//EitthundrađFimmtíuogTvö
17. júlí 2008 klukkan 20:43
"Ertu á lausu vinan?"
Stundum þegar ég er í vinnunni & einhver viðskiptavinur spyr mig að þessu þá langar mig til að koma með rosalega heimskuleg svör. Það fyrsta og mest augljósasta er að spyrja fólkið á móti hvað hjúskaparstaða mín komi þeim við. Hin svörin eru mismunandi & misbitur eftir því hvaða dagur er hjá mér, hvort ég er súperglöð og hjálpsöm út í ystu æsar eða hvort að ég sé ömurlega þreytt og pirrípú.
Ég sá samt kímnina í þessu áðan þegar einhver kona spurði Gunnar að þessu: "Ertu á lausu vinur?". Ég forðaði mér mjög hratt burt frá atvikinu & brosti eins og kisinn í Lísu í Undralandi. Þú veist, þessi fjólublái ósýnilegi sem að er alls staðar & svo verður alltaf brosið eftir.
Í morgun vaknaði ég á mjög óheppilegum tíma. Augun opnuðust á slaginu átta, verst samt að á því augnabliki átti ég að vera að mæta í vinnuna. Segjum bara að ég hafi verið mjög fljót að koma mér í fötin, út í bíl og í vinnuna. Takktakktakk.

& núna ætla ég að fara að horfa á frábæran þátt.

The It Crowd;
Moss er bestur.
Moss er bestur.