Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

//Fimmtán

02. ágúst 2006 klukkan 19:10
Cillian Cillian
[FeelingThis;; Rík]
[EchoingInMyHead;; Can't Catch Tomorrow (Good Shoes Won't Save You This Time) - Lostprophets]

Ég er rík. Ég fékk útborgað í gær og það leið næstum yfir mig þegar móðir mín sagði mér töluna. Hundrað fimmtíu og níu þúsund krónur. [og 126 krónum meira] Og það útborgað. Launin mín voru alls hundrað sjötíu og þrjú þúsund krónur. Ég er sáttari en sátt. Fæ örugglega svipað mikið útborgað í september. Mér líkar vel við vinnuna mína. =]

Ég elska lög sem eru með furðulega fyndin nöfn. Eins og flest lögin með Fall Out Boy. Og líka nokkur með Lostprophets. Eins og lagið sem ég er með á heilanum. Það er svo flott! Ég setti allan diskinn inn á Mp3 spilarann og er búin að vera að hlusta endalaust mikið á þessa hljómsveit. Hún er like best. Þeir eru líka frá Wales. Hreimurinn þeirra er yndi. =]

Hey veistu hvað? Mamma mín á afmæli í dag. Til hamingju. Hún á afmæli í dag og allt það. Hún er þrjátíu og fjögurra ára gömul. Mamma mín er yngri en mamma þín. *Ull* En á næsta ári eru bara fimm ár þangað til að hún verður fjörtíu ára gömul. GÖMUL. Þá verð ég tuttugu og tveggja ára. =|
Elska þig mamma! <3

Kotmót. Kotmót byrjar á morgun. Ég? Ég er að vinna á morgun. Og á föstudaginn.Kotmót hjá mér byrjar eftir klukkan ellefu á föstudaginn. Hrmpf. Þetta Kotmót verður að vera best. Annars fer ég í fýlu. Elísa & Ásthildur verða. =D Nordic '04 fílingur? Og svo verða náttúrulega allir hinir en ég hlakka mest til að hitta þær [og hina líka]

Ég tók til í herberginu mínu áðan. Stolt. Ég á slatta af fötum. Slatta mikið af fötum. En samt langar mig alltaf í meira. =/ Hvort er það partur af því að vera unglingur, stelpa eða Íslendingur? Örugglega partur af öllu þar sem ég er unglingur, stelpa og Íslendingur. Samkvæmt því sem mér hefur verið sagt. En kannski er ég bara ellilífeyrisþegi sem kemur frá Þýskalandi og er í þokkabót karlkyns. =| Ég er að pæla í að fara að grúskast í fæðingarvottorðinu mínu til að vera viss um að ég sé fædd fyrir tæplega sextán árum, ekki sextíu.

Sakn'ykkar
//Helga
 
María
Ég er ekki alveg að meika það að koma með almennilegt comment núna..
Er upptekin af því að hlæja soldið mikið af blogginu!

En eitt, eru Lostprophets frá Wales ? *shocked*
#1
02. ágúst 2006 klukkan 19:17
já helga frekar sérstakt blogg hérna hjá þér núna.. en það var gaman að sjá þig í kringlunni og líka litlu systur!!:D:D
#2
05. ágúst 2006 klukkan 00:35
jii...það er bara ca. vika þangað til við hættum að vinna :) já mar og svo 2 vikur þangað til skólin byrjar jiii þetta flýgur áfram!!
sakna þín líka :* sjáumst þegar þú kemur þarnæstu helgi... :)
#3
09. ágúst 2006 klukkan 02:30
ég er að setja myndir inná bjarnaland fyrir sunnevu spæjó!!
#4
10. ágúst 2006 klukkan 22:03

Skrifa athugasemd

Prófíll