hahaha þetta er eins og þegar ég hljóp á Birgi Stein! Þá skekktust gleraugun gjörsamlega kreisý!
En gott að heyra að þú reddaðir þessu ;)
sjáumst örugglega á einhverri samkomu nuna í vikunni ;)
*knús*
//EitthundraðÞrjátíuogSjö
04. apríl 2008 klukkan 12:36
Hæhó
Þið ykkar sem gangið með gleraugu kannist eflaust við það vandamál þegar þau verða skítug. Eins eiga þau til að skekkjast og bogna. Einu sinni fyrir langalöngu í janúar lagðist ungur drengur ofan á mig og gleraugun mín fóru algjörlega í rugl. Eftir það voru blessuð Diesel gleraugun mín alltaf að renna af nefinu mínu með þeim afleiðingum að ég þurfti sífellt að vera að ýta þeim upp aftur. [og minnti óheyrilega mikið á Hiro nokkurn Nakamura, fyrir utan það að ég er ekki Japani] En í gær breyttist þetta allt. Ég & Gísli vorum í vinnunni okkar góðu og ákváðum að rölta í gleraugnabúð í Smáralindinni. Þar létum við rétta og strekkja gleraugun okkar og einnig voru þau þrifin. Allt ókeypis. Ókeypis dekur fyrir gleraugun mín. Og viti menn! Ég sé aftur! Það er ekki lengur klessa á öllu því sem ég sé, ég var farin að halda að heimurinn væri bara svona klesstur. Þetta var í gær en núna eru þau á góðri leið með að verða skítug aftur. Þetta var mjög skammvinn gleði.
Annars erum við bara núna að klára kennslu hjá David Pawson, hann er að klára að kenna okkur um Opinberunarbókina. Mjög áhugavert & fær mann virkilega til að hugsa um það hvað maður sé að gera. Og ekki bara það heldur hvernig ég er að gera það sem ég er að gera. Af því að ég er kristin þá skiptir það alveg jafn miklu máli hvernig ég geri vinnuna mína & hvernig ég geri það sem ég er að gera í kirkjuna. Guð kallar ekkert alla til að gera einhver 'sérstök kristileg störf' heldur vill hann að maður sé 'Kristilegur' í því sem maður gerir.
Áðan kom tíu manna hópur frá Dallas, Texas til okkar. Þau munu gista hjá okkur um helgina, fimm stelpur í viðbót inn í herbergið til mín & Eydísar. Úffpúff. Ég held reyndar að þetta verði bara gaman. Þau verða með okkur á ráðstefnunni sem er í næstu viku. Næstu vikur verða frekar busy & skemmtilegar & eiga örugglega eftir að fljúga hjá. Og svo alltíeinu verður kominn 25.maí & það kemur sumarfrí!

Vííí
Ef ég væri gleraugu...
Þá myndi ég sko vilja fá svona dekur, þakka þér fyrir
Gleraugun þín eiga greinilega besta gleraugnaberara í heimigeimi!
Þá myndi ég sko vilja fá svona dekur, þakka þér fyrir
Gleraugun þín eiga greinilega besta gleraugnaberara í heimigeimi!
#3
08. apríl 2008 klukkan 13:52
ó Helga Helga Helga!
Handbolti og gleraugu fara ekki vel saman, einnig hefur verið stigið á þau nokkrum sinnum, ég misst þau í gólfið svona... vá oft. Abbabb!
Gleraugnapúss er fínasta stúss
margan manninn gleður.
Þótt það komi í spreybrúsum,
þá veldur það ekki lúsum.
nýtt blogg á minni síðu btw

#4
09. apríl 2008 klukkan 18:24

brjálað að gera, hljómar spennandi og að þurfa að deila táfýlu með fimm - sex stelpum...æðislegt fyrir ykkur. ég hlakka sérstaklega til sumarfrísins þíns þú kemur heim til mömmu vveeeiiiii..
elska þig
mamman