Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

//Ţrettán

26. júlí 2006 klukkan 19:35
Geeks Pete

[FeelingThis;; 'Nennekkívinnu'' Tilfinningin]
[EchoingInMyHead;; It Ends Tonight - The All-American Rejects]

Ég er snillingur. Það mikill snillingur að ég þarf að borga fyrir það með því að vera ómáluð þangað til á laugardaginn og kannski lengur. Ég fór nefnilega til föður míns um helgina og svo þegar ég fór til baka þá gleymdi ég barasta öllu málningardótinu mínu plús hleðslutækinu fyrir símann minn. En sem betur fer eru Nokia meiri snillingar en ég þar sem það fylgdi millistykki í venjulegt Nokia hleðslutæki með símanum mínum [mitt hleðslutæki er miklu mjórra] þannig að ég gat hlaðið símann minn. En málningardótið vantar mig.

Ég sef mikið. Allt of mikið. Í gær vaknaði ég klukkan hálf þrjú og þurfti að stökkva á fætur og klæða mig og hlaupa í vinnuna. Ég var frekar þreytt í vinnunni en tók samt yfirvinnu og vann til eitt líka á mánudaginn. Ég ætla að vera rík þegar ég byrja í Eff Vaff A. Vá, ég er alveg að fara að byrja í Fjölbraut. Vill einhver slá mig utan undir? Þetta er allt svo óraunverulegt.

Föstudagurinn? Vá, nei. Hann var rugl. Vil ekkert ræða um hann. Sumir ættu bara að halda sig frá áfengi. Og aðrir líka. Já og eiginlega bara allir. Ég er orðin þreytt á að lenda einhversstaðar í miðju fylleríi og vera eina manneskjan sem er ekki að drekka. Ég er hætt að fara út. Sérstaklega um helgar. Ég og imbakassinn getum bara haft það notalegt saman. =]

Argh! Ég þarf að vakna viðbjóðslega snemma á laugardaginn. Ég er að fara að taka rútu í Reykjavík klukkan korter í níu. Um morguninn! Það hlýtur að vera ólöglegt í einhverju fylki Bandaríkjanna. Bara hlýtur að vera. En já, ég er að fara að hitta hana móður mína og við ætlum á útsölur. Svo ætlum við upp á Skaga og ég þarf víst að redda mér einhvern veginn aftur á Hvolsvöll. =/ Ég var ekkert að pæla í því. Skutla mér?

Ég fór í sund í morgun. Alein. Var alveg ein í allri sundlauginni. Ég ownaði sundlaugina á Hvolsvelli í tuttugu mínútur. Synti alveg heilar fimm ferðir. [Stolt]

Dettu Út Strákur! [FOB] James var að segja mér að Fall Out Boy þýddi sko Geislavirkur Strákur af því að þegar þú skýtur kjarnorkusprengju [sem kemur mjög oft fyrir þig] þá er svæðið í kringum hana kallað 'Fall Out' Svona lærir maður mikið á því að vinna með Breta í SS. Hann var líka hissa þegar ég vissi hvað 'Chav' væri. =D

Vinnan kallar
//Helga
 
María
Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt.
Þetta með Fall Out vissi ég ekki.
En hvað Chav er, það veit ég.
#1
26. júlí 2006 klukkan 19:52
slap!!....ef þú tókst ekki eftir því þá var ég að slá þig utan undir því það eru ca 30 dagar í að við löbbum inn í FVA með nesti og nýja skó tilbúnar að bræða strákana... :D ég verð að hitta þig á Laugardagskvöldið eða eikkað er ekkert búin að hitta þig og vantar það :S hvað þýðir chav? ekki að ná því.. og ég er endalaust stolt af þér að drekka ekki þótt allir í kringum þig séu að því :)...
heyri í þér :)
#2
27. júlí 2006 klukkan 00:14
 
Ástaa
Flott að vita að þú hafir eikkað að gera.. =)

p.s ég kem til rvk á mánudaginn.. get kannski hitt þig =D
#3
28. júlí 2006 klukkan 17:38
ég stend enþa við þau orð mín að þú ættir að fara í ML. þú veist að þig langar það;)
#4
29. júlí 2006 klukkan 01:00

Skrifa athugasemd

Prófíll