Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//Sextán

11. ágúst 2006 klukkan 07:04

[FeelingThis;; Á ég að tala við hann á morgun?]
[EchoingInMyHead;; Don't Stop Me Now - McFly]

Þetta er opinberlega lengsti tími sem hefur liðið milli blogga á þessari síðu. Ég hef ekki bloggað í átta heila daga. Eða tæknilega níu, það er víst kominn föstudagur. Þessi
stutta vinnuvika er að verða búin. Ég er að fara í helgarfrí. Síðasta helgarfríið mitt því að ég er að fara að yfirgefa þessa vinnu og þennan draugabæ [Hvolsvöll]. Hefur þú einhvern tímann gert þér grein fyrir því hvað Akranes er miklu nær Reykjavík heldur en Hvolsvöllur? Ég er farin að finna fyrir því. Ég sakna vina minna. Sárt. Og ég ætla rétt að vona að þeir sakni mín svona smá. Ég hlakka svo til að komast heim til mín. Í fallega rauða herbergið mitt. Þar sem fallega mjúka rúmið mitt stendur og bíður eftir mér. Ég er seriously farin að sjá rúmið mitt í hillingum!

Ég fór upp í Kot á Kotmót um helgina. [Obvious much?] Ég þurfti að mæta í vinnuna klukkan tíu á föstudaginn og var frekar þreytt. Það sást á vinstri hendinni minni. Mér var nefnilega færður hnífur klukkan hálf ellefu á föstudagsmorgni og átti að taka utan af pepperoni.
Ég + hnífur + þreyta = Sár á vinstri hendi
Fyrst rústaði ég þumalputtanum og þurfti að fá mér svona bláan vatnsheldan plástur en svo rústaði ég gjörsamlega löngutöng og skar mig það djúpt að það blæddi ennþá á sunnudaginn. Sniðuga ég. Fékk mér annan svona fallega bláan vatnsheldan plástur. En þegar ég losnaði úr vinnunni klukkan fimm þá voru þessir puttar alveg þess virði.

Helgin var skemmtileg. Það skemmtileg að ég get eiginlega ekki líst því. Því að þér finnst örugglega ekkert skemmtilegt að sitja hálfsofandi í bíósal með enga bíómynd í gangi og segja aulabrandara. Þannig að helgin var bara skemmtileg. Punktur og pasta. Þurfum ekkert að ræða það frekar. Og já, ef þú hefur ekki tekið eftir því þá breytist fólk. Mikið og hratt og frekar asnalega. Bara svo þú vitir það. =/

Vá. Hvernig getur ein manneskja verið svona falleg/fyndin/skemmtileg/hress/hávaxin/dökkhærð/blágráeygð? Ég bara skil þetta ekki. Ég fékk næstum því störu á þriðjudaginn. Talandi um að vera obvious. Nýrun á mér þurfa á áfallahjálp að halda eftir þetta sumar. Þetta sumar sem er að verða búið. Kom sumarið eitthvað? Það lét mig enginn vita. Eða var ég bara föst inn í Sláturfélagi Suðurlands með pulsum [sem er skrifað með y] og steiktu beikoni þegar sumarið kom? Hringdu í mig ef þú veist hvert sumarið fór. Takk.

Farin að sofa
/
/Helga
[Breytingar voru gerðar vegna nýfengra upplýsinga. Hann er ekkert brúneygður.]
 
María
Ég sakna þín líka *hugs*

Ég + hnífur + hvenar sem er [ekki] þreytt = hættulegt fyrir alla nálægt

Hvaða sumar ?
#1
14. ágúst 2006 klukkan 04:08
Þetta sem kom ekki. =P
#2
14. ágúst 2006 klukkan 04:10

Skrifa athugasemd

Prófíll