//EitthundraðogÞrjátíu
14. febrúar 2008 klukkan 22:54

Gleðilegan Valentínusardag!
Í tilefni þess að ég elska ykkur öll ótrúlega mikið þá ætla ég að skella inn einu ástríku bloggi. Hvert einasta orð er slegið inn með sérstaklega miklum kærleika á mína dásamlegu fartölvu. Og ef að þið finnið ekki ástina drjúpa af hverju einasta atkvæði þá mæli ég bara með því að þið gefið ykkur sjálfum rækilegt knús frá mér. Því að eins og ég er búin að tönnslast á þá er þetta sérstaklega kærleiksmikið blogg.
Ég er búin að þjást af miklu bloggleysi undanfarna daga. Eða meira af orðaleysi. Ég er örugglega búin að byrja þetta blogg svona sjötíu sinnum. En þar sem að ég hef voðalega takmarkað að segja nema það að ég sé voða þreytt & væri mjög mikið til í að leggjast upp í rúmið mitt og kúra með koddanum mínum;; þá ætla ég bara að láta ykkur vita að;;
Laugardaginn 16.febrúar verða stórglæsilegir tónleikar í Fíladelfíu, Hátúni 2, til styrktar Afríkuferð okkar í Biblíuskólanum. Fram kemur fjöldi af mögnuðum tónlistarmönnum og verður mikil stemning.

Frjáls framlög!
Takkfyritakk.
Takkfyritakk.
//EitthundraðTuttuguogNíu
06. febrúar 2008 klukkan 17:22
Hæ!
Fyrir ykkur sem að höfðuð áhyggjur þá er tölvan mín ekki í hakki.eða alla vega ekki eins miklu hakki & ég hélt hún væri komin í Nei, þannig er það að straumbreytirinn er í hakki. Það gleður mig mjög mikið því að straumbreytir er eilítið ódýrari heldur en ný tölva. Og þar til að ég kem því í verk að kaupa nýjan straumbreyti þá get ég bara notað straumbreytinn hans Óskars! Þökkum Guði fyrir bróður minn í tölvutegund.
Núna eru bara tuttuguogþrír dagar þangað til að við förum út til Frakklands & þaðan til Burkina Faso. Þar af leiðandi erum við komin á fullt í fjáröflun. Einn sunnudaginn héldum við RISA kökubasar & ætlum að halda annan þann 17.febrúar. Strákarnir eru á fullu að skipuleggja styrktartónleika sem verða haldnir laugardaginn 16.febrúar. Við erum síðan öll í því að reyna að fá fyrirtæki til að auglýsa í stórum kynningarbæklingi fyrir kirkjuna sem gefinn verður út á næstunni.
Í þessari viku erum við búin að vera með tvo gestakennara [Teddi í gær & Krisín Jóna í dag] & á morgun kemur sá þriðji, Þórhallur Heimisson, & ætlar að kenna okkur trúarbragðafræði. Það er alveg ótrúlega gaman að fá svona mikið af kennurum með frábærar kennslur. Ég held að í næstu viku verði líka einhverjir gestakennarar.
Ég er búin að vera rosalega dugleg í nýju vinnunni minni. Mömmu finnst það algjör brandari að ég sé að vinna við úthringingar þar sem að ég er með hræðilega símafóbíu, en svona er Guð stundum; húmoristi út í gegn.
Vá, hvað það er miklu skemmtilegra að skrifa ruglblogg. Þið megið búast við einhveri steypu frá mér fljótlega. Ég vona það alla vega. Plís Helga kveiktu aftur á ofvirka ímyndunaraflinu þínu & skrifaðu einhverja undraverða steypu á síðuna þína. Ókei? Það væri flott.
&& ég er ekki að fara að gifta mig
hvað sem Eydís kann að segja.
Fyrir ykkur sem að höfðuð áhyggjur þá er tölvan mín ekki í hakki.

//EitthundraðTuttuguogÁtta
02. febrúar 2008 klukkan 17:48

Ég nenni ekki að blogga.
Tölvan mín er í hakki.
Sjáumst.
//EitthundraðTuttuguogSjö
25. janúar 2008 klukkan 18:19

Já sæll vertu, gaman að sjá þig hér. Það er ekki hægt að ímynda sér hversu oft ég er búin að reyna að byrja þetta blogg en á einhvern undraverðan hátt þá hætti ég alltaf við að skrifa það sem ég skrifa. Ég held að ég sé líka búin að skipta fjórum sinnum um Heath Ledger mynd til að hafa efst. [Love, love] Ég væri mjög til í að horfa á 10 Things I Hate About You mjög fljótlega þannig að ef einhver á hana eða vill horfa á hana með mér má sá hinn sami hafa samband við mig.
En já um síðustu helgi var Vestmannaeyjaferðin ógurlega. Hún var bara mjög fín, fyrir utan ímyndunarsjóveiki og eitthvað fleira rugl. En Guð mætti á staðinn eins og honum einum er lagið, hristi upp í liðinu & breytti mörgum, ef ekki öllum, til hins betra. Ég var alla vega að fíla það sem Guð var að gera. Ég & Eydís hörkutól sáum um að stelpurnar færu að sofa á kvöldin, sem gekk misvel, & vöktum þær á morgnana, sem var aðeins auðveldara. Annars var bara yndislegt að hitta fólk, spila of mikið Jungle Speed & láta Guð vinna í lífi sínu.
Afríkuferðin færist nær & nær og á þriðjudaginn fór ég með Hjalta [fósturpabba mínum ekki Hjalta í skólanum] í sprautur. Ég var að sjálfsögðu mesta hetjan og fór næstum því að grenja þegar ég sat og læknirinn var að tala um sprauturnar. Svo komu þrjú lítil sting & þá var ég bólusett fyrir Lifrarbólgu A&B, Taugaveiki og Mýgulusótt. Takk fyrir kærlega. Ég hefði átt að eyða örlítið meiri orku í að vera stressuðust í heimi fyrir þessar sprautur. (= Á sunnudaginn ætlum við síðan að vera með kökubasar eftir samkomu í Fíladelfíu þannig að ef þig langar að styrkja okkur og fá í leiðinni gómsæta tertu þá mæli ég með því að þú kíkir á okkur.
Hey! Svo er ég líka komin með vinnu& ekki kærasta. [ef þú heyrir það þá er það einhver tímabundin geðveiki í ákveðnum einstaklingum] Og núna þegar það er komið á hreint þá ætla ég bara að segja ykkur að ég elska ykkur öll & það eiga allir að kommenta.
En já um síðustu helgi var Vestmannaeyjaferðin ógurlega. Hún var bara mjög fín, fyrir utan ímyndunarsjóveiki og eitthvað fleira rugl. En Guð mætti á staðinn eins og honum einum er lagið, hristi upp í liðinu & breytti mörgum, ef ekki öllum, til hins betra. Ég var alla vega að fíla það sem Guð var að gera. Ég & Eydís hörkutól sáum um að stelpurnar færu að sofa á kvöldin, sem gekk misvel, & vöktum þær á morgnana, sem var aðeins auðveldara. Annars var bara yndislegt að hitta fólk, spila of mikið Jungle Speed & láta Guð vinna í lífi sínu.
Afríkuferðin færist nær & nær og á þriðjudaginn fór ég með Hjalta [fósturpabba mínum ekki Hjalta í skólanum] í sprautur. Ég var að sjálfsögðu mesta hetjan og fór næstum því að grenja þegar ég sat og læknirinn var að tala um sprauturnar. Svo komu þrjú lítil sting & þá var ég bólusett fyrir Lifrarbólgu A&B, Taugaveiki og Mýgulusótt. Takk fyrir kærlega. Ég hefði átt að eyða örlítið meiri orku í að vera stressuðust í heimi fyrir þessar sprautur. (= Á sunnudaginn ætlum við síðan að vera með kökubasar eftir samkomu í Fíladelfíu þannig að ef þig langar að styrkja okkur og fá í leiðinni gómsæta tertu þá mæli ég með því að þú kíkir á okkur.
Hey! Svo er ég líka komin með vinnu
Ókei?
Flott er!
Flott er!
//EitthundraðTuttuguogSex
15. janúar 2008 klukkan 16:57
[Þann, sem þekkti ekki synd, gjörði hann að synda vor vegna, til þess að vér skyldum verða réttlæti Guðs í honum.
2.Korintubréf 5:21]
Ég get lofað þér því að þegar ég verð stór eldri þá ætla ég ekki að leggja mitt fram í búðarbransanum. Alla vega ekki eftir gærdaginn, þetta var eitthvað svo hræðilegur dagur. Það var minna en ekkert að gera þannig að mér leiddist allan daginn & svo til að toppa allt þá voru einhverjir tveir gæjar inní búðinni hálftíma eftir að við lokuðum. Ég var ekki sátt þar sem að ég þráði að komast heim ;; handboltaleikur & fleira töff
Annars fæ ég að heyra margt í vinnunni; ein gömul kona tók upp bol númer 34 & sagði svo;

'34! *ekkiglaðursvipur* Það er bara barnastærð, svona eins & á þig'
Trúið mér, ég varð ekki glöð. Tilkynnti henni að 34 væri alltof lítið á mig. Ég er sko ekkert barn. Til að undirstrika ósætti mín við viðskiptabransann sótti ég tæknilega séð um aðra vinnu í dag. Sú vinna inniheldur reyndar símtól & þar af leiðandi símtöl. Áhugavert að sjá hvernig ég mun tækla símafóbíuna mína.
*Ring ring*
'Já halló'
*löng þögn sem endar með því að ég skelli á*

Annars átti ég nú mjög áhugavert spjall við hana Eydísi áðan um framtíðina. Og ég veit eiginlega ekkert hvað ég ætla að gera. Ég gæti náttúrulega farið á annað ár & ég væri alveg til í það þannig séð. En svo gæti ég líka farið & klárað stúdentinn, þessi tvö litlu ár sem eru eftir, en hvað svo? Ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera eftir þennan blessaða stúdent. Ég vildi að ég væri einn af þessum þrjóskuhausum sem að ákvað í leikskóla að verða læknir & ætlar enn að verða læknir. En nei, ég varð að sjálfsögðu að skipta um framtíðarstarf á nokkurra ára fresti.
Flugfreyja;; Ekki eins töff & það var í fyrsta bekk
Listmálari;; Til þess þarf nú hæfileika
Dýralæknir;; Why oh why?
Lögfræðingur;; Pottþétt ekki eins spennandi & það var í sjónvarpinu i den
Ég er farin að hallast aðeins að því að taka bara annað ár hérna í MCI en samt vil ég ekki vera að ákveða neitt. Best að halda öllum möguleikum opnum [eða bara að hafa afsökun fyrir því að skipta um skoðun já?]
Laugardagurinn var stór dagur í sögu minni. Þá tók ég mig upp ásamt fröken Eydísi & herra Hjalta og skellti mér í kvikmyndahús. Ég skammast mín ekki neitt fyrir það að segja ykkur að þetta var fyrsta bíóferðin mín síðan að ég fór á frumsýningu Simpsons myndarinnar góðu í sumar. En við fórum sem sé að sjá National Treasure; Book of Secrets. Klassamynd & ég held að ég þurfi bráðum að fara að horfa á númer eitt. Að sjá framhaldsmyndina á undan fyrstu myndina er mjög töff.
En ég er að pæla í að fara í sturtu & bera svo á mig eitthvað brúnkurakakrem-ish dæmi til þess að ég týnist ekki í þessu fannfergi!

Adios!
eða eitthvað,
hugsanlega bless á frönsku.
eða eitthvað,
hugsanlega bless á frönsku.
//EitthundraðTuttuguogFimm
11. janúar 2008 klukkan 16:25

[Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt, ransaka mig og þekktu hugsanir mínar, og sjá þú, hvort ég geng á glötunarvegi, og leið mig hinn eilífa veg
--Sálmur 139:23-24]
Ég er laaaasin. Eða þið vitið svona slöpp & rugl. Var eitthvað slöpp í gærdag en ákvað samt að fara út með Eydísi, Gísla & Hjalta. Big mistake. Þar sem að ég lagðist svo bara uppí rúm & var hálfónýt. Rétt staulaðist fram til að fá mér afmælisköku sem var tileinkuð mér og Óskari. [Hann á afmæli 9.jan en ég 29.sept] Betra er seint en aldrei átti mjög vel við helminginn af kökunni. Síðan staulaðist ég upp í rúm & svaf til hádegis.
Afríkuferðin er loksins komin með greinilegar útlínur. Við munum yfirgefa þetta land föstudaginn 29.febrúar, við fljúgum til Parísar en þar verðum við í tvo daga. Eiffelturninn & fleira menningarlegt bíður mín. Sunnudaginn 2.mars munum við síðan fljúga til Burkina Faso. Miðvikudaginn 12.mars munum við síðan koma aftur til Íslandsins góða. Þetta verður samt einhver geðveiki; 8 tíma flug frá Burkina til Frakklands, 5 tíma bið á flugvellinum & svo 4 tíma flug heim. Gleði gleði.
Strákarnir, Hjalti & Óskar, eru báðir komnir heim þannig að lífið í Völvufelli er allt að detta í rétta farið. Nema kannski fyrir utan það að þvottavélin dó í gær. Mjög áhugaverð saga á bak við það andlát. Það sem sé festist vír úr brjóstahaldara í vélinni með þeim afleiðingum að rafmagninu sló út & vélin dó. Já, lífið hérna í Völvufelli er öðruvísi.
Ég fattaði að ég hef ekki frá neinu merkilegu að segja.

//EitthundraðTuttuguogFjögur
07. janúar 2008 klukkan 00:38

[Mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir - segir Drottinn. Heldur svo miklu sem himinninn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum.
--Jesaja 55:8-9]
Ég er hætt að hafa áhyggjur. Hætt að hafa áhyggjur af framtíðinni, af peningum & öðru rugli sem að skiptir svo ótrúlega litlu máli. Það tekur alltof mikinn tíma að vera alltaf að hugsa um að redda öllu. Ég á hvort sem er besta pabba í heimi sem að skapaði heiminn; ætti ekki að vera mikið vandamál fyrir hann að halda mér gangandi. Ég ætla bara að leggja þetta allt í hans hendur af því að hann veit svo miklu betur en ég hvað er best fyrir mig; hann er nefnilega alvitur sjáiði til.
Skólinn er byrjaður aftur. Það er allt voða hljóðlegt & tómt hérna án Hjalta og Óskars sem eru ennþá úti í landi tækifæranna. Ég get samt alveg viðurkennt að við erum ekki búin að gera mikið síðan á föstudaginn. Föstudagurinn fór í það að lesa yfir Ný Kynslóð Biblíuna & svo var samkoma. Á laugardaginn var vinnudagur niðrí kirkju. Og það er nokkurn veginn bara þetta sem við erum búin að gera. Í morgunsunnudagur skelltum við okkur á brauðsbrotningu & síðan fór ég að vinna. Á morgun er mikli vikulegi frídagurinn. Og ég ætla í vinnuna. [=
Öll næsta vika er bænavika í kirkjunni. Ég mæli eindregið með því að þú komir á eitthvað af því sem verður að gerast í vikunni. [ www.filadelfia.is ;; dagskráin verður þar ] Joshua Jones kennir okkur í skólanum alla vikuna & hann verður einnig að prédika á unglingasamkomu, sem að verður reyndar fyrir alla, á föstudaginn. Að sjálfsögðu ætla allir að koma með til Vestmannaeyja, eða er það ekki? Tjékkaðu alla vega á linknum hérna fyrir neðan gestabókina til vinstri.
Skólinn er byrjaður aftur. Það er allt voða hljóðlegt & tómt hérna án Hjalta og Óskars sem eru ennþá úti í landi tækifæranna. Ég get samt alveg viðurkennt að við erum ekki búin að gera mikið síðan á föstudaginn. Föstudagurinn fór í það að lesa yfir Ný Kynslóð Biblíuna & svo var samkoma. Á laugardaginn var vinnudagur niðrí kirkju. Og það er nokkurn veginn bara þetta sem við erum búin að gera. Í morgun
Öll næsta vika er bænavika í kirkjunni. Ég mæli eindregið með því að þú komir á eitthvað af því sem verður að gerast í vikunni. [ www.filadelfia.is ;; dagskráin verður þar ] Joshua Jones kennir okkur í skólanum alla vikuna & hann verður einnig að prédika á unglingasamkomu, sem að verður reyndar fyrir alla, á föstudaginn. Að sjálfsögðu ætla allir að koma með til Vestmannaeyja, eða er það ekki? Tjékkaðu alla vega á linknum hérna fyrir neðan gestabókina til vinstri.
Hlakka til að sjá þig í Vestmannaeyjum ;]
//EitthundraðTuttugogÞrjú
03. janúar 2008 klukkan 22:18
Af hverju er ekki til einhver sérstök aðferð sem maður á alltaf að nota til að byrja blogg? Það er svo mikið vesen að þurfa að hugsa upp einhverja stórkostlega byrjun á hverju bloggi fyrir sig. Ég hef ýmislegt betra við tímann minn að gera heldur en að finna upp hjólið í hvert skipti sem ég ætla að blogga. Til dæmis gæti ég haldið áfram að rökræða við hana Eydísi um það hvað ég er ekki að fara að æfa box með henni. Hún ákvað það áðan að við ættum að fara að æfa fitnessbox eða eitthvað. Ekki alveg það sem ég hafði hugsað mér að gera við alla ósýnilegu peningana mína.
Ég gæti líkað prófað að fara að sofa, en það er ekki svefntími fyrr en eftir klukkutíma. Ég veit alveg að ég má fara fyrr að sofa en að fara að sofa klukkan tíu eftir að hafa snúið sólarhringnum algjörlega við er ekki töff. Ég er búin að vera ótrúlega dugleg við að fara að sofa klukkan þrjú eða fjögur. Stórglæsilegur árangur. Annars er ég bara búin að vera að vinna í jólafríinu og var hjá Kötu um áramótin. Það var voða kózý enda er Kata besta vinkona í heimi! Ég elska þig!!!!!! Yesyes.
Og vá hvað ég hef ekkert til að blogga um; það koma bráðum myndir inná síðan í desember & svo verð ég dugleg að taka myndir á nýju ári. Skólinn að byrja á morgun & svona ;]

//EitthundraðTuttugu&Tvö
31. desember 2007 klukkan 12:17

Gleðilegt nýtt ár!
&&
Takk fyrir það gamla
Nenni ekki að gera einhverja ítarlega umfjöllun um árið.
//EitthundraðTuttuguogEitt
24. desember 2007 klukkan 15:09
Eitt örlítið blogg áður en jólin koma ókei? Ég hef samt örugglega ekkert skemmtilegt að segja þar sem að ég er eiginlega bara búin að vera að vinna. Á föstudaginn horfði ég samt á Transformers [LOKSINS] með Dodda og var það mjög skemmtilegt og spes. Minniháttar rifrildi um sæng & eitthvað fleira skemmtilegt. Eftir að hafa næstum því sofnað þá skelltum við okkur í afmæli til Guðnýjar Erlu. Og í þetta skiptið fórum við heim á Kristilegum tíma. =)
Síðasta laugardagskvöld voru einhvers konar litlu jól heima hjá Dabba. Það byrjaði voðalega sakleysislega með því að þau skiptust á gjöfum, svo varð það aðeins ógeðslegara þegar þau ákváðu að drekka kók & bryðja freyðivítamíntöflur. Það freyddi frekar mikið út úr þeim & Hannes, sem drekkur ekki gos og var með mjólk, ældi. Flott flott.
Myndband ----> [http://youtube.com/watch?v=2ZBuljVUb6s]
Við urðum síðan að fara út þar sem að hinir á heimilinu voru farnir að sofa & við vorum með soldið mikil læti. Enduðum í Ártúninu á N1 eins og oft áður & Þór var svo sniðugur að gleyma bíllyklunum sínum á afgreiðsluborðinu. Konan kom og rétti mér lyklana þannig að ég ákvað bara að keyra! Yesyes, var mjög dugleg að keyra sjálfskiptan bíl í fyrsta skiptið. Mér fannst ég samt eiginlega vera að svindla; eins & ég þyrfti að gera miklu meira en ég var að gera. Svo var reyndar keyrt á mig, en ég var kyrrstæð. Þannig að það var ekki mér að kenna! En það var samt hálf kjánalegt.
Núna er ég bara heima hjá mér alveg að fara að fara í jólafötin.
Til hamingju með jólin!