Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðFimmtíuogSex

27. ágúst 2008 klukkan 22:32
a

Ég verð að viðurkenna það að ég er mjög stolt af því að vera Íslendingur þessa dagana, þá sérstaklega í dag. Ef að þú hefur ekki hugmynd um af hverju þá gæti hugsast að þú hafir búið í kassa undir Kringlunni síðustu daga. En samt ekki, því að þú hefðir eflaust frétt af glæstu afreki strákanna "okkar" [kjánalegt að eigna sér þá þegar maður þekkir þá ekki baun]. Íslenska handboltalandsliðið var að koma "heim" búa þeir ekki flestir erlendis? & þeim var fagnað ákaft. Ég fylgdist nú bara með í sjónvarpinu og fannst þetta allt vera svo yndislegt.
Mér fannst yndislegt þegar þeir hittu fjölskyldur sínar & mér fannst yndislegt þegar þeir voru niðri á Arnarhóli. Svo toppaði það yndislegheitin þegar þeir voru sæmdir fálkaorðunni. Þeir áttu það fyllilega skilið. :]

Fyrst að ég er komin í viðurkenningargírinn þá verð ég líka að viðurkenna fyrir ykkur að ég er smá skotin í einum handboltakappa. Held að mamma mín hafi áttað sig á því áðan þegar ég brosti út af eyrum; það var nefnilega verið að taka viðtal við hann. Haha! Últramegakjánalegt en satt. Það mætti halda að ég væri fjórtán ára skólastelpa með smá crush á einhvern frægan erlendan leikara. En nei, þetta er bara ég. Næstum því átján ára stelpa sem að hefur heillast örlítið af persónutöfrum Loga Geirssonar. Jájá, kemur á óvart eða ekki. [:


a

♥♥♥

a
En ég er farin að borða kanilsnúða
& hnerra.
♥♥♥

ÚBERMEGASTOLTAÐVERAÍSLENDINGUR... SNILLD!!! og ég skil þetta með Loga!!!
#1
27. ágúst 2008 klukkan 23:35
hahaha ég frétti af öllum hátíðarhöldunum í kringum þennan glæsilega árangur þeirra.. mér fannst þetta nú alveg ekta íslenskt! Gera sem mest úr þessi þar sem við höfum hvort hetjur úr hernum eða neitt þannig svo við gefum handboltafólkinu fálkaorðuna! Jessörí =)
Annars þá hafa svíar ekki minnst á þennan glæsilega árangur okkar... mjög fyndið. Greinilega ótrúlega bitrir út í okkur fyrir að hafa hent þeim út úr ólympíuleikunum ;)
#2
28. ágúst 2008 klukkan 20:12
jamm er hann ekki á lausu??? sppurning með að gera eitthvað...hahahaahhahah..þú áttir ekki von á þessu frá mér. þú ert krút í bala og ég elska þig
mamman
#3
29. ágúst 2008 klukkan 12:27
Helga Hrund sigurðardóttirLogi er svo ótrúlega sætur drengur og ég skil þig alveg fullkomlega =D
#4
29. ágúst 2008 klukkan 14:50
smá pæling með það hvað það væri spes ef hann færi að Gúggla sig og fengi þetta upp... og færi að lesa það... hehe... heilinn minn er skrítinn...
#5
29. ágúst 2008 klukkan 17:38
 
Rakel
Ég hef misst allt álit á þér Helga KOMMON. Hver sem er.... annar en Logi Geirsson.
ég er mjög svekkt.....mjög svekkt
#6
30. ágúst 2008 klukkan 03:26

Skrifa athugasemd

Prófíll