Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

//TuttuguogÁtta

11. október 2006 klukkan 01:34
Pete & Pat Pete & Pat
[FeelingThis;; Þreytt & óendanlega ánægð með ferðina]
[EchoingInMyHead;; Jesus Du Er Verdens Lys - ?]

Ég er komin heim til fallega litla Íslands. Ótrúlegt hvað maður getur saknað þessa yndislega lands þegar maður er í útlöndum. Noregur er samt alveg ágætur. Fyrir utan þetta brauð sem þeir borða í hvert mál, það er ekki ágætt. Nenni ekki að koma með einhverja svaka ferðasögu; segi frekar bara frá því sem ég man og fannst merkilegt.

Við lögðum af stað frá Íslandi, nánar tiltekið Keflavíkurflugvelli, um sex leytið á miðvikudaginn. Flugum til Osló & svo til Stavanger, vorum komin þangað um miðnætti [að norskum tíma]. Matthew ekkert alltof ljótur Frakki sótti okkur á flugvöllinn og skutlaði okkur í kirkju sem var þarna nálægt og gistum við þar fyrstu nóttina. Á fimmtudeginum var nett tjill til hádegis en þá var tekinn strætó inn í Stavanger og tók það einhvern hálftíma. Vorum líka komin liggur við upp í sveit á tímabili. Vorum niðri í bæ eiginlega allan fimmtudaginn að versla og svona. Borðuðum líka á McDonalds enda var það algjört must. Á fimmtudagskvöldið byrjaði líka mótið & var það bara geðveikt. Alltaf rosalega erfitt að reyna að lýsa svona mótum þannig að ég tala kannski minnst um það jafnvel þótt að það hafi verið aðalmálið. =] En já, við gistum í einhverju íþróttahúsi sem KFUM & KFUK eiga; mjög gaman að þurfa að taka allt dótið til á morgnana og troða því inn í eitthvað lítið herbergi út af því að íþróttahúsið var notað um daginn. Líka á laugardeginum. En það var bara mjög fínt að gista þarna og rosalega kósý að sofa með Elísu á vindsæng, kúra já já. Það rigndi frekar mikið á okkur þessa sex daga sem við vorum þarna og ég held að starfsfólkið á Esso kannist frekar mikið við okkur þar sem að við vorum þar á hverjum degi.
Á sunnudeginum, mótið kláraðist á laugardegi, fórum við niður í bæ. Við vorum þar í smátíma en það var samt ekki hægt að gera neitt vegna þess að það er A L L T lokað í Noregi á sunnudögum. Ákváðum þess vegna að taka lest til Sandnes & strætó þaðan í einhvern svona 'lítinn' sveitabæ sem að Villi á heima í. Lestarferðin gekk mjög vel og það fóru allir út á réttum stað en við biðum í heila tvo klukkutíma á strætóstöðinni eftir strætó. Í byrjun var það frekar pirrandi og maður var eiginlega ekki að nenna því en eftir smá tíma voru allir sestir niður á gangstéttina/götuna og voru að spjalla & skemmta sér. Eftir þessa tvo tíma kom strætó loksins og vorum við örugglega í tuttugu mínútur í honum; enda vorum við á leiðinni upp í sveit. Uppi í sveit var margt brallað eða eiginlega ekki samt. Strákarnir ætluðu að hoppa niður einhverja tíu metra og ofan í á en nei, áin var ótrúlega straumhörð og eyjan sem átti að vera í miðri ánni var í kafi. En Íslendingarnir létu þetta ekki á sig fá og fundu eitt stykki stöðuvatn og hoppuðu barasta ofan í það. Svo var gist í kirkjunni hans Villa & mikið spjallað & mikið gaman.
Gærdagurinn var svo bara eitt stórt ferðalag. Tókum strætó úr sveitabænum og í Sandnes [með allar töskurnar okkar sem voru svo mikið sem þrjátíu talsins] og þaðan strætó á flugvölllinn. Sá strætó var mjög vondur strætó og var mörgum, þar á meðal mér, orðið frekar óglatt þegar við loksins komum á flugvöllinn. Flugvél frá Osló til Stavanger, tveggja tíma stopp á flugstöðinni þar & svo flug frá Osló til Keflavíkur. Fríhöfnin tók slatta af tíma og svolítið af pening en loksins komumst við út úr flugstöðinni og voila. Hér er ég; heima hjá mér að deyja úr þreytu eftir langan skóladag. =D Lífið gerist ekki betra en þetta. ;]

Er farin að læra fyrir líffræðipróf.

//Helga
[Set inn þessar fáu myndir sem ég tók á mótinu seinna]
Heyyyyy!!! yay hegguz komin aftur. En vá veit alveg hvernig var með þetta íþróttahús. Var þannig þegar bekkirnir fóru til danmörku, þurftum að troða öllum töskunum og svefnpokunum inn í tvo littla búningklefa, það var alveg staflað töskum ofan á töskur. Brjál að ná þeim aftur svo.

En yay gaman að fá þig aftur!!!!
#1
11. október 2006 klukkan 13:12
 
Ţór
ohhh þettta var svo geggjuð ferð :D It sucks to be home:(
#2
12. október 2006 klukkan 02:56
hæhhæ veistu ég elska u lika i tætlur
#3
12. október 2006 klukkan 18:52
Gott að fá þig heim: ]

McDonalds.
Algjört möst!
#4
19. október 2006 klukkan 02:11

Skrifa athugasemd

Prófíll