viltu gjörusvovela að hætta að setja þessi stofunúmer inn í bloggið þitt maður verður bara enn meira ruglaður
takk fyrir
//Tuttugu
01. september 2006 klukkan 00:34

[EchoingInMyHead;; Chasing Cars - Snow Patrol]
Lífsleikniheimaverkefnið liggur á skrifborðinu mínu, í innan við fimm metra fjarlægð frá mér, og öskrar á mig. Þú getur rétt svo ímyndað þér hversu ógnvekjandi rifin stílabók og svartur blýpenni geta verið. Á morgun klukkan fimmtán mínútur í tíu mun ég ganga inn í stofu B206 með kvíðahnút í maganum. Verkefnið skilar sér ekki sjálft. Ég þarf að skila því. Ég þarf að lesa upp verkefnið mitt fyrir framan alla þrjátíuogníu krakkana sem eru með mér í Lífsleikni. Hálf handskrifuð blaðsíða af upplýsingum um Sigurrós Hörpu Sigurðardóttur. Hún á að lesa um mig. Ég veit ekki hvort er erfiðara. Að segja tæplega fjörtíu krökkum frá einni bestu vinkonu minni eða hlusta á fyrrnefnda vinkonu segja fyrrnefndum krökkum frá mér?
Á mánudaginn átti ég pantað viðtal hjá námsráðgjafa. Viðtalið og Lífsleiknitíminn sköruðust á og ég gekk glöð út úr stofu B206 tuttugu mínútum fyrr en bekkjarfélagar mínir. Heimsókn mín til námsráðgjafans var ekki eingöngu til þess að losna úr Lífsleikni heldur þurfti ég að ræða mjög mikilvægt mál við hann. Ég ætla mér nefnilega að taka þennan stúdent á þremur árum. Ef að allt gengur að óskum mun ég útskrifast af Náttúrufræðibraut, með eðlisfræðikjörsviði, vorið 2009. Þó að ég taki þetta á þremur árum þarf ég samt að taka allar hundraðogfjörtíu einingarnar og verð því að taka ca. 24 einingar á önn. Ég er því búin að troða inn aukaáfanga þessa önnina. Ég mun taka SKÁ 173 sem að er Skákáfangi. Vill ekki einhver skrifa nörd á ennið á mér? Það er alla vega skárra en busi.
Busavígslan er á morgun. Busaballið annað kvöld. Ég kvíði fyrir báðu. Ég get með engu móti skilið manneskjuna sem valhoppaði næstum því við hlið mér í skólanum í dag og tjáði mér það hve mikið hún hlakkaði til busavígslunnar. Er það löglegt? Ég get bara engan veginn skilið hvað sé svona gaman við að dýfa nýju krökkunum ofan í ískalt vatn og láta þau gera sig að fífli. Ég fatta það örugglega á næsta ári þegar ég verð ekki ný lengur en þessa dagana skil ég ekki baun í því. Busaballið. Úff. Það er asnalegt að hlusta á vini sína plana hversu fullir þeir ætla sér að vera á ballinu. Það er bara asnalegt að vera fullur. Hvað er svona skemmtilegt við það að vera að skemmta sér og svo vaknarðu daginn eftir og manst ekki eftir neinu? Nei, takk þá vil ég frekar muna hvað ég var að gera jafnvel þótt að það hafi verið leiðinlegt. Vinir mínir eru samt æðislegir þótt að þeir drekki. Mér finnst bara asnalegt hvað þeir drekka mikið.

Hjörtur Freyr Sæland. Taktu eftir!
Ég sakna þín =[
Ég sakna þín =[
Lífsleikniverkefnið liggur ennþá á skrifborðsbrúninni. Allar vonir um að það annað hvort geri sig sjálft eða hverfi af yfirborði jarðar eru foknar út í buskann. Ég býst við að ég verði að standa upp og setjast við þetta skrifborð sem er yfirfullt af drasli sem er betur þekkt sem skóladót. Með svarta blýpennan mér í hönd mun ég meistaralega klára þessa umfjöllun um Hörpu og allar áhyggjur um framtíðina munu fljúga út um opna gluggann á herberginu mínu. Ég vil að þessar áhyggjur fari út um gluggann þannig að næsta skref hjá mér er að standa upp.
Mig langar að kúra.
//Helga
Af hverju þurftirðu að vera svona þægilegur?
//Helga
Þór
Gangi þér vel í busununi og(ef þú þarft)ballinu. CYA ladder:Þ
#3
01. september 2006 klukkan 03:32
Verðum að fara að gera e-ð í þessu söknunardæmi. Það þýðir ekki neitt að vera svona.
Stoltur af þér að taka stúdentinn á 3 árum og gangi þér æðislega vel með það.
Síðan mæli ég með því að þú lesir bloggið mitt því ég var svo duglegur að ég bloggaði bara réttáðan.
Er ekki enþá kominn með nettengingu á Laugarvatn en er að vinna í því.
Elskjú. Hjörtur

#4
03. september 2006 klukkan 19:08

En ég mæli með að klára að skirfa þetta lífsleikniverkefni. Svona alveg eins og móðir mín var að mæla með fyrir 10 mínútum að ég kláraði stærðfræðina mína.