25. apríl 2008 klukkan 14:40

Gleðilegt sumar!
Vá, hvað ég hef eitthvað takmarkað að segja þessa dagana. Ætla bara að láta ykkur vita að ég er ennþá á lífi. Og jú bara að segja örlítið frá því sem ég er búin að vera að gera.
Örlítið.
- Það var sem sé hópur frá Masters Commission í Dallas í heimsókn hjá okkur og þau voru að hjálpa okkur með ráðstefnuna.
- Við héldum ráðstefnu fyrir Masters Commission í Evrópu [MCE] dagana 9. - 11. apríl & það var alveg heilmikil vinna. Kynntist samt fullt af frábæru fólki & það var yndislegt að vita af því að það er fólk út um alla Evrópu að gera svipaða hluti og við erum að gera hér í skólanum.
- Þegar ráðstefnan var búin og hópurinn frá Dallas farinn kom norski MC hópurinn og var með okkur í nokkra daga áður en við fórum saman í trúboðsferð til Akureyrar
- Íslenski og norski Biblíuskólinn fóru sem sé saman í trúboðsferð. Fórum á miðvikudaginn og stoppuðum á Skagaströnd á leiðinni. Á Akureyri gerðum við síðan heilmikið.
- Við fórum til dæmis í sund tvisvar og urðum brún. Fórum líka í algjöra túristaferð með norska hópinn til Mývatns og skelltum okkur í einhver jarðböð þar.
- Annars vorum við með Biblíulestur, opið hús í kirkjunni, tvenna tónleika [aðra niðrí miðbæ] & svo tókum við þátt í sunnudagssamkomunni, auk þess að fara í skóla til að bjóða fólki á opna húsið.
Og núna er smá rólegur tími. Skelltum okkur í bænagöngu í tilefni sumardagsins fyrsta í gær og fórum svo í risagrill heima hjá Óla Z.
Mánuður í útskrift.
Séykkur
Helga Þórarinsdóttir
verð í sambandi þegar ég kem heim!!!