eftir Grudge horfðum við á verstu mynd í heimi; Popstar með Aaron Carter í aðalhlutverki. Myndin var hræðileg, geðveikt mikil klysja, báðar aðalpersónurnar fóru óendanlega í taugarnar á mér && ég hristi mig nokkrum sinnum vegna kjánahrolls. Á sunnudeginum fórum við á samkomu && svo keyrði ég okkur í Kringluna. Ég fékk nokkra boli && það var mjög gaman hjá mér, Kötu og Áslaugu inni í Hagkaupum; nánar tiltekið í snyrtivörudeildinni. Síðan skutlaði ég bara Kötu heim. Takk fyrir helgina ;*

Í dag && í gær er ég bara búin að vera að taka til í herberginu hjá mér. Ástæðan fyrir því að þetta tekur svona langan tíma er bæði sú að herbergið var hörmung ekkert skipulag eða neitt og líka vegna þess að maður fer alltaf að gera eitthvað allt annað þegar maður er að taka til. Dettur inn í eitthvað sem maður fann í öllu draslinu. Ég er búin að finna fullt af dóti. Fann til dæmis 11 þúsund krónur inn á bankareikningi í Glitni. Ég var löngu búin að gleyma því að það var stofnaður einhver reikningur fyrir Danmerkurferðina sem varð aldrei. Mér fannst það nokkuð töff. Síðan er ég líka búin að henda endalaust af einhverju drasli sem ég er búin að vera að geyma út af engum ástæðum. Herbergið mitt verður að vera í toppástandi í allan vetur þar sem að ég verð náttúrulega ekkert á staðnum til að sjá um það.

Tvöfaldur ökutími er svo planið í kvöld. Frá níu til ellefu. Veit ekki alveg hvernig það mun ganga að bakka í stæði í myrkri en það verður bara að ganga. Er að fara að keyra glænýjan Bens sem að ökuskólinn er að fara að fá á eftir. Ég tek einmitt prófið á þessum bíl sem að ég hef bara aldrei keyrt. Lærði á einhvern annan eldri sem að mér fannst bara ágætur, en hann var greinilega of gamall. Síðan á ég bara þrjá vinnudaga eftir && svo er helgin && svo byrja ég í skólanum á mánudaginn. Vá, hvað ég hlakka til.

Farin að leita að meiri pening í skúffunum mínum

//NíutíuogSex

01. september 2007 klukkan 16:52
ss

[Lag; Tears In Heaven - Eric Clapton]

Gleðilegan september. Í tilefni þess að ég sit hérna við borðstofuborðið heima hjá mér && er að láta mér leiðast á meðan að Kata og Áslaug eru að klára heimalærdóminn sinn þá ætla ég að blogga. Ótrúlegt en satt þá vildi ég frekar vera að leysa einhver stærðfræðidæmi heldur en að vera alltaf að láta mér leiðast. Tölvan verður býsna þreytandi til lengdar. Hélt ég myndi aldrei segja þetta en ég er eiginlega komin með ógeð af því að vera alltaf í tölvunni. Hangandi á MSN þó að það tali enginn við mann og eina manneskjan sem mig langar virkilega að tala við er einmitt eina manneskjan sem ég ætla ekki að tala við. Súper.

Síminn minn er officially orðinn drasl núna. Í maí datt eitthvað dót af honum og síðan þá hefur hann bara verið á hraðri leið til glötunar. Loftnetið losnaði á Kotmóti en ég náði einhvern veginn að troða því aftur ofan í dæmið sem hélt því uppi. En í gær datt það dæmi af. Frábært, just frábært. Síminn minn er hálfbæklaður núna þar sem að ég hjúkraði honum með límbandi. Ef að síminn minn gengi í símaskóla þá væri hann svo feitt lagður í einelti þar sem að hann lítur út eins && hálfviti. Vill einhver gefa mér nýjan síma? Nýjan síma með engu loftneti, takk. :]

Skólinn hjá mér byrjar eftir níu daga. Hversu gott verður það? Ég er að verða nokkuð þreytt á öllu. Náði samt að minnka vinnuvikuna hjá mér um tæplega helming && fæ frí á mánu- && þriðjudaginn. Fer að vinna seinni partinn á miðvikudaginn && er að vinna til sex á föstudaginn. Og þá er ég bara búin. Gleði gleði gleði. Ég er búin að ákveða það að þegar ég verð búin í skólanum þá verður bara lífið komið í lag. Allt rugl búið && allir voða happí. Ef ekki þá er mér að mæta! Þannig að þið hafið 9 mánuði til að finna hamingjuna ;]

Effemm níufimmsjö er þreyttasta útvarpsstöð í heiminum í augnablikinu. Ég er alla vega orðin mjög þreytt á að hlusta á sama ástarkjaftæðið daginn út && inn. Get over it. Vildi bara koma því á framfæri. Ef að þú ert harður aðdáandi útvarpstöðvarinnar þá bið ég þig innilega afsökunar. Pæling samt hversu harður maður getur verið ef maður hlustar á FM? Hmm. Ég ætla bara að skrifa geisladisk til að vera með í vinnunni þessa þrjá daga sem eru eftir. Minnið mig endilega á það að kaupa disk.

Annars ætlum ég && Kata að fara að labba út í sjoppu að leigja mynd && eitthvað skemmtilegt. Síðan má móðir mín skila myndavélinni minni úr gíslingu && þá verður virkilega gaman. Lífið er alla vega betra heldur en fyrir nokkrum dögum. && mér líður miklu betur þó að ég sé ennþá rugluð í hausnum.

//NíutíuogFimm

30. ágúst 2007 klukkan 00:33
a

Ég hef ekkert mikið að segja. Ekkert nema það að ég er í einhverri svakalegri tilvistarkreppu. Það er gjörsamlega allt ömurlegt þessa dagana. Ég þoli ekki vinnuna mína [er samt fegin að vera með vinnu; ekki misskilja mig]; er stundum komin með æluna uppí háls af henni. Sjö dagar í viðbót && svo er ég farin. Var að komast að því hvað ég er með 'mikið' í laun, ekki gott. Mig langar heim til mín. Mig langar heim til mín svo að ég geti gleymt því hvað líf mitt er ömurlegt. Vá, eruði að grínast. Ég er með tilfinningasveiflur á við þrettán ára gelgju. Líður kannski mjög vel í nokkrar mínútur && svo alltíeinu er ég bara farin að gráta. Út af engu. Svo líður mér aðeins betur && síðan hellist þessi svaka tómleiki yfir mig. Ah, ég vil fá mömmu mína! =[

Fór reyndar heim til mömmu gömlu á mánudaginn. Afi sótti mig í vinnuna && bauðst bara til að fara með mér uppá Akranes && gista til þess að ég gæti fengið meiri tíma með fjölskyldunni minni. Grét nánast af gleði yfir því hvað ég á góðan afa. Ótrúlega gott að geta verið smá með mömmu&Hjalta þó að ég sakni þeirra meira en allt akkúrat núna. Hvað á ég að gera án þeirra í vetur? Hlakka samt órtúlega til að komast í skólann. Fá einhverja reglu á lífið mitt && fá eitthvað að gera svo að ég deyi ekki við það að velta mér upp úr því hvað allt er ömurlegt.

Af hverju er samt svona erfitt að sætta sig við suma hluti? Af hverju get ég ekki bara sætt mig við það að sumir hlutir breytast ekki? Er þrisvar sinnum ekki nógu oft til þess að þetta síist inn í litla heilann á mér? Hvað er að mér? Af hverju fara þessar tilfinningar bara ekki? Ég hefði haldið að það yrði auðveldara að komast yfir þetta eftir því sem þetta gerðist oftar en það er það ekki. Fyrsta skiptið var erfitt. Annað ekki eins && ég var komin svo feitt yfir þetta þegar það gerðist í þriðja skiptið. Er ég svona ótrúlega vitlaus eða hvað? Og það er ekkert að hjálpa þegar allir segja mér að ég eigi miklu betra skilið && að hann sé bara fífl. Breytir voða litlu hvað mig varðar; ég ætti að vera búin að fatta það by now.

&& fyi er ég ekkert auðsærð, þú auðsærir bara

[Vá biturt blogg]

//NíutíuogFjögur

27. ágúst 2007 klukkan 13:22
a

[Lag; Take it all - Hillsong]

Kominn tími á eitt lítið sætt blogg er það ekki? Ég hef samt ekkert voðalega mikið að segja frá en það er alveg óþarfi að hafa blogg um tómleika efst þegar mér líður miklu betur núna. Ótrúlegar svona tilfinningasveiflur, manni líður ömurlega einn daginn && svo bara frábærlega næsta dag. Síðan líður manni ágætlega && svo frekar illa í kannski korter og svo er bara allt miklu betra. Maður lærir bara að sætta sig við hlutina sem gerast. Everything happens for a reason. Það er bara soldið erfitt að finna ástæðuna fyrir 'slæmu' hlutunum.

Ég er eiginlega bara búin að vera að vinna. Er búin að vera að vinna í þrjár vikur nánast án þess að stoppa. Er núna búin að fá tvo frídaga þessar þrjár vikur sem eru liðnar frá Kotmóti. Núna eru bara tvær vikur í að Biblíuskólinn byrji && ég get sagt ykkur það að ég verð yndislega fegin að geta hætt að vinna. Ég er algjörlega andlega búin á því eftir þetta sumar. Hlakka til að fara í Biblíuskólann && læra meira um Guð && draga mig nær honum. Því að það er það sem ég þarf; vera í fanginu á Guði && hvílast. Veit samt ekki hversu mikil hvíld þetta verður en mér er sama. Svo lengi sem ég þarf ekki að steikja hamborgara && afgreiða sígarettur&vindla daginn út && inn þá verð ég hamingjusöm. =]

Á föstudaginn var ég á kvöldvakt. Var að vinna frá klukkan 3 til 9. Komst þar af leiðandi ekki á samkomuna í Logos II, en ég fór samt niður á höfn && ætlaði að hitta fólk. Þegar ég kom þangað var grenjandi rigning && ég beið með Hafliða fyrir utan skipið í 10 mínútur eða eitthvað þangað til að Dabbi&&Aron birtust loksins. Dabbi lagði bílnum sínum í næstu sýslu [eða svona næstum því] þannig að við urðum að gjöra svo vel að labba í rigningunni. Hljóðið í skónum mínum fór eitthvað í taugarnar á Aroni þannig að hann tók upp á því snjallræði að halda á mér. Elsa && Salóme fengu far með okkur í Mjóddina && síðan fórum við á læknavaktina í Smáranum út af tánni á Dabba. Ég && Aron biðum frammi á meðan táin var tekin af Dabba. Eða bara nöglin reyndar. Síðan fórum við á Subway þar sem að Aron var svangur eins && alltaf && þaðan fórum við heim til Dabba að horfa á Black Sheep. Það er mynd um mannætukindur. Myndin var nokkuð steikt && eiginlega ekkert skerí. Það var mest skerí þegar Aron tók sig til && beit í eyrað á mér eins && hann væri mannætukind. Ekki gaman.

Ég skellti mér síðan til pabba á laugardaginn eftir vinnu. Tók rútuna klukkan fimm && þurfti að brjótast inn til ömmu && afa [með lykli]. Skellti mér á hestbak hjá pabba && fleira skemmtilegt. En núna er afi minn kominn að sækja mig;; ég ætla eitthvað að hanga með honum þangað til að ég fer í vinnuna. Svo ætla ég heim í kvöld && koma aftur á morgun til að vinna. Ég verð bara að komast heim til mín; er með alltof mikla heimþrá.

Endilega fyllið þetta út fyrir mig ;*
1. Miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd: 

5. Uppáhalds lag: 

6. Dirty or Clean:

7. Tattoo eða göt: 

8. Þekkjumst við persónulega?:

9. Hver er tilgangurinn með lífinu?: 

10. Myndirðu þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?:

11. Besta minningin þín um okkur?:

12. Myndir þú gefa mér nýra?:

13. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

14. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?:

15. Getum við hist og bakað köku?:

16. Hefurðu heyrt kjaftasögu um mig nýlega?:

17. Finnst þér ég góð manneskja?:

18. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?:

19. Finnst þér ég aðlaðandi?:

20. Hverju myndirðu vilja breyta í mínu fari?:

21. Í hverju sefurðu?:

22. Kæmirðu í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?:

23. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?: 

24. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?:

//NíutíuogÞrjú

23. ágúst 2007 klukkan 23:59
a

[Lag; Hey There Delilah - Plain White T's]

Ohh, ég þoli ekki þessa tilfinningu sem er búin að taka sér bólfestu innra með mér. Geðveikt óþægileg tilfinning sem að birtist bara um daginn && vill ekki fara. Hún dofnar aðeins þegar ég er að gera svo mikið að ég næ ekki einu sinni að hugsa en kemur svo aftur. Tómleiki, endalaus tómleiki. Versta tilfinning sem hægt er að hafa, af því að þetta er engin tilfinning þannig séð. Það er bara eins && það sé risastórt ekkineitt í miðjunni á sálinni á mér og það er ekki hægt að útskýra það. Samt held ég að þetta hafi eitthvað með það að gera að það séu allir byrjaðir í skólanum nema ég. Voðalega skrítið eitthvað. En líka einhver löngun í eitthvað sem að er ekki að fara að gerast. Alla vega ekki strax. && það er hvort sem er ekkert gott fyrir mig. Tillfininngar sökka, punktur && pasta með tómatssósu.

En já ég tók bóklega bílprófið í nefið á þriðjudaginn. Átti eitt stykki frídag && vaknaði ofursnemma til að mæta í prófið klukkan níu. Ég var óendanlega stressuð en síðan var þetta í rauninni ekkert mál. Ég kom fyrst, var eina stelpan && kláraði prófið á tuttugu mínútum. Lét kallinn hafa prófið, hann fór yfir það && kallaði síðan á mig og þá fékk ég að vita að ég fékk einungis eina villu. Eina villu í B-hluta. Ég gleymdi því að þegar maður fær bílpróf þá má maður líka keyra vélsleða. Jæja, þá vitum við alla vega hver er ekki að fara að keyra vélsleða! En svo naut ég þess bara að vera í fríi, fyrsti frídagurinn minn síðan um Verslunarmannahelgina [eða Verslunarhelgina eins && hún Kata orðaði svo frábærlega í gær]. Ég vann sem sé fjórtán daga í röð && fékk einn dag frí síðan. Work-aholic much?

Kata er komin heim frá Danmörk! Vá, ég var ekkert smá glöð þegar ég sá hana labba í gegnum hurðina á Leifsstöð. Ég fékk nefnilega að fara með mömmu hennar Kötu að sækja hana && gisti síðan hjá henni. Ég var ótrúlega dugleg && tók ekki nema minn part af rúminu hennar, ólíkt síðasta skipti þegar ég tók það bara allt. Ég && Kata erum samt algjörir snillingar þegar við vöknum. Við vöknum alltaf á nákvæmlega sama tíma, eða svona nokkurn veginn. Svo lítum við á hvor aðra && segjum báðar í einu;; 'Vá, hvað mig dreymdi skrítinn draum í nótt!'. Við höfum greinilega bara svona skrítin áhrif á hvor aðra. En svo kom Andri && sótti okkur && við fórum upp í FB. Ætluðum að hitta fólk en rákumst bara á Aron, Steffý && Röggu. Kata && Ég löbbuðum síðan um allan skólann í leit að Andra og vorum handvissar um að við myndum enda á Akureyri. Við vorum alla vega nálægt því að villast. Andri var reyndar bara útí bíl þannig að við drógum Röggu [sem var í gati] með okkur niðrí skeifuna && á Subway. Þaðan labbaði ég með Kötu útí MS þar sem að hún var að fara á nýnemakynningu og svo rölti ég í vinnuna.

Ótrúlegt fólk sem kemur inn í þessa sjoppu. Í gær kom til dæmis frekar skuggalegur gaur sem að byrjaði bara eitthvað að spjalla við mig eftir að ég var búin að afgreiða hann. Hann fór eitthvað að spyrja mig hvort að ég væri ekki í skóla og ég sagði honum eins og er að ég væri að fara í Biblíuskóla. Haldiði ekki að maðurinn hafi bara byrjað að þylja upp einhverja spámenn && rugl sem að ég skildi varla þar sem að hann muldraði svo. Ég varð mjög glöð þegar hann tók maltið sitt && yfirgaf sjoppuna. Síðan í dag kom einhver 10/11 ára strákur inn í búðina && ætlaði að kaupa lítra af mjólk. Hann varð ekkert smá reiður þegar ég sagði honum hvað hún kostaði && ætlaði að taka undanrennu, sem kostar nákvæmlega það sama. Þegar ég sagði honum það þá kastaði hann undanrennunni inn í kælinn && strunsaði út. Tíu mínútum seinna kom hann aftur && greip lítrann af mjólkinni. Ég sagði honum verðið && þá grýtti hann peningunum niður í borðið. Síðan byrjaði hann bara að blóta && lamdi ítrekað í búðarborðið && þrætti við mig um að mjólkin kostaði ekki svona mikið. Hann kom reyndar tvisvar í viðbót && keypti sér nammi. Ég verð að viðurkenna það að þessi litli strákur hræddi mig mun meira en skuggalegi gaurinn. Krakkar hræða mig.

//NíutíuogTvö

19. ágúst 2007 klukkan 23:10
a

[Lag; Over You - Daughtry]

Það eru endalaust margir búnir að eiga afmæli núna á stuttum tíma. Á mánudaginn átti hún Iðunn mín afmæli 17 && á fimmtudaginn áttu bæði Hafsteinn && Dagbjört ljóshærða sautján ára afmæli && svo átti hún Harpa líka afmæli 18. Í dag á síðan hún Birna frænka mín sautján ára afmæli && náði hún í bílprófið á miðnætti í gær eftir að við vorum búnar að menninganóttast. Jújú, utanbæjarpakkið hún Helga fékk að upplifa sína fyrstu menningarnótt.

Ég byrjaði daginn á því að mæta í vinnuna. Nánar tiltekið í Kringluna þar sem að ég vann frá tíu til þrjú. Fékk reyndar að fara aðeins fyrr til að geta náð strætó í hina vinnuna. Hitti Hafstein á leiðinni út úr Kringlunni þar sem að hann stóð && tilkynnti öllum sem vildu heyra það að það væru fríar pylsur && frítt kók úti. Ég var mætt í Grillkofann rúmlega þrjú && var þar að dunda mér við nákvæmlega ekki neitt til klukkan níu. Það var einstaklega lítið að gera fyrir utan allan þennan aragrúa af fólki sem kom && keypti lottó. Einn maðurinn keypti lottó fyrir 25.000 krónur. Góðan daginn! Eftir að hafa beðið endalaust lengi eftir strætó && eftir að strætóbílstjórinn keyrði næstum því framhjá mér eftir þessa óralöngu bið var ég loksins á leiðinni niðrá Hlemm.

María && Birna tóku við mér niðrá Hlemmi && við röltum eitthvað um. Ég veifaði einhverjum strákum sem að ég þekkti ekki neitt en þeir tóku því ekkert alltof vel þegar ég var ekki Dagný. Alltaf gaman að því að láta eins og fífl. Við rákumst á Andra, Elsu && Dagbjörtu niðrí bæ [eða ég hringdi í þau] && við röltum saman niður að bryggju þar sem að flugeldasýningin var. Ég hitti líka Hjört && Guðjón && Ólöfu && var með þeim á meðan flugeldasýningin stóð yfir. En eins og ég var búin að minnast á þá á Birna afmæli í dag þannig að á miðnætti í gær/dag fórum við og náðum í bráðabirgðaskírteinið hennar. Borðuðum síðan köku heima hjá Birnu && skelltum okkur svo á þriggja tíma rúnt með meiru. Ég kannaðist við endalaust af fólki þegar við fórum niður Laugaveginn. Ég heilsaði reyndar bara Höddunum.

Í morgun fór ég í vinnuna klukkan ellefu && vann til fimm. Ég get ekki sagt með hreina samvisku að ég hafi verið hressasti starfsmaður aldarinnar þar sem að ég svaf í ca fimm klukkutíma. En sem betur fer var ekkert að gera. Um fimmleytið komu María && Birna að sækja mig && við fórum heim til mín && borðuðum Subway. Birna varð náttúrulega að keyra sem mest fyrst að hún er komin með bílpróf á annað borð. Þær fóru síðan um hálf átta && síðan þá er ég bara búin að vera ein í makindum mínum heima hjá mér á msn að tala við Kötu! Oh, hún er svo alveg að fara að koma heim að ég get ekki beðið!!

Annars er lífið bara búið að vera fínt. Skellti mér ásamt Þór, Hafsteini, Tönju Rós && Sahara Rós niðrá höfn að skoða í skipinu Logos. [sem var btw ekki hjá Bústaðakirkju]. Enduðum síðan heima hjá Hafsteini að horfa á steikta mynd í tilefni afmælisins. Á föstudaginn hélt ég áfram að vera dugleg && labbaði úr Kringlunni && niður í Fíladelfíu. Fínasta samkoma þar sem að ég var voða dugleg && talaði í míkrafón í annað skiptið á ævinni. Eftir samkomuna var opið hús hjá Hafsteini í tilefni afmælisins hans. Fórum þar í frisbee/fótbolta en ég fór frekar snemma á minn mælikvarða.

Núna var fjölskyldan að koma heim í allri sinni dýrð. Hún virðist vera hálf svefndrukkin && ég er að pæla í að sameinast henni í værum svefni. Ég er nefnilega að fara að taka strætó í vinnuna á morgun. Gleði.

//NíutíuogEitt

16. ágúst 2007 klukkan 18:34
a

[Lag; First Time - Lifehouse]

Það er svo ekkert að gerast hjá mér þessa dagana. Er búin að vera að vinna í Grillkofanum síðustu fjóra daga && ótrúlegt en satt þá er ég farin að verða nokkuð góð í öllu þessu grillveseni. Ég! Manneskjan sem að liggur við að þurfi leiðibeiningar til að rista eitt stykki brauðsneið. Það gæti reyndar líka verið að ég sé ömurleg en það þori enginn að kvarta. Vinnan er mjög þægileg upp á það að stundum er bara nákvæmlega ekki neitt að gera en svo er kannski bara ágætlega mikið að gera í soldinn tíma && svo aftur ekki neitt. Í hádeginu er reyndar alltaf ágætt að gera en við erum alltaf tvö þá. Ég er sem sé að vinna með/á móti nítján ára strák && það er frekar fyndið þegar við erum bæði && það er ekkert að gera. Þá stöndum við hvor í sínum enda sjoppunnar && þegjum. Haha, veeeei.

a

Mér leiðist í vinnunni

En já Kata kemur heim á þriðjudaginn! Hlakka alveg óendanlega mikið til að fá hana heim. Hún byrjar samt örugglega bara strax að busast í Menntaskólanum sínum. Vá, það eru allir að fara í byrja í skólanum í næstu viku; nema ég. Ótrúlega gaman hjá mér að lónerast í sjoppunni á meðan allir eru í skólanum. Meh. Kata vildi reyndar fá blogg um sig en ég held að ég sleppi því bara && geri svona iTunes leikdæmi til að stytta ykkur [sem sé Kötu] stundir. Hef ekkert meira að segja í augnablikinu. Nema kannski það að ég labbaði heim úr vinnunni í dag. Alla leið frá Langholtsveginum && upp í Engihjalla. Duglega ég!


iTunes leikur


1. Well she's not bleeding on the bathroom floor just for the attention --- House of composure! Where is your posture?

2. Farðu frá; Ég sé þig nú í nýju ljósi. Á annan stað ég vild'ég væri allt annar maður --- Lóðin hlaðast á mig. Og bráðum verð ég alveg eins og þú.

3. Many's the time I ran with you down the rainy roads of our old town --- You'll follow me back with the sun in your eyes and on your own.

4. I'm sleeping my way out of this one with anyone who will lie down --- Sitting out dances on the wall trying to forget everything that isn't you.

5. More than I could hope or dream of You have poured Your favour on me --- So blessed, I can't contain it... So much, I've got to give it away

6. She's cold and she's cruel but she knows what she's doing --- Cause she's bittersweet; She knocks me off my feet

7. I hope the ring you gave to her turns her finger green. I hope when you're in bed with her you think of me. --- Does it hurt to know I'll never be there ?

8. I heard there was chord that David played and it pleased the lord --- Hallelujah hallelujah hallelujah hallelu----jah

9.
Twenty-Four oceans. Twenty-Four skies. Twenty-Four failures. And Twenty-four tries --- Oh, oh. I am the second man

10. A thousand times I've failed. Still your mercy remains --- My heart and my soul. I give you control.

 

Þið eigið sem sé að giska hvaða lög þetta eru && fyrir ykkur sem skiljið ekki þá er þetta;; Byrjun á lagi --- Byrjun á viðlagi. Sumt af þessu er ógeðslega auðvelt *hóst*átta*hóst* en annað er aðeins erfiðara ;] Skemmtið ykkur.

 

Prófíll