Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðogTíu

22. október 2007 klukkan 17:44
a

Ég er alvarlega að hugsa um það að skila ökuskírteininu mínu inn og fá bara endurborgað. Ég var að fá reikninginn fyrir seinni hlutanum af ökunáminu. Við erum að tala um að mitt bílpróf var dýrt bílpróf. Allur kostnaðurinn samanlagður, ökutímar & prófin tvö, var tæpur hundraðogfimmtíuþúsund íslenskar krónur. Takkfyrirtakk. Ég man eftir því þegar ég var lítil og ekki einu sinni með aldur til að hugsa um bíla þá sögðu allir að bílprófið kostaði svona hundraðþúsund && mér var líka sagt það þegar ég byrjaði að læra á bíl. Annað hvort er ég svona svakalega lélegur nemandi að ég verð að borga súpermikið til að læra að keyra eða þá að það er eitthvað svona verðbólgukjaftæði. Eða eitthvað svona sem tengist peningum sem að veldur því að allt verður voða dýrt! Já nákvæmlega svoleiðis.

En að öðrum og skemmtilegri hlutum þá fór ég á magnaða unglingasamkomu í Fíló á föstudaginn. Ég get sagt ykkur það að það er ekki mjög algengt að það þurfi að fá fólk til að hætta að biðja && það er nánast ekkert talað; bara lofgjörð & bæn. Vorum með svona eldgöng og þetta var bara mögnuð samkoma. Á laugardagsmorgninum vaknaði ég við ömurlegt veður && ákvað að fara ekkert á fætur. Fór að lokum á fætur & fór í afmæli til Evu Margrétar. Var þar allan daginn og svo þegar ég kom heim var mér boðið út að borða. Fór með Sunnu á American Style niðrí bæ && við hittum þar Lilju, Gísla, Kristó & Birgi Stein krullhærða. Fengum okkur að borða og svo fékk Gísli þá snilldarhugmynd að fara að spila einhversstaðar kristilega tónlist í tilefni mannfjöldans sem var niðríbæ á Airwaves. Ákváðum að hafa svona minitónleika í húsnæðinu þar sem mamma hennar Sunnu er að fara að opna kaffihús.

Eydís og ég röltum upp Laugaveginn á móti Þór, Kötu og fleirum, við hittum síðan Aron þar sem að hann var að koma úr vinnunni. Við þrjú tróðum okkur svo inní bíl til Þórs, Kötu && Köru og þar sem að ég er minnst þá fékk ég hásætið (eða sko ofan á Aroni). Niðríbæ var svo fullt af kristnu fólki samankomið og það var nokkuð góð stemning. Aron tók þá ákvörðun að labba heim til sín og þar sem að ég á víst að hafa einhvern hemil á honum þá hékk ég á honum. Það endaði skrautlega þar sem að hann ákvað bara að labba heim til sín með mig á bakinu og ég átti bara að gista heima hjá honum. Síðan vildi hann líka fara að skoða endurnar þannig að ég drattaðist á eftir honum út að tjörninni. Verí spes. En tónleikarnir voru góðir og það voru alveg nokkrir sem að voru að forvitnast um þetta. Þurftum svo reyndar að pakka öllu saman þar sem að það kom í ljós að við máttum ekki vera þarna. En þetta var mjög skemmtilegt kvöld.

Vetrarfrí næstu helgi hjá mér. Það verður gott að geta verið heima í nokkra daga. Síðan er það bara Svíþjóðin sjötta nóvember && Soaking mótið eftir það. En já, núna er bloggið nánast búið þar sem að hausinn á mér er nokkuð tómur. Vil bara að enda á því að tjá mig aðeins um íslenska veðrið í dag && segja ykkur að það er ömurlegt!
BLEUGH!!

//EitthundraðogNíu

19. október 2007 klukkan 13:22



W A T C H

Ég get sagt ykkur það að allir íbúarnir í Völvufelli eru með þetta lag á heilanum && eru búnir að vera að raula það síðan í gær! Vorum á eftirsamkomu af Soaking mótinu sem var um helgina. Ég get raunverulega ekki lýst þessu; allir að lofa Guð && lofgjörðin var ekkert annað en ástarsöngur til Guðs. Í lok samkomunnar var þetta lag tekið && ég verð bara að segja það að ég er ástfangin. Ekki af laginu heldur ég er gjörsamlega Á S T F A N G I N af Guði. Ég er ekki að meina þetta venjulega; ég elska hann og ég veit hann elskar mig heldur er ég bara ástfangin. Upplifði það óendanlega mikið í gær.

Guð er að gera magnaða hluti á Íslandi í dag. Ég hélt fyrir nokkrum vikum að ég þyrfti að bíða eftir því að fara til Afríku til að sjá Guð gera þannig hluti en hann er bara að gera það á okkar litla Íslandi í dag. Í gær fór Biblíuskólinn með Nýrri Kynslóð í FG. Lilja, Gísli, Kristó && Birgir Steinn spiluðu nokkur lög; Óskar && Baldur vitnuðu og síðan spurði Baldur hvort að það vildi ekki einhver fá fyrirbæn & gefa Guði tækifæri. Við áttum von á einhverju fólki en ekki öllum þrjátíu sem komu fram. Við vorum nánast í vandræðum með mannskap til að biðja fyrir öllu þessu fólki. En það fóru sem sé um þrjátíu unglingar í FG með frelsisbænina && fengu svo fyrirbæn. Og ég sem hélt að ég þyrfti að fara til Afríku.

Guð er bestur.

//EitthundraðogÁtta

16. október 2007 klukkan 22:47
a


Samkvæmt Kötu hef ég sérstaka hæfileika til að svara ekki í símann. Ég held ég hafi líka mjög leynda hæfileika við aksturinn. Þetta er alla vega mjög leynt; hæfileikaparturinn liggur á milli hluta. Ég hef alla vega einhverja hæfileika við þetta en þeir felast aðallega í því að drepa á bílunum. Ég ætla að treysta því sem að móðir mín tönnslast á að þetta komi allt með æfingunni. Mikilli æfingu í mínu tilfelli. Ef að þið viljið fara á rúntinn þá verðið þið að lofa því fyrst að hlæja ekki að mér & mínum aksturshæfleikum, kannski redda bíl líka.

Um helgina er ég búin að vera einstaklega dugleg við að svara ekki í símann. Ég held að ég hafi aldrei haft jafn mörg ósvöruð símtöl á símanum mínum frá sömu manneskjunni. Kata hringdi í mig úr öllum mögulegum og ómögulegum símanúmerum. En ég var sem sé á Soaking námskeiði í FG. Það var alveg æðislegt. Bara að fara fram fyrir Guð, leggjast niður og hlusta bara eftir því sem að hann hefur að segja. Jafnvel bara að leggjast niður og vera með Guði. Af því að hann þráir að eiga samfélag við okkur && stundum vill hann líka bara fá að vera með okkur. Alveg eins og við viljum stundum bara vera með vinum okkur, þá vill Guð bara stundum fá að vera með okkur.

Ég er alla vega búin að vera upplifa alveg rosalega mikið með Guði. Fann rosalega mikið fyrir nærveru hans og fékk að sjá ótrúlegustu hluti. Á laugardeginum þurfti að draga fólk út, það gat ekki einu sinni gengið af því að það var svo fyllt af heilögum anda. Sunnudagurinn var rosalegur; á fyrri kennslunni enduðum ég, Óskar && Sara einhversstaðar fyrir aftan hátalara að biðja fyrir hvort öðru. Það var rosalegt. Á kvöldsamkomunni var síðan beðið fyrir okkur Biblíuskólanemunum && við hrundum hvert á fætur öðru niður. Þar lá ég heillengi og hló && hló && hló && hló. Síðan var farið í eldgöng && þetta var bara magnað. Guð er samt ekkert hættur og ég veit að þetta eru nýir tímar á Íslandi, nýir tímar með Guði.

En að öðrum hlutum; þá bara veit ég ekki hvað ég á að segja. Er að pæla í að fara að sofa vegna þess að á morgun er ég að fara að eyða meiri tíma með Guði. Við sjáumst bara og ykkur er alltaf velkomið að hringja í mig, senda mér sms eða bara hafa samband við mig á einhvern hátt.


//Eitthundraðogsjö

11. október 2007 klukkan 14:59
a

[ I want more than this world's got to offer ]

Mér langar bara að byrja þetta blogg á því að benda ákveðnum manneskjum á það að breytingin á mér, sem að þeirra mati er mjög dramatísk, er alls ekki mikil. Og fyrst að við erum farin að tjá okkur svona mikið á bloggum þá vil ég líka bara benda á það að síminn virkar í báðar áttir þannig að ef þig langar til að heyra í mér þá um að gera að hringja í mig. Ég bara hef ekkert mikinn tíma til að vera að hringja í alla sem ég þekki til að spjalla, sorrý bara. Og Mæspeis er ekki lífið þannig að hættið þessu bara && hringið í mig ef að þið viljið tala við mig!

En já ég er búin að vera á Stykkishólmi tvær helgar í röð og það var bara nokkuð næs sko. Í síðustu viku var Helge Flatoy hjá okkur og var að kenna okkur um trúboð. Mér tókst að næla mér í einhverja skemmtilega flensu sem ég var með frá fimmtudeginum & fram á þriðjudag. Það var ekkert sérstaklega skemmtilegt samt. Næstu helgi er ég að fara á mót í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Soaking mót sem er eitthvað Vineyard/Toronto dæmi. Verð liggjandi alla helgina með kodda og Bangsímon teppi og dvel í nærveru Drottins. Kósí time.

Úff, segja eitthvað meira? Nei veistu ég held ekki, ég er bara að ganga í gegnum hluti sem að eru óþægilegir. Ég er voðalega sátt við það í smá tíma og svo fer það bögga mig aftur og þannig gengur það í hringi. Hélt að ég væri nokkurn veginn búin að losa mig við þetta í síðustu viku en svo poppaði það aftur upp. Og núna var ég einhvern veginn alveg hætt að pæla í þessu, alla vega að hætta því && þá poppaði þetta aftur upp. Byrjar voða sakleysislega eins og alltaf en ég á að vita betur. Oh, það er svo sérstakt að vera ég þessa dagana.

//EitthundraðogSex

05. október 2007 klukkan 12:37
H U G

Ég hef eitthvað voða takmarkað að segja. Segi það samt. Mér líður ekkert alltof vel í augnablikinu, það er nokkurn veginn tvíþáttað; Hálfveik eitthvað & svo tilfinningarússíbani sem meikar ekkert sense.

  • Var á Stykkishólmi um síðustu helgi
  • Er að fara aftur á Stykkishólm um þessa helgi
  • Orðin sautján ára, komin með bílpróf og ökuskírteinið líka
  • Svíþjóð 6.nóvember
  • Mót upp í Koti 16. nóvember
  • Afríka einhvern tímann í vor
  • Svo tók ég líka skírn um daginn; ekki gleyma því

Ég er complete&ultimate kjáni!

En ég á stóran og máttugan Guð
Svo að þetta verður alltílagi
Ái samt.

//EitthundraðogFimm

01. október 2007 klukkan 16:34
Bara af því að ég nenni varla að blogga og þessar spurningar virðast vera málið í dag þá ætla ég að biðja ykkur um að svara þessu. Ókei?

WHAT WOULD YOU DO IF

1. I died:
2. I kissed you:
3. I lived next door to you:
4. You found out I was married:
5. I stole something:
6. I was hospitalized:
7. I refused to leave my home:
8. I got into a fight while you were there:

WHAT DO YOU THINK ABOUT MY

9. Personality:
10. Eyes:
11. Hair:
12. Family:

WOULD YOU

13. Help me hide a body?
14. Keep a secret if I told you one?
15. Hold my hand?
16. Take a bullet for me?
18. Try to solve my problems?
19. Love me?
20. Date me?

HAVE YOU EVER

21. Lied to make me feel better?
22. Wanted to kiss me?
23. Wanted to kill me?
24. Broke my heart?
25. Kept something important from me?
26. Thought I was unbearably annoying?

AND MORE

27. Who are you?
28. Are we friends?
29. When and how did we meet?
30. Describe me in three words:
31. What was your first impression?
32. Do you still think that way about me now?
33. What reminds you of me?
34. If you could give me anything, what would it be?
35. How well do you know me?
36. When's the last time you saw me?
37. Ever wanted to tell me something but couldn't?
38. Are you gonna repost this to see what I say about you?

//EitthundraðogFjögur

27. september 2007 klukkan 17:57
All I Want in This Lifetime is You
&
All I Want in the Whole World is You
--||---
Ég var úti að labba rétt áðan og þá uppgötvaði ég eitt lag á iPodnum mínum. Það snerti rosalega mikið við mér og þess vegna langaði mig að deila textanum með ykkur;

Is there anyone that fails
Is there anyone that falls
Am I the only one in church today feelin' so small

Cause when I take a look around
Everybody seems so strong
I know they'll soon discover
That I don't belong

So I tuck it all away
Like everything's okay
If I make them all believe it, maybe I'll believe it too
So with a painted grin, I play the part again
So everyone will see me the way that I see them

Are we happy plastic people
Under shiny plastic steeples
With walls around our weakness
And smiles to hide our pain
But if the invitation's open
To every heart that has been broken
Maybe then we close the curtain
On our stained glass masquerade

Is there anyone who's been there
Are there any hands to raise
Am I the only one who's traded
In the altar for a stage

The performance is convincing
And we know every line by heart
Only when no one is watching
Can we really fall apart

But would it set me free
If I dared to let you see
The truth behind the person
That you imagine me to be

Would your arms be open
Or would you walk away
Would the love of Jesus
Be enough to make you stay

Stained Glass Masquerade - Casting Crowns

//EitthundraðogÞrjú

25. september 2007 klukkan 17:13
a

iPod snúrur hverfa í Völvufelli 11. Það er staðreynd. Ef þú átt slíka snúru og hefur í hyggju að flytja hingað inn einn daginn þá myndi ég hugsa alvarlega um það að hafa hana í bandi. Eða bara í rassvasanum. Ég er búin að týna minni og Lilja týndi sinni um daginn. Sú snúra gæti hins vegar verið komin í leitirnar en mín virðist vera horfin af yfirborði jarðarinnar. Oh jæja, það eiga fleiri iPod á þessu heimili; ég fæ bara lánað þangað til að mín ákveður að snúa aftur til síns heima.

Ég og Kötulíus vorum ofurtöffaðar á laugardagskvöldið og mættum langfyrstar í innflutningspartý til Árna og Tómasar. Samræðurnar voru einstaklega þvingaðar fyrst en eftir þriggja tíma dvöl í agnarsmárri íbúð sem var troðfull af manneskjum fór ég bara heim með Lilju. Á sunnudaginn tókum ég og Lilja síðan nett tjill á daginn. Ég fylgdi henni á einhvern fund og þaðan fórum við síðan í Hagkaup. Skemmtum okkur stórvel þar við að skoða allt og ekkert; keyptum okkur að lokum Domino's pizzu og fórum heim með hana og ís og lágum í leti. Klukkan hálf fimm var síðan samkoma þar sem að ég og Gísli tókum skírn. Fyrst leit allt út fyrir það að skírnin yrði alveg síðast af því að það gleymdist að kveikja á vatninu. En rétt fyrir prédikunina skírði Hjalti mig og Gísla í surprisingly miklu og heitu vatni. Eftir samkomuna fór ég með stórfjölskyldunni [mínus pabbi & Þorfinnur] út að borða á Aski.

Í gær var ég bara heima. Gerði nánast ekki neitt. Og í morgun klukkan ellefu tók ég verklega bílprófið. Og viti menn ég stóðst það. Helga Þórarinsdóttir er að fara að fá bílpróf á laugardaginn; á afmælisdaginn sinn góðir hálsar! Sumir ættu að taka Helgu sér til fyrirmyndar en þar sem afmæli sumra eru löngu liðin og bílprófið kom ekki á þeim degi er það víst of seint. Skutlaðist með passamyndina til Sýslumannsins og reddaði einhverjum pappírum. Afi skutlaði mér síðan niðrí Fíladelfíu þar sem að ég þurfti að skrifa á enn fleiri pappíra. Skrifaði undir eitthvað sem segir að ég sé formlega komin í Hvítasunnukirkjuna á Íslandi. Tók svo minnisversaprófið ógurlega og það gekk nokkuð vel. Var nokkuð sátt í þær tíu sekúndur sem liðu þangað til að ég fékk næsta minnisversablað. Miklu lengri vers og fleiri. Veeei. En ég held að maður læri þetta bara líka eins og hitt. Og í sambandi við það þá ætla ég að fara að líma þessi vers inná innanvert heilahvelið á mér. Eða leggja mig. Bæði kemur sterklega til greina.

//EitthundraðogTvö

21. september 2007 klukkan 17:47
a

Bara af því að ég er búin að vera að lesa öll blogg sem til eru á þessu jarðríki þá ákvað ég að blogga fyrir þá sem að gætu átt það á hættu að ráfa inn á mitt blogg. Ókei smá ýkjur kannski en þetta er ekki fjarri lagi. Það verður allt bara svo dautt hérna þegar við erum fá heima. Erum akkúrat þrjú núna í Völvinu. Ég, Gísli og Óskar. Óskar og Gísli eru báðir að skrifa sína ritgerð, sem að ég er btw búin með, þannig að ég sit hérna og er eiginlega að láta mér leiðast. Leiðist samt ekki þannig séð, heldur hef bara ekkert að gera. Skiljiði? :]

É
g veit að ykkur dauðlangar öll að heyra um mitt yndislega spennandi daglega líf í skólanum þannig að ég kem hérna með aðalatriðin. Í gær var kennsla í ICI [ég á að muna hvað þetta stendur fyrir; International Christian eða eitthvað] bæði fyrir og eftir hádegi. Christian Maturity heitir bókin sem við erum að fara í og er hún voðalega fræðandi og skemmtileg. Við erum með voða kósí kennslustundir, lesum bókina bara saman og þar sem að hún er á ensku fáum við að heyra ýmis afbrigði af hinum og þessum enskum orðum. Framburðurinn verður sérstaklega aðlandi þegar maður er búinn að lesa lengi og kannski mikið í einu og svo koma nokkur orð í einu sem að eru frekar krefjandi. Specific er eitt af þessum orðum sem að vefjast of mikið fyrir manni þegar maður er búinn að lesa lengi. En það er bara heimilslegt þegar að sú manneskja sem að er að lesa ælir orðinu út úr sér.

Sumir eru farnir að kvarta undan of miklum mat. Meirihlutinn af íbúunum, ásamt kennaranum, segjast vera komnir með bumbu. Sagan segir að fólk fitni í skólanum út af miklum og góðum mat. Ég hins vegar er alltaf svöng. Maginn á mér kemur daglega með dágóðan skammt af garnagauli. Sérstaklega í tímanum sem er frá 9 til 12. Ég fæ mig oftast ekki til að borða einhvern risaskammt af morgunmat sem að endar með fyrrgreindum afleiðingum. Ég get samt verið sammála þessu með mikinn og góðan mat. Í gær var kjúklingur í hádegismatinn og í dag var það kjötsúpa. Nokkuð massíft.

Áðan var hópnum skellt í myndatöku. Drösluðumst upp á einhvern hól, sem var víst í einkaeign, og þar tók Beta margar myndir af okkur. Þær voru hver annari kjánalegri og einstaklingsmyndirnar voru tjah, ég verð mjög ánægð þegar að hún verður búin að laga þær til og fótósjoppa þær aðeins til. Annars er ég búin að vera að reyna að taka myndir í gríð og erg. Maður verður að eiga myndir af þessum vetri. Þær koma örugglega fljótlega inná síðuna og svo fleiri í kjölfarið. Þetta er svo fallegt og áhugavert fólk sem ég bý með.

En ég er að pæla í að fara að lesa eitthvað.
Sem að hefur actually blaðsíður.
Ekki bara html.

Ég held að bloggveturinn verði bara fínn. Er þaggi?

//EitthundraðogEitt

19. september 2007 klukkan 21:41
a

Góða kvöldið. Ég sit núna inni í kennslustofunni í Völvufelli 11 með poppskál og kók í dós fyrir framan mig. Augljóslega með tölvuna líka og svo eru fjórar bækur í faðmlögum við hliðina á mér. Biblían, study-biblían, 'Biblían bók bókanna' og Ensk-íslensk íslensk-ensk orðabók. Hvað haldiði að ég hafi verið að gera annað en að læra? Megnið af samnemendum mínum stungu af til að fara á einhvern fund niðrí bæ þannig að ég sökkti mér ofan í lærdóminn. Lilja umsjónaraðili situr stöku sinnum við hliðina á mér með Doritos, ídýfu og kók, eða þegar hún nær að sitja kyrr.

Ég var að byrja á fyrstu minnisversaritgerðinni minni sem ég á að skila á þriðjudaginn. Alltaf gott að byrja snemma og það er miklu betra að vita af því að maður sé þó alla vega byrjaður. Ég er líka búin að læra þrjú minnisvers sem ég á að taka próf í á þriðjudaginn. Man þau nánast orðrétt, gleymast stundum einhverjar samtengingar en ég get lofað ykkur því að ég veð búin að steingleyma þeim á laugardaginn. En jæja maður reynir. Í gær fórum við öll saman í leikræna tjáningu niðrí Fíladelfíu. Það var skrautlegt. Hálfhlæjandi allan tímann og leið frekar kjánalega saman við hláturinn. Ég lifði þó af og síðan tóku við snögg þrif á kirkjunni. Vorum í góðu tjilli í gær frá um 3 þangað til að kvöldmaturinn var klukkan 7. Eftir kvöldmat var kröftug bænastund og smá fundur í sambandi við unglingasamkomur og unglingastarfið. Ég er orðin einhvers konar glæruyfirumsjónarmaður og sé um það að það sé alltaf fólk á glærum. Þannig að ef þú hefur gífurlegan áhuga á að vera á glærum þá skaltu bara tala við mig og ég redda því ;]

Í dag vorum við að læra. Ótrúlega fyndið hvað við tökum langan tíma í að fara yfir einn kafla. Við tölum náttúrulega endalaust og erum með kennara sem að hefur tjáningarþörf á við fimmtán. Mitt í allri kennslunni lýsti Hjalti yfir stríði á móti mér og Eydísi þar sem við sátum í okkar mestu makindum eftir að hafa kastað álpappírskúlu í höfuðið á honum. Óli litil [haha fleiri litlir xD] var eitthvað með honum í liði en ég og Hjalti tókum því langalvarlegast með tilheyrandi koddaköstum eftir tímann. Ég og Eydís roomie fengum svo Óla litla til að skutla okkur niðrí Mjódd. Ég fór í einhvern gullfallegan kassa og tókst að rumpa af einni passamynd, í fjórum eintökum, sem að mun skellast á ökuskírteinið mitt! Fórum í Nettó og keyptum ýmsar nauðsynjar þvottaefni og gos og tókum svo strætó aftur heim í Völvufellið. Klukkan sex var súpan og brauðið niðrí Fíladelfíu og þar fékk Kata mín loksins að hitta mig eftir langa og erfiða bið. Ég og Eydís eyddum svo stundinni með Frumherjunum sem voru að læra um eldvarnir. Merkilegt nokk. Ég fílaði þá nokkuð vel.

Og núna er ég bara heima. Poppið er alveg að verða búið og kókið líka. Ég er að pæla í að skella mér í náttfötin, skrifa kannski nokkrar línur í ritgerðina í viðbót og vona svo ásamt Lilju að sambýlingar okkar skili sér heim fljótlega. Það er alltof hljótt hérna!!

Prófíll