//Fjögur
20. júní 2006 klukkan 20:44
Sjá Sunnevu Rut [x]
Veik [x]
Feeling [Weird]
Helgin [?]
Vá. Ég á mér ekki líf í augnablikinu. Kvöldvaktir eru ekkert líf. Vinna klukkan 3. Koma heim klukkan 11. Tölvan. Sofa. Vakna klukkan 12. Borða. Vinna. Stuð. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það er ekki sniðugt að vera að vinna með tveimur gaurum sem eru alltaf að bögga mann. Nei, ekkert sérstaklega.
Ég fór á Ný Kynslóð mót um helgina. Alla leið upp í koti. Dórothea hringdi og sagði mér það að hún væri að koma að sækja mig þannig að ég dreif mig og pakkaði niður á korteri. Dórothea kom svo með Viktori og bílferðin upp í kot var mjög skrautleg. Segjum það bara. Mótið var svo mjög skemmtilegt og ég komst að því að vinir mínir eru tölvunördar dauðans. Vissi það nú samt áður. Ég fór í sund á Hellu af því að sundlaugin á Hvolsvelli var lokuð Afhverju? og var vakin með vatnsbyssu. Það gerðist auðvitað mikið meira en ég er ekki að nenna að skrifa það allt hér. Sem sé helgin var fín.
Á sunnudaginn fékk ég far með Vidda á Selfoss. Ímyndið ykkur bara að vera í bíl með þremur strákum [Hafliði og Þór] og Eminem í botni. Það er tjah, áhugavert. Fótboltanördinn hún ég sofnaði yfir Brasilía - Ástralía þegar ég var að bíða eftir mömmu og Hjalta. Fékk svo loksins að hitta hana Sunnevu Rut og hélt á henni endalaust enda veit ég ekkert hvenær ég get hitt hana aftur.
Fjölskyldan skutlaði mér svo á Hvolsvöllinn í gær og ég fór að vinna klukkan 3. Erum við að tala um að það hafi verið frekar mikið bögg og diss í gangi? En ég var alla vega ekki heilaþvegin Fm 957 þar sem útvarpið var ekki í gangi. Ég var líka frekar hress þegar vinnan var búin Of hress. En við þurfum ekkert að tala um það.
Og í dag er ég barasta veik. Ekkert meira með það. Maginn bara í einhverri klessu Nokkrar ástæður fyrir því. og ég ákvað því að vera heima. Það er ekkert vit að fara að vinna í SS þegar maður er með flensu í maganum. Segir maður flensu í maganum? Æ, skiptir engu ég er byrjuð að bulla. Núna er ég bara í tölvunni að dunda mér við að blogga og tala við vini mína á msn. Ég er líka að hlusta á Lord Of The Rings, Return Of The King þar sem Jón sem er líka veikur er að horfa á hana.
Ég ætla vera óendanlega löt um helgina og vera á Hvolsvelli. Ég nenni ekki upp á Akranes og ekki heldur til pabba. Ég nenni mest í bæinn en ég nenni því samt alls ekki. Fattaru? Þannig að ég ætla að vera mína fyrstu helgi á Hvolsvelli. Það er örugglega ekkert að gerast hérna en það er allt í lagi, ég fer bara í sund og verð brún. Ætla líka að kíkja upp í Kot á hana Dórotheu mína sem er búin að lofa að knúsa mig.
Þú fílar 'etta
//Helga
//Helga
hæ sæta mín.. láttu þér batna.. ég er að hugsa um að fara að kíkja á hana Sunnevu Rut bráðum þó að þú ert á hvolsvelli.. langar að sjá hana.. en sakkna þín ógisslega mikið og verður að fara að koma a skagan sæta!!!
#2
21. júní 2006 klukkan 03:58
Þór
frábært Blogg. Til hamingju með nýja fjölskyldumeðlimin og haldu blogginu áfram
#3
21. júní 2006 klukkan 04:35
Þór
hey ætla að bæta við:
Takk fyrir Góða helgi og ég veit að þú varst alveg að fíla heimferðina. en við sjáumst allavega á næstunni og ég hlakka bara til :)
Takk fyrir Góða helgi og ég veit að þú varst alveg að fíla heimferðina. en við sjáumst allavega á næstunni og ég hlakka bara til :)
#4
22. júní 2006 klukkan 04:25
hæ baun!...litill fugl hvíslaði því að mér að þú ætlir að koma á skagan næstu helgi!!...ekki láta Hörpu vita henni er allveg sama:/...en ég veit samt að þú hefðir gert það...eithverntíman láttu þér batna(ef þú ert ennþá veik) já ég er allveg sammála Sunnevu mér langar svo að hitta Sunnevu hehehe :)
#5
23. júní 2006 klukkan 23:14
æjjj heitir litla systir þín sunneva rut æjjj krúttttttttíííííííí;D
en já endilega farðu að kikja á skagann við þurfum að spjalla um eitt sem ég ætla ekki að fara að segja frá hérna ;D
en sé þig sæda;*;*;*
en já endilega farðu að kikja á skagann við þurfum að spjalla um eitt sem ég ætla ekki að fara að segja frá hérna ;D
en sé þig sæda;*;*;*
#6
25. júní 2006 klukkan 04:10


kv. Áslaug og arndís næstum því frænka;)