Til hamingju með litlu sistur (ef ég var ekki búinn að segja það).
Gaman að heyra að það sé nóg að gera þarna á Hvolsvelli...
Mátt fara að drífa þig til pabba þíns
//Fimm
25. júní 2006 klukkan 06:35

Þreytt [x]
Ónýtur sími [x]
Helgarfrí [x]
Blönk [x]
Einmanna [Innst inni]
Ánægð [Innst inni]
Nýr Sími [Mánaðarmótin]
Síminn minn er að gefa upp öndina, hann er orðinn stórfurðulegur Líkt og eigandinn. Það koma mjög undarleg hljóð þegar ég er að tala í hann þannig að það hljómar alltaf eins og ég sé úti í roki. Svo er hann nýbyrjaður á því að koma með sms nokkrum tímum eftir að þau eru send. Furðulega tæki. Þannig að ég hef ákveðið að kaupa mér nýjan síma um leið og ég fæ útborgað. Alvöru síma Nokia ekki Sony Ericsson drasl.
Kvöldvaktir eru svakalega þreytandi. Ég er Alltaf þreytt. Ég svaf meira að segja til hálf tvö í á föstudaginn. Fór svo í vinnuna klukkan 3. Mygluð. Veistu, ég er komin með ógeð á kennitölunni minn [Tuttugu og níu Núll Níu Níutíu - Tveir Fjórir Sex Níu] Hey hvernig skrifar maður 90? Nítíu eða níutíu? Ohh bögg, nú verð ég að pæla í þessu að eilífu. Níutíu? Já. Ég þarf nefnilega alltaf að skrá mig inn og svo út. Ég skráði mig óvart inn á föstudaginn þegar ég ætlaði að skrá mig út. Gáfuð. Maður heyrir líka endalaust fyndnar setningar í vinnunni. Kynferðisleg nauðgun. Hún Harpa, sem ég er að vinna með, sagði þetta við mig um daginn. Svo eru margar aðrar setningar sem ég skal reyna að muna að skrifa upp einhvern tíma þegar ég nenni því. Ekki núna.
Hey, ég er froskur. Ég ákvað það í sundi í dag. James bauðst til að mála mig græna en ég afþakkaði það pent. Maður getur alveg verið froskur án þess að vera grænn. Dah. Ég var í tvo tíma í sundi í dag. Rúsína. Ástæðan er einföld. Þegar ég ætlaði upp úr birtust Lýdía og Rakel og þá vildi ég auðvitað ekkert fara. Þær eru nefnilega upp í Koti á Útvarðavikunni og voru nýbúnar að labba þaðan og hingað á Hvolsvöll 11 kílómetra. Það fóru eiginlega allir í sund og ég ætlaði að bíða eftir að Hafliði og Hafsteinn ákveddu að drulla sér ofan í laugina en þeir voru svo lengi að ég fór bara upp úr. Ég var ótrúlega fljót að klæða mig og fór svo aðeins út á bakka til að segja bless við stelpurnar. Þá voru strákarnir bara komnir ofan í pott og höfðu greinilega verið að fara út í þegar við [ég og Harpa] fórum upp úr. Lúðarnir. Þetta var oggu pínu pons vandræðalegt. Samt ekkert mikið. En ég hitti þau öll á morgun þegar ég fer á samkomu upp í Koti þannig að ef þau héldu að þau myndu sleppa við að knúsa mig þá höfðu þau rangt fyrir sér. Múhaha.
Ég og Harpa fórum svo heim til hennar að horfa á The Notebook. Ég er svo yndislega fjölhæf að ég horfði á myndina og var í Snake í símanum hennar Hörpu. Ég hef ekki farið í Snake síðan ég fékk nýja símann minn. Tvö ár. Af hverju er Snake svona ánetjandi? Ég er alveg með fiðring í puttunum mig langar svo í Snake.
Það eru allir að yfirgefa mig. Harpa er að fara í heimreisu á þriðjudaginn Norðurlöndin. og sama dag eru Kristín, Jarek, Jón, Íris og Elísabet að fara til Póllands. Sandra og Radek ætla að flytja inn til mín og 'passa' mig. =) En Iðunn kom heim í gær eða var það í fyrradag? Ég er ömurleg vinkona. Þarf að hringja í hana á morgun eða eitthvað. Og María er að fara að koma. <3 Hún á eftir að hringja í mig strax og fá málæði og segja mér frá Bandaríkjaferðinni sinni á korteri. I [heart] you both very muchly indeed.
Ohh ég komst að því hvað nýja/gamla lagið með Green Day heitir í gær en ég gleymdi því. Ég og Óli vorum að pæla hvað það héti. When I come around? Já ég held það bara.
Slagsmál í vinnunni í gær. =/ Smá uppsöfnuð spenna milli þeirra. Hlaut að koma að því.
Af hverju þarf ég alltaf að tjá mig svona mikið? Ha?
Á ég að lemja þig?
//Helga
//Helga
ég er búin að eiga minn síma allveg jafn lengi (svipað) og þú og minn er í fínu lagi þinnsis hefur bara lent á vondum/ofbeldisfullum eiganda..en ég held ekki að síminn þinn sé það bilaður að þú hafir ekki fengið smsið sem ég sendi þér í fyrir 5 dögum! og þú hefur ekki svarað mér og ég held að þú sért ekki það lengi að skrifa sms!!!..... :'( en ég held að maður skrifi níutíu því þetta er níu sinnum tíu...þetta er ekki ní sinnum tíu maður segir nítíu en skrifar níu tíu...skiluru! :) ég var að heyra að þú værir að koma næstu helgi...þú villt örugglega ekkert hitta hana Sigurrósu :( miðað við að þú svaraðir ekki smsinu frá mér...
#3
28. júní 2006 klukkan 13:03
Harpa! Ég fékk smsið... held ég =/ En ástæðan fyrir því að ég svaraði þér ekki var sú að ég var að drífa mig í vinnuna... Og svo þegar ég kom úr vinnunni var ég bara búin að steingleyma smsinu =/ Fyrirgefðu =(
En já, ég kem um þarnæstu helgi á sunnudeginum... og verð bara á sunnudeginum =)
En já, ég kem um þarnæstu helgi á sunnudeginum... og verð bara á sunnudeginum =)
#4
28. júní 2006 klukkan 17:48


love you and miss you < 3