Vá, þú ert of æðislegur! =]
Hvað er Vcd? =/
//Ellefu
21. júlí 2006 klukkan 07:19

[FeelingThis;; Þreytt & illt í öxlunum]
[EchoingInMyHead;; Is it Love? - Dr Mister & Mr Handsome]
Eftir tíu blogg er ég orðin þreytt á þessum lista sem ég setti alltaf eftst í bloggið. Það er allt of erfit að reyna að finna eitthvað til að setja í þennan lista. Þannig að núna er komið nýtt.
Mig langar í bíó! Núna og helst í gær. Allt í lagi, ég fór í bíó á laugardaginn en það eru alveg þrjár aðrar myndir sem mig langar svo að sjá.
Just My Luck; Danny, Tom, Dougie & Harry í bíómynd? Já þakka þér fyrir.
Pirates Of The Caribbean: Dead Man's Chest; Orlando & Johnny.
The Benchwarmers; Tvö orð. Napoelon Dynamite
Vá er fólk ekki farið að fá leið á körfubolta? Ég er búin að fara endalaust oft í körfubolta og slasa mig alltaf jafn mikið. Væruð þið til í að hætta að ráðast á mig? Takk. Í gær til dæmis var ég að reyna að ná boltanum af Emil og fékk bara hendina á honum beint í nefið á mér og fékk þessar svakalegu blóðnasir. Perraskapurinn í sumum er líka aðeins of mikill í körfubolta en það er allt annar handleggur.
Ég er með súran húmor. Of súran húmor. Í gær var ég í yfirvinnu í Pökkun B og ég var að þrífa einhverja vél með Þobba og þessi súri húmor gaus alveg upp eins og ég veit ekki hvað.
Ég: 'Hverju pakkið þið í svona gult plast?'
Þobbi: 'Bara ýmislegu. Til dæmis partýrifum, grillkjöti og lifandi apa.'
Ég: 'Lifandi arfa?'
Þetta var OF fyndið. En já talandi [eða eiginlega skrifandi] um yfirvinnu þá er ég búin að vinna tvo tíma í yfirvinnu síðustu þrjá daga. Sex
Hmm. Á maður að skrifa eitthvað skemmtilegt hérna? Hvernig í veröldinni er hægt að ætlast til að ég fari að skrifa skemtilegt blogg þegar það er ekkert skemmtilegt að gerast? Ég hef ekki einu sinni hugmynd um hvað ég er að blogga hérna. Ég er alltaf búin að finna eitthvað voðalega sniðugt til að blogga um þegar ég er í vinnunni en þegar ég kem heim og sest fyrir framan tölvuna þá bara kemur ekkert skemmtilegt út. Rugl. Ég er farin í fýlu út í bloggsjálfið mitt.

Í fýlu út í bloggsjálfið sitt
//Helga


Annas er barasta fínasta mál að lesa bloggin þín jafnvel þó þú haldir að þú sért með e-rskonar ritstíflu