Ađalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

//EitthundrađŢrjátíuogFjögur

23. mars 2008 klukkan 15:47
aa

Heyjó!

Gleðilega páska og allt það. Núna er ég búin að vera heima í eina og hálfa viku en það gæti þess vegna verið mánuður síðan ég var í Burkina Faso. Vá, stundum þoli ég ekki hvað tíminn er afstæður. En já við sem sé komum heim á miðvikudeginum, vorum í fríi á fimmtudeginum og svo á föstudeginum fórum við í fangelsi... Reyndar fórum við bara með páskaegg í fjögur Fangelsi [Skólavörðustíg, Kvennafangelsið, Litla-Hraun & Sogn], sungum nokkur lög og vorum með vitnisburði. Á laugardeginum var allsherjar tiltektardagur & var Völvufellið tekið í gegn. Það er óhugnalega heimilslegt & hreint í Völvufellinu þessa dagana.

Eftir samkomuna á sunnudeginum kom páskafríið. Og eins og venjulega þá sef ég mjög undarlega í fríum. Ég þarf að fara að læra að fara bara að sofa þegar ég er þreytt. Það væri nokkuð kúl. Ég, Kata, Þór, Hafsteinn & Sahara Rós fórum eitthvað að rúnta og vorum ekki alveg viss um hvað við ætluðum að gera. Þar af leiðandi enduðum við á því að elta einn BMW út um allt eða þangað til að hann beygði inn í litla íbúðargötu, slökkti á ljósunum & kom svo keyrandi hægt á móti okkur, greinilega að gá hvort við værum að elta hann. Við skömmuðumst okkar í eitt augnabik & ákváðum síðan að ryðjast inn til Arons þar sem að við sáum kveikt ljós í glugganum hjá honum. Við vorum þar í góðu tjilli þangað til að Sahara Rós þurfti að fara heim. Ég & Katrínfríður tókum völdin af strákunum þannig að ég fékk að keyra bílinn hans Þórs & Kata vermdi framsætið. Við skelltum okkur í Árbæinn & náðum í Þorljót, nei ég meina Dodda, og svo tók við mjög tilgangslaus bíltúr þar sem strákarnir þrír sungu dásamlega afturí. (= Eftir að hafa keyrt í Garðabæinn fattaðist að við máttum fara til Kötu þannig að við keyrðum í Mosó þar sem við horfðum á Dark Water. Ég, Katrínfríður, Þorljótur, Stunglabba & Þórshamarinn skemmtum okkur ágætlega.

Ég og Rakel fórum niðrí bæ á þriðjudaginn og mér tókst að taka strætó heim vitlausu megin sem að orsakaði það að ég sat í klukkutíma í strætó númer tólf. Ekki kúl. Á miðvikudeginum fór ég síðan heim á Akranesið. Skellti mér í eina fermingarveislu á Skírdag en annars var þetta bara tjill. Á föstudaginn langa var síðan skipt um aðsetur og ég fór til pabba. Byrjaði á því að fara í afmælisveislu til afa og það var mjög gaman að hitta ættingja sem maður hittir ekki það oft.
,,Neeei, er þetta hún Helga? Ég ætlaði ekki að þekkja þig; þú ert orðin svo stór."
Lýsir samskiptum mínum við ættingjana það kvöld.

Þetta Páskafrí er búið að vera mjööög mikið tjill & ég viðurkenni að ég er eiginlega ekki búin að gera neitt. Og það er bara gott. Þetta blogg er líka mjög tjillað þar sem ég nenni því varla.

Hann er upprisinn!
=]
 
Rakel
Haha æi greyið varstu í klukkutíma í strætónum, úff úff
#1
25. mars 2008 klukkan 13:08
NÝTT BLOGG!!! (og það er meira að segja ekki stutt!!)
#2
25. mars 2008 klukkan 16:40
 
ţóR
Eltingaleikurinn var svo töff þangað til hann varð missheppnaður

Hann drukknaði feitt í agló-i



Þetta var samt mjööög gaman!
#3
26. mars 2008 klukkan 11:10
Tanja Rós Ívarsdóttirhaha ég heyrđi um eltingarleikinn :) ótrúlega töff :D
og strćtó vitlausu megin eru heavy óţolandi ;)
*knús*
#4
27. mars 2008 klukkan 22:05

Skrifa athugasemd

Prófíll