Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundraðÞrjátíuogFimm

27. mars 2008 klukkan 22:53

a
Sama og þegið!

Ókei, ég veit ekki hvort að það er bara ég en þegar þetta er sagt við mig þá þarf ég að hugsa mig tvisvar um. Er manneskjan að segja já eða nei? Ókei, ég veit að þetta þýðir að manneskjan er að segja nei en mér finnst einhvern veginn þetta meika meira sense sem já. Þú veist, manneskjan er að segja sama og þegið, sem sé að hún sé að gera það sama og að þyggja það. Og það þýðir já! Ohh, ég fíla ekki svona íslensku sem meikar ekkert sense inn í hausnum á mér. Pleugh.

Ástæðan fyrir því að ég er að röfla um íslensk máltæki eða hvað sem hægt er að kalla það er sú að þegar ég er að vinna í úthringingum þá lendir maður oft í svona. Það er líka nokkuð pirrandi fólk sem að talar alveg súperdúper lágt þannig að það liggur við að ég þurfi að troða símanum inn í eyrað á mér. Jæja, svo ekki sé minnst á fólkið sem að er voðalega elskulegt í símanum og kallar mig vinan, elskan eða hvaða orð sem það dettur í hug. Eeen svo lengi sem að þetta fólk segir já við mig og leyfir mér að skrifa niður nokkrar upplýsingar um það niðrá blað þá er ég sátt. Þá fæ ég pening. Vííí

Annars er lífið nokkuð ljúft núna. Fyrir utan kannski hvað tærnar á mér eru ógeðslegar þessa dagana. Fæturnir á mér eru allir í ruglinu eftir að ég kom frá Afríku, loftslagsbreyting og eitthvað kjaftæði. Ekki svo kúl, ég líkist helst skorpnum hobbita. Svo er líka alveg brjálæðislega mikið að gera í þessum skóla sem ég er í. Tveir mánuðir eftir og núna á laugardaginn er opið hús hjá okkur í Völvufellinu. Frá klukkan eitt til fjögur. Allir að koma og hitta okkur !

Adidas.
1. alveg sammála með þetta "sama og þegið" stuff!!
2. AAAAAUUUUMINGJA HELGU TÁSUR!!!!
#1
28. mars 2008 klukkan 09:20
eg sakna Helgu!
pant koma að hitta þig á laugardaginn
#2
28. mars 2008 klukkan 10:07
Tanja Rós Ívarsdóttirjeij :) greyjið tásurnar þínar
en já ég vildi að ég gæti komið á laugardaginn en ég er að fara vinna frá 9-17 þannig ég kemst ekki :( ég hitti þig bara seinna :)
síjú
#3
28. mars 2008 klukkan 11:08
hey það er læk tótaly nýtt blogg á monalith..
just tú let jú nó
oh, end bæ ðe vei
starwarsRúles
ég á 500 kall
#4
31. mars 2008 klukkan 08:36

Skrifa athugasemd

Prófíll