Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//TuttuguogFjögur

19. september 2006 klukkan 01:36

House House

[FeelingThis;; Mánudagur! Bleh]
[EchoingInMyHead;; The Only Difference Between Martyrdom And Suicide Is Press Coverage - Panic! At The Disco ]

H Ú B B R Í ! Svona gerist þegar þú blandar talfærum við mig; ég fer að bulla. Bjó til þetta forláta orð í gær í einhverju af þessum hringtorgum í Mosfellsbænum. Móður minni fannst það afskaplega fyndið, mér fannst það tilvalið fyrir þessa tölvu þannig að frá þessari stundu nefnist þessi tölva Húbbrí. Málið er að nafnagift þessarar tölvu hefur verið mikill höfuðverkur frá fyrsta degi, ég hafði ekki hugmynd um hvað hún ætti að heita. Ég var samt handviss um að hún ætti alls ekki að heita Friðrik og þess vegna bar hún nafnið EkkiFriðrik í nokkra klukkutíma. En núna heitir hún Húbbrí og ég mun aðeins tala um hana sem Húbbrí.

Ég ætla að gefa mér leyfi til þess að segja ykkur frá því að ég keypti mér
L E V I ' S buxur á föstudaginn. Það voru dýrustu gallabuxur sem ég hef keypt & átt. Minnir mig á það hvað mig vantar rosalega mikið vinnu. Ég er að verða geðveik, peningarnir fara en það kemur ekkert í staðinn. Hjálp! Ef þú veist um lausa vinnu á Akranesi þá máttu hringja í mig, helst í gær. Ég þarf á peningi að halda, það er svo dýrt að vera ég. Ég ætla að hætta að eyða peningi. Þ a n g a ð til að ég þarf næst á peningi að halda.

Haha, ég var að frétta það að ég hefði kannski getað byrjað í ökuskólanum áðan. Gott að vita það núna. En annars liggur mér ekkert rosalega á. Ég meika það alveg að fá æfingarleyfi seint, ég þarf ekki það mikið á bílprófi að halda. Strax. Ég er samt alveg skíthrædd um að ég verði ömurlegur bílstjóri og geti ekki neitt. En nenni ekkert að pæla í því núna, ég er með Náttúrufræði heimadæmi sem að hræða mig alveg nógu mikið núna.

Mig langar í Oreokex.
//
Helga
 
Iðunn
Hæjjjjj Húbbrí.....HEY!!!minz lappa needs name?!?!?!?!?! Hann er búinn að vera Mr. Nameless leeeeengi.

Flott blogg, luffs you (k)
#1
19. september 2006 klukkan 02:30
 
María
Húbbrí ?
En mér sem fannst EkkiFriðrik svo voða cool.

Ég er með vinnu.
Og það tvær vinnur.

Það er laust í Bónus í Hfj ef að þú vilt joina mig.
: P

Þú verður fín undir stýri.
Pottþétt betri en ég á eftir að vera.
#2
19. september 2006 klukkan 19:00
Hlakka til að fá þig í hópin!! > hóp fólks með æfingaleyfi!!!
#3
20. september 2006 klukkan 23:53
 
þóR
Það er ekkert mál að keyr a það kemur bara með tímanum. Ég hélt að ég yrði ömurlegur að keyra, en ég er alltílagi;) - Ég hélt líka að ég yrði góður fyrir samræmduprófin og ég féll í tveimur :D en við sjáums á ´föst. ;)
#4
21. september 2006 klukkan 02:57
 
Hjörtur
ég verð allavega ekki fyrstur að sitja í bíl hjá þér:D. neinei, þú verður öruglega fínn driver.
#5
21. september 2006 klukkan 19:23

Skrifa athugasemd

Prófíll