Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundrađFimmtíuogŢrjú

11. ágúst 2008 klukkan 21:59
Afríkus


Það er alltaf jafn skemmtilegt að lesa gömul blogg. Það er líka mjög hvetjandi að lesa gömul blogg því að nú langar mig til að blogga meira svo að ég geti líka lesið þetta blogg eftir tvö ár & skemmt mér konunglega yfir því hvað ég var [eða er] mikill kjáni. Fyrst af öllu vil ég tilkynna ykkur öllum að hlusta á hljómsveit sem heitir Leeland.     www.myspace.com/leelandmusic   Það besta við Mæspeis er að maður getur fundið endalaust af hljómsveitum þar & best er þegar maður dettur inn á hljómsveit sem að maður fílar í botn. Toppurinn á Leeland-tilverunni minni var þegar ég rakst á disk með þeim á Kotmóti; ég keypti hann að sjálfsögðu og hef nú lifað hamingjusamlega í viku með Leeland í eyrunum.

Kotmót, Kotmót, Kotmót. Ég veit ekki alveg hvað er hægt að segja um Kotmót. Það var allt svo friðsælt einhvern veginn. Engar dramatískar sveiflur, hvorki upp né niður, heldur bara róleg vellíðan alltígegnum mótið. & miðað við síðasta Kotmót þá er það bara mjög gott.  Ég get vitnað um það hér & nú að síðustu nokkrar vikur í lífi mínu hafa verið mjög friðsælar. Þessi yndislegi himneski friður sem bara Jesús getur gefið manni. Mér finnst mjög mikilvægt að fá að upplifa þennan frið af því að fyrir ári þá var allt í ruglinu hjá mér. Fullt af breytingum sem að gerðu það að verkum að ég var mjög óróleg og stressuð. En núna nýt ég þess bara að vita ekki alveg hvað er að fara að gerast því að ég veit að líf mitt er í bestu höndunum, höndum Guðs.

Ég var voða dugleg um daginn & var heillengi [alltoflengi] ein heima með afa á meðan fjölskyldan skrapp í frí. Átti reyndar í smá erfiðleikum með að vakna á réttum tíma en eftir að hafa sofið yfir mig einn laugardaginn [þegar ég mæti 10 en ekki 8] þá ákvað ég að vera smá skynsöm & fara almennt séð fyrr að sofa. Til að vera algjörlega örugg um að vakna læt ég bæði símann minn & vekjaraklukku hringja á morgnana & ég skal sko segja þér að ég vakna!

Elskan mín hún Hugrún bauð mér í mat um daginn & það var yndislegt kvöld. Við höfðum ekki hist í meira en ár en það var bara eins og við hefðum hist daginn áður. Dásamlegt! Við töluðum svo rosalega mikið saman að við höfðum varla tíma til að borða dýrindis steikina hennar Hugrúnar sem hún brenndi bara smá! Við ætlum að endurtaka þessa frábæru samverustund á fimmtudaginn & skella okkur á The Dark Knight í kvikmyndahús. Já ég veit, ég er leim - ekki búin að sjá Heath Ledger í sínu besta hlutverki.

Flott flott, farin að horfa á The Evidence
& vera leim með foreldrum mínum.
Gaman að blogg!!
#1
12. ágúst 2008 klukkan 10:51

Skrifa athugasemd

Prófíll