Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//Fjögur

20. júní 2006 klukkan 20:44

Ný Kynslóð mót [x]
Sjá Sunnevu Rut [x]
Veik [x]
Feeling [Weird]
Helgin [?]

Vá. Ég á mér ekki líf í augnablikinu. Kvöldvaktir eru ekkert líf. Vinna klukkan 3. Koma heim klukkan 11. Tölvan. Sofa. Vakna klukkan 12. Borða. Vinna. Stuð. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það er ekki sniðugt að vera að vinna með tveimur gaurum sem eru alltaf að bögga mann. Nei, ekkert sérstaklega.

Ég fór á Ný Kynslóð mót um helgina. Alla leið upp í koti. Dórothea hringdi og sagði mér það að hún væri að koma að sækja mig þannig að ég dreif mig og pakkaði niður á korteri. Dórothea kom svo með Viktori og bílferðin upp í kot var mjög skrautleg. Segjum það bara. Mótið var svo mjög skemmtilegt og ég komst að því að vinir mínir eru tölvunördar dauðans. Vissi það nú samt áður. Ég fór í sund á Hellu af því að sundlaugin á Hvolsvelli var lokuð Afhverju? og var vakin með vatnsbyssu. Það gerðist auðvitað mikið meira en ég er ekki að nenna að skrifa það allt hér. Sem sé helgin var fín.

Á sunnudaginn fékk ég far með Vidda á Selfoss. Ímyndið ykkur bara að vera í bíl með þremur strákum [Hafliði og Þór] og Eminem í botni. Það er tjah, áhugavert. Fótboltanördinn hún ég sofnaði yfir Brasilía - Ástralía þegar ég var að bíða eftir mömmu og Hjalta. Fékk svo loksins að hitta hana Sunnevu Rut og hélt á henni endalaust enda veit ég ekkert hvenær ég get hitt hana aftur.

Fjölskyldan skutlaði mér svo á Hvolsvöllinn í gær og ég fór að vinna klukkan 3. Erum við að tala um að það hafi verið frekar mikið bögg og diss í gangi? En ég var alla vega ekki heilaþvegin Fm 957 þar sem útvarpið var ekki í gangi. Ég var líka frekar hress þegar vinnan var búin Of hress. En við þurfum ekkert að tala um það.

Og í dag er ég barasta veik. Ekkert meira með það. Maginn bara í einhverri klessu Nokkrar ástæður fyrir því. og ég ákvað því að vera heima. Það er ekkert vit að fara að vinna í SS þegar maður er með flensu í maganum. Segir maður flensu í maganum? Æ, skiptir engu ég er byrjuð að bulla. Núna er ég bara í tölvunni að dunda mér við að blogga og tala við vini mína á msn. Ég er líka að hlusta á Lord Of The Rings, Return Of The King þar sem Jón sem er líka veikur er að horfa á hana.

Ég ætla vera óendanlega löt um helgina og vera á Hvolsvelli. Ég nenni ekki upp á Akranes og ekki heldur til pabba. Ég nenni mest í bæinn en ég nenni því samt alls ekki. Fattaru? Þannig að ég ætla að vera mína fyrstu helgi á Hvolsvelli. Það er örugglega ekkert að gerast hérna en það er allt í lagi, ég fer bara í sund og verð brún. Ætla líka að kíkja upp í Kot á hana Dórotheu mína sem er búin að lofa að knúsa mig.

Þú fílar 'etta
//Helga

//Þrjú

13. júní 2006 klukkan 05:12


Ný vinna [x]
Lítil systir [x]
England - Paragvæ [1-0]
Ný Kynslóð mót [
4 dagar]
Pulsur [
Aldrei aftur]

Systir mín er komin í heiminn. Hún kom í heiminn í morgun og er ótrúlega falleg. Hún heitir Sunneva Rut [
Skaale Hjaltadóttir]. Ég get ekki beðið eftir að hitta hana en vegna vinnunnar minnar kemst ég ekki fyrr en um helgina þarnæstu. Mamma ætlar samt að koma í heimsókn með Sunnevu fljótlega svo ég geti séð hana.

Vinnan. Í dag var fyrsti vinnudagurinn
minn. Og ég skal sko segja ykkur það að ég er ekki að fara að borða pulsur aftur fljótlega. Ég var að pakka pulsum í næstum allan dag. Næst þegar þið fáið ykkur SS pulsu hugsið þá til mín. Ég gæti hafa pakkað henni. [Sunneva ég er að vinna með Óla Odds. Svona ef þig langaði að vita það.] Ég er í indælum hvítum gagnsæjum buxum og hvítum sloppi. Svo er ég líka með yndislega fallegt hárnet.

Sund á morgun. Ætla að vera ógeðslega healthy í sumar. En ég er að deyja mig langar svo í Coke. Kókistinn ég.

SS fremstir fyrir bragðið

//Helga

 

//Tvö

10. júní 2006 klukkan 17:19

Grunnskóli [x]
Þýskaland - Kosta Ríka
[4-2]
England - Paragvæ [?]
Vinna í SS [2 dagar]

Grunnskólagöngu minni er formlega lokið, ég er útskrifuð. Útskriftin var í gær & ég [sviðshrædda manneskjan] fór þrisvar upp á svið. Fyrst fór allur bekkurinn upp á svið og tók við einkunnum. Ég er frekar ringluð núna af því að á miðanum sem við fengum fyrst stóð að ég hefði fengið 9 í stærðfræði en á einkunnblaðinu sem við fengum í gær stóð 9.5. Í annað skiptið var verðlaunaafhending. Ég þurfti að fara ein upp á svið og taka við verðlaunum fyrir hæstu einkunn í íslensku [ljóðabók] og ég stóð ein í smá tíma á sviðinu. En svo kom Hörður Kári og fékk verðlaun fyrir stærðfræði [og samfélagsfræði og náttúrufræði] eftir það byrjaði að fjölga á sviðinu. Harpa fékk verðlaun fyrir vinnusemi og hún var ekki að trúa því. [Krútt] Höddi dúxaði og Raggi var næsthæstur en ég var þriðja með 0.2 lægri meðaleinkunn en Höddi. Í þriðja skiptið fór ég með Leifi upp á svið og afhenti blóm og gjafir.

Á miðvikudaginn var rigning. Mikil rigning. Svo mikil rigning að mamma gaf mér frí frá Akrafjallsferðinni. Svo var hætt við ferðina vegna rigningar en þau fóru í fjöruna í staðinn. Jibbý. Á fimmtudaginn var svo þetta blessaða Húllumhæ en ég fór í bæinn með Leifi að kaupa örbylgjuofn, Playstation 2 og leiki sem að árgangurinn '90 gaf svo skólanum. Við fórum með strætó og það horfðu allir á okkur þegar við gengum fram hjá enda hélt Leifur á örbylgjuofni. Þegar við komum upp í skóla var svo mikið sem átti eftir að gera að ég kom ekki heim fyrr en klukkan 5. Þannig að síðasta daginn í skólanum var ég allan daginn í skólanum.
Ég, Sunneva og Dúa fórum líka að bera út skólablaðið í Jörundarholtinu og Flötunum [300 blöð] og vorum að deyja úr þreytu þegar við komum heim klukkan 12. Ég og Sunneva fengum líka svakalegar harðsperrur sem að ég er ennþá með. ['Mazing]

Ég og Hjörtur horfðum á The Punisher í gær. Hún var ágæt, jafnvel þótt að sumt hefði ekki verið alveg að passa.[Hann hefði verið löngu dauður.] Guðjón ætlar að stinga af í Reykjavíkina þannig að ég og Hjörtur ætlum bara að baka pönnukökur á eftir. Og Guðjón fær ekki neitt.
Á morgun er ég að fara á Hvolsvöll þar sem ég verð í allt sumar og á mánudaginn byrja ég að vinna í SS á kvöldvöktum. [3-11] Ég er ótrúlega spennt en samt líður mér geðveikt furðulega og ég sakna allra ógeðslega mikið. <3

Ég sá lögguna handtaka tvo menn sem voru með fíkniefni í gær. Jájá, hentu efnunum bara út um gluggann þegar löggan kom. En löggan er svo gáfuð að hún fann efnin og leitaði svo á þeim og á endanum henti hún þeim inn í löggubílinn. Ég og Hildur horfðum á þetta eins og þetta væri hin besta bíómynd en pabba fannst þetta ekki nærri því eins skemmtilegt.

Later
//Helga

//Eitt

07. júní 2006 klukkan 00:43


Ný síða [x]
Samræmduprófseinkunnir [x]
Nýir skór [x]
Grunnskólagöngu lokið [3 dagar]
Ný vinna [6 dagar]

Blog.central.is
[/helga9] síðan mín er orðin eitthvað leiðinleg. Ég ákvað því að prufa þetta kerfi. Það er bara vonandi að maður verði fljótur að læra á þetta.

Það merkilegasta sem er að gerast í lífi mínu þessa dagana er það að þessir dagar eru síðustu dagar mínir sem grunnskóla
pakknemi. Á föstudaginn yfirgef ég grunnskóla fyrir fullt og allt og held á vit ævintýranna. [fer að vinna á Hvolsvelli] Skóladagarnir eftir samræmduprófin hafa ekki verið neitt annað en uppfylling upp í einhvern samning sem í stendur að halda eigi nemendum inn í skólunum fram í júní. Fáránlegt.
Í dag voru einhverjir fáránleikar [skammhlaup] og varð sameinað lið 10.bekkinga í öðru sæti. En það var allt í lagi, okkur langaði hvort sem er ekkert í pizzu.[afneitun] Á morgun verður gengið upp á Akrafjall með einhverjum krökkum í 5.bekk & á fimmtudaginn verður Húllumhæ. [Joy]

Ég hef ákveðið að hitta Hjört [
Nálitann] og Guðjón [Örverpið] um helgina. Hjörtur lofaði mér að skila Guðjóni kremjandi faðmlagi frá mér. Þegar ég tilkynnti Guðjóni það sagðist hann elska mig líka. <3

Þar til næst.
//Helga

Prófíll