//EitthundraðÞrjátíuogEitt
25. febrúar 2008 klukkan 14:22

Home Sweet Home
Þegar maður er farinn að fara inn á sína eigin bloggsíðu og hneykslast yfir bloggleysi þá held ég að það kalli mjög hátt á blogg. Í augnablikinu sit ég við eldhúsborðið heima hjá mér og er að horfa á móður mína mata dagmömmustrákana sína tvo. Mér finnst mjög sérstakt að vakna heima hjá mér núna [eða þessa fáu daga sem ég hef vaknað hér síðan í haust]. Sunneva litla systir mín vekur mig oftast með því að kalla á mig og þegar ég opna augun þá eru fullt af einhverjum börnum að horfa á mig sem ég hef aldrei séð áður. Svona er það að eiga dagmömmu sem mömmu.
En ég ætti kannski að segja ykkur eitthvað hvað ég er búin að vera að gera í bloggleysinu? Fyrir tveimur vikum hittumst við næstum öll heima hjá Lilju og gerðum okkur glatt kvöld, borðuðum saman og spiluðum Fimbulfamb auk þess að fíflast mikið. Ég prédikaði líka einn sunnudaginn upp á Akranesi. Fyrir viku voru dásamlegir styrktartónleikar og gengu þeir mjög vel, miklu betur en við þorðum nokkurn tímann að vona. Svo erum við bara búin að vera að læra & vera töff eins og venjulega í Biblíuskólanum.
Núna um helgina fórum við til Akureyrar með unglingastarfinu. Áætlaður aksturstími var tæplega sex tímar en ég held að ferðin hafi tekið um 7 tíma. Endalaus stopp hér og þar. Þegar við komum á staðinn var haldin mögnuð miðnætursamkoma og svo var farið að sofa klukkan tvö. Eða þannig ; ég var ekki sofnuð fyrr en um 3 & ég er víst orðin ein af þeim eldri sem að fer fyrr að sofa. Laugardagurinn byrjaði á lofgjörðar- og bænastund og eftir kvöldmat var haldið í sund. Sumir fóru reyndar fyrst í klifur en ég fór bara í sund og svo rölti ég með Lilju, Eydísi og Gísla niðrí bæ. Ég & Lilja duttum niður á dúndurútsölu á skóm & keyptum okkur hvor sitt parið af Converse skóm (= Eftir risa pizzuveisla var samkoma. Það sem að ég heyrði af henni hljómaði eins og þetta væri æðisleg samkoma en ég lá bara uppi í svefnpokanum mínum með hausverk og eitthvað rugl.
Í gær var bara byrjað á því að taka til & svo vorum við með söfnuðinum á Akureyri á þeirra samkomu. Rútuferðin heim gekk svo mjög hratt miðað fyrri ferðina. Þangað til að við komum í Borgarnes. Þannig var mál með vexti að rútan varð eldsneytislaus, en bílstjórinn rétt náði að beygja inn á Atlantsolíuplanið rétt fyrir utan Borgarnes. Og þar stoppaði rútan, fimm metrum frá dælunni. Og þá fóru bara allir út að ýta! Ýttum rútunni að dælunni en viti menn; á dælunni stóðu vingjarnleg skilaboð ,,Dæla óvirk" Þannig að við fórum aftur út & ýttum henni að næstu dælu. Þegar olían var loksins komin á rútuna þá fór hún ekki í gang. En á endanum fór hún í gang og við komumst heil á húfi heim. Eða alla vega ég, mér var hent út við göngin þar sem að Hjalti kom og náði í mig.
Og núna er ég bara heima hjá mér. Ég fór í dag og sótti um vinnu í Húsasmiðjunni og fékk vinnuna á staðnum. Þannig að í sumar verð ég í rauðri skyrtu og afgreiði skrúfur. Já takk fyrir takk. Ykkur er öllum boðið í heimsókn til mín í sumar & í heita pottinn.
En núna eru einungis fjórir dagar þangað til að ég fer til Parísar.

Skórnir mínir! <3

Au Revoir
[eða eitthvað svoleiðis
]
[eða eitthvað svoleiðis
Rakel
Skemmtilegt að vakna við starandi forvitin augu :) og ef það skyldi gerast að ég sjái þig ekkert í vikuni þá GÓÐA FERÐ ;)
#1
25. febrúar 2008 klukkan 18:41
Rakel
Gleymdi að segja að skórnir eru mjög flottir
#2
25. febrúar 2008 klukkan 18:42
hehe gott að heyra að þú hefur það fínt :)það verður skrítið að hitta þig ekki næstu vikur =/
en töff skór og ég elska þig rosalega mikið!
góða ferð ef ég hitti þig ekkert :) *knús*
#3
26. febrúar 2008 klukkan 13:35
ég er allveg klárlega til í að koma að heimsækja þig í Húsasmiðjunni! =) æjii.. ég vona að það gengur vel í Afríku.. =)
Elskar þig og Guð blessi þig =)
Elskar þig og Guð blessi þig =)
#4
28. febrúar 2008 klukkan 13:12