Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//Átta

07. júlí 2006 klukkan 19:05
Tuttugasti og þriðji þáttur af Lost [x]
Flókið helgarplan [x]
Brún [x]
Reykjavík [Eftir vinnu]
Nýr sími [Morgun?]
Akranes [Morgun]
Ítalía - Frakkland [?]

Ekki spyrja mig af hverju ég er að blogga. Því að satt að segja veit ég það ekki. Mig langaði allt í einu að tjá mig eitthvað á þessari bloggsíðu minni.

Það er gjörsamlega ekkert búið að gerast í þessari viku. Ég hef verið að reyna að snúa sólarhringum aðeins við og sleppa því að fara að sofa klukkan fjögur og vakna klukkan tvö. Fór meira að segja að sofa klukkan þrjú í nótt og vaknaði klukkan ellefu og skellti mér í sund með Hörpu. =) Ég held ég hafi aldrei áður verið svona svakalega mygluð í sundi.
Vinnan hefur verið ágæt. Ég pakkaði pulsum í allan gærdag og borðaði líklega of mikið af þeim líka. [Maður verður svangur í þessari vinnu] Svo voru líka nokkur snilldar móment sem ég ætla ekkert að minnast á hér. Já, ég hef líka komist að þeirri niðurstöðu að ég og Jón erum skemmtilegri í persónu heldur en á msn. Staðreynd.

Helgin hjá mér verður furðuleg. Sko, í kvöld eftir vinnu kemur Viddi og sækir mig. Hann skutlar mér til Dórotheu og ég ætla að gista hjá henni í nótt. Planið var að hanga svo bara eitthvað með Dórotheu á morgun en nei, kellingin þarf að vinna frá þrjú til 12 á morgun. =( Þannig að planið breyttist. Ég ætla að tjilla með Dórotheu til þrjú og eftir það ætla ég að reyna að hitta Maríu & Iðunni í Kringlunni eða Smáralindinni. Ég ætla að kaupa mér nýjan síma. Ég er að vona að ég nái að hitta Hafliða, Hafstein & Þór eitthvað smá en ef ekki þá er það alltaf Kotmót. Vá! Langar mig á Kotmót eða já? [Þú þarft ekki að svara þessu] En já, svo ætla ég að taka strætisvagninn upp á Akranes og vera aðeins með fjölskyldunni minni og vinkonum mínum á Skaganum =D Á sunnudaginn er svo blessunin hennar Sunnevu Rutar og líka úrslitaleikur HM. Ég ætla að horfa á Ítali vinna Frakka ;) Þarf reyndar að redda mér aftur á Hvolsvöll en ég næ líklega að plata ömmu og afa á Selfossi til að skutla mér.


Sætust.

Tilgangslausi bloggarinn kveður
//Helga
nærð þú alltaf að hringja í Vidda... hann svarar mér alldrei =/ =(
#1
07. júlí 2006 klukkan 20:37
 
Harpa B
Hæ skvís hafðu það bara sem skemmtilegast.Þótt þetta hafi gerst í gær.en hey ég mjög sammála þér með að u hafir liklega aldreyfarið jafm mygluð í sund þvíþað var hörmung að sjá u. En töff blogg og bara ef þú værir svona hægí............................. þú veist afgangin heheheh :)en sjáumst líklegast hressar og kátar i vinunni á mánudag ættla loksins að drulla mér að vinna aftur EF ég fer ekki i Bæinn(rvk)
#2
09. júlí 2006 klukkan 22:22
blogga kjáwna prik.. gaman að hitta þig um helgina þetta litla sem ég hitti þig!!:D
#3
12. júlí 2006 klukkan 01:03

Skrifa athugasemd

Prófíll