Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundrađFimmtíuogFimm

25. ágúst 2008 klukkan 21:24
a   Trallalla

Eftir mjög óformlega könnun þá hef ég komist að því að einhverjir lesa þetta blogg & á meðan ég hef ennþá mikla tjáningarþörf og fólk hefur áhuga á að lesa það sem ég tjái mig um þá býst ég við að ég kallist bloggari. Eða eitthvað svoleiðis.

Anywho, þá fór ég á The Dark Knight með Hugrúnu um daginn, loksins loksins loksins. Og ég get fullvissað ykkur um það að ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Stórgóð mynd enda frábærir leikarar og leikstjóri. Ef ég væri þú þá myndi ég tjékka á mynd sem heitir The Prestige & einnig á Batman Begins ef þú hefur ekki þegar séð þær. Ég fylgi að sjálfsögðu fjöldanum & fílaði jókerinn í tætlur. Mér fannst hann líka endalaust fyndinn; hló á M J Ö G óviðeigandi stöðum & svo á fleiri viðeigandi stöðum. Ég fór líka í afmæli til Hafsteins & Hafliða um daginn. Alltaf gaman að hitta fullt fullt af fólki. Sautjánda ágúst fór ég í eitt stykki brúðkaup. Það voru Sunna&Hjalti sem að ákváðu að verða hjón. Mjög falleg hjón. Það falleg hjón að ég fékk tár í augun í brúðkaupinu. [=

Nýliðin helgi var mjög fín. Byrjaði á því að fara í átján ára afmæli til Birnu frænku á föstudagskvöldinu. Helíum & fleira skemmtilegt! Á laugardaginn fór svo austur til pabba & skundaðist með hele familien á eitt stykki landbúnaðarsýningu. Já þú last rétt. Landbúnaðarsýningu. Pabbi minn er svo mikill bóndi sjáðu til. Við vorum þar alveg til sex, fórum svo heim að borða & komum svo aftur á kvöldvökuna. Kvöldvakan var mikið stuð eða alla vega voru Veðurguðirnir það. Rosalega gaman að syngja & dansa. Ég komst líka að því að tveir úr hljómsveitinni voru með mér í grunnskóla! Ég hafði ekki grænan Guðmund um það. Kvöldið endaði svo á niðudrepandi Árna Johnsen & frábærri flugeldasýningu! Menningarnótt hvað?
Sunnudagurinn var svo tekinn Ólympíulega snemma. Horfði á einhverja mynd & borðaði pönnukökur hjá ömmu. Yndisleg helgi. (=

Þessa dagana er ég bara mjög spennt yfir næsta vetri. Ég fór á fund á fimmtudaginn varðandi unglingastarfið & það er margt spennandi að fara að gerast. Alla vega hjá mér. Og svo veit ég að Guð ætlar að gera stórkostlega hluti. Skólinn byrjar á föstudaginn í næstu viku 5.september og ég hætti að vinna á þriðjudaginn. Ég ætla að vera eins lengi og ég get heima þannig að Eydís! Þú verður að passa rúmið mitt vandlega!

Hey! Ég gleymdi næstum því að minnast á hvað handbolti er últramegakúl þessa dagana. Silfur fosho. [=
a


Til ykkar
♥♥♥♥♥♥♥♥♥
HANDBOLTI!! YAY!!!
Ég er stoltur 18 ára Íslendingur!!!
#1
25. ágúst 2008 klukkan 22:53
 
Oktavía
Ég las!
hahaxD

Hlakka til endurkomunar í bæinn
#2
27. ágúst 2008 klukkan 10:50
 
ţóR
Böööööggg breyttu
ÉG heiti þór!

Ég er sko í vinnuni og nafn yfirmanns míns er ekki töff
#3
27. ágúst 2008 klukkan 10:51
The Prestige og Batman Begins eru klárlega í uppáhaldi hjá þessari dömu hér =) Svo er Dark Knight ææði!
Annars segi ég bara AMEN. Þetta verður góður vetur... þótt ég sakna ykkar allra ótrúlega og langi geðveikt í nokkur knús þá verður þetta ógeðslega gaman og við eigum eftir að vaxa svo mikið í Guði Helga :) Megafjör!!!
#4
28. ágúst 2008 klukkan 20:16

Skrifa athugasemd

Prófíll