//TuttuguogŢrjú
14. september 2006 klukkan 02:07

[EchoingInMyHead;; Headspin - Lukas Rossi]
Ég breytti útlitinu á síðunni minni. Það hef ég aldrei gert áður. Mér hefur alltaf fundist öll útlitin á þessari síðu glötuð. Það sem ég var með síðast var skást. Fann þennan Lukes "haus" einhvers staðar og varð að setja hann á síðuna mína. Kemur bara frekar vel út þótt ég segi sjálf frá. ;]
Ég er búin að vera að syngja Headspin síðan á sunnudaginn. Þetta lag er svo gjörsamlega fast við heilann á mér að ég er að raula það á meðan ég skrifa þetta. Það getur samt ekki talist mér að kenna að ég sé með þetta lag á heilanum. Ómar söng það á laugardaginn og þá fékk Hjörtur það á heilann og Hjörtur söng það allt laugardagskvöldið þegar við vorum að horfa á Bleika Pardusinn. Ég fékk líka smá sálfræðimeðferð frá honum. =] Elskjú Hjörtur.
Ég gerðist óendanlega dugleg í gær. Hljóp fimm kílómetra í típísku [týpísku? æ, dæmigerðu] íslensku veðri, vindurinn framan í mig og skemmtilegheit. Var óendanlega stolt af mér enda er ég ekki alveg mesta íþróttamanneskjan í þessum bæ. Vaknaði líka með mestu hassperur í geimi í morgun. Haltraði um skólagangana til klukkan tíu mínútur í fimm. Skák er ekki sniðug þegar manni er illt í hausnum, svona ef þig langaði að vita það.
Plútó-ég-er-ekki-lengur-reikistjarna eins og ég hef kosið að kalla hann eftir að hann var sviptur reikistjörnutitlinum er orðinn Plútó-ég-heiti-ekki-lengur-Plútó-heldur-134340. Jahá, einhverjir vísindamenn ákváðu það að fyrst að "Plútó" væri ekki lengur reikistjarna mætti hann ekki lengur heita Plútó. Hann heitir 134340 [þrettánfjörtíuogþrírfjörtíu]. Minn árgangur var síðasti árgangurinn til að taka Samræmd Próf á meðan reikistjörnunar voru ennþá níu. Er ég töff eða já? Þú mátt meira að segja snerta á mér hendina næst þegar þú hittir mig.
Rockstar í kvöld. Áfram Lukas! Hann er svo brjálæðislega
Plútó verður alltaf Plútó í mínum augum
//Helga
//Helga
Harpa B
heheh helga hann er sætur og það er ekki hægt annað en að segja að frumsamdalagið hans Lukas maður fá það á heilan ég var með það á heilanum um dagin og ég var að vera brjáluð en nu er ég bara með annað´lag á heilanum bothen anna og er aðm vera brjáluð af því ælika sv ég ætla að gera okkur báðum greiða og losa okkur við þessi lög af heilanum svona sing ég: Átti katti nóa atti katti nova emissa demissa dollaramissa dey setra kolla missa rato...... eða hvernig sem etta er en Lukas er sætur og ég er sammála því en heyrumst sem fyrst. Sakna .ín geggjað og haltu áfram að blogga svona skemmtilega það er alltaf gaman að lesa bloggið þítt og það skiftir ekki máli hvernig skapi ég fr altaf að srosa og hugsa þetta er hun Helga min heheeh en bæ
#1
14. september 2006 klukkan 15:34
Við skulum berjast fyrir réttindum Plútó! Helst koma honum í reykistjörnutitilinn aftur ef við getum.
heyri í þér og bara, Go Lukas!!!
heyri í þér og bara, Go Lukas!!!
#2
17. september 2006 klukkan 04:36

