Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//Tíu

15. júlí 2006 klukkan 18:44

Vinnuvika [x]
Rigning [x]
Kristín & Jarek komin heim [x]
Körfuboltasnillingur [x]
Click [
Klukkan hálf sex í Smárabíói]

Magni komst áfram. Þjóðarstoltið heldur áfram að skína sínu skærasta. =] Ég sá reyndar ekki þann þátt þar sem ég var úti í körfubolta með vinnufélögunum. Og á ég að segja þér leyndarmál? Ég er góð í körfubolta; og ekki bara góð, heldur mjög góð. Þó ég segi nú sjálf frá. Planið hjá mínu liði var það að ná boltanum og síðan að gefa á mig. Ég var nefnilega svo dugleg að hitta ofan í körfuna. Þetta plan gekk mjög vel upp og ég þurfti eiginlega ekki neitt að hreyfa mig. En hann Emil var ekki alveg að fíla það svo að hann gerðist svo sniðugur að labba að mér, grípa mig, henda mér yfir öxlina á sér og labba með mig yfir að hinni körfunni. Ég veit ekki alveg hvað hinum fannst um það en mér brá alla vega. Mikið. Jón var að reyna að ná boltanum af mér réðst á mig með þeim afleiðingum að ég datt [Jafnvægisskynið að klikka?] og var að drepast í hægra lærinu. Takk Jón. Við fórum reyndar líka í fótbolta en það var ekki nærri því eins skemmtilegt. Herpes? Nei þakka þér fyrir.

Það er gaman í vinnunni. Svona oftast. Í gær var ekkert að gera í vinnunni þannig að við vorum bara að gera eitthvað rugl. Sumir þurfa að tjá sig aðeins meira en aðrir í vinnunni og um nákvæmlega ekki neitt. En jæja, mér leiðist alla vega ekki á meðan.
Í pásunni klukkan tíu var Emil svo eitthvað að stríða mér þannig að ég stóð upp og ætlaði sko að flýja frá honum. En nei, nei. Hann náði mér, greip mig, henti mér yfir öxlina á sér =| og labbaði með mig niður hálfan stigann. Ég öskraði allan tímann 'nei' og 'láttu mig niður' en hann er pólskur og þóttist ekki skilja neitt. Já og hann er líka stórhættulegur með vatnsslöngu.
Eftir vinnu í gær fórum ég, Emil, James, Óli & einhver vinur hans [sem samkvæmt Jóni heitir Einar] í körfubolta. Harpa og frænka hennar horfðu á. Það rigndi samt eins og það væri hellt úr fötu þannig að við fórum fljótlega heim.

Lost? Halló, horfði einhver á þennan þátt? Hann var svo ógeðslega hemskur, fávtialegur, vitskerrtur asnalegur. Nú þarf ég að sjá þriðju seríu og helst í gær og það sem meira er! Ég þarf að bíða eftir henni!


Núna sit ég heima hjá henni Dagnýju og er að bíða eftir að klukkan verði fimm. Þá kemur hún heim úr vinnunni og klukkan hálf sex ætlum við í bíó á Click. =] Ég vaknaði klukkan níu í morgun bara til að ég gæti heimsótt hana Dagnýju. Kristín, Jón & Jósúa eru nefnilega í bænum núna í svona skemmtiferð af því að Jón á afmæli á morgu [13] Ég er að spá í að fara niður og horfa á einhverja af nýju myndunum hennar Dagnýjar. Walk The Line? Já, held það bara.

Lúlli! Viltu taka rófuna af lyklaborðinu? Takk.

Things To Do
;
; Taka til í herbergi á morgun.
;;Fá Hörpu til að hætta að vera hyper í vinnunni.
;;Nammi!
;;Sofa


Mér líst ágætlega á þennan lista.
Ég ætla að hætta að blogga núna þar sem að þetta blogg er orðið nógu langt, hef ekkert meira að segja og það er ógeðslega erfitt að vera alltaf að færa textann til hliðar og í miðjuna.
=/


Giftast mér?
//Helga
 
Jonkjartan
lost 3th season byrjar 27 desember
#1
16. júlí 2006 klukkan 03:42
 
Ástaa
Ég skal giftast þér ! =D
#2
16. júlí 2006 klukkan 03:43
=| 5 Mánuðir?? Þarf ég að bíða í 5 mánuði??
Er það hérna eða í USA?

Takk Ásta ;* Hvenær?
#3
16. júlí 2006 klukkan 04:22
 
Harpa B
Jæja Helga mín það er bara það:) Víst er geggjað fjör i vinunni og það ver geggjað fyndið þegar Emil tók þig til að labba niður stigan:) og svo var ggegjað' gaman i körfuvbolta á miðvukudagskvöldið og ég komst að því að ég er ekki svo góð hjúkka:$ og það var ágæt i gær en veist Hann Emil er ekki sá eini sem er hættilegur með smúlinn;$ það er önnur saga En skemmtu þér hitti u io vinunni á mánudafginn: En ég var ekkert svo hæper ivinunni í Gær cvar bar ami góðu skapi allavega geturu haft kvöldið og daginn á morgun til að fynna leyð
#4
16. júlí 2006 klukkan 04:39
já... ég þarf að fara að vinna í SS (þ.e.a.s. ekki hreyfingunni heldur sláturfélagi suðurlands) sé ég.
Þú þarft að fara að drífa þig í "menninguna" svo við getum kíkt til Guðjónsa í kirkjuna (honum leiðist víst soldið þar).
#5
16. júlí 2006 klukkan 04:45
 
Sunneva
STÓRI körufollta snillingur hvernig væri svíðan að fara að koma með eitt stikki blogg.. og kíkja á skagan.. núna akkurat vantar mér þig til að fara að fíflast með.. er að láta mér leiðast og það er gott verður hérna.. farðu að koma á skagan kjáwna bjáni!!
#6
21. júlí 2006 klukkan 02:24

Skrifa athugasemd

Prófíll