Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðFjörtíuogFjögur

29. maí 2008 klukkan 19:21
a


"Er þetta strákur eða stelpa?"

Þessi spurning hljómaði á vinnustað mínum í dag. Fyrirbærið sem spurt var um var einmitt ég. Ég leit upp & fullvissaði manninn um að ég væri stelpa, hann sagðist sjá það núna þar sem ég liti upp. Það er ágætt. Það er alveg nóg að einhver haldi að maður sé strákur þegar maður horfir niður, ég ætla rétt að vona að ég líti út eins og stelpan sem ég er þegar ég lít upp. Ég ætla að kenna öllum síðhærðu strákunum um. Ef að það væri ekki orðið svona algengt að strákar væru með sítt hár þá hefði maðurinn pottþétt ekki haldið að ég væri strákur.

Annars er vinnan voða ljúf. Vinnufélagarnir eru skemmtilegir & vinnan sjálf mjög góð. Ég er bara á því að þetta verði fínt sumar, vinnulega séð.  Svo er víst planið að vera voða dugleg í öllu öðru. Ég ætla að reyna að fara í ræktina með mömmu & svo ætla ég bara að njóta lífsins. Tvö brúðkaup eru á planinu, annað í júní & hitt í ágúst. Pabbi minn er að fara til Noregs á morgun með allt sitt hafurtask og þar sem að ég fer ekki með þá ákvað ég bara að hirða bílinn. Verð sem sé með eitt stykki bíl í tíu daga. Vííí.

Jarðskjálftar eru að sjálfsögðu mikið umræðuefni núna. Ég var nú bara að rölta inn á baðherbergi í vinnunni minni, í gegnum lagnadeildina, þegar allt byrjaði að hristast. Fyrsta sem mér datt í hug var eiginlega bara að það væri stór trukkur að keyra fram hjá Húsasmiðjunni. En svo sagði einhver að þetta væri jarðskjálfti & um leið og seinni skjálftinn kom kallaði einhver að við ættum öll að fara út þannig að við hlupum út. Það er rosalegt að skjálfti frá Selfossi hafi fundist hér svona sterkur & alla leið til Ísafjarðar, heyrði ég.
Jarðskjálftar virðast vera í tísku þessa dagana, hvert eru þessir flekar eiginlega að fara ?
 
Harpa Berg
hehe strákur eða stelpa?? stelpa alveg pottþétt en ég þurfti ekki að hlaupa út lá sofandi uppí rúmi óþægileg tilfinning að vakna við skjálftan þer sem er hrædd við þetta náttúrufyribæri:S:S en hvað er annars aað frétta??
#1
29. maí 2008 klukkan 20:04
hehe... strákur eða stelpa!!;P
já... jarðskjálftar ekkert smá skrítið... ég var einmitt að hugsa um það hvað það væri búið að vera mikið af náttúruhamförum um allan heim á stuttum tíma (creepy)!
#2
29. maí 2008 klukkan 21:54
hey, ég fann engan eftirskjálfta hérna í mosó!
#3
30. maí 2008 klukkan 11:39

Skrifa athugasemd

Prófíll