//Nítján
23. ágúst 2006 klukkan 19:57

[EchoingInMyHead;; Superstar - Land & Synir]
Góðan daginn. Helga framhaldsskólanemi heilsar ykkur. Það er rétt ég er orðin framhaldsskólanemi. Ég er að hefja nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Náttúrufræðibraut. Skólasetningin var í morgun klukkan tíu. Stundartaflan mín er spes. Fín en spes. Ég sef út á miðvikudögum, fæ lengra hádegishlé á mánudögum og er ekkert í íslensku á þessari önn. Ég hló þegar ég fattaði það. Hló eins og geðsjúklingur. =]
Ég þarf reyndar að fara á morgun og panta tíma hjá námsráðgjafa. Ætla nefnilega að taka stúdentinn á þremur árum. Íslenskunni verður líklega troðið einhversstaðar inn. Það er ágætt. Annars gæti ég tekið upp á því að blogga á ensku eða jafnvel á dönsku.
Ég er komin með allt of mikið af notendanöfnum og aðgangsorðum. Það fylgdu þrjú mismunandi með skólanum. Er með í bankanum líka. EmmEssEnn-ið. Þetta blogg. Allt of mikið. Of mikið fyrir minn litla heila til að muna. Og núna bætist skólinn við. Heilinn á mér á eftir að fara yfirum.
Ég komst ekki á Menningarnótt um helgina. Menningin verður bara að bíða þangað til á næsta ári. Ég fór bara beint heim í fiskifýluna. Ég var búin að gleyma hversu vond fýlan á Akranesi er. Svo þegar vindurinn er af sjónum þá dreifist þessi yndislegi ilmur út um allan bæ. Smekklegt.
Ég er búin að sækja um vinnu, redda peningamálunum mínum, sækja um nýtt debetkort og fara í klippingu á þessum tveimur virku dögum sem ég hef verið heima. Er svo að fara í myndatöku á eftir fyrir debetkortið mitt og að kaupa skólabækur á eftir. Ég er ofurdugleg.

Þetta blogg er fínt. Bara svona smá til að láta ykkur vita að ég er ekki dauð. Blogglega séð.

Sunneva afmælisbarn.
Þetta blogg er fínt. Bara svona smá til að láta ykkur vita að ég er ekki dauð. Blogglega séð.
Framhaldsskólaneminn kveður
//Helga
//Helga
http://sunneva90.bloggar.is
Sunneva
hey takk kannski soldið seint að segja takk núna þar sem er komin meira en vika síðan þú skrifaðir þetta.. en betra er seint en aldrei....
#1
31. ágúst 2006 klukkan 23:22