//Átján
19. ágúst 2006 klukkan 05:04

[EchoingInMyHead;; Creep - Magni/Lukas]
Það eru greinilega þrjár manneskjur sem lesa bloggið mitt. Klöppum fyrir þeim. *Klappiklappiklapp* Það er einum meira en tveir og já ég hef alltaf verið svona góð að telja. Haha! Ég var að uppgötva að ég benti bæði Hirti & Maríu á það að ég væri búin að blogga. Núna segi ég engum að ég hafi bloggað.
Í sumar er ég búin að;
Vá hvað það er skrítið að sumarið sé búið. Mér finnst eins og það hafi bara verið í gær sem að ég sat á pallinum heima hjá mér og hafði áhyggjur af samræmda stærðfræðiðprófinu. Núna er ég með áhyggjur af allt öðrum hlutum. Hlutum sem ég nenni ekkert að pæla í. Þannig að ég ætla bara að sleppa því, held ég.
Ég vann í tíu heilar vikur í EssEss. Er það mikið? Ég er ekki viss um neitt lengur. Mér finnst heilabúið vera að leka út um vinstra eyrað á mér. Fyrir nokkrum dögum lá ég í rúminu mínu og reyndi að muna hvað orðflokkurinn sem stýrir föllum heitir. [Forsetningar munu það vera. Mundi það þegar ég var alveg að sofna] Ég er líka farin að enda of margar setningar á 'held ég'. Ég hlakka til að byrja í skólanum og fara að hugsa aftur. Svona almennilega.
Í dag var síðasti dagurinn minn og samkvæmt hefðinni var ég smúluð. Að vera smúlaður þýðir einfaldlega að vinnufélagar þínir taka smúl og sprauta vatni á þig þangað til að þú skelfur af kulda og það sést í gegnum fallegu hvítu fötin sem þú vinnur í. Þannig var það alla vega í mínu tilfelli. Jón og Þobbi drógu mig inn í bakkaþvott, tóku tvo smúla og sprautuðu á mig. Tek það fram að önnur vatnsbunan var heit á meðan hin var köld. Ekki þægilegt. Þurfti svo að þurrka mér með tveimur handklæðum sem voru á stærð við þvottapoka. Öll stóru handklæðin voru óhrein. Just. My. Luck.
Ég er að fara heim. Ég trúi því ekki. Heim. Það fyrsta sem ég ætla að gera er að leggjast í rúmið mitt og öskra af gleði. Svo ætla ég í heita pottinn. Það er skrítið hvernig maður getur saknað þess að vera með heitan pott þegar maður fer nákvæmlega aldrei í hann. En það er ég. Skrítin á ég við.
Ég fer samt ekki heim fyrr en á sunnudaginn. Ætla að koma við í Reykjavíkinni/Hafnarfirðinum og hitta hana Maríu mína. Ég ætla að gista í fallega herberginu hennar sem er svo fallegt í laginu. Ég er alveg heilluð af lögun herbergisins hennar. Ég gæti staðið í marga daga í herberginu hennar og dáðst að einstakri lögun þess. Við ætlum líka aðeins niður í miðbæ Reykjavíkur. Menningarnótt verður víst í gangi. Við ætlum að horfa á alla fallegu flugeldana. Nennum ekkert að skoða menninguna. Menningin í Reykjavík er víst bara fyllerí ef marka má ástandið á fólki á þessari Menningarnótt.
Í sumar er ég búin að;
- Eignast litla systur
- Týna Puma hettupeysunni minni
- Borða á Subway. Tvisvar.
- Smakka Nítjánhundruðfjörtíuogfjögur mat
- Vinna
- Verða brún
- Sofa þrjár nætur í mínu eigin rúmi.
- Vaka heila nótt

Fimmutdagskvöldið var næs. Takk fyrir það þú.
Hjörtur Freyr yndislegi frændi minn og verðandi EmmEll-a? Hafðu engar áhyggjur af busuninni þinni ég er búin að redda henni. Þú verður busaður. Bad. Þú þekkir of marga í þessum skóla. Og ég líka. Ég hlakka til að heyra um þjáningar þínar. Þú munt segja mér frá þjáningum þínum. Ég mun pína þær upp úr þær. Fallega. =]
Lítið um liti
//Helga
//Helga
♥
http://b.c.is/piff
Harpa
ég get ekki beðið eftir að byrja í skólanum en er svo hrædd um að meika þetta ekki og falla í öllu alltaf!...ég nenni ekki samt að hugsa um þetta...sjáumst kanski á sunnudaginn :* *elska þig líka lús*
#1
19. ágúst 2006 klukkan 14:26
Sigurrós Harpa Sigurðardóttir! Ég mun persónulega sjá til þess að þú fallir í engu. Ég ætla að taka alla þessa áfanga með þér.
Þakka þér fyrir ;*
Þakka þér fyrir ;*
#2
19. ágúst 2006 klukkan 18:21
Þór
Ég hef held ég lesið öll bloggin þín:) svo vona ég að þú veist að creep er með Radiohead:) en við sjáumst later
#3
20. ágúst 2006 klukkan 06:29
Harpa b
hæhæh heirðu þetta með það sem u ert búin að gera i sumar u gleymdir einum hlut... þú hittir mig:) en þetta er geggjað blogg u ert altaf jafn fyndin og allt það en sjáumst sem fyrst og gangi u vel i skolanum en Helga það er lika busað i skolanum þínum er það ekki og eg þekki noikkra þar heheh
#4
22. ágúst 2006 klukkan 03:39
María
Ég vakti líka næstum heila nótt..
Það voru bara nokkrir tímar í að ég hefði þurft að vakna :P
Ég skil ekki baun hvað þér finnst spes við herbergið mitt!
Mér finnst lögunin asnaleg, og það er erfitt að fitta öllu inn í það.
[ogsvoíþokkabótkomstégaðþvíaðþettavarhugmyndfrænkuminnarsemervísteinhverinnanhúsblablahönnuður]
Skipta ?
En við verðum víst bara að hittast seinna fyrst að þetta á menninganótt gekk ekki upp.
Luff you x

#5
22. ágúst 2006 klukkan 16:33
hæ ég les líka bloggið þitt og kommenta stundum......bæjó
#6
23. ágúst 2006 klukkan 02:12