Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

//Sjö

04. júlí 2006 klukkan 06:09
Mánudagur [x]
Júní [x]
Útborgað [x]
Útilega/Skálaferð [x]
Reykjavík [5 dagar]
Nýr sími [Næstu helgi]

Þá er fyrsti vinnudagurinn í þessari vinnuviku búinn. Ég var svo ekki að nenna í vinnuna í morgun þegar ég vaknaði. Ég svaf meira að segja til eitt, ég var svo þreytt. [Hey þetta rímaði] Ég fór samt á fætur og í vinnuna. Reyndar eftir að ég hafði hellt hálfum diski af Cheeriosi yfir mig =) Klaufinn hún ég. Hey, hefurðu einhvern tímann fengið þér undanrennu? Hún er ýkt furðuleg á litinn. Svona eins og það sé vatn blandað saman við mjólkina. Áhugavert.
Það gerðist nákvæmlega ekkert óvenjulegt eða spennandi í vinnunni í dag. Eða jú. Sigga [verkstjórinn] gleymdi lyklunum að mötuneytinu þannig að í pásunni klukkan 10 skreið Óli inn um rifuna sem er þarna og opnaði fyrir okkur svo að við gætum fengið okkur nammi. =] Það var frekar fyndið. Ég vann til tuttugu mínútur yfir ellefu af því að við [Ég, Jón & Lauren] vorum að klippa eina grind af vínarpylsum og byrjuðum á því klukkan fimm mínútur í ellefu. Jón var ekkert smá móðgaður og röflaði eitthvað um vinnusvik eins og alltaf af því að Sigga spurði hann ekki hvort hann vildi vinna lengur. Lúði?

Helgin var fín. Garðar frændi sótti mig á Hvolsvöll og bauð mér upp á pizzu á Hellu áður en hann skutlaði mér á Spóastaði. Ég, Hildur, Dagný, Áslaug, Þórhildur og Þorfinnur fórum svo upp á fjöll á laugardaginn.Við fórum upp í Gíslaskála sem er rétt hjá Kerlingarfjöllum. Ég, Dagný, Hjörtur og Binni vorum svo að missa okkur í Party & co um kvöldið/nóttina. Ég er með eindæmum lélegur leikari og teiknari og vil auglýsa það hér með að ef þú vilt vinna í Pictionary/Actionary, ekki vera með mér í liði =] En já, ég náði nú samt að leika prentara og teikna eitt stykki flugvél sem Dagný hélt fyrst að væri hundur. Við fórum svo að sofa klukkan hálf fjögur og ég vaknaði klukkan hálf 12, síðust af öllum [Allir = Ég, Dagný, Hjörtur & Binni] Við drifum okkur svo niður af þessum fjöllum með smá viðkomu í Kerlingarfjöllum og ég fékk far með Garðari á Hvolsvöllinn í gærkvöldi.

Hey ég talaði við Vidda í gær og hann ætlar að sækja mig á laugardagsmorguninn þannig að ég komist í bæinn =D Ég er glöð. Svo glöð að ég gæti sprungið. En það ætla ég ekki að gera, því að þá kæmist ég ekki í bæinn á laugardaginn. Dah. Ég þarf bara að borga honum fimmtán hundruð kall. <3 Ég ætla að kaupa mér nýjan síma í bænum. Ég var að skoða síma á netinu í gær og ég sá bara tvo sem mér fannst flottir. =/ Ég vona að það séu fleiri flottir símar í búðinni.

Ohh, ég þarf að fara í apótekið á morgun og kaupa mér verkjalyf. Mér er svo illt! Viltu vita hvar? Jæja, í hausnum, hálsinum, öxlunum, bakinu, maganum og augunum. Er ég að verða gömul? Er gömlu fólki ekki alltaf illt allstaðar? Æ, hvað veit ég um það? Ég er ekkert gamalt fólk. =/

Er hætt að röfla.
//Helga
 
Hjörtur
já... þetta var ágætis helgi. Samt gott að vera kominn í menninguna (ef það má kalla það menningu)
#1
04. júlí 2006 klukkan 17:44
 
Harpa B
Hæ æja u ferð altaf á kostum með þessu bloggi þínu hehe:)
#2
05. júlí 2006 klukkan 04:43
kerling...gömul kerling

þér er bara illt því þú kemur af fjöllum
#3
05. júlí 2006 klukkan 17:39
aww...ég drekk alltaf undanrennu finnst hinar eins og rjómi...þú hefur aldrei bloggað svona mikið maður sér bara hvað það er ekkert að gera þarna!...
#4
05. júlí 2006 klukkan 22:12

Skrifa athugasemd

Prófíll